Þjóðviljinn - 23.08.1946, Page 3
Föstudagur 23. ágúst 1946.
ÞJÖÐVILJINN
S
ÍÞRÓTTIR
Ritstjóri: FRÍMANN HELGASON
Rey k ja víkurmótið:
Valur vann mótið á jafntefli,
1:1, við KR
Þessu þrítugasta og fyrsta
Reykjavíkurmóti lauk með
sigri Vals þar sem féla’ginu
nægði jafntefli við KR- Fékk
Valur 5 stig, KR og Fram 3
hvort og Víkingur 1 stig. Hef-
ur Valur unnið þennan titil
9 sinnum, en KR hefur unnið
hann oftast eða 15 sinnum
alls, Víkingar tvisvar, en
Fram 5 s'nnum.
Þessi síðasti úrsiitaleikur
þessara gömlu keppinauta
var ekki eins góður og marg-
ir fyrri lerk.'r þeirra, og má
þar aðallega um kenna tölu-
verðum stormi sem stóð á
norðurmarkið. Leikurinn
varð því nær einhliða sókn
þess er hafði vindinn með
sér.
KR kaus að leika móti vindi
í fyrri hálfleik. í byrjun leiks
ins átti KR hættulegt áhlaup
á Val. Ólafur Hannesson
slapp laus inn fj'rir, en fat-
aðlst skotið, eftir það má
segja að leikurinn hafi að
mestu haldið til á vallarheim-
ingi KR, og tuttugu og einn
maður á ekki stærri fleti gefa
ékki mikið olnbogarúm fyrir
fjörugan samleik, enda varð
það þóf sem gaf lítinn árang-
ur. Valsmenn áttu að vísu
nokkur ,góð skot á mark en
markmaður KR-inga varði af
mestu prýði. Gátu þeir oft
nokkuð leikið allnærri marki
KR, en skotið kom oftast of
se'nt, varnarleikmaður var
kominn og fékk truflað.
Sveini Helga tókst þó að gera
eina markið sem Valur setti,
úr aukaspyrnu. Fast skot
sem markmaður var ekki
nógu fljótur að slá yfir, og
þar við sat út hálfleikinn-
Síðari hálfleikurinn var í
flestu hrein eftirlíking þess
fyrri. Lá knötturinn oftast á
vallarhelmingi Vals með ein-
stöku áhlaupum frá hendi
Vals. Var „spenningur" mik-
iU meðal áhoríenda hvort
Val tækist að verjast hálf-
leikinn út. Leit það satt að
segja ekki vel íit því fram-
herjar KR eru yfirleitt góðar
skyttur og grípa oft vel þau
tækifæri sem bjóðast. Má þar
ef til vill þakka það góðum
og öruggum „staðsetningum"
í vörn'nni, sem gerði það að
verkum að þeir komust aldrei
í svokölluð opin tæki'færi.
Þegar um það bil 15 mín
eru eftir af leik íær KR auka
spyrnu, sem Haíliði tekur og
spyrnir beint á mark en
Hörður er ákafur og ræðst
að markmanni áður en knött
urinn er kominn og liggja
þeir inni í marki, kom knött-
urinn á þá ofan en dómarinn
dæmir aukaspyrnu á KR.
Litlu síðar er önnur auka-
spyrna dæmd á Val og tekur
Hafliði hana líka og nær
Ari að skalla í mark út við
stöng. Vex nú ákafi KR-inga,
en vörnin bilar ekki og end-
aði þessi leikur 1:1. sem er
yfirleitt nokkuð rétt mynd
af gangi hans.
Veðrið gaf þessum tveim
liðum ekki tækifæri til að
sýna samleiksgetu sína, en
varnarleikur Vaí.s var þó ör-
uggari með Hafstein, Sigurð,
Hermann og Svein Helga
sem beztu menn. Ellert kom
oft góðum spyrnum fyrir
mark.
í vörn KR var Birgir og
markmaðurinn og enda Karl
beztu menn KR-. auk þess
tóku þeir Jón og Ari oft góð-
an þátt í vörnmni. Er Ari orð
inn einn bezti framherji KR.
Dómari var Haukur Óskars-
son. Áhorfendur voru margir.
Á eftir afhenti Sigurjón Jóns
son sigurvegurunum bikar-
inn, svokallaðan „Skotabik-
I ar“. Samkvæmt venju átti að
keppa um „ReyKjavíkurhorn-
ið“, en sú breyt'.ng hefur ekki
verið tilkynnt fyrr, né form-
leg innköllun hornsins átt
sér stað.
Fram - Víkingur, 3:3
Það væri synd að segja að
þessi fimmti leikur Reykja-
víkurmótsins væri ekki við-
burðaríkur, og minnti óneit-
anlega á leik þessara félaga á
íslandsmó'dnu í vor. Þó öðru
vísi væri. Þó áhorfendur
væru ekki margir, virtust fé-
lagat'lfinningarnar streyma
af vörum þeirra með þeim
hávaða sem þúsundir væru.
Fyrst og fremst voru. leik-
menn eggjaðir lögeggjan.
Allt sem fyrir kom var vand-
lega vegið og mælt, mein-
láusar hendur, innköst, þó
við miðju væru að maður tali
nú ekki um allar vítaspyrn-
urnar og allt það. Auðvitað
sáu þeir og vissu betur en
dómarinn, og létu það óspart
í 1 jós- Og sjá. Það breytti
engu. Leikurinn hafði sinn
gang og ,.,straffíin“ líka, þó
veslings dómarinn væri ekki
öfundsverður.
Víkingur hafði móti vindi
að sækja fyrri hálfleik, og
tókst Fram að gera tvö mörk.
Það síðara var „léttkeypt“
(Víkingsmaður ,,kiksaði“).
Víkingur fær á sig víta-
spyrnu en hún er „brend af“.
Eru oft nokkuð lagleg áhlaup
á báða bóga, en Framarar þó
hættulegri, og hefur legið
heldur á Víking þennan hálf
leik. Þegar í byrjuh hefur
Frarn sókn og er í því áhlaupi
dæmd vítaspyrna sem Gísli
tekur en spyrnir fyrir ofan.
Dómarinn lætur taka hana
aftur og gengur Kristján nú
til og spyrnir framhjá marki.
Enn gefur dómarinn merki
um að hún skuli tekin enn á
ný. Af hverju? Af því að
Anton var 1—2 m fyrir fram
an marklínu og hoppaði þar
að auki, en markmaður verð
ur að_ standa á marklínu og
i með báða fætur á jörð þar til
sparkað hefur verið.
Nú kernur Magnús Ágústs-
son til og spyrn r í mark 3:0
fyrir Fram- Litlu síðar fá
Víkingar aukaspyrnu fyrir
utan vítateig, sem Haukur
gerir mark úr. Lifna Víking-
ar nú við, og eftir nokkra
stund kemur ein vítaspyrnan
enn og þá á Fram. Gerir
Guðm. Sam. mark úr henni.
3:2. Enn vex „spenningurinn"
og má segja að báðir geri
villt áhlaup og fá svokölluð
opin tækifæri, en hraðinn og
ákafinn er það mikill að ró
til að enda vantar. Voru oft
tíðar skiptingar og spyrnur
yfir þveran völl sem gáfu ó-
vænt tækifæri sem drukkn-
uðu í ákafanum. Rétt fyrir
leikslok fær Víkingur auka-
spymu nokkuð úti á velli,
sem Haukur Óskarsson tekur
rnjög vel en Hörður Ólafs-
son er þá kominn í mark
Fram og stýrir knettinum lag
lega í mark, 3-3, og þannig
lauk þesum leik. Geta báðir
verið nokkuð ánægðlr með
úrslitin þó 3:0 hefðu átt að
tryggja Fram sigur. Valtýr,
Kristján, Þórhal.lur og Gísli
voru góðir. Nýliðarnir lofa
einnig góðu- Hjá.Víking voru
Anton, Gunnlaugur, Einar
Pálsson og Ingi góðir, enda
Ragnar og Baldur. Hörður er
oft laginn.
Tilkynning
til kaupmanna og kaupfélaga.
Við getum nú afgreitt með stuttum
fyrirvara flestar tegundir prjóna-
fatnaðar.
Sýnisliorn liggja frammi,
Gerið haustpantanir gðar, sem fyrst.
Ullariðjan
Hamarshúsi. — Sínii 6751.
Geymið auglýsinguna yður til minnis.
____________________________________A
Tímaritið Stígandi ;
nýjasta heftið, 2. h. 4. árg. flytur þetta efni:
Innan lands og utan (Bragi Sigurjónsson).
ísland 17. júní 1946 (Friðjón Jónasson).
Siðgæði og tækni (dr. Matthías Jónasson).
Mihailovitch (Kári Tryggvason).
Stjórnarskrárákvæðin um eignarrám, Jón
GaUti Pétursson þýddi.
Sjónaukinn (saga e. G. Rauter, I. Brynjólfs-
son).
Frá listsýningu Lithoprents (14 myndasíður).
Guðfinna Jónsdóttir frá Hömrum (Jórunn
Ólafsdóttir).
Veraldarsaga móður Parker (K. Mansfield).
Sigurður Kolsted (Hannes Jónsson).
Leyndardómar tilverunnar (V. Stanley Ald-
er).
Sagan af Segla-Smith (W. L. Schramm).
STÍGANDI kemur út ársf jórðungslega og kostar kr.
24.00 (20 arkir. Fæst í bókaverzlunum. Enn fáan-
legur frá byrjun hjá afgreiðslumanni
JÓNl SIGURGEIRSSYNI
Pósthólf 76, AKUREYRI.
---------------------------------------------ij
Auglýsingar
sem birtast eiga í blaðinu á sunnu-
dögum í sumar þurfa að vera
komnar fyrir kl. 7 á föstudögum.
MUNIfí að auglýsingarsími Þjóðvilj-
ans er
6399
Vélsmiðjan Bjarg
Höfðatúni 8
bíður heiðraða viðskiptavini sína að veita
því athygli, að símanúmer hennar verður
framvegis sjötíu og einn átta f jórir
718 4.
Vinsamlegast klippið auglýsinguna úr og
festið hana í símabókina yður til minnis.