Þjóðviljinn - 29.12.1945, Síða 8

Þjóðviljinn - 29.12.1945, Síða 8
íhaldslýðræði að verki hafa unnið að því aS útiloka sósíalista frá því að fá hús fyrir kosningaskrif- stofu sína Velta happdrættis Háskólans aukin um 20 af hundraði Vinningaf jöldi eykst að sama skapi, verður 7200 í stað 6000. Háskólinn á nú mörg óleyst verkéfni fyrir höndum Austrænt - vestrænt eða bara Reykjavíkur-íhalds-Jýðræði? Sósíalistaflokkurinn hefur leitað til Skemmtifélags Góðtemplara um að fá leigð an Listamannaskálann fyrir kosningaskrifstofu 1 sam- handi vð bæjarstjórnarkosn ingarinnar, en skemmtifélag þetta hefui’ með leigu Lista- mannaskálans að gera. Þessai’i beiðni Sósíalista- flokksins hefur verið synjað og er neitunin um að leigja flokknum skálann rökstudd á þennan veg: „Stjóminni (þ. e. stjórn SGT) hafði borizt samskon ar beiðni frá þrem stjórn- málaflokkum, þ. e. Sjálf- stæðisflokknum, Alþýðu- flokknum og Sósíalista- flokknum. S.G.T. er hlutlaUst í Stjórn málum og getur því ekki leyft einu félagi umfram öðru afnot af Listamanna- skálanum til stjórnmála- starfsemi11. Neitun þessi viröist byggð á harla einkennilegri hlut- leysisafstöðu, þar sem vitaö er: í fyrsta lagi að Sósíalista- flokkurinn sótti fyrstur um leigu á húsinu og í öðm lagi hafa báðir hinir flokkamir yfir samkomuhús um að ráða og er vitað áð umsókn þeirra um að fá leigöan Listamannaskálann er einungis gerð í því skyni að gera tilraun til að úti- loka Sósíalistaflokkinn frá því að fá leigt þetta hús- næði. íhaldið hefur samkomuhús íhaldið hefur notað valda aðstöðu sína í bæjarstjórn til þess að hlaða upp úr hol- steini samkomuhús (Eyjólf- ur í Mjóikurfélaginu gaí ónýta holsteininn) í mðj- um bænum þvert ofan í allar byggingarsamþykkt ir. — Þetta leyfi veitir í- haldið sér á sama tíma sem húsnæðislausum fjöldskyld- um er meinað að fá lóð und ir hús lengst í útjöörum bæj arins. i En hvað um það, íhaldið hefur þó komið einhverjum framkvæmdum í verk. Það gleymdi bæjarsjúkrahúsinu. það gleymdi íþróttasvæðinu, sem svo fallegar myndir birt ust af fyrir fjórum árum, bað gleymdi æskulýðshöll- inni, ekki bóíar heldur á bæj arbókasafninu og svo mætti lengi telja. Aftur á móti er holsteinahúsið komið langt á leið. Stórhugur þeirra framkvæmda er í réttu sam ræmi við „ráðhús“ þessara íhaldsmolbúa undir þak- gluggum uppi á hanabjálka lofti Eimskipafélagshússins, ;— gamalt erfðatimbur frá Hallgrími Ben. og Shell að ógleymdum holsteininura hans Eyjólfs. Fé til þessara framkvæmda hefur íhaldið fengið, ekki með betli hjá fátækum verkamönnum eins og kommarnir að sögn Mogg- ans, heldur með lokkandi auglýsingum, er birzt hafa í Morgunblaðinu nokkur hundruð sinnum og hljóða svo: § Fjögurra herbergja íbúð f i íne» öllutn v húsgö«nuni, í | | «ýju húfii á hitaveitus.s'o.t- & I m«, býðtir happd-emii § "áásbyggingarsji^s SjaM- | ínaað'i3Ílckksins. » s Ekki hefur hinn heppni enn gefið sig fram til þess að veita íhaldsíbúðinni mót- töku, — en það gerir ekki- mikið til, því að þess leng- ur fær hann Polli okkar að búa í henni. Kratarnir hafa líka samkomuhús. Þeir höfðu nú einfaldari aðferð en íhaldið. Þeir fengu ekki gefins holstein né sníktu á kostnað hús- næöisleysis. — Þeir hrein- lega stálu samkomuhúsi, eða réttara sagt samkomu- húsum. Hvað þeir hafa aö gera við samkomuhús fyrir kosn- ingar véit reyndar enginn, sízt þeir herrar sjálfir. Þótt Sósíalistaflokkurinn kippi sér ekki upp við þetta sprell íhaldsins, er hér gott dæmi um hið margumtal- aða lýöræöislega inm’æti þeirra. Frá kosningaskrif- stofunni ERT ÞÚ Á KJÖRSKRÁ? Kjörskrá liggur frammi 5 kosningaskrifstofunni. Allir kjósendur flokksins, einkum nýir kjósendur, ættu að athuga, hvort þeir erti á kjörskrá, því oft kemur fyrir að nöfn falla út af kjörskrá, þótt þau eigi að vera þar. Ef nöfn falla út af kjörskrá má kæra það til bæjarstjórn- _ ar. Kærufrestur er útrunninn 5. jan. n. k. Vegna þess hve kjósendur flokksins eru nú margir, eru þeir beðnir að láta ekki drag- ast að athuga hvort nöfn þeirra eru á kjörskrá til þess að forðast troðnhig á kosn- ingaskrifstofunni er líður að 5. janúar. AÐVÖRUN al vandamanna náms- manna, sem erlendis dvelja Það hefur komið í ljós að almargir menn, sem hafa dval ið erlendis, en eru nú komn- ir heim, hafa fallið út af kjörskrá. Þetta stafar í flestum til- fellum af því að vandamenn þessara manna hafa gleymt að skrá nöfn þeirra á mann- tal, þótt þeir dvelji erlendis. Fólk er því minnt á að til- kynna manntalsskrifstofunni ef gleymst hefur að skrá á manntal menn, sem erlendis dveljá. Samkeppnin verður birt á morgun. Þær deildir, sem litlu hafa skilað undanfarið ættu því að skila af sér í dag til þess að þær dragist ekki óhæfilega aftur úr. Nokkrar deildir hafa unn- ið mjög á t. d. skilaði 27. deild 1275.00 í gær. *-------------------------4 Útvarpið í dag: 20.20 Leikrit „Gifting“ eftir Go- gol (Leikstjóri: Arndís Björns- dóttir).. 22.00 Fréttir. 22.05 Danslög til kl. 24. Ljósatíini ökutækja er frá kl. 3 e. h. til kl. lu f. h. Næturakstur: B. S. í., simi 1540. Athygli fólks skal vakin á því að búðum verður lokað 2. janú- iar, allan daginn. — Á gamlárs- dag verða búðir opnar til kl. 4. Forsætisráðherra og frú hans taka á móti gestum í ráðherra- bústaðnum, Tjarnargötu 32, á ný- ársdag kl, 3—5. Happdrætti Háskóla ís- lands var stofhao með' lög- um árió' 1933 og tók til starfa 1. jan. 1934. Tilgang- urinn með stofnun happ- drættisins var að afla fjár til háskólabyggmgar, eins og kunnugt er. Gefin voru út 25000 númer, og seidist fyrsta áriö' 45 >> af miðun- um, en næsta ár um 65 % og hefur salan aukizt ár frá ári og hefur komizt upp í 93,5% á þessu ári. Verð heilla hiuta var í upphafi 60 kr. á ári, en var hækkað upp í 90 kr. í árs- byrjun 1940 og í 120 kr. í ársbyrjun 1943. Ágóði af rekstri happ- drættisins þessi 12 ár, sem það hefur starfað heíur orðið um 3.100.000 kr. Af því hefur ríkissjóður hlotið fimmta hluta, rúmlega 600 þús. kr., en af því fé var 200 þús. kr. varið til þess að reisa atvinnudeild háskól ans. Háskólabygging var fullgerð vorið 1940; var verk inu hraðaö svo sem auðið var, einkum eftir aö styrj- öldin hófst, og tókst að ljúka við bygging-una áður en verðhækkun varö, svo teljandi sé. Hefur sú ráð- stöfun sparað stórfé, en nauðsynlegt vár að taka lán tii þess að fuilgera húsið, og skuldaði happdrættið 945 þús. kr. í árslok 1940. Voru lán þessi greidd að íullu nú á þessu ári. Háskólinn hefur fengið einkaleyfi til Viappdrættis til ársloka 1959. En mörg verkefni eru fyrir höndum. Fyrst og fremst að lagfæra lóö háskólans, sem er mjög mikið verk. Háskólalóðin ér riálega 8 ha.. og verður af- arkostnaöarsamt að koma henni í sæmilegt horf. Þá er hafin bygging íþrótta húss og loks er í ráði að reisa hús yfir náttúnigripa- safnið fyir fé happdrættis- ins. Þaö er vafasamt, aö tekjur happdrættisins á þessu árabili hrökkvi fyrir þessum kostnaði. Bvaging- arkostnaður og vinnulaun hafa hækkað miklu meir en hækkun á verði hlutamiða nemur, en þa'ð er nú helm- íngi hærra en í upphafi, eins og áður segir. Hins veg ar þótti varhugavert að fara fram á frekari hækk- un á verði miðanna. Varö því að ráði aö fara fram á lagaheimild til þess að fjölga flokkunum, hafa þá 12 í stað 10. Ver'öur ver'ð' miðanna óbreytt í hverjuin flokki, en þar sem flokkarn ir eru nú 2 fleiri en áður, kostar fjórðungsmiði 36 kr. á ári í stað 30 kr. Alþingi tók vel undir þessa málaleitan, og var þessi breyting á happdrætt- islögunum afgreidd sem lög í desemberbyrjun. Þó að skammur tími væri til stefnu, var ákveðiö að fram kvæma breytinguna þegar á árinu' 1946. Ógerningur var þó að koma happdrættis- miðunum svo snemma út um land, að dregið yr'ði 10. janúar. Var ákveöi'ð að fresta drættinum til 30 jan- úar, draga síðan í 2 flokki 25. febrúai’. í 3. flokki 20. marz, í 4. flokki 15. apríl, í 5. flokki 10. maí, og síðan 10. hvers mánaöar, eins og áður. Velta happdrættisins eykst um 20% við þessa breytingu. En vinningar aukast einnig að sama skapi, bæði að tölu og verð- mæti, verða nú 7200 á ári, í stað 6000, og samtals 2.520.000 kr., en áður i 2.100.000 kr. Skipting vinn- inganna í flokka verður með líkum hætti sem fyrr, 1.—9. fl. verða að öllu ó- breyttir, en 12. flokkur, í desember, verður eins og 10. flokkur hefur verið hing að til. Allri aukningunni, 1200 vinningum, samtals 420 þús. kr., verður því sk-ipt milli 10. og 11. flokks, 1 október og nóvember. Það er full ástæöa til áð ætla, að almenningur muni taka þessari breytingu vel. Umboösmenn happdrættis- ins hafa orðið varir við, aö margir viðskiptamenn hafa óskað þess, að drégið yrði í janúar og febrúar, eins og í öörum mánuðum. Tæki- færi til vinnings aukast að rijiklum mun, þar sem 1200 vinningar bætast vi'ð. Fram að árinu 1941 voru vinning- ar 5000, eða 20 af hundr- aði, síðan 6000, eða 24 aí hundraði, en nú verða vinn- ingar 7200, þ. e. nálega 29 miöar (28.8%) af hverjú hundraði hljóta vinning á hverju ári. Eins og áður segir, seld- ust á þessu ári um 93 5% af öllum miðum. Var upp- selt hjá mörgum umboös- mönnum, bæði í Reykjavík og úti um land. Þessir um- boðsmenn geta því ekki selt neina nýja miöa fyrr en endurnýjunarfrestur er lið ■ inn, en hann er að þessu sinni til 20. janúar. Verða viðskiptamenn því að gæta þess vandlega aö. endurnýja fyrir 20. janúar, annars geta þeir búizt við því aö miöar þeirra veröi seldir. Hefur það þráfaldlega kom- ið fyrir hin síðari ár, að menn hafa gripiö í tómt, þegar þeir hafa a tla'ð a'ð fá númer sín síðustu dagana fyrh' drátt í 1. fl. Er alger óþarfi að láta þetta henda sig, eini vandinn aö kaupa iLiðana heldur fyrr en síð- ar, eöa í síðasta. lagi 20. jan úar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.