Þjóðviljinn - 02.08.1947, Qupperneq 1
BANDÁRIKIN BJODAST TIL AÐ MIBLA
INDONESIUDEILUNNI
Harðir bardagar geisa ninliveríis Malaitg.
Nýr flokkur
í Ungverjalandi
Formaður eftirliísuefndar
Bandamanna í Ungverjalandi
hefur skýrt frá því, að Zoltan
Pfeiffer, einum af hægrileiðtog-
um uugverska smábændaflokks
ins, hafi verið leyft að mynda
nýjan flokk, Öháða lýðræðis-
flokkinn.
Pfeiffer var dómsmálaráð-
herra í stjórn Nagys, en hafði
sagt af sér embætti, þegar upp
komst um samsærið. Hann er
kunnur fyrir andstöðu sína
gegn sósíalistum og þjóðnýting-
arstefnu stjórnarinnar.
Öryggisráðið ræddi Indónesíusiyriöldina í
gær, og skýrði van Kleffens, sendiherra Hollendinga
I Washington, frá því, að Bandaríkjastjórn hefði
boðizt til að miðla ntálum í deiln HoIIendinga og
Indónesa. Kvaþ hann stjórn sinni ljúft að ræða
hvernig aðstoð Bandaríkjanna við lansn deilunnar
kæmi að heztum notum. '
Gromyko, fulltrúi Sovétríkjanna, andmælti því,
að Bandaríkjastjérn skipti sér af lausn deilunnar,
eftir að deilumálin hefðu verið lögð fyrir samein-
uðu þjóðirnar.
Herschel Johnson fulltrúi
Breta lýsti yfir ánægju sinni
yfir því, að Bandaríkin hefðu
boðizt til að hjálpa við lausn
deilunnar, en kvað ekki rétt,
að málið yrði tekið af dagskrá
öryggisráðsins, þó svo væri, en
fram á það hafði Austin, full-
trúi Bandaríkjanna, farið.
I stuttu máli
Frönsk sendinefnd mun í
byrjun septembermánaðar
fara til Washington til að
ræða við bandarísku stjórn-
ina um hveitiflutning frá
Bandaríkjunum til Frakk-
lands.
*
Sex menn hafa verið hand-
teknir í Rangoon, ákærðir
fyrir moi’ðin á ráðherrunum
átta á dögunum.
>
Forsætisráðherra Egifta
hefur lýst yfir óánægju sinni
yfir því, hve slælega Bretar
ganga fram í því að flytja
her sinn úr landinu, eins og
lofað hafði verið.
*
Fyrrverandi leppstjóri Jap-
ana í Burma, sem Bretar
tóku fastan í fyrra en létu
lausan aftur, hefur nú verið
handtekinn aftur.
*
Yfirmaður bandarísku
nefndarinnar í Grikklandi
hefur tilkynnt að engu af
vörum þeim, sem Bandaríkin
munu flytja til Grikklands,
verði dreift á svæðum þeim,
sem skæruliðar ráða yfir.
¥
Gengi lírunnar hefur nú
verð breytt þannig, að fram-
vegis verða 350 lírur í doll-
aranum, þ. e. rúmar 50 lírur
í ísl. krónur.
ERFITT AÐ SKILJA.
Meðan fundur öryggisráðsins
stóð yfir, sagði talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins, að ekki væri rétt, að
Bandaríkjastjórn hefði boðizt til
að miðla málum, hins vegar
hefði hún boðið aðstoð sína við
lausn deilunnar. Ekki skil-
greindi hann nánar, hver mun-
ur væri á þessu tvennu, en
skýrði frá þvi, að Indonesum
hefði ekki verið gert sams kon-
ar tilboð. Ekkert var minnzt á
þessa yfirlýsingu utanríkisráðu
neytisins á fundi öryggisráðs-
ins.
VAN KLEFFENS VILDI
FRESTA UMRÆÐUM.
Gromyko, fulltrúi Sovétríkj-
anna, andmælti eindregið því,
að Bandaríkin tækju málið úr
höndum öryggisráðsins, og
færu þannig inn á starfssvið
sameinuðu þjóðanna.
- Van Kleffens fór fram á það,
að umræðunum yrði frestað í
tvo tíma, þar sem hann bygg-
ist við mikilvægu símtali við
stjórn sína, sem gæti haft á-
hrif á afstöðu hans í málinu.
Bæði Sovétríkin og Ástralía
mótmæltu þessu, og kváðu nauð
synlegt, að umræðunum yrði
hraðað. Tilmæli Kleffens voru
borin undir atkvæði, og sam-
þykkt með 6 atkvæðum, en þar
sem 7 atkvæði þarf í öryggis-
ráðinu til að nokkur tillaga
hljóti samþykki, ákvað forseti
fundarins að umræðunum
skyldi haldið áfram, og stóðu
þær enn yfir, þegar blaðið fór
í pressuna.
HARÐIR BARDAGAR
VIÐ MALANG.
Fréttaritarar segja, að harð-
ir bardagar geisi nú umhverfis
borgina Malang á austurhluta
Jövu og telja þeir, að hollenzka*-
herstjórnin hafi nú hætt við þá
ákvörðun sína, að láta sér
nægja að halda þeim stöðvum,
sem hún hafði þegar náð á sitt
vald, og muni kappkosta að
vinna algeran sigur á hersveit-
um Indonesíumanna og áfvopna
þær.
Palestínunefndin
í Genf
*■' EMIL SANDSTROM $
formaður rannsókuarnefnd-
arinnar
Rannsóknarnefnd sú, sem ör-
yggisráðið skipaði í s. 1. maí,
um Palestínumálin, hefur nú
aðsetur sitt í Genf, þar sem hún
mun vinna úr gögnum þeim,
sem hún hefur safnað.
Nefndin hefur ákveðið að
rannsaka hag Gyðinga í Aust-
urríki og Þýzkalandi, hvort
þeir vilji flytjast til Palestínu
og þá hvers vegna. Búizt er við,
að skýrslu megi vænta frá
nefndinni innan skamms.
Öeirðir
í Palestínu
Gyðingar, vopnaðir hand-
sprengjum, gerðu í gær tilraun
til að brjótast inn í aðalstöðv-
ar brezka liersins í Jerúsalem.
Brezku varðmönnunum tókst
að stöðva þá, og var einh þeirra
drepinn en tveir handteknir.
Öeirðirnar í Telaviv, sem hóf
ust í fyrradag, héldu áfram í
gær. Hópur Gyðinga réðst á
tvo brezka herbíla, hvolfdi
þeim og kveikti í þeim. 56
menn særðust og voru fluttir
í sjúkrahús.
Brezka stjómin ræðir ié
Fer f raiii á leatgri vinamdag.
Brezka stjómin hafði í gær fund með ýmsum leiðtogum
yerkalýðssamtakanna og er búizt við, að hún liafi farið
fram á að verkamenn Iengdu vinnutíma sinn til að bjarga
Bretlandi úr efnahagskreppu þeirri, sem er fyrirsjáanleg,
þegar handaríska lánið er til þurrðar gengið. Hún hefur
þegar farið fram á það við kolanámumenn, að þeir lengi
vinnudaginn um hálftíma.
Viðstaddir fundinn voru á-
ætlunar-, verkamála- og birgða-
málaráðherrar Breta. Morrison,
sem hefur yfirstjórn allra áætl-
ana með höndum, lagði áherzlu
á hina alvarlegu efnahags-
kreppu, sem England er í. Bú-
izt er við, að brezka stjórnin
muni kalla allan her sinn
Grikklandi heim, þegar á næst-
unni, til að auka vinnuaflið, og
her sinn á ítalíu verða Bretar
að hafa flutt úr landi, í síðasta
lagi þrem mánuðum eftir að
friðarsamningarnir hafa verið
undirritaðir, en eins og kunn-
ugt er, hefur ítalska þingið nú
samþykkt þá.
Nazisfar í þjón-
ustu Breta
Formaður nefndar þeirrar
sem brezku hernámsyfirvöld-
in í Austurríki hafa skipað
til þess að sjá um, að fyrr-
verandi nazistar verði fjar-
lægðir úr embættum, er dr.
Karl Nevole, fyrrverandi
kapteinn í þýzka hernum.
sem var háttsettur maður
vopnaframleiðslu ÞýzkalandsJ
Sjö af 35 dómurum í hér-
aðinu Kárnten eru fyrrver-
andj meðlimir nazistaflokks-
ins. Blöð Vínarborgar segja
daglega frá því, að háttsett-
um nazistum hafi verið
sleppt úr fangelsi. Nýlega
hafa þeir dr. Eppinghauser,
fyrrverandi liðsforingi í SS
og Philip Sheller stóriðju-
höld, sem gegndi ýmsum
trúnaðarstöðum fyrir nazist-
ana verið látnir lásir.
(ALN)
TÓBAKSINNFLUTNINGUR
EKKI SKERTUR.
Eins og áður hefur verið
skýrt frá, er það álitið, að ein
af fyrirætlunum brezku stjórn-
arinnar sé, að minnka innflutn-
inginn frá Bandaríkjunum veru
1 lega, en því hefur nú verið neit-
að, að skerða ætti tóbaksinn-
flutninginn, eins og húizt hafði
verið við.
VIÐRÆÐUR CRIPPS
OG CLAYTONS.
Viðræður þeirra Stafford
Cripps og Claytons héldu áfram
í gær, og talið er, að Cripps
hafi tilkynnt Clayton, að
brezka stjórnin sjái sér ekki
fært, eins og ástatt er, að taka
þátt í þeim ráðstöfunum, sem
Bandaríkjastjórn hefur lagt til
að gerðar verði til að auðvelda
milliríkjaviðskipti.
í| Ný spönsk
útlagastjórn?
Prófessor Augusto Barcia,
forsætisráðherra spönsku át-
lagastjórnarinnar, átti í gær
viðræðu við forseta lýðveldis-
sinna, Martinez Barrio, og cr
álitið, að hann liafi afhent hon-
um lausnarbeiðni sína.
Búizt er við, að Barcia ve;\ i
falið að mynda nýja stjórn, þar
sem kommúnistar eigi engaa
fulltrúa, en þeir áttu einn í frá-
farandi stjórn.