Þjóðviljinn - 01.11.1945, Blaðsíða 8
i
Sif Þórs og Kaj Smith opna dansskóla
í Þjóðkikhúsihu í næstu viku
Ætlunin mun að stofna hér síðar ballettflokk
N. k. sunnud. hafa þau danssýningu í Trípoli
Ungfrú Sif Þórs ætlar í næstu viku, ásamt
Kaj Smith, dönskum dansmeistara, að opna dans-
skóla í Þjóðleikhúsinu og verður þar kennt ballet,
stepp og samkvæmisdansar fyrir böm og full-
orðna.
Mun það ætlun ungfrúarinnar að koma hér
upp balletflokki, en slíks flokks er hér þörf, og
hafa jafnframt skapazt starfsskilyrði þegar Þjóð-
leikhúsið tekur til starfa.
Á sunnudaginn kemur hafa þau danssýningu
í Tripolileikhúsinu, með aðstoð Fritz Weisshappels.
Kaj Smith, hinn danski
dansmeistari, byrjaöi ballett
nám 6 ára gamall. Árið
1920 fór hann með sænsk-
um ballettflokki í ferðalag
um Evrópu og starfaöi með
honum í 5 ár, en að því
loknu réðist hann við Kon-
unglega leikhúsiö í Kaup-
mannahöfn og starfaði hjá
pví næstu 5 ár, en að þeim
loknum stofnaði hann sinn
eigin ballettflokk, ferðaðist
með hann til Frakklands og
hélt sýningar þar.
Fyrir stríðiö starfaði ball-
ettflokkur hans IDanmörku
en á stríðsárunum. var starf
hans ýmsum örðugleikum
bundið.
Kaj hefur aldrei til ís-
lands komið og vár alls ekkl
á leið til íslands þegar Font
enay sendiherra hitti hann
í Stokkhólmi og ræddi við
hann um að hér í Reykja-
vík væri ágæt dansmær
sem starfrækti dansskóla og
myndi vera verkefni fyrir
Kaj við þann skóla. Varð
það úr að þau skiptust á
skeytum og Kaj Smith á-
kvað að fara hingað til ís-
lands og kom hann flugleið
is frá Stokkhólmi 5. okt.
Sýningin á sunnudaginn
Á sunnudaginn ætla þau
Sif Þórs og Kaj Smith að
halda danssýningu í Tripolí
leikhúsinu. Ætla þau aö
sýna ballettdansa og „kar-
akter-dansa“. Fritz Weiss-
happel aöstoðar með undir-
leik og leikúr einleik á milli
dansanna. Sýningin verð-
ur kl. 3 á sunnudaginn og
verður ekki endurtekin.
Sif Þórs.
Dansskólinn.
í næstu viku ætla þau að
opna dansskóla í ágætum
salarkynnum í Þjóðleikhús-
inu, undir nafninu dans-
skóli Sif Þórs og Kaj Smith.
Verður þar kenndur balletr,
stepp og samkvæmisdansar
fyrir börn og fullorðna.
Börn veröa tekin yngst í
skóla 5—6 ára gömul. Ætl-
un ungfrúarinnar mun vera
að fá drengi og stúlkur í
skólann með þaö fyrir aug-
um, aö geta stofnað hér
ballettflokk, sem myndi þá
væntanlega starfa við Þjóð-
leikhúsið þegar starfsemi
þess verður komin í eðlilegt
horf.
Samið um smíði
tveggja dieseltogara
Frumvarpið um tog-_
arakaup ríkisins kom-
ið til 3. umræðu.
Á fundi neðri deildar Al-
þingis í gær var stjórnarfrum-
varpið um togaraka'upin til 2.
umræðu, og var því vísað ó-
breýttu tjl 3. umræðu, breyt-
ingartillögur Framsóknar
felLdar. Sýndu síðan Fram-
sóknarþingmenn áhuga sinn á
eflingu fiskiflotans með því að
sitja hjá við atkvæðagreiðsluna
um frumvarpið.
7 umrœðuriúm upplýsti Ól-
afur Thors forsœtisrúðherra að
húið vœri að semja um smiði
tveggja dieseltogara, auk
þeirra 28 togara, sem áður var
samið um, óg yrðu dieseltog-
ararnir afhentir á öndverðu
ári 1948.
Erindi um Island á
stríðsárunum flutt í
brezka útvarpið
1 Etinn 27. sépt. flutti Sig-
urður Bjarnason alþingism.
frá Vigur érindi í danska
útvarpstímanum frá breska
útvarpinu og ræddi meðal
annars um breytingar þær
sem orðið hefðu á íslenzk-
um högum á stríðsárunum.
Kvaö hann marga hafa
spurt þeirrar spurningar.
hvort ísland hefði eigi fjar-
tægst Norðurlönd á und-
anförnum styrjaldarárum.
En hann kvaö þetta á mis-
skilningi byggt, og hefðu
nú skapast betri skilyrði til
menningarlegrar samvinnu
ílands og annarra Noröur-
íslands og annarra Norður-
sinni áður verið fyrir hendi.
(Fréttatilkynning frá rík-
isstjórninni.
tMÓÐVILJINN
Kaj Smith.
Alfreð, Brynjólfur
og Lárus skemmta
í Gamla Bíó
Þeir Alfreð Andrésson,
Brynjólfur Jóhannesson og
Lárus Ingólfsson munuefna
til skemmtúnar í GamJa
Bíó, annað kvöld, kl. 7,15.
Á skemmtun þessari syngja
þeir félagar gamanvísur,
oæði allir 1 sameiningu og
hver einstakur. Einnig
munu þeir flytja nokkra
gamanþætti og verður skýrt
frá efni þeirrá, í efnisskrá
skemmtunárinnar.
Ekki þarf aö efa, að á-
heyrendum verður vel
skemmt, méð söng og gám-
anleik þeirra þrémenning-
anna.
Ályktanir
F.F.S.I,
Framh. af 7. síðii.
verði falið að útbúa réglu-
geröir þær, sem nauðsyn-
legar eru taldar til þess að
framfylgja lögunum
Tillaga um stjórn
Sjómannaskólans
Þingið samþykkti eftirfar-
andi tillögu um stjórn Sjó-
mannaskólans:
Skólanum sé stjórnaö af
skólaráði, er samanstendur
af öllum skólastjórum skól-
ans. Þeir velji sér formann
úr sínum hópi og sé hann
valinn til eins árs í senn.
Starf formanns og skóla-
ráðs veröi aö sjá um allan
rekstur skólans með svipuö-
um hætti og er við Háskóla
íslands. Síðan ræður skóla-
ráð rnarrn, er sér um allt
reikhingshald skólans og út
borganir.
Fundurinn í kvöld
■ t ’ '"—y. ' 'j
Á fundinum í kvöld verða meðal annarra ræðumanna Sigfús Sigurhjartarson og Björn
Bjarnason.
Frá kosningaskrifstofunni.
SAMKEPPNIN
1. deild byrjar mjög glæsilega.
í gær skilaði 1. deild fyrsta árangrinum í kosninga-
sjóðssöfnuninni. Deildin er nú lang fremst í samkeppninni:
1. deild kr. 2125.00
12. deild kr. 900.00
28. Jeild — 817.00
16. deild — 715.00
3. deild — 700.00
23. deild — 805.00
24. deild — 800.00
19. deild — 600.00
6. deild — 505.00
20. deild — 400.00
13. deild — 200.00
25. deild — 380.00
4. deild — 350.00
2. deild — ' 205.00
14. deild — 185.00
18. deild — 150.00
5. deild — 150.00
10. deild — 100.00
7. deild — 60.00
11. deild —• 50.00
26. deild — 45.00
22. deild — 20.00
8. deild — 00.00
9. deild — 00.00
15. deild — 00.00
21. deild — 00.00
27 dsild — 00.00
Röð deildanna fer eftir því hve miklu hver deild hefur
sáfnað pr. félaga.
Á manntalið skal skrifa
alla þá sem hér eiga lögheimili, þótt þeir kunni að
vcra fjarstaddir. Munið að láta þá, sem húsnæðislausir eru í þessari fyrirmyndarborg íhaldsins, skrifa sig á manntalið.
Það er sérstaklega hætt við að einstaklingar, sem hafa
orðið að hrökklast úr bænum vegna húsnæðisleysis, en telja sig eiga hér heima, falli af manntali og kjörskrám.
Minnið þetta fólk á að láta skrá sig í manntalsskrifstof-
unni ef það skrifar sig ekki á manntalsskýrslurnar núna
annars á það á hættu að falla út af kjörskrá til Alþingis-
kosnmga í júní 1946. <> »