Þjóðviljinn - 02.08.1947, Page 4
4
ÞJÖÐVILJINN
Laugardagur 2. ágúst 1947
þJÓÐVILIINN
Útgefandi: Sameinlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnús Kjarlansson, Sigurður Guðmundsson, áb.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Ritstjórnarskrifstofur: Skólavörðuat. 19. Símar 2270 og 7600
(eftir kl. 19.00 einnig 2184).
Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, siml 2184.
Auglýsingar: Skólavörðustig 19, simi 6399.
Prentsmiðjusími 2184.
Askriftarverð: kr. 8.00 á mánuði. — Lausasöluverð 60 aur. eint
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
k _____----------------------------------------'
Fasistapeðin eru söm við sig
Nazisminn er ekki þýzk uppgötvun, og á ekkert skylt
við „þýzka kynþáttinn" eða „eðliseinkenni“ han’s, eins og
algengt er að boða 1 Bandaríkjunum. Nazisminn er ekki
horfinn með ósigri Þjóðverja í styrjöldinni. Hann er bein
afleiðing af hagkerfi kapítalismans, hástig kapítalismans,
ef hann fær að renna skeið sitt óhindraður. Gleggsta dæmið
um þetta er þróunin í Bandaríkjunum. Það var prédikað
fyrir hermönnunum, að hið menningarsögulega hlutvark
þeirra væri að leggja fasismann að velli; en varla hafa
þeir fyrr unnið sigur í styrjöldinni en sjálfur fasisminn er
að leggja undir sig heimaland þeirra.
Hér á íslandi er kapítalisminn ungur og fasisminn héfur
ekki átt eðlilegan fjárhagsgrundvöll hér. Engu að síður
hefur fasisminn átt ötula fylgjendur hér á landi, menn
sem hafa dáðst að afrekum hans erlendis og viljað óðfúsir
beygja íslenzku þjóðina undir okið. Allt frá því að Gísli
Sveinsson og Jón Þorláksson fögnuðu nazismanum í upp-
hafi og þar til nú, að Bjarni Benediktsson og Jóhann Þ.
Jósefsson hafa setzt í ráðherrastóla, hafa ýmsir helztu
ráðamenn Sjálfstæðisflokksins dáð fasismann og fylgt hon ■
um af innstu sannfæringu. Og Morgunblaðið, aðalmálgagn
flokksins, hefur haldið þeirri stefnu fram leynt og ljóst
frá því fyrsta. Alla tíð frá því nazistar tóku völdin í
Þýzkalandi og þar til ísland var hernumið af Vesturveld-
unum, fagnaði Morgunblaðið öllum glæpaverkum þeirra
og flutti áróður í þeirra þágu, bæði í fréttaþjónustu sinni
og pólitískum skrifum.
En nú er þýzki nazisminn að velli lagður og Morgun-
blaðið klígjar ekki við að sparka í hræ vina sinna látinna.
Nú fær sannleikurinn um þá loksins rúm á síðum þess,
sá sami sannleikur sem áður var spottaður og fyrirlitinn.
En þessi hamskipti- bera vissulega ekki vott um neina
hugarfarsbreytingu. Hinar fasistísku skoðanir eru jafn rót-
grónar hjá stjórnendum Morgunblaðsins og núverandi ráð-
herrum Sjálfstæðisflokksins og þær hafa ævinlega verið,
og þessir háu herrar hafa nú eignazt nýtt föðurland, sem
er „vestrænt", þar sem hið fyrra var „germanskt".
Og áróðurinn er enn sá sami og fyrr, þrotlaust níð um
sósíalista og botnlausar svívirðingar um Ráðstjórnarríkin.
Og þessir fornu rekkjunautar nazistanna ganga svo langt
í blygðunarleysi sínu, að þeir reyna að sverja af sér skoð-
anir sínar yfir á sósíalista! Nú eiga sósíalistar að hafa
verið bandamenn nazista! Það ber væntanlega svo að skilja
að þær milljónir sósíalista og kommúnista, sem nazistar
fangelsuðu, píndu og myrtu, hafi látizt í faðmlögum við
rekkjunauta Valtýs Stefánssonar og Bjarna Benediktssonar.
En þegar allt um þrýtur, er Rússlandsgrýlan kölluð fram
á sjónarsviðið, og Bjarni Benediktsson virðist ætla að gera
það helzta afrek sitt í utanríkismálum, að hafa att Valtý
Stefánssyni rækilegar á foraðið en dæmi eru til. í gær
skrifa þeir sálufélagarnir í forustugrein að morðverksmiðjur
nazistanna í Austur-Þýzkalandi, þar sem hundruð þúsunda
andfasista — andstæðinga Valtýs og Bjarna — voru myrtir
á stríðsárunum, séu nú aftur teknar til starfa undir stjórn
Rússa. Að sjálfsögðu vita þessi Bandaríkjapeð að þau ljúga,
en hverju skiptir það; fasistar hafa aldrei verið vandir að
vopnum. En hitt mætti verða íslenzku þjóðinni hugstætt,
að enginn utanríkisráðherra í heimi annar en Bjarni Bene-
SKAMMIR
UM DÝRA-
SÝNINGUNA
„Strammi11 sendir mér eftir-
farandi bréf um dýrasýninguna
í Örfirisey:
„Eg er satt að segja hneyksl
aður á þér, Bæjarpóstur góður,
að hafa ekki gagnrýnt hina
margumtöluðu dýrasýningu í
Örfirisey. Sýningin er til
skammar. Með henni er sá göf-
ugi málstaður, sem henni er
ætlað að styrkja, harkalega
lítilsvirtur. Frágangurinn er
svo flausturslegur og handar-
bakshátturinn á öllu, að manni
blöskrar. Þarna eru fullorðnir
látnir borga 10 krónur og börn
5 krónur fyrir að horfa á örfá
dýr og fugla í umhverfi, sem
ber vott um íslenzkan subbu-
hátt á hæsta stigi.
*
HVAÐ VERÐUR
UM EYNA?
„En úr því maður er farinn
að taia um Örfirisey; hvað á
að verða um hana í framtíö-
inni? Er það kannski ætlunin,
að sumaryndi hennar og friður
verði framvegis bannað okkur
Reykvíkingum nema fyrir pen-
inga ? Á framvegis að nota eyna
sem samastað fyrir einhverja
söfnunarstarfsemi og meiri
skröll á sumrin? Það þætti mér
fráleitt. Og ég vil ekki, fyrr
en í lengstu lög, trúa því, að
satt sé sem heyrzt hefur, að
þarna eigi að byggja síldarverk
smiðju og beinamjölsverk-
smiðju einhv. ,,prívat“manna.
Það hlýtur að vera hægt að
finna slíkum verksmiðjum hent-
ugri stað fjær hjarta bæjarins.
Það má ekki eyðileggja gömlu
Örfirisey fyrir okkur gömlum
Reykvíkingum.
Strammi“.
Eg ætla ekki að gera neinar
athugas. við þetta bréf nema
þá, að ég hef hingað til ekki
minnzt á Dýrasýninguna í Örf-
irisey af þeirri einföldu ástæðu,
að ég hefi ekki séð hana.
*
DANSLAGA-
STRÍÐIÐ
Enn ein ung stúlka hefur
fundið ástæðu til að skrifa
ónot um danslög útvarpsins. Eg
vil sem fyrr gæta hlutleysis í
því eilífa deilumáli, þar sem ann
arsvegar standa draumlyndar
yngismeyjar í kröfugöngufylk-
ingu með stórar myndir af
Frank Sinatra, Bing Crosby
Harry James og öðrum stór-
frægum hjartaknosurum, æp-
andi „Give me five minutes
more“, „My dreams are getting
better all the time“, „Love is
a wonderful thing“ —
o. s. frv. en hinsvegar
standa ofsafengnir harmónikku-
dýrkendur og bíta í skjaldarend
ur; — og utan við allt standa
svo hinir eitilhörðu jazzistar og
gretta sig eins og anaikistar.
Eg tek það enn einu sinni fram,
að ég vil alls ekki blanda mér
í þetta miskunnarlausa stríð; og
ég öfunda. ekki þá, sem þurfa
að velja danslög útvarpsins.
Það hlýtur að vera erfitt að
gera skjaldrandarbítandi har-
mónikkudýrkendum, draumlynd
Framhald á 7 síðv
ungarsamningur
seðfir The New Staiesman msil Watinn
Eins og lesendur Þjóðviljans minnast tók hið
heimskunna brezka blað New Statesman and Nati-
on mjög drengilega málstað íslendinga í herstöðva-
málinu. Það hefur einnig látið í ljós síðar mikla
andúð á framferði Bandaríkjamanna í þessu máli.
14. júní birtist þar grein, sem svar við leiðréttingu
sem Stefán Þorvarðarson sendiherra hafði sent
blaðinu. Virðist leiðréttingin hafa haft að geyma
afsakanir á hegðun landsölumanna, en hún er ekki
birt í blaðinu, enda þótt siður þess sé að birta öll
bréf sem birtingarhæf eru. Greinin í New States-
man and Nation fer hér á eftir:
„í síðustu viku skrifaði rit-
stjórinn í athugasemd við
bréf um yfirgang Banda-
ríkjanna, að Bandaríkin
hefðu „haldið flugbækistöð
sinni á Islandi gegn vilja ís-
lenzka þingsins". Nú hefur
borizt bréf frá hr. Þorvarð-
arsyni, sendiherra íslands,'
þar sem hann bendir á að
Alþingi hafi samþykkt samn-
inginn, sem leyfði Bandaríkja
mönnum að halda Keflavíkur
flugvellinum, með talsverð-
um meiri hluta í október síð-
astliðnum. Satt er það, að
þegar íslenzka stjórnin hafði
velt málinu fyrir sér marga
mánuði, lagði hún með nokk-
urri tregðu samninginn fyrir
Alþingi, þar sem hann var
samþykktur með 32 atkv.
gegn 19. En stjórnin var beitt
mikilli nauðung til að sam-
þykkja beiðnina um flug-
völlinn. Bandaríkjamenn
höfðu enn allmikið lið í land
inu, þar sem þeir höfðu mán-
uðum saman svikið loforð
Roosevelts forseta um að
hvérfa brott þegar að stríði
loknu, með þeirri forsendu að
þá — í október 1946 — væri
enn styrjaldarhætta. Utan-
ríkisráðuneyti- okkar sendi ís-
lenzku stjó.rninni opinbera
orðsendingu, þar sem sagt var
að ,,það myndi mælast illa
fyrir“ í London, ef samn-
ingurinn væri ekki sam-
þykktur. Þetta leiddi til
stjórnarkreppu. Sósíalista-
flokkurinn, sem hafði þriðja
hluta stjórnarinnar í sam-
vinnu við sósíaldemókrata
og íhaldsmenn, krafðist þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Um þess-
ar mundir skýrði The Times
svo frá:
Andstaðan gegn samn-
ingsuppkastinu er mjög
mikil á íslandi og mót-
mæli berast hvaðanæva
frá ... Það er enginn efi
á því að þau túlka hinn
sanna hug verulegs hluta
þjóðarinnar.
24. september var alls-
herjarverkfall í mótmæla-
skyni, og fjölmennir útifund-
ir í Reykjavík. Þegar þingið
var neytt til atkvæðagreiðslu
5. október, snerist Sósíalista-
flokkurinn gegn samningnum
ásamt fleiri þingmönnum og
vék úr stjórninni. Stjórnin
sagði þá af sér og bráðabirgða
stjói’n tók við. Þrem mánuð-
um síðar var mynduð ný
stjórn Framsóknarflokksins,
sósíaldemókrata og íhalds-
manna, e'n Sósíalistaflokkur-
inn var í stjórnarandstöðu.
Það er einnig fullvíst, þótt
það sé rétt hjá herra Þor-
varðarsyni, að Alþingi hafi
veitt formlegt samþykki, að
samningurinn var gerður af
nauðung og án þess að nokk-
urrar hrifningar yrði vart
yfir áframhaldandi banda-
rískri bækistöð“.
diktsson myndi leyfa sér að láta málgagn sitt flytja slíkar
kenningar. Og íslenzka, þjóðin verður að gera sér Ijóst, að
það fellur einnig smánarblettur á hana áf utanríkisherr-
anum og blaði hans.