Þjóðviljinn - 01.11.1945, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 01.11.1945, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 1. nóv; 1945. ÞJÖÐVILJÍNN Sósíalistaflokkurinn er stærsti flokkurinn á Siglufirði og fylgi hans stöðugt vaxandi Breiðfylkingarmenn hafa misst trúna á hinn illa málstað sinn og hinn pólitíska dóm í kaupfélagsmálinu Ásgrímur Albertsson ritstjóri Mjölnis á Siglu- firði var staddur hér í bænum um daginn og not- aði Þjóðviljinn tækifærið til að spyrja hann frétta að norðan. Siglufjörður hefur á margan hátt verið mjög umtalaður, en þar hafa borgaraflokkarnir undir forustu Framsóknar beitt sér mjög hatramlega gegn Sósíalistaflokknum, og sem frægast er orðið af kaupfélagsmálinu svokallaða, en dómur setu- dómara Finns í því máli er þar nú almennt talinn pólitískur dómur, knúinn fram með offorsi og hef- ur hin hatrammi fjandskapur sem Framsókn hef- ur beitt sér fyrir á Siglufirði, orðið til þess að auka áhrif og fylgi sósíalista. Hér fer á eftir viðtal við Ásgrím Albertsson: Síldin brást — en Sigl- firðingar bíða vongóðir næsta sumars. — Hvað er að frétta frá Siglufirði? — Það er nú satt að segja ekki mikið. Síldin brást í sum- ar, eins og allir vita, og setti það sinn svip á bæinn í sumar og haust. Annars gerigur lífið sinn vanagang þarna fyrir norðan. Okkur Siglfirðingum bregður ekki við, þvi að stríðs- gróði'undanfarinna ára hefur farið framhjá Siglufirði. Sum- arið færði okkur þó nokkur vonbrigði, því að við höfðum öll styrjaldarárin lifað í von- inni um blómlegt atvinnuiíf að stríðinu loknu og hofðum gert okkur góðar vonir uin þetta sumar. En um það er ekki að fást, þótt síld bregðist eitt sumar, slíkt hefur komið fyrir áður og á vafaiaust eftir að koma fyrir aftur. Við bíð- um vongóðir næsta sumars. Siglufjörður hefur átt mjög mikilvægan þátt í atvinnulífi landsins og sá þáttur mun verða meirj á komandi árum. Þjóðin hefur ekki efni á öðru en að efla síldarframleiðsluna og nota til hlítar þá ntiklu kosti, sem Siglufjörður hefur sem miðstöð fiskiiðnaðar á Norðurlandi. „Rosafréttir“ frá Siglu- firði — birtar í ómerki- legasta blaði landsins. — Hingað berast öðru hverju rosafréttir, sem slegið er upp eins og stærstu stríðs- fréttum, svo að eitthvað hlýtur að gerast þarna? — Vissulega ber margt til tíðinda á Siglufirði, eins og annars staðar, Þar er barátta milii flokka og samtaka eins og annars staðar og er því allt- af eitthvað að gerast. En því er ekki að leyna, að til eru menn, sem virðast skoða það seiri sitt sérstaka hlutverk, að miðla landsmönnum „fróðleik“ um siglfirzk mái, senda blaði eiriu hér í höfuðstuðnum, Afþýðu- ÚTBOÐ Þeir, sem gera vilja tilboð í að byggja eitt 4 hæða íbúðarhús (32 íbúðir) við Miklubraut, fyrir Reykja- víkurbæ, vitji uppdrátta og útboðs- skilmála í skrifstofu bæjarverk- fræðings, gegn 100,00 króná skila- tryggingu. Bæjarverkfræðingur. blaðinu, „fréttir" frá Siglu- firði. Leggja þeir mikið kapp á að sannfæra fólk um það í fyrsta lagi, að allir, sem ein- hvers mega sín á Siglufirði, séu misindismenn og viðsjálsgripir og í öð.ru lagi, að þeir séu allir komniúnistar eða handbendi kommúnista. Þeir, sem tryðu þessuin „fréttum“, gætu hald- ið að gamla Sódóma væri end- urrisin og þar fyndist aðeins einn Lot — kratarnir, sem væri þó einskis megnugur. En ég held að Siglfirðingar séu eins og aðrir íslendingar, upp og ofan og það þykja ekki tíðindi í öðrum kaupstöðum, þótt verzlun hafi til skelplötutölur af mismunandi gerðum og á mismunandi verði, eða þótt verksmiðja tryggi sér hráefni til reksturs síns, eða kaupfé- lagsstjórn vilji að félagslög séu í Íieiðri höfð. En það er okkur Siglfirðirigum huggun, að „fréttir" þessar hafa flestar birzt í óinerkilegasta blaði laridsins og því síður hætta á að mark sé tekfð á phróðrin- um. Þótt feynt sé af sumum að nota t. d. kaupfélagsrpálið til að ófrægja Siglufjörð og telja fólki trú um að þar hafi verið eitthvað það á ferðinni, sem hvergi gæti komið fyrir annars staðar, þá sjá allir, sem það mál vilja kynna sér, að þetta gæti gerzt og hliðstæðir atburðir hafa gerzt um allt land. Breiðfylkingarmenn hafa misst trúna á mál- stað sinn og hinn pólitíska dóm. — Hvernig er iitið á þetta kaupfélagsmál á Siglufirði og dórninn, sent uppkveðinn var í því máli? — Þetta kaupfélagsmál var ákaflega mikið hitamál í vor og litu menn því mjög mis- jöfnum augum á það. En eft- ir því sem hugir manna hafa róazt og þeir hugsað málið bet- ur, hefur það orðið almennari skoðun, að stjórn kaupfélags- ins liafi ekki getað haldið Ásgrímur Albertsson. öðruvísi á málinu en hún gerði, nema bregðast þar með skyldum sínum. Það mun varidfundin sú féiagsstjórn, sem léti ofbeldismönnum tak- ast að brjóta lögin og reka hana frá á ólöglegan hátt, án þess hún hreyfði hönd eða fót. Sú stjórn væri mjög ámælis- verð. Breiðfylkingarmenn sjálfir misstu líka fljótt trúna á málstað sinn, og mér er ó- hætt að fullyrða, að hinir at- hugullu meðal þeirra gerðu sér ekki vonir um að aðferðir þeirra yrðu dæmdar löglegar. Sumir hirina ofsafengnu munu einnig hafa talið málið tapað. Talar það sínu máli, að sumir þeirra drógu viðskipti sín frá kaupfélaginu. Það,- hefðu þeir tæplega gerb/ef þeir hefðu búizt við sigri fyrir dómstólunum. Um álit manna á dómnum er það að segja, að flestir líta'á hann sem pólitísk- an dórii, enda lvefur hann öll einkenni slíks. Það hefur líka mjög styrkt þessa skoðun, að setudómarinn, sem dæmdi í málinu, hefur nú hlotið fyrsta embætti sem losnaði eftir að liann kvað tipp dórninn, en dómsmálaráðherra, sem veit- ingavaldið hefur, hafði svo sem kunnugt er mjög ákveðn- ar óskir um úrslit þessa máls. Þessu máli hefur nú verið áfrýjað til hæstarétt- ar. Verður því ekki trú- að, að hæstiréttur staðfesti úrskurðinn óbreyttan og lög- helgi þar með þær aðferðir, sem þarna \oru frammi hafð- ar. Mundi það, hvað sem öðru líður, ekki verða til þess að auka frið og festu í samvinnu- félögunum, ef það yrði lög- helgað, að meirihluti á einum aðálfundi gæti rekið alla stjómina frá og kosið nýja. Sósíalistar hafa einhuga beitt sér fyrir framfara- málum Siglufjarðar. — Hversu er háttað bæjar- málunum? — Eins og menn vita, varð Sósíalistaflokkurinn í minni hluta við síðustu bæjarstjórn-1 arkosningar og hefur því ekki átt hlutdeild í stjórn kaupstað- arins á þessu kjörtímabili. En þrátt fyrir það, þótt flokkur- inn hafi verið í minnihluta, á- leit hann það skyldu slna að berjast af alefli fyrir velferðar- málum bæjarfélagsins, einkum Skeiðsfossvirkjuninni og end- urbyggingu Rauðku. Hefur flokkurjnn lagt allt sitt harð- fylgi, bæði heima fyrir og á Alþingi, í það að koma þessum málum í framkvæmd. Hann hefur ekki neytt minnihluta- aðstöðu sinnar til þess að gera þeim, er. völdin höfðu, erfið- ara fyrir um þessar fram- kvæmdir, heldur hjálpað þeim til og látið gagnrýni þoka, ef hætta var á að hún gæti spillt fyrir framgangi málanna. Álft ég að aðrir flokkar, sem eru eða lenda í minnihíuta, mættu taka sér þetta til fyrirmyndar. Án baráttu og stuðnings Sósí- alistaffokksins hefðu þessi mál ekki kómizt í framkvæmd. Við sósíalistar erum ekkert að hæla okkur af þessu, við álitum þetta sjálfsagt mál. En yjð vænttnp þess, að almenriingur skilji þessa afstöðu og meti að verðleikum. Sósíalistaflokkurinn stærsti flokkurinn. — Fylgi hans stöðugt vaxandi. — Er þess að vænta, að flokkurinn hafi kosningasam- vinnu við aðra flokka um bæjarstjórnarkosningarnar í vetur? — Nei, engar horfur eru á slíku. Fiokkurinn mun ganga einn til kosninga og setja sér það markmið, að' korna í fram- kyæmd áhugamáium sínum á sviði bæjarmála og ná meiri- hluta í bæjarstjórn. — Eru nokkrar líkur til að þið náið meirihluta, þar sem sósíalistar eiga nii aðeins tvo bæjarfulltrúa; til þess þyrfti gífurlega fylgisaukningu? — Um líkurnar skal ég engu spá, en vil þó benda á þá stað- reynd, að eftir atkvæðamagni flokksins við alþingiskpsning- arnar síðustu ætti hann að eiga þrjá fulltrúa. Hefur hoinim aukizt fylgi síðan og ct það. ó- umdeilt, að hann er sterkasti flokkurinn r bænuin. Og hvað F.Í.B. Farfuglar vikivaka- æfing í kvöld kl. 8,30 í fundarsal Alþýðubrauðgerö- arinnar. FjplmenniÖ. Nefndin. sem Hður líkunum, þá er það bænum meiri nauðsyn nú heldur en nokkru sinni fyrr, að festa og einhugur sé ríkj- andi í stjórn hans, en reynslan hefur sýnt, að slík festa næst tæplega nema því aðeins að pinn flokkur nái meirihluta. Á næsta kjörttmabili bíða bæj- arstjórnarinnar stórkostleg verkefni. Stórframkvæmdirnar á þessu kjörtímabili skapa skil- yrð'i til blómlegrar atvinnu- þróunar, en þessi skilyrði verð'a svo bezt nýtt, að stjórn þæjarmálanna sé ekki háð til- viljunum eða makki rnilli ó- sk-ylcíra og ósamstæðra flokka. Glæsilegir framtíðal- mögruleikar — Ég hef orðið þess var, að sumum finnst Siglfirðingar hafa færzt nokkuð mikið í fang undanfarið. Hvað álítið þið Siglfirðingar sjálfir um það? — Við erum vægast sagt hissa á slíkum ummælum. Hafa menn gleymt því, að um Siglufjörð hafa verið flutt út margfalt meiri verðmæti held- ur en um nokkurn annan stað á landinu? Hafa menn gleymt árunum, þegar Siglufjörður lagði landinu til meginhluta hjns erlenda gjaldeyris? Halda rnenn að það sé nokkuð vit í þyí frá þjóð'hagslegu sjónár- miþi, að bær, sem hefur eins ákjósanleg skilyrði til stórkost- legrar útflutningsf-ramleiðslu eins pg SigJufjörður, búi t. d. við rafstöð, sem getur fram- leitt ein 3—4 hundruð kíló- vött? Mér finnst landsmenn yfirleitt ættu frekar að þakka Siglfirðinguin þann stórhug, sem þeir hafa sýnt, enda mun meirihluti Jandsmanna líta þannig á, sem sést á því, að stórmál Siglfírðinga hafa niætt velvild pg skilningi hjá meiri- hluta Alþingis. ' ' ,

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.