Þjóðviljinn - 02.08.1947, Síða 8
ÞESS VEGM ÆTTI ENGINN VAFI AÐ LEIKA Á ÞVÍ HVAR HANDRITIN EIGA
HEIMA — SAGÐI AKSEL LARSEN.
Ökknr fisiiisf vi8 komnsr á helgan sfað
— sagði Buhl, fyzverandi ráðherca í ræðu sinni á
Þingvöllum.
Norðurlanda-þingniennirnir sem sátu hér fulltrúafund
norræna þingmannasambandsins fóru í fyrradag í boði
íslandsdeildarinnar austur að Gullfossi og Geysi og heim-
leiðis um Þingvelli.
Undir borðum í Valhöll fluttu ræður þeir Buhl, fyrrv.
ráðherra og formaður dönsku þingmannanna og Axel Lar-
sen, formaður danska Kommúnistaflokksins.
Báðir lýstu ánægju sinni yfir dvölinni hér og Buhl færði,
fyrir hönd dönsku þingmannanna, Islandi beztu hamingju-
óskir í framtíðinni.
Larsen ræddi um handritamálið og kvaðst vona að það
mál yrði að fullu leyst með góðu samlíomulagi Dana og
Islendinga þegar næsti fundur norrænna þingmanna væri
haldinn.
Aksel Larsen kvaddi sér
hljóðs meðan þingmenn sátu
að kaffidrykkju í Valhöll og
Jýsti ánægju sinni og hrifn-
ingu yfir komunni hingað, að
sjá hér land og þjóð sem af
miklum dugnaði hefði hag-
nýtt gæði landsins, sjá hér
land með nútíma tækni, land
sem væri töluvert á annan
veg en þær hugmyndir sem
hann héfði gert sér um það
við lestur íslendingasagn-
anna.
Taldi engan vafa geta
leikið á því hvar
handritin ættu heima.
Aksel Larsen drap á þau
tímabil ævi sinnar, sem ís-
lenzkar bókmenntir hefðu
verið sér kærkomnastar og
gagnlegastar, en það hefði
verið bæði þegar hann varð,
að fara huldu höfði og þegar^
hann sat í fangabúðum í
Þýzkalandi. Þá sagðist hann
hafa skilið hve þýðingarmikil
uppspretta íslenzkar bók-
menntir hefðu verið, ekki
aðeins fyrir Norðurlanda-
þjóðirnar, heldur einnig fyr-
ir Þjóðverja, sem hefðu orð-
ið að leita til íslenzkra bók-
mennta til að skilja sína
eigin forsögu. Aksel Larsen
lagði áherzlu á það hve ís-
lenzkar fornbókmenntir
gripu inn í líf allra Norður-
landaþjóðanna og þess vegna
gæti engin þessara þjóða
gert tilkall til þeirra ein,
,,en það voru íslendingar“,
sagði hann, „seni rituöu þess-
ar bókmenntir á íslenzkri
SÍLDVEIÐARNAR:
Vestan
stormnr
| lasiiiilaðl
veialliini í
Aksel Larsen
tungu og varÖveittu þœr.“
Þess vegna kvaðst hann
þeirrar skoðunar að enginn
vafi gæti leikið á því hvar
handritin ættu heima, og
hann kvað það sannfæringu
sína að þetta mál yrði leyst
með fullu samkomulagi og
þeim hætti er verða myndi
Framh. á 2. síðu.
Agnar ívofoed-
Hanseh skipaður
flugvallastjóri
HVER FiER LÖGREGLU-
STIÓRAEMBiETTIÐ?
Agnar Kofoed-Hansen hef-
ur sagt lausu embætti sínu,
sem lögreglustjóri í Reykja-
vík, en því hefur hann gegnt
síðan 1940. Hann hefur í þess
stað verið skipaður flugvall-
arstjóri, en það embætti var
stofnað með lögum á síðasta
Alþingi.
Agnar er aðeins 32 ára að
aldri og er flugmaður að
menntun. Hann á að hafa
umsjón með rekstri og við-
haldi þeirra flugvalla á land-
inu, sem eru í eigu ríkisins
og njóta rekstursstyrks frá
því opinbera.
Upphaflega heyrðu öll
flugmál undir em'bætti flug-
málastjóra, en með hinum
nýju lögum tók flugráð
við verksviði hans, er það
skipað fimm mönnum og á
að gefa út erindisbréf fyrir
bæði embættin, en það hef-
ur ekki verið gert enn, þó
munu öll öryggismál og ný-
bygging flugvalla eiga að
heyra undir embætti Erlings
Ellingsen flugmálastjóra, eins
og áður.
Ekki er vitað hvaða gæð-
ingur Sjálfstæðisflokksins
hlýtur lögreglustjóraembætt-
ið, en sagt er að um bitann
sé hörð samkeppni milli Jó-
hanns Havsteins og Sigurðar
Bjarnasonar.
Leikamir Lárus Pálsson
og Láms Ingólísson
áferaa íorð um landið.
ínnan skamms munu þeir
leikararnir Lárus Pálsson og
Lárti., Ingólfsson Ieggja af
stað á ferðalag urn landið. Cr
það ætlun þeirra að halda
skemmtanir : allmörgum J orp-
um og kaupstöðum. Á skernmti
slírá þeirra verða lcikþættir,
upplestrar, gamanvísur og
margt fleira.
Fyrst munu þéir halda til
Vestmannaeyja, og verður það
að iíkindum þann G. þ. m. Síð-
ar fara þeir félagar vestur og
norður, skemmta á Isafirði,
Siglufirði, Akureyri, Húsavík,
og e. t. v. á Raufarhöfn. 1
bakaleiðinn munu þeir senni-
lega staldra við á Sauðárkróki
os Blönduósi og halda skemmt-
»nir þar.
gær
Frá því kl. 10 í fyrradag og
til jafnlengdar í . gærmorg ::n,
lönduðu 27 skip samtals 12,000
málum hjá Sigluf jarðarve' k-
smiðjunurn, þar af komu 4 sl.ip
nieð 3000 mál til Rauðku. M'. ;t
arí afla höfðu þessi skip: Siglu-
nel og Ingólfur Arnarson 13 í 0
mál hvort, Viktoría og Fanncy
1000 mál hvor, Keflvíkingur
960 mál, Sleipnir 800 mál, Sæ-
mundur 700 mál.
Frá því klukkan um 7 í fyrra
kvöld og til jafnlengdar í gær-
kvöld voru saltaðar 960 tunnur
á Siglufirði og 250 tunnur á
Raufarhöfn.
I gær hamlaði vestan storm-
ur veiðum en útlit var gott um
veiði ef veður breyttist til hins
betra.
í fyrrinótt kom mótorbátur-
inn Gunnar Pálsson til Dalvík-
ur með fyrstu síld, sem þar er
söltuð í sumar, 100 tunnur. Síld
in var söltuð í Söltunarstöðinni
Múla h. f.
þlÓÐVIUINN
VenluRðrmaRnaháfiÍR
hefsf í dag kl. 5.
Úfiskemmtanir í Tivoli — dansað fram á nóti.
Eins og áður hefur verið skýrt frá í fréttum, halda
verzlunarmenn þriggja daga hátíð um þessa helgi. Verða
útiskemmtanir í Tivoli í dag, á morgun og á mánudag;
dans á sama stað öll þrjú kvöldin fram á nótt. Ennfremur
verður farið til Viðeyjar á morgun og þar hátíðahöld til
minningar um Skúla Magnússon landfógeta.
Klukkan 5 í dag verða há-
tíðahöldin sett í Tivoli með
ræðu, sem Baldur Pálsson, vara
form. V. R., flytur. Síðan verð-
ur þar útiskemmtim, þar sem
erlendir trúðar leika listir sín-
ar, Baldur Georgs og Konni
skemmta með búktali og fim-
leikahjónin Larowas sýna. —
Skemmtun þessari lýkur klukk-
an 7, en klukkan 9 í kvöld hefst
þarna aftur skemmtun, þar sem
Pétur Jónsson, óperusöngvari
syngur. Hawaigítartríó leikur
Verkfall
á iílduds!
I gœr hójst vinnustöövun á
Bíldudal af liálfu verkalýðs-
félagsins „Vörn“ á hendur at-
vinnurekendum á staðnum.
Kröfur verkalýðsfélagsins
eru þær í aðalatnöum■ aö
grunnlcaup karla hækki úr
kr. 2,40 í 2,65 á klst. og■
kvenna úr kr. 1,75 í kr. 2,00 á
klst.
Samningaumleitanir hafa
staðið yfir milli aðilja að
undanförnu og síðast í fyrra-
kvöld, en samkomulag náð-
ist ekki. Iiófst því verkfallið
frá og með 1. ágúst eins og
boðað hafði verið af verka-
lýðsfélaginu, væru þá ekki
komnir á samningar.
Samkomulagstilraunir voru
gerðar í gær, en blaðið hafði
ekki fregnir um endalok
þeirra áður en það fór í'
prentun.
Masaryk
mótmælir
Jan Masaryk, utanríkisráð-
herra Tékkóslóvakíu hefur
neitaö þeim sögusögnum, aö
tékkneska stjórnin hafi veriö
néydd af erlendu ríki til aö
hætta viÖ þátttöku sína í
Parísarráðstefnunni.
Iiann sagði að Tékkar
vildu samvinnu við vestur-
veldin, ekki sízt í efnahags-
málum, og stæðu nú yfir
samningar við Bandaríkin
um lán til vörukaupa þar.
og fleiri aðiljar skemmta. Og
að lokum verður dansað til kl.
tvö í nótt.
Skemmtanirnar í Tivoli á
morgun og mánudag verða með
svipuðu sniði, nema þá koma
fram nýir listamenn til viðbót-
ar við þá, sem þegar hafa ver
ið nefndir, svo sem Einar
Kristjánsson óperusöngvari,
glimtasöngvararnir Egill Bjarna
son og Jón R. Kjartansson,
Guðmundur Jónsson bariton-
söngvari, Einar Markússon
píanóleikari, Jón Aðils o. fl.
Lagt verður af stað í Við-
eyjarförina frá Félagsheimil-
inu, Vonarstræti 4, klukkan
12,30 á morgun. Verður fólkið
ferjað úr Vatnagörðum yfir
Sundið. Hátíðahöld í Viðey hefj
ast svo kl. 2 og standa til kl.
fjögur.
Til minnmgar um
þá, sem fórust
með „Goðafossi4;
og J)ettifossiw
Um 20 fyrirtœki og einsták
lingar, sem höfðu verzlunar-
skrifstofur í New York á
stríðsárunum, hafa látiö gera
stórar veggtöflur til minn-
ingar um þá, sem fórust, þeg-
ar ,,Goðafossi“ og „Dettifossi“
var sökkt. Töflur þessar eru
úr bronze. Efst á þeim eru
upphleyptar myndir af skip-
unum, þar fynr neðan nöfn
skipverja og farþega, sem
fórust meö þeim, en í horn-
unum neðst ei'u íslenzki fána-
krossinn og Eimskipafélags-
merkiö í litum.
.Minningartöflurnar voru
afhentar Eimskipafélaginu í
samsæti, sem haldið var í
Sjálfstæðishúsinu í gær, og
veitti Guðmundur Vilhjálms-
son þeim móttöku fyrir fé-
lagsins hönd. Hannes Kjart-
ansson, sem mun hafa átt
frumkvæðið að þessu mál-
efni sagði forsögu þess. Guð-
mundur Vilhjálmsson þakk-
aði fyrir hönd Eimskipafé-
lagsins, og lýsti því yfir, að
minningartöflunum mundi
valinn staður í 'húsakynnum
félagsins, þar sem allir mættu
sjá þær.
a t ' mLmmsaHeuiS&etsva