Þjóðviljinn - 02.08.1947, Síða 5
Laugardagur 2. ágúst 1947
ÞJÓÐVILJINN
*
' m
yfsrv&rtobb'
Það er eftirtektarvert hve
Alþýðuhlaðið hefur algerlega
varpað frá sér allri viðleitni
til að sýnast sósíalistiskt
blað, hvað þá vera það.
Varla mun nokkurt sósíal-
demókratablað annað í heim-
inum opinskátt fagna heims-
valdastefnu og yfirgangi
bandaríska auðvaldsins, pré-
dika trúmanisma við öll tæki
fœri og prenta upp lúaleg-
ustu níðgreinar bandarískra
auðvaldsblaða um sósíalism-
ann. Þetta á að vera fram-
lag Stefáns Péturssonar og
Alþýðuflokksins íslenzka í
baráttunni gegn kommún-
ismanum, en lúnu engu
skeytt þó blaðið sé jafn-
framt gert að skóþurrku ó-
svífnasta og harðdrœgasta
auðvalds, sem nú er uppi —
bandaríska auðvaldsins.
'k
Þrátt fyrir allt er þetta
mikil afturför. Alþýðublaðið
undir ritstjórn Ólafs Frið-
rikssonar, Hallbjarnar Hall-
dórssonar, Einctrs Magnús-
sonar og Finnboga Rúts
hefði aldrei getað gengið
svona langt frá öllu því, sem
minnir á sósíalisma. Sú var
tíð að Alþýðublaðið hafði
betri heimildarmann um
bandanska auðvaldið en ves-
œlustu leiguskrifara ' aftur-
haldsblaðanna. Allmargir
minnast þess enn að hafa
fengið haldbetri frœðslu um
auðvaldsskipulag Bandaríkj-
anna eimnitt í Alþýðublað-
inu, þó ekki vœri nema í
sögum Uptons Sinclairs, Koli
Konungur, Smiður er ég
nefndur eða Jimmie Higgins,
sem bókmenntafélag jafnað-
armanna gaf út. Stökkið frá
þessum raunsœju lýsingum á
Bandaríska auðvaldinu til
flatmögunar Stefáns Péturs-
sonar og flestra ráðamanna
Alþýðuflokksins fyrir yfir-
gangsstefnu þessa sama
bandarí'ska auðvalds, er ó-
trúlega mikið.
★
Það er þetta fráhvarf frá
sósíalisma og sósíalistískum
hugsunarhætti, sem er ein
aðalorsök þeirrar lítilsvirð-
ingar, sem frjálshuga menn
og alþýðumenn yfirleitt hafa
fengið á Alþýðublaðinu.
Þannig er blaðið_ að detta
milli stóla. Auðvaldssinnar
snúa sér að sjálfsögðu til
sinna eiginlegu auðvaldsmál-
gagna, verkamenn kœra sig
ekki um auðvaldsmálgagn á
heimilum sínum, sem skreyt-
ir sig með alþýðunafni.
'k
Táknrœnt er að sjá Morg-
unblaðið, aðalmálgagn ís-
lenzka auðvaldsins taka
trotskistann Ruth Fischer
sem. spámann sinn. Au&vitað
T.A.H.:
_■-'*£\ '<%:'
Wm
wrrsas'i
AndstæSingar Bandaríkjastjórnar ofsóttir
i
¥
Hér í blaðinu hafa þegar birzt tvær greinar eftir
T. A. H„ hinn ameríska blaðamann, sem verður að leyna
nafni sínu, svo að honum verði ekki varpað í fangelsi í
„landi frelsisins". Þær tvær greinar, sem þegar hafa
verið birtar, fjölluðu um hin nýsamþykktu „þrælalög“
Bandaríkjanna og kosningarfyrirkomulagið, er Truman
forseti náði þingsetu. í þessari grein lýsir T.A.H. að-
stæðum þeim, er þeir eiga við( að búa, sem hafa aðrar
stjórnmálaskoðanir en ráðamenn Bandaríkjanna og
Truman gott þykir.
New York. — Nú er mikill
siður í Ameríku að leika
skemmtilegan leik, sem helzt
mætti nefna „kommúnisminn
bannlýstur". Það er leikur, sem
náði fyllstu þróun sinni í Þýzka
landi nazismans og þeim lönd-
um, sem nazistar undirokuðu,
en hér í Ameríku hafa verið
gerðar á honum vissar endur-
bætur með ósviknu Ameríku-
sniði. Allt, sem gert er í Amer-
íku, er betur af hendi leyst en
nokkursstaðar annarsstaðar,
eins og hver maður veit. Hér
eru tiltölulega fáir kommúnist-
ar til að bannlýsa og þessvegna
er nauðsynlegt að skella „komm
únista“-brennimerkinu á alla
þá, sem eru andvígir Trumaii-
kenningunni í heimspólitíkinni
og afturhaldinu hér heima fyr-
ir. Með því móti verður leikur-
inn miklu skemmtilegri, því að
þá getur nærri því öll ameríska
þjóðin tekið þátt í honum — en
auð'vitað eru þar undanskildir
fasistarnir, einokunarkapítalist-
arnir og fulltrúar þeirra á þingi
og við blöðin.
ir
Það er hreint og beint kapp-
hlaup um, hver gangi ötrauð-
astur fram í þessum leik. Tru-
man réynir að ná betri árangri
en repúblikanarnir, og repúblik-
anarnir reyna að fara fram
úr honum. Og við slíkan fram-
gang málanna er hinu góða
gang málanna er hinu góða
málefni borgið í bráð. Þingnefnd
nokkur, sem kallar'sig nefndina
til rannsóknar á óamerískri
starfsemi, er fremst í flokki
með flest stig. Þessir útvöldu
hafa nú nýlokið yfirheyrslum í
prédikar Ruth Fischer eins
og aðrir trotskistar heimsbylt
ingu sem meginatriði boð-
skapar síns, þó mestur tími
fari í „baráttu gegn Stalín-
ismanum.“ En sú barátta er
í orði kveðnu háð á þeim
grundvelli að kommúnista-
flokkarnir séu ekki nógu rót-
tœkir, ekki nógu heimsbylt-
ingarsinnaðir, ekki nógu
kommúnistiskir! I verki hafa
trotskistarnir í landi eftir
landi orðið bandamenn fas-
isma og afturhalds, en það er
dálítið spaugilegt að sjá
Morgunblaðið flenna um
margar síður greinar eftir
slíka ,,heimsbyltingarsinna“
að eigin sögn.
Hollywood (þar var að vísu að-
eins hlýtt á framburð annars
málsaðila) og ,,sannað“, að
kommúnistar séu til meðal kvik
myndaleikara.
★
Hinn frægi Charles Chaplin
er sá úr hópi kvikmyndaleikar-
anna, sem fyrir hörðustum ár-
ásum hefur orðið að undan-
förnu. Blaðaherferð sú, sem nú
geisar gegn mesta hæfileika-
manninum, sem komið hefur
fi'am á svið amerískra kvik-
myndagerðar, er bæði viðbjóðs-
leg og iilkynjuð. Hann er ásak-
aður fyrir að vera ,kommúnisti‘
fyrir að vilja eyðileggja fjöl-
skyldulífið, fyrir að afvega-
leiða kvenfólk og fjölmargt
annað. Vest allra þessara ásak
ana er sú, að hann sé kommún-
isti og nú er Chaplin settur í
gapastokkinn á sama hátt og
nazistar í Þýzkalandi settu
marga og mestu listamenn þjóð
ar sinnar í gapastokkinn á sín-
um tíma. En Chaplin ber af sér
höggin með hæfileikum sínum,
list sinni og auðæfum. Hann
er milljónari og það er alltaf
erfiðara að ráða niðurlögum
ríks „rauðliða“ en fátæks.
Segja má að afturhaldsherr
arnir hafi fengið snert af slagi
vegna hinnar nýju myndar
Chaplins, Monsieur Verdoux,
enda er það ekki að ástæðu-
lausu. 1 stuttu máli sagt bygg-
ist myndin á eftirfarandi skoð-
un: Morð er rökrétt áfram-
hald af kaupsýslu, þótt þar sé
öðrum aðferðurn beitt, eins og
stríð er rökrétt áframhald af
stjórnmálabaráttu, þótt þar sé
einnig öðrum aðferðum beitt. 1
myndinni er sögð setning, sem
hljóðar á þessa leið: „Kaup-
sýsla er auðvirðileg kaupsýsla".
Þar eð hérlendis er mikið um
auðvirðilega kaupsý'slumenn,
munu þeir eflaust fá krampa-
flog, er þeir lieyra setninguna
Monsieur Verdoux er mesta á-
deila Chaplins á kapítalismann
á því tímabili sem liðið er, síð-
an hann sendi Nútímann frá sér.
En þar sem Nútíminn er spaugi
legur og vekur hlátur og með-
aumkvun hjá áhorfendum, er
Verdoux aftur á móti bitur á-
deila og flettir miskunarlaust
ofan af þjóðfélagsháttum kapí-
talismans. Þess vegna er það
algerlega eðlilegt, að afturhald-
ið leggi fæð á myndina. Chaplin
á skilið hatur afturlialdsins
engu síður en hann á skilið
vinarþel og aðdáun alþýðunnar.
Og listamaður af því tagi er
auðvitað stimplaður sem „rauð-
liði“. En sá stimpill veldur
Chaplin alls engum áhyggjum.
En þessi leikur er að „bann-
lýsa kommúnistana", er alvöru
mál fyrir heiminn, því að hann
er undanfari hins upprennandi
fasisma í Bandlaríkjunum.
Hann leitar sér útrásar í heims
valdastefnu, hvar sem er á
hnettinum, í dollaralánum til
Tyrklands og Grikklands, í að-
stoð við andsósíölsk öfl allstað-
ar í Evrópu, í úthlutun vopna
og peninga til stjórnar Chiang
Kai-Sheks í Kína, í illviljaðri
og verkalýðsfjandsamlegri lög-
gjöf hér í Bandaríkjunum, í of-
sóknum á hendur leiðtogum
kommúnista og hinum al-
ræmdu „þjóðhollustufyrir-
skipunum", sem Truman
forseti lét frá sér fara í
maímánuði. Mér þætti fróðlegt
að vita, hvort Evrópumenn gera
sér það ljóst, hvað í þessu vald
boði felst, er sá maður kvað
upp, sem orðið ;,lýðræði“ er enn
þá munntamara en orðið „doll-
ari“.
. *
„Þjóðhollustufyrirskipunin“,
sem nú er orðin að lar.dslögum,
kveður á um það, að heimilt sé
að reka hvaða mann sem er
vafningslaust frá' starfi sínu, af
þeim tveimur og hálfri milljón
manna, sem gegnii1 störfum í
þágu stjórnar sambandsríkj-
anna, ef hann hefur eða hefur
nokkurntíma haft „samúðar-
samband" við nokkurn félags-
skap eða hóp manna, sem er á
hinum svarta lista hjá dóms-
málaráðherra Bandaríkjanna.
Hvassyrtustu athugasemdirn
ar, sem gerðar hafa verið við
þessi fasísku lög, komu úr at-
hyglisverðri átt; þær komui
nefnilega frá varadómsforseta
Bandaríkjanna við réttarhöldin
í Núrnberg, A. L. Pomerantz.
Hann var helzti saksóknarinn í
réttarhöldunum gegn iðjuhöld-
um nazistanna. Eftir að A. L.
Pomerantz hafði beitt amerísk-
um lögum gegn hinum nazísku
glæpamönnum, sneri hann aftur
til ættjarðar sinnar, en þar beið
hans þjóðhollustufyrirskipun
Trumans. A.L. Pomerantz var
öllum lokið, er hann sá live
mikið svipmót var með löggjöf
þessari og réttarreglum Hitlers.
Hann gerði skoðanir sínar heyr
um kunnar í bréfi til New
York Times og fara hér á eftir
nokkrar af hinum hógværu,
þaulhugsuðu en reiðilegu at-
hugsemdum hans:
„Þar eð ég er nýkominn
heim frá Núrnberg“, skrifar
hann, „hef ég orðið þess var,
að það eru vissar, kaldhæðnis-
legar andstæður milli málssókn
ar rílcisstjórnar okkar í Núrn-
berg gegn glæpafélögum naz-
ista og hliðstæðra athafna hér
í landi okkar gegn svonefndum
óþjóðhollum félagasamtökum í
Bandaríkjunum. Það lítur út
fyrir, að við beitum amerískum
lögum gegn nazistum, en naz-
ískum lögum gegn Ameríku-
mönnum".
Hinn fyrrverandi varadóms-
forseti í Núrnberg heldur á-
fram: „Þegar það hafði verið __
ákveðið í Þýzkalandi, að bera
fram ákærur á hendur þeim
manneskjum, sem sannanlega
höfðu verið í S. A„ S.S. og
Þýzka herforingjaráðinu, fylgd-
um við beztu réttarreglum
Bandaríkjanna, hvað málssókn
snertir, í öllum réttarhöldunum.
Það voru lagðar fram sundur-
liðáðar ákærur á liendur þeim
félögum, sem hlut áttu að
máli......... Enda þótt S.A.
samtökin væru dæmd sek, leiddi
sá dómur ekki af sér sakfell-
ingu neins einsstaklings.......
Engan meðlim S.A. var hægt
að dæma á þeim grundvelli, að
félag hans hefði verið sakfellt,
nema hann væri fyrst sjálfur
leiddur fyrir dómstólana og
hefði fengið óskert tækifæri til
að láta sín eigin sjónarmið í
ljósi..... Það var sú amer-
íska málsjiöfðun, sem skylt var
að viðhafa í Þýzkalandi. Þetta
var það réttlæti, sem við létum
horfa að mönnum, til þess að
þýzka þjóðin mætti sjá, að
ekki væri unnt að dæma neinn
mann, ekki einu sinni Göring,
án málshöfðunar“.
A. L. Pomerantz bendir á, að
á þennan hátt hafi amerískir
málaflutningsmenn og saksókn
arár kynnt amerískt réttarfar í
Þýzkalandi. Og hann heldur á-
fram, sár og gramur: „Þegar
ég kom heim aftur til Banda-
ríkjanna, varð ég þess var, að
þrátt fyrir það, sem við kunn-
um að hafa kennt nazistunum,
höfum við sjálfir tekið þýzku
harðstjórnina upp í löggjöf okk
ar; þá liarðstjórn, sem við
börðums gegn og löstuðum
svo mjög. Með því á ég við vald
boðið“. -(Þjóðhollustufyrirskip
un Trumans).
Þannig hljóðar þessi alvöru-
þrungna ákæra A. L. Pomer-
antz: „Við höfum tekið hina
þýzltu harðstjórn upp í löggjöf
okkar; þá harðstjórn, sem við
börðumst gegn og löstuðum svo
mjög“.
Það skeði þegar valdboð
Trumans var upp kveðið, heid-
ur A. L. Pomerantz áfram,
vegna þess, að „sá félagsskapur,
sem valdboðið sakfellir er ekki
opinberlega kærður fyrir að
vera óþjóðhollur; það er meira
segja livergi á það minnzt, að
vafi geti leikið á þjóðhollustu
hans. Hann á ekki völ á neinni
málshöfðun né tækifæri til að
bera ákærurnar af sér. Dóms-
málaráðherrann segir blátt á-
fram: „Þú ert fundinn sekur“,
Þar skilur á milli ameríska
borgarans og hins þýzka, að
ameríski borgarinn fær ekkert
tækifæri til að koma sínu við-
liorfi á framfæri gegn hinni ein
hliða sakfellingu dómsmálaráð-
1 errans á félagssamtökum hans.
Þessháttar málshöfðunarlausa
dómsaðferð höfum við sótt okk-
ur aftur til dimmustu daga
rannsóknarréttartímabils naz-
ista og slíkt er slcelfileg nýsköp
un í Bandaríkjunum". ,
Framh. á 7. siðo.