Þjóðviljinn - 10.08.1947, Qupperneq 1
12. árgrangur.
Sunnudgaur 10. ágúst 1947
179. tölublað.
Enn sanna sildargöngurnar nauðsyn sfórrar síldar-
verksmiðju á Norðausturlandi
HrunsÉ|órnarliðmu ÉéksÉ aé fiiindra að bygging 5-10
þiis. mála verksmiéju eysÉra hælisÉ þegar á þessu ári
Fyrir atbeina SósíaIistaflokksins og Susturiandsþingmanna fákkstsam-
þykkt lagaákvæði um að undirbúningi skuli lokið 1947 og bygging síldar-
verksmiðju á Norðausturlandi hefjast 1948.
Hvað líður framhvmtnd þessa lagaáhvœðis
Síldarmagnið við Norðausturland hefur enn á ný sannað
að bygging stórrar síldarverksmiðju á Norðausturlandi,
sunnan Langaness, er lífsnauðsyn, ekki einungis fyrir
Austurland heldur fyrir síldarútvegsmenn og sjóinenn um
allt land.
Þingmenn Austurlands fluttu á þingi í vetur frumvarp
um að hafin yrði þegar á þessu ári bygging 5—10 þúsund
mála verksmiðju á þessu svæði. Hrunstjórn Stefáns Jóhanns
barðist móti málinu með virkri aðstoð meirihluta stjórnar
Síldarverksmiðja ríkisins, Sveins Benediktssonar ;;g kump-
ána.
Einn þingfl., Sósíalistafl. barðist heill og óskiptur fyrir
þessu merka nýsköpunarmáli. En nógu margir þingmenn
fundust til að hafa vit fyrir skemmdarvörgum afturhalds-
ins, og samþykktu sem lög að lokið skuli undirbúningi að
byggingu síldarverksmiðju á Norðausturkandi á þessu ári
1947, og bygging hennar hafin árið 1948.
Jóhann Þ. Jósefsson hótaði því þá, að þessi lagafyrir-
mæli yrðu að engu höfð. Nú þegar reiði sjómanna og út-
vegsmanna með framtaksleysið í þessu máli blcssar upp,
fara blöð hrunstjórnarinnar, Morgimblaðið og Alþýðublað-
ið að birta hvet jandi greinar um verksmiðjuna!
Sjómenn og útvegsmenn munu ekki ætla sér að eiga
slík nauðsynjamál sjávarútvegsins öllu lengur undir
skemmdarfargi manna eins og Jóhanns Þ. Jósefssonar og
Sveins Benediktssonar, heldur tryggja framkvæmd þeirra
á þann hátt er þeir telja öruggan.
Brezk biöð ræðá
bandarískar
kvikmyndir
Brezk blöð ræða þessa á-
kvörðun. kvikmyndaframleið
endanna af miklum hita, sum
láta í ljós óánægju sína með
hana, en önnur segja, að
brezka þjóðin megi prísa sig
sæla fyrir að losna við hinn
andlausa þvætting, sem Holly
wood sendi frá sér.
Búizt er við, að bandarísku
kvikmyndaframleiðendurnir
rnuni setja hömlur á sýning-
ar brezkra kvikmynda í
Bandaríkjunum.
1 sÉiiÉÉit máli
„Stjórnarbót“ fyrir
Indo-Kína
Franska stjórnin hefur gefið
Indo-Kína ,,stjórnarbót“. Sam-
kvæmt henni verður landinu
stjórnað af ráðuneyti sex
manna, þrír skipaðir af franska
landsstjóranum, en þrír kosnir
af ráðgjafarsamkundunni. Talið
er vafasamt að þjóðin geri sig
ánægða með þessa úrbót.
Morðingjar Aung San
handteknir
Morðingjar forsætisráðherra
Burma Aung San og ráðherra
hans hafa nú verið handteknir,
en ekki er vitað hverjir þeir
eru, það er þó talið, að þeir
hafi samband við Þjóðernis-
sinnaflokkinn.
Bretar misstu 1503 skip
Endanlegt upgjör um skipa
tjón Breta á stríðsárunum
var nýlega gert kunnugt.
Bretar misstu 1503 skip sem
voru samtals 959,757 lestir.
300 þús manns sagt upp
Franska stjórnin hefur á-
kveðið að fækka starfsmönn-
um ríkisins um 300,000.
Fjöldi þeirra manna, sem nú
eru í þjónustu ríkisins, munu
vera nálægt l.Vi milljón.
Saga þessa máls á þingi í
vetur er lærdómsrík fyrir
síldarsjómenn og útvegsmenn
og skal rifjuð hér upp.
Þingmenn af Austurlandi,
sem sæti eiga í neðri deild,
fluttu sameiginlega frum-
varp um byggingu síldar-
verksmiðju á Norðaustur-
landi sunnan Langaness.
Var þar kveðið svo á, að
ríkið léti reisa 5—10 þúsund,
mála síldarverksm. á þessu
svœði og skyldi hún staðsett
að undangenginni rannsókn
á því hvar hún vceri bezt
sett með tilliti til síldveiði-
svœðisins.
Var svo fyrir mælt í frum
varpinu, að ríkisstjórninni
skyldi heimilt að taka allt að
10 milljón króna lán til bygg
ingar verksmiðjunnar og að
byrja skyldi á byggingarfram
kvæmdum á þessu ári.
Flutningsmenn voru úr
Framsóknarflokknum, Sósíal-
istaflokknum og Alþýðu-
flokknum, og í efri deild
beitti Lárus Jóhannesson sér
fyrir málinu, svo segja má að
þingmenn úr öllum flokkum
hafi staðið að því.
í greinargerð bentu flutn-
ingsmenn á að þetta mál,
bygging stórrar síldarverk-
smiðju á Norðausturlandi
sunnan Langaness sé gamalt
áhugamál Austfii’ðinga, að
Fiskifélagsdeildin eystra, út-
gerðarmenn og fjórðungsþing
Austfirðingafjórðungs hafi
hvað eftir annað sent Alþingi
og ríkisstjórn áskorun um
byggingu slíkrar verksmiðju.
Flutningsmenn lögðu á-
herzlu á síldargönguruar við
Norðausturland síðustu surn-
ur, og að hin slæma útkoma
síldarvertáðanna stafi að
nokkru af því að „síldveiði-
flotinn hópaðist venjulega
saman á lítið svæði þar sem
síldar varð vart“, en fá eða
engin skip voru að veiðum
austan Langaness, þó þar
yrði oft vart mikillar síldar.
Baráttan um málið á
Alþingi
Það eru ekki mörg frum-
vörp, sem svo öflugar stoðir
virðast renna undir og' þetta,
og sýnt var fram á með skýr
um rökum hve brýn nauðsyn
væri á íramkvæmdum í mál-
inu. En meðferð frumvarps-
ins j þinginu varð allt annað
en mjúkleg, og er lærdóms-
j ikt að rifja hana upp ein-
mitt nú, þegar síldargöngurn
ar staðfesta enn hvert orð af
því sem forsvarsmenn máls-
ins fluttu því til stuðnings.
Þingmenn úr öllum flokk-
um stóðu að málinu. En að-
eins einn áf þingflokkunum
fjórum stóð með frumvarp-
inu heill og óskiptur — Sós-
íalistaflokkurinn. Úr öllum
hinum flokkunum komu þing
menn, sem reyndu að bregða
fæti fyrir málið, og var eink-
um farin sú leið að reyna að
eyða málinu með því að af-
nema allar tímasetningar í
frumvarpinu, hindra að byrj-
að yrði á byggingu verksmiðj
unnar á N orðausturlandi
strax í sumar.
Þegar við fyrstu umræðu
frumvarpsins flutti Áki Jak-
obsson ýtarlega ræðu til
stuðnings málinu. í sjávar-
útvegsnefnd neðri deildar
hlýtur málið þá furðulegu af-
greiðslu, að í stað þess að
leggja til að það yrði sam-
þykkt eða fellt, leggur meiri
hluti nexndarinnar, SjálfstaBð
i sf lokksmennirni r S i gurður
Kristjánsson og Pétur Otte-
sen, Framsóknarþingmaður-
inn Skúli Guðmundsson og
Sovétstjórninní „
sendar fyrirspurn
ir um kjarnorku-
málín
Fulltrúi Breta í kjarnorku-
málanefnd öryggisráðsins hef
ur beint 10 fyrirspurnum til
sovétstjórnarinnar um tillög-
ur hennar í þeim málum.
Ekki er vitað hverjar fyrir-
spurnirnar eru.
Gromyko, fulltrúi Soétríkj-
anna, sagði á fundi nefndar-
innar, að tillögur vesturveld-
anna í kjarnorkumálunum-
væru gersamlega óaðgengileg
ar, þar sem framkvæmd
þeirra mundi þýða að einstök
ríki væru svipt sjálfsákvörð
unarrétti og fullveldi.
8 breytingartillögur við
viðreisiiarfrumvarpið
Brezki íhaldsflokkurinn
mun bera fram átta
breytingartillögur við við-
reisnaráætlun ríkisstjómar-
innar, sem allar miða að því
að takamarka völd hennar.
Talið er víst, að þær muni all
ar verða felldar.
Strandgæzlubátar handa
grísku stjórninni
Gríska stjórnin hefur feng-
ið nokkra hraðskreiða strand-
gæzlubáta frá bandaríska flot
anum, eftir því sem flota-
málafulltrúi Bandaríkjanna í
Aþenu skýrir frá.
Umhverfis hnöttinn á
100 tímum?
Bandaríski flugmaðurinn,
sem ætlar að setja met í
hnattflugi kom í fyrradag til
Calcutta og er þá flugið hálfn
að. Hann var búinn að vera
48 stundir á leiðinni.
500 þús. lestir korns til
Finnlands
Sovétstjórnin hefur ákveð-
ið að senda 400 þús. lestir
korns til Finnlands, auk
þeirra 100 þús. lesta, sem um
var samið í viðskiptasamning
um milli þessara landa.
Alþýðuflokksmaðurinn Finn-
ur Jónsson, til að í stað frum
varpsins yrði bætt í lögih
um síldarverksmiðjur ríkis-
ins frá 1942 því ákvæði að ein
þeirra síldarverksmiðja sem
þar er talið upp að reisa eigi
einhverntíma í framtíðinni,
skuli vera á Norðaustur-
landi! Þetta þýddi auðvitað
að málinu var drepið á dreif,
algerlega eyðilagt sem fram-
kvæmdamál í sumar.
Áki Jákobsson flytur
mál sjómanna og útvegs-
manna
Áki Jakobsson var einn í
Framh. á 7. síðit