Þjóðviljinn - 28.12.1945, Síða 4
4
T~
ÞJÓÐVILJINN
Föstudagur 28. des. 1945
Utgelandi: Sameiningarílokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson.
Ritstjórnarskrifstofa: Austurstræti 12, sími 2270. (Eftir kl.
19.00 2184).
Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, sími 2184.
Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399.
Prentsmiðjusími 2184.
Askriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði.
Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Fimm fyrir borð
,,Fylgið er farið, meirjhlutin.n í bæjarstjórninni glat-
aður“, þetta er hugsunin, sem fyrst og síðast stígur hring-
dans í kolli íhaldsleiðtoganna í Reykjavík þessa dagana.
En eitthvað verður að reyna til að bjarga því sem
bjargað verður, og því þá ekki að reyna mannfórnir, að
fornum sið, og íhaldið hefur ákveðið að fleygja fimm eða
sex af sínum átta bæjarfulltrúum fyrir borð. Aðeins
tveir eða í hæsta lagi þrír af þeim fulltrúum sem íhaldið
hefur átt í bæjarstjórn fá að vera í kjöri, að þessu sinni,
hinum á að fleygja.
9
Það er tvennt,^ sem er athyglivert í sambandi við
þessa staðreynd, annars vegar fyrir hverjum hinir gömlu
fulltrúar eiga að víkja og hins vegar hvers vegna þeir
eiga að víkja.
Hvað fyrra atriðinu viðvíkur, þá eiga þeir að víkja
fyrir Vísisliðinu. Það er hin hatrama stjórnarandstaða,
og hið svartasta afturhald undir forustu Björns Ólafs-
sonar stórkaupmanns og fyrrverandi ráðherra, sem krefst
að hinir gömlu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
stjórn þoki úr sæti fyrir fulltrúum heildsalanna.
Að þessum kostum gekk Bjarni Benediktsson og
hans lið í þeirri von að enn væri hægt að bjarga meiri
hlutanum.
Með þessum orðum er að nokkru skýrt hv,ers vegna
gömlu fulltrúarnir víkja, þeir víkja vegna kröfu heild-
salanna, en ekki er málið fullskýrt með bessu. í . öðrum
löndum Evrópu, þar sem kosningar hafa farið fram eftir
að stríðinu lauk, hafa íhaldsflokkarnir leikið þann leik að
kasta fjöldanum öllum af sínum gömlu fulltrúum. Á-
stæðurnar eru augljósar. Flokkar þessir -hafa fundið
fylgið hverfa. Þeir hafa reynt að skýra þessa staðreynd og
þeir hafa gripið til. þeirrar skýringar, sem þeim þótti
handhægust, að kenna um lélegri forustu hinna eldri
forustumanna. í lengstu lög hafa þeir viljað láta sér
sjást yfir þá staðreynd að stefna þeirra er úrelt, hún er
ósamrýmanleg hugsunarhætti, tækniþróun og fjármála-
.ástandi nútímans.. Alls s-taðar hefur þessi aðferð- íhalds-
ins verið rétt skilin. Alls staðar hafa kjósendurnir gert
sér ljóst, að þegar gömlu leiðtogunum er kastað er verið
að viðurkenna að málefnaforus-ta íhaldsins hefur ve-rið
með þeim hætti að henni er ekki treyst lengur. Hvergi
hefur tekizt að villa almenningi sýn með því að líma
ný vörumerki á stefnu íhaldsins. Alls staðar hafa íhalds-
flokkarnir hrunið, og það næstu-m til grunna, í þei-m lönd-
um Evrópu þar sem kosningar hafa farið fram eftir stríð-
ið, og nú mun svo komið að aðeins þrjár höfuðborgir
Evrópu eru undir íhaldsstjórn, þ. e. Reykjavík, Lissabon
og Madrid.
Eftir einn mánuð verða fasistalöndin tvö, á Pyrenea-
skaga ein um þann heiður að láta íhaldið stjórna höfuð-
'borgum sínum. Reykvíkingar munu kunna að meta þá
vantraustsyfirlýsingu, sem íhaldið gefur sjálfu sér með
því að fleygja forustunni fyrir borð og hin nýju vöru-
merki þess, Vísir, Bjöm Ólafsson & Coca-eola, munu
áreiðanlega hræða kjósendur frá því, í þúsunda tali.
Á heiidsalastéttm að ráða Reykjavík?
Eða ætlar aiþýðan að taka forustuna í
höfuðborg ísiands?
Heildsalaklíkan treystir á það að þyrla upp
slíku rykskýi með blöðum sínum, Morgun-
blaðinu og Vísi, að fjöldinn sjái ekki hvað
á bak við býr? Á ÞETTA AÐ TAKAST?
Það hefur hvað eftir annað
sýnt sig, að þegar á hefur
hert hjá íhaldinu, þá eru það
heildsalarnir þar í flokknum,
sem hafa ráðið, — ekki fjöld-
inn, sem fylgt hefur flokkn-
umt ekki smáiðnrekendur eða
smákaupmenn, ekk-i einu
sinni hinir smærri heildsalar
eða . einhverji-r efnamenn,
sem halda þó að þeir eigi
eitthvað undir sér, — heldur
einmitt örfáir ríkustu heild-
salarnir, — ekki fleiri menn
en svo að hægt væri að telja
þá á fingrum sér.
Það er þessi heildsalastétt,
sem hefur ráðið því að álagn-
ingin, sem þeir fá á vörur
sínar, er svo mikil og aðstað-
an, sem þeim er veitt í þjóð-
félaginu, svo góð, að þeir
taka til sín á ári hverju lík-
lega upp undir 50 milljónir
króna af . þjóðartekjunum
Þessi heildsalastétt hafði í
samifélagi við Framsóknar-
broddana tryggt svo aðstöðu
sína áður en núverandi stjórn
komst til valda, að henni hef-
ur nægt að verja vald sitt
síðan og varna því að breyt-
i-ngar yrðu gerðar, sem henni
væri illa við eða gerðu kost
þjóðarinnar betri á hennar
kostnað.
Á hverju byggir þess-i
heildsalaklíka \ald sitt?
Hvernig stendur á því að
þessi fámenna kiíka getur
drottnað í slíkum flokk
sem Sjálfstæðisflokknum?
Það stendur þannig á því
að þessir fáu hcrldsalar eiga
bæði Morgunblaðið og Vísi.
Sjálfstæðisflokkurinn á
hvorugt þessara blaða. Sjálf-
stæðisflokkurinn og fólkið,
sem hefur fyl-gt honum, ræð-
ur ekki hvað kemur í þessum
blöðum.
Það er fá-menn heildsala-
klíka^ sem á meirihluta hluta
bréfanna í þessum blöðum, —
og með þessum blöðum ætlar
hún sér að skapa það almenn-
ingsálit hér í borginni, sem
heildsölunum sé hollt. Þessi
blöð henn-ar eiga að vera
valdatæki hennar til þess að
ráða hug fólksins. Með því
að fylla hug fólks daglega
með óhróðri og þvaðri eða
ósannindum og blekkingu-m á
að tryggja það að meirihlut-
inn fari ekki að hugsa öðru-
vísi en þessi íhaldsklíka vill,
— og heiidsalarnir geti hald-
ið áfram að raka saman fé.
Heildsalarnir hafa grætt
allra manna ofboðslegast og
óverðskuldaðast á íslandi síð-
ustu árin„ — og nú gera þeir
kröfu til þess að ein-mitt þei-r,
í krafti auðs síns og áhrifa-
valds blaða sinna, skuli ráða.
Bæjarstjórnarkosningarn-
ar í Reykjavík 27. janúar
eru — auk margs annars —
átökin um það, hvort örfáir,
forríkir hrfldsalar eiga að
ráða höfuðborginni eða
hvort alþýðan ætlar sjálf að
taka forustuna í stjórn
borgar sinnar.
Hvert sem litið er sjást
fingraför eftir stjórn þessar-
ar heildsalaklíku, ekki hvað
sízt í byggingamálunum, þar
sem byggingarefnið hefur
fyrst og fremst verið notað
til verzlunar- og skrifstofu-
húsa og stórhýsa fyrir brask-
arana, en þarfir- fólksins allt-
af látna'r sitja á hakanum.
Á gróðasjónarmiðið að
halda áfram að ráða í bæj-
armálum Reykvíkinga, —
eða á að stjórna bænum
fyrst og fremst með þarfir
fjöldans fyvr augum, þarf
ir fólksins fyrir atvinnu. —
örugga og vel borgaða at-
vinnu — fyrir húsnæði,
mennngu. öryggi fyrir líf
og afkomu?
Það er þetta, sem barizt
verður um í bæjarstjórnar-
kosningunum í Reykjavík 27.
janúar.
Heildsalavaldið mun að
öllum líkindum dulklæða
sig eins vel og það getur.
Það mun vart þora að koma
óhjúpað til dyranna. En
Reykvílf ngar munu þekkja
það.
Alþýða Reykjavíkur á nú
að ákveða örlög sín og að-
búnað næstu 4 árin, að svo
miklu leyti sem bæjarstjórn
Reykjavíkur getur markað
stefnuna. Heildsalaaftur-
haldið hefur ekki dulið það,
að það telur sjálfsagða
kreppu, atvinnuleysi og
hrun á þessum tíma og
þetta afturhald myndi nú
þegar hafa leitt þetta hrun
yfir fólkið ef það hefði feng
ið eitt að ráða. Og alþýðan
gengur þess ekki dulin til
hvers afturhaldið vill lefða
atvinnuleysið yfir fólkið: til
þess að lækka laun þess og
rýra kjör þess.
Enn y<f.t enginn, hvað
þessu afturhaldi kann að
takast á næstu árum.
En spurningin sem alþýða
Reykjávíkur á að svara 27.
'anúar er:
! Ætlar hún að láta slíkt
vald, sem meirihlutavaldið
í bæjarstjórn Reykjavíkur
vera í höndum he'ldsalaaft-
urhaldsins og létta því þann
ig ill áform sín?
Eða ætlar alþýðan sjálf
að taka forustuna í bæj-
armálum Reykjavíkur til
þess að tryggja atvinnu
sína og afkomu, tryggja
það að þörf fólksins fyrir
húsnæði, menningu og
batnandi lífskjörum sé
það sjónarmið, sem fyrst
og fremst ræður í bæjar-
stjórn Reykjavíkur.
Orrbopgínni
Næturlæknir er í læknavarð-
siofunni Austurbæjarskólanum.
sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapó-
teki.
Næturakstur: Litla bílstöðin,
sími 1380.
Útvarpið í dag:
20.25 Útvarpssagan: „Stvffgö
Krumpen“ eftir Thit Jensen,
IX (Andrés Björnsson).
21.00 Kvöldvaka gamla fólksins:
Frásöguþættir, húslestrarkafli,
kvæðalög o. fl.
22.05 Symfóníutónleikar (plöt-
ur): a) Fiðlukons-ert í D-dúr
eftir Paganini. b) Symfónía Op.
661, nr. 2, eftir Sohumann.
Skipafréttir:
Brúarfoss fór frá Reykjavík kl.
21.00 í fyrrakvöld til Hull. Fjall-
foss er á Akureyri. Lagarfoss var
væntahlegur til Kaupmannah-afn-
ar síðdegis í gær. Selfoss fór frá
Reykjavík 18. þ. m. til Leith.
Reykjaíoss. er í L-eitlr. Buntline
Hitch er í Reykjavík. Mooring
Hitch fór frá Reykiavík 17. b. m.
til New York. Span Splice er í
Reykjaví-k. Lon Spliee fór frá
Reykjavík 23. þ. m. til Halifax.
Anne er í Reykjavík. Baltara
1 kom til London 24. þ. m. Lech
kom til Grimsby 23. þ. m. Bal-
teako er á Patre-ksfirði.
Jólagjöf tii Barnaspítalasjóðs
Hringsins kr. 10.000: Séra Jón
Thorarensen hefur afhent fjár-
öflunarnefnd Hringsins þessa
upphæð frá ón-efndum vini sín-
um. Þakkar st.iórn félagsins inni-
lega -þessa höfðinglegu gjöf.
Félagsmenn Kron eru áminntir
um að geyma kassakvittanir (arð
miða) sínar. Félagsréttindum sín-
um halda þeir féla-gsmenn ein-
ir, sem skila arðmiðum í skrif-
stofu félagsins, eftir. hver ára-
mót.
Dynamo
Framhald af 3. síðu.
Búningsklefar og annar að-
■búnaður íþróttamanna sem
þeir kynntust var víðast- hvar
heldur lélegur. Móttökur all-
ar og framkomu fólksins lof-
ar Semitjastní á hvert reipi.