Þjóðviljinn - 29.12.1945, Síða 1
10. árgangui'
Laugardagur 29. des. 1945
293. tölublað
Laufey Valdimarsdóttir látin
Samkomulaginu í Moskva fagnað um allan heim
Laufey Valdimarsdóttir
formaður, Kvenréttindafélags
íslands lézt úr hjartasjúk-
dómi á gistihúsi í París 9.
þessa mánaðar.
Hún fór utan um miðjan
okt. sl. til að sitja alþjóða-
þing kvenna í Genf og mætti
þar sem fulltrúi Kvenrétt'
indafélags íslands. Að því
loknu sat hún annan alþjóða-
fund kvenna í París.
Við útför hennar voru ýms-
ar konur, er verið höfðu full-
trúar á alþjúðafundi kvenna,
þ. á. m. konur frá Frakklandi,
Grikklandi, Ungverjalandi,
Urugay og Sovétríkjunum.
Fregnin um lát Laufeyjar
barst í gær til bróður henn-
ar, Héðins Valdimarssonar,
frá Henri Boissin, er var
sendikennari í frönsku við
háskólann hér 1933—’34, en
eins og kunnugt er hefur ís-
land engan sendiherra né
ræðismann í París. Dauða
Láufeyjar hefur borið að með
skjótum hætti, því á að-
fangadag barst Héðni Valdi-
marssyni bréf frá henni'. sem
var dagsett 6. des., þar sem
hv i sagðist mundi fara til
Sviss 10. des.
Laufey Valdimarsdóttir var
fædd 1. marz 1890. Foreldrar
hennar vonu hin þjóðkunna
kvenréttindakona Bríet Bjarn
héðinsdóttir og Valdimar Ás-
mundsson ritstjóri. Hún varð
st-údpnt 1910 og var 'hún
fyrsta konan, sem gekk
gegnum menntaskólann, en
áður höfðu tvær konur
tekið stúdentspróf utan-
skóla. Því næst fór hún til
náms við Kaupmannahafnar-
Óeirðir í Palestínu
Töluverðar óeirðir brut-
ust út samtímis í mörgum
borgum Palestínu í fyrra-
kvöld.
í Jerúsalem voru gerðar 9
sprengjuárásir á stjórnar-
byggingar, þar á meðal lög-
reglustöðina, sem skemmdist
töluvert. Umferð var þegar
stöðvuð í borginni og leitar
nú herlið og lögregla tilræð-
ismannanna. Lögreglan sló
þegar hring um borgarhluta
þann, sem sprengingarnar
urðu í. Um sama leyti cg
þetta gerðist í Jerúsalem réð-
ust menn vopnaðir sprengju-
vörpum á lögreglustcðlna í
Jaffa og eyðilögðu hana að
mestu. Ennfremur urðu
sprengingar í Tel Aviv og
Haifa.
Veginum milli Jerúsalem
og Jaffa var lokað á mörg-
um stöðum með brennandi
olíu.
háskóla og tók þar heim-
spekipróf og lagði síðan
stund á málanám, ensku,
frönsku og latínu í 6 ár. Hún
kom heim 1917 og gerðist er-
lendur bréfritari, fyrst hjá
Landsverzluninni og síðar
hjá Olíuverzlun íslands.
Laufey tók þegar á unga
aldri þátt í kvenréttindabar-
áttunni og tók við for-
mennsku Kvenréttindafél. Is-
lands af móður sinni 1927 og
var form. félagsins til dauða-
dags. Mætti hún oft sem
fulltrúi íslands á alþjóða-
fundum kvenna, víðsvegar í
Evrópu. -
Aðaláhugamál hennar voru
kvenréttindamálin og bar
hún mjag fyrir brjósti ekkj-
ur, einstæðar mæður, börn
og munaðarleysingja og helg-
aði alla starfskrafta sína bar-
áttunni fyrir réttindum og
hagsmunamólum þeirra. Fyr-
ir forgöngu hennar stofnaði
Kvenréttindafélagið Mæðra-
styrksnefndina og var Lauf-
ey formaður nefndarinnar frá
upphafi. Laufey barðist ekki
aðeins fyrir pólitísku jafn-
rétti kvenna, heldur einnig
efnahagslegu jafnrétti og
rétti mæðra til launa.
Laufey skrifaði fjölda
greina í tímarit og blöð varð-
andi áhugamál sín, flutti út-
varpserindi og fór fyrirlestr-
arferðir um landið á vegum
Kvenréttindafélags íslands.
Laufey tók einnig mikinn
þátt í stjórnmálum, fyrst með
Alþýðuflokknum og var
nokkrum sinnum í framboði
til Alþingis, og átti um tíma
sæti í framfærslunefnd
Reykjavíkunbæjar sem full-
trúi Alþýðuflokksins.
Laufey var ein af stofn-
encjom Sósíalistaflokksins og
átti um skeið sæti í miðstjóm
hans.
Síðustu árin gaf hún sig
ekki að flokkspólitískri starf-
semi.
Þjóðviljinn mun geta þess-
arar merku konu nánar síðar.
Afturhaldsöfl Bandaríkjaima ein óánægð með úrslitin
Sámkomulaginu á Moskvaráðstefnunni hefur*
verið fagnað um heim allan, sem merki þess að
stórveldin séu reiðubúin til að vinna saman til
tryggingar heimsfriðinum og jafna öll ágreinings-
efni með friðsamlegu samkomulagi. Mörg blöð
benda á að fjöldi viðfangsefna sé enn óleystur, en
þau séu sízt erfiðari viðfangs en þau, sem leyst
voru í Moskva. Einu óánægjuraddirnar heyrast
í afturhaldshlöðum Bandaríkjanna, sem harma
það, að Sovétríkjunum skuli ekki vera ógnað með
kjamorkusprengjunni.
Bevin og Byrnes komnir
heim
Byrnes fór frá Moskva
strax í fyrradag og fylgdi
Molotoff og öll samninga-
nefnd Sovétríkjanna honum
að flugvélinni. Bevin kom til
London í gær og för þegar á
fund Attlee forsætisráðherra
og mun dvelja með honum
á sveitasetri hans, Checkersj
yfir helgina og skýra honum
frá ráðstefnunni. Er Bevin
kom til London og var spurð-
ur um skoðun sína á árangri
ráðstefnunnar svaraði hann:
„Eg held að við höfum skilað
prýðilegu starfi“.
Blaðaummæli í Moskva
Pravda getur þess sérstak-
lega, að með sameiginlegri
umboðsstjórn Sovétríkjanna,
Bretlands, Bandaríkjanna og
Kína i Kóreu muni fást mik-
ilvæg reynsla, er geti komið
í góðar þarfir ef sameiginleg
umboðsstjórn verði reynd
víðar. Þá segir blaðið, að ár-
angur ráðstefnunnar hafi al-
gerlega rekið þá á stampinn,
sem héldu því fram^ að stór-
veldin gætu ekki unnið sam-
an.
Isvestia segir að ráðstefn-
an hafi leyst vandamál, sem
ýmsir menn hafi talið óleys-
anleg.
Blöð í Rúmeníu og Búlgar-
íu eru því mjög fegin, að á
ráðstefnunni hafi fundizt
lausn á deilunum um stjórn-
arfar þessara landa.
Danmörk ekki á friðar-
ráðstefnunni
Dönsku blöðin benda á það,
að Danmörk sé eina landið í
Evrópu, sem tilheyrir Sam-
einuðu þjóðunum, en er þó
ekki boðið á friðarráðstefn-
una. Egyptar segjast eiga það
mikilla hagsmuna að gæta í
nýlendum ítala, að full á-
stæða hefði verið til að hafa
þá með í ráðum, er Ítalíu
verða settir friðarskilmálar.
ítölsku blöðin segja það aug-
ljóst, að 18 mánaða stríðs-
þátttöku Ítalíu við hlið Banda
manna hafi verið gleýmt.
AfturV ildið óánægt
Yfirleitt fagna bandarþku
blöðin árangri ráðstefnunnar.
New York Times segir t. d.
að tilkynningin frá ráðstefn-
unni sé ánægjulegasta frétt,
sem borizt hafi síðan Þýzka-
land og Japan gáfust upp.
Afturhaldsblöðin kvarta þó
yfir því, að Sovétríkin hafi
sett skilmála þá, sem farið
var eftir við lausn vandamál-
anna. Republicanar enu marg-
ir óánægðir yfir því að Sov-
étríkin, Bretland. og Kína fái
að eiga hlut í stjórn- Japan
ásamt Mac Arthur, (sem er
Republicani).
Framkvæmdir hafnar
Þegar er tekið að fram-
kvæma ákvarðanir ráðstefn-
unnar. Harriman, Kerr og
Vishinsky fóru frá Moskva í
gær til Búdapesþ eins og á-
kveðið var. Munu þeir fram-
kvæma ákvarðanirnar gagn-
vart Rúmeníu.
hafa hafnað einingartilboði
frá Kommúnistaflokki Dan-
merkur.
Buðu kommúnistar algera
pólitíska og faglega einingu
verkalýðsins. Blað kommún-
ista „Land og Folk“ lýsti því
yfir í þessu sambandi, að
Kommúnistaflokkur Dan-
merkur starfaði á lýðræðis-
grundvelli og vildi koma á
Lýðveldishátíðarkvik-
myndin komin
Lýðveldishátáðarkvikmynd-
in, sem lýðveldisnefndin lét
taka, er nú komin til lands-
ins og verður frumsýnihg á
henni í Tjarnarbíó 5. jan. n.
k. kl. 1,30, en að henni lok-
inni verður hún sýnd al-
menningi hér í bæ og úti um
land.
Þetta er fyrsta íslenzká tal-
og hljómmyndin, er hún tek-
in í litum.
Kjartan Ó. Bjarnason og
Vigfús og Edvard Sigurgeirs-
synir tóku myndina, en þjóð-
hátíðarnefnd samdi formála
og annað efni hennar. Páll
ísólfsson sá um tónlistina í
myndinni, ásamt Jóni Þórar-
inssyni. Þulur er SigUrður
Helgason í New York.
Myndin hefst á því að ís-
land sést rísa úr sæ, síðan
koma fagrar landslagsrriynd-
ir, en aðalefni myndarinnar
er vitanlega frá lýðveldishá-
tíðahöldunum 17. og 18. júni.
Kvikmyndafélag í New
York gekk frá myndinni og
er Kjartan Ö. Bjarnason ný-
kominn heim eftir 7 mánaða
dvöl vestra við að sia unl frá-
gang myndárinnar.
Morðinginn ófundinn
Rannsókn morðmálsins er
haldið áfram, en fátt nýtt
hefur upplýstst í málinu.
Þó hefur lögreglan haft tal
af mönnum, er hittu Kristján
heitinn síðar um daginn en
áður var vitað og hefur feng-
ið fregnir af ferðum hans
allt til kl. 7 um kvöldið.
móti. Engu að síður höfnuðu
sósíaldemókratar tilboðinu og
sökuðu kommúnista um mold
vörpustarfsemi. Sýnir það. að
þeir hafa ekkert lært og engu
gleymt frá þingkosninguo ' l
í haust, er þeir beindu k -
ingabaráttu sinni fyr-t *;
íremst gegn kommúnist og
biðu í staðinn hinn herfileg-
asta kosningaósigur.
Danskir sósíaldemókratar vilja ekki
verkalýðseiningu
Danskir sósíaldemókratar [ sósíalisma með friðsamlegu