Þjóðviljinn - 28.01.1947, Side 8
Góður fiskafli á Vestfjörðum -
Vertíð á Homafirði hefst um
næstu mánaðamót
ASlaíréttÍE miðaðar við lok síðustu viku
Á Vestfjörðum hefur yfirleitt verið góðfiski í janúar-
mánuði.
Á Austf jörðum er enn lítið um róðra, en ætlað er að
vertíð á Hornafirði hefjist um næstu mánaðamót. Búa
menn sig þar undir aíð salta fiskinn.
Frá Patreksfirði hafa enn að-
eins tveir bátar stundað veiðar
og farið 8—10 sjóferðir. Hafa
þeir aflað mest um 10 smál.
goS guaa ypaiaijiC .injaq So
ur.
Frá Bíldudal og Þingeyri hafa
þrír bátar stundað róðra en frá
Flateyri aðeins 1. Hefur afli
þar sömuleiðis verið ágætur og
gæftirnar sæmilegar. Flest
hafa verið famar 8 sjóferðir
og aflinn upp í 8—10 smál. í
ferð.
Frá Suðureyri hafa verið
farnar allt að 11 sjóferðir og
hefur aflazt þar mjög vel, oft-
ast 8—10 smál. og allt upp í
rúmlega 13 smál.
Frá veiðistöðvunum við ísa-
fjarðardjúp, Bolungavík, Hnífs
dal, Isafirði og Súðavík hefur
afli verið ágætur og hafa ver-
/—--------------------------
Hinir ,,föstu
fætur“ Alþýðu-
flokksins
Allt er hverfanda hveli í
þessum heimi. Á laugardags-
kvöld sofnuðu Alþýðublaðs-
menn á „fösium fótum“ í Ár-
nessýslu. Á mánudaginn vökn
uðu þeir fótalausir á Selfossi.
Á laugardaginn skrifuðu A1
þýðublaðsmenn um framboð
Alþýðufl. á Selfossi. ,,Hinum
flokkunum gekk báglega að
koma upp listum við kosning-
arnar“, sögðu þeir, og halda
síðan áfram að „kommúnist-
ar gáfust upp“ og „Framsókn
klofnaði". — Er það ekki mun
ur eða Alþýðuflokkurinn! —
Smámuni eins og þá stað-
reynd að „Alþýðuflokkurinn“
þriklofnaði þegar framboð
verkamanna og óháðra varð
kunnugt, varðar hina sann-
söglu Alþýðublaðsmenn ekki
um!
Svo litu Alþýðublaðsmenn
niður á fæturna á sér á laug-
ardaginn og sáu hvað þeir
voru stórir: ,,... góðar vonir
eri' á þvi, að Iisti flokksins
muni eiga allverulegu fylgi
að fagna, enda er hann skip-
aður starfshæfum og vinsæl-
um ínönnum. Alþýðuflokkur-
inn reyndist eiga miklu og
vaxandi fylgi að fagna í Ár-
nessýslu við Alþingiskosning-
arnar í sumar og stendur föst
um fótum víða í sýslunni“
(Leturbrevting Þjóðviljans).
Kosið var á sunnudaginn
Alþýðuflokkurinn var sá eini
sem engum manni kom að.
Hvort Alþýðublaðsmenn hafi
á mánudagsmorgun sagt:
Fáið mér fæturna mína aft-
ur! skal ósagt látið hér.
ið íarnar þaðan allt upp í 17
sjóferðir en yfirleitt 13—14.
Hafa bátar þaðan aflað yfir-
leitt 9—10 smál. í sjóferð en
komizt allt upp í nálega 14
smál.
Á Hólmavík liefur afli verið
jafngóður en lítið stundað enn
af stærri bátum. Hafa þeir far-
ið mest 14 sjóferðir og aflað 5
—6 smál. og sömuleiðis hafa
opnir bátar aflað þar vel.
Á Djúpavogi hafa nokkrir
bátar stundað veiðar með hand
færi og hefur afli verið góður.
I Berufirði hefur verið mikil
síld en óhagstætt veður hefur
hamlað mjög veiðum.
Framh. á 6- síðu
7735 hafa
fiuizf tti
Mey k| avikiir
árfn 1040—
’45
Samkvæmt athugunum, sem
Fasteignaeigendafélag Reykja-
víkur hefur látið fara fram á
manntali Reykjavíkur 1945,
. hafa 7753 utanbæjarmenn
flutzt til Reykjávíkur og tekið
þar fasta bólfestu á árunum
1940—1945, og þar af 2837
síðasta árið.
I tölu aðfluttra utanbæjar-
manna, þeirri er að ofan grein-
ir, eru aðeins þeir,. sem telja
lögheimili sitt í Reykjavík.
Nemendur og aðrir, sem í bæn-
um dveljast, eru ekki taldir
með.
Félagið vekur athygli á því,
að á árinu 1946 hafi mikill
straumur verið til bæjarins af
innflytjendum, m. a. útlending
um svo að gera megi ráð fyrir
að tala aðfluttra utanbæjar-
manna sé nú ekki innan við
10.000.
Tónlistarsýningin:
Álieiiar umræður um listiál
Um þúsund manns sóttn sýninguna á degi Sovéfríkj-
anna. — Tónlistaikvikmyndin endurtekin. — Dag-
ur Frakklands er í dag.
Á þriðja þúsund manns hafa nú sótt tóniistarsýning-
una og hafa langflestir komíð tvo síðustu dagana; á degi
Sovétríkjanna komu um 1000 manns.
Á laugardaginn verður dagur Islands og munu verða
almennar umræður um listmál það kvöld.
Á sunnudaginn er norræmi dagur og verður þá sýnd
Sibeliuskvikmynd. — Sovétkvikmyndin mmi verða sýnd
aftur i sambandi við tékkneska daginn.
Saanfylking
afturhaldsins
sigraði í
Þréttí
Vörubílfreiðastjárafélagið
Þróttur hélt aðalfund sinn sl.
sunnudag.
Sendimenn afturhaldsins i
Alþýðuflokknum. höfðu hald-
ið uppi taumlausum rógi og
lygum um formann Þróttar,
Einar Ögmundsson, og tókst
með samfylkingu við íhaldið
að fella hann frá endurkosn-
ingu með 6 atkvœða mun.
Atkvæði féllu sem hér seg-
ir:
Form-: Asgrímur Gíslascn
66 atkvæði. Einar Ögmunds-
son fékk 60.
Varaform.: Jón Guðlaugs-
son með 40 atkv. Stefán
Hannesson fékk 34 atkv.
Ritari: Sveinbjörn Guð-
laugsson endurkjörinn með
yfirgnæfandi meirihluta.
Gjaldkeri: Pétur Guðfinns-
son, einnig endurkjörinn.
iMeðstjórnandi: Stefán
Hannesson með 59 atkv.
Ekki þarf að efa að fleiri
munu vilja aðkomast á degi Is-
lands en rúm verður þá, þá
um kvöldið er fyrirhugað að
hafa almennar umræður um
listmál. Karlakórinn Fóstbræð-
ur mun syngja. Aðgöngumiðar
að þeim degi verða seldir fyrir-
fram.
Metaðsókn var á degi Sovét-
ríkjanna eða þúsund manns.
Jón Leifs, formaður sýningar-
nefndar bauð sovétsendiherra
velkominn með eftirfarandi
ræðu:
„Hæstvirtu sendiherrar og
ráðherrar! Kæru landar!
Með sýningu þessari hefur
Tónskáldafélag íslands viljað
heiðra mestu tónmenntalöndin
og gefa íslenzkum stjórnarvöld
um færi á að láta í ljós virð-
ingu sína gagnvart þeim lönd-
um, sem studdu sjálfstæðisvið-
leitni vora og hafa það enn
mörg í hendi sér hvort íslend-
ingar fá að vera sjálfstæð þjóð
á komandi öldum eða ekki.
Afstaða vor til þessara landa
getur ekki skapazt af viðskipta
Framhald á 7. síðu.
Þingvísa
Marga vildi ég færa fórn
til friðþægingar syndar,
en ekki þá að styðja stjóm;
sem Stefán Jóhann myndar.
öánægja spnama nær kámarki
Meir en tveir þriðju sjómanna tóku ekki þátt í kosn-
ingunni —■ Sigurjón „endurkosinn" meS 329 atkv.
aí yíir 1500 á kjörskrá
Úrslitin í stjórnarkosningu í Sjómannafélagi Keykja-
víkur urðu kunn á aðalfundi félagsins s.l. sunnudag.
Óánægja sjómanna með núverandi stjórn í félaginu
náði nú hámarki með því að aðeins 329 af yfir 1500 sjó-
mönnum á kjörsltrá „endurkusu“ Sigurjón.
Sjómenn fá engu ráðið um uppstillingu til stjórnar,
það gerir Iandsetulið þeirra Sæmundar og Co. Meir en tveir
þriðju atkvæðisbærra sjómanna mótmæltu þessu með því að
greiða ekki atkvæði. Af yfir 1500 sjómönnum á kjörskrá
greiddu aðeins 462 atkvæði — þrátt fyrir tveggja mánaða
smölun Sæmundar-manna.
Formaður: Sigurjón Á.
Ólafsson 329 (576), Ólafur
Kristjánsson 62, Jón Ár-
mannsson 44.
Varaform.: Ólafur Friðriks
son 317 (450), Jón Jóhanns-
son 60. Þorv. Egilsson 51.
Ritari: Garðar Jónsson 329
(540), Pétur Einarsson 47.
Guðmundur Sigmundsson 47
Gjaldkeri: Sigurður Ólafs-
son 366 (641), Guðni Sigurðs-
son 39- Sigui'ður Þórðarson
34.
Varagjaldkeri: Karl Karls-
son 293 (528).Ólafur Sigurðs-
son 72, Óli Kr. Jónsson 57.
Síðasttöldu mennimir í
hverju sæti eru þeir ser.i
Sæmundarnir dubbuðu sem
,,gervi“-stjórnarandstöðu.
Síðastliðið föstudagskvöld
hvarf maður hér í bœnum.
Hann heitir Bjarni Arnason
er Bolvíkingur, 31■ árs að
aldri, skipverji á v. s. Haf-
borg. Þegar blaðið átti í gær
tal við rannsóknarlögregluna
hafði enn ekkert spurzt til
Bjama, frá því hann hvarf.
Framhald á 7. síðu
‘ Næstum helmingi færu* * 3 4 5
greiddu atkvæði nú, en Maður
fyrra, þá greiddu 811 atkv.
Um hálft þriðja hundrað I hverlwr
sjómanna sem kusu Sigurjón
í fyrra greiddu honum ekki
atkvæði nú. Atkvæðatölur
voru sem hér segir: (atkvæða
tölur í fyrra í svigum):
Frumvarp um þjoiliiýtifligu
kvtkmyndarefesturs á ísl.
flutt á Alþingi
Ilannibal Valdimarsson flytur á Alþingi frumvarp um
þjóðnýtingu kvikmyndareksturs í landinu, og eigi ein stofn-
un, kvikmyndastofnun ríkisins, að hafa með höndum inn-
flutning kvikmynda og rekstur kvikmyndahúsa.
Hlutverki stofnunarinnar er
lýst þannig í 4. gr. frv.
„Kvikmyndastofnun ríkisins
skal keppa að því að gera kvik-
myndir að sem almennustu og
þjóðlegustu menningartæki lilið
stæðu útvarpi og skólum. I
þessu skyni skal Kvikmynda-
stofnunin m. a.:
1. reka kvikmyndahús sem víð
ast um landið, en halda uppi
ferðasýningum kvikmynda, þar
sem ekki eru skilyrði fyrir
rekstri fastra kvikmyndahúsa:
2. sjá skólum landsins fyrir
fræðslukvikmyndum og aðstoða
þá við sýningar slíkra kvik-
mynda;
3. Vanda sem bezt val þeirra
erlendra kvikmynda, sem flutar
eru inn í laridið til sýningar,
með tilliti til þess að bægja
burtu siðspillandi, óþjóðhollum
og menningarsnauðum kvik-
myndum;
4. gera íslenzka texta við er-
erlendra kvikmynda sem fluttar
sem föng verða á;
5. efla innlenda kvikmynda-
gerð og gera íslenzkar kvik-
myndir.
Framhald á 7. síðu.