Þjóðviljinn - 10.08.1947, Qupperneq 8
Jðrgen Bukdahl leggur ti! að Danir
skili íslendingum handritunum
Hinn kunni danski rithöfundur og bókmenntafræðing-
®r Jörgen Bukdahl hefur í ræðu á fjölmennri samkomu
lagt eindregið til að íslendingum verði skilað handritun-
um úr dönskum söfnum.
Jörgen Bukdahl hefur ný-
lega minnzt íslands og hand-
ritamálsins í ræðu, er hann
Ilutti á fjölmennri samkomu
í borginni Odense á Fjóni.
Fórust honum orð á þessa
leið:
Við Danir eigum enn langt
í land, unz við höfum unnið
bug á hefðbundinni skamm-
sýni okkar. Enn gætir gam-
alla drottnunartilhneyginga,
og það eru einmitt þær, sem
blinda augu sumra okkar fyr
ir því hvílík gifta það hefur
orðið fyrir Norðurlönd að ís-
land hlaut sjálfstæði sitt og
að hinni langvinnu baráttu
Jóns Sigurðssonar við Dana-
veldi lauk með fullum sigri.
Hið frjálsa ísland stendur
í dag nær hinum Norðurlönd
unum en nokkru sinni áður.
Og hann bætti við:
Skilum íslendingum hinum
jornu handritum þeirra, þess
um dýrmæta helgidómi ísl.
þjóöarinnar. Mér virðist það
Jóhannes Þor-
ekki vera okkur sœmandi að
halda þeim í skjóli eignarétt-
ar og lagakróka, löngu eftir
að við höfum viðurkennt
sjálfstœði íslands.
Síðan vék hánn máli sínu
að viðskiptum Dana og Fær-
eyinga og sagði:
Færeyingar eru sjötta þjóð
Norðurlanda. Ef við Danir
getum ekki skilið sjálfstæðis
baráttu Færeyinga og kröfur
þeirra um réttindi tungu sinn
ar og menningar, þá gef ég
ekki' mikið fyrir okkar eigin
frelsisbaráttu.
Verkamenn á
Akureyri vilja fá
Dagsbrúnarkaup
Verkamannafélag Akureyr
arkaupstaðar hélt fund s.l.
föstudag til að rœða og ganga
frá kröfum félagsins í vœnt-
anlegum samningum þess við
atvinnurekendur.
Á fundinum var einróma
samþykkt að miða kröfur fé
lagsins í öllum aðalatriðum
við hið nýja Dagsbrúnarkaup.
Kosin var þriggja manna
samninganefnd og henni gef
ið umboð til að hækka kröf-
ur félagsins, ef ekki takast
samningar áður en gamli
samningurinn er úti'unninn,
en það er 1. september.
Mikil atvinna er nú á Ak-
ureyri og virðist að nokkur
skortur sé á vinnuafli til
ýmissa framkvæmda.
Bandaríkin eiga sök á styrjöldinni
í Kína
Iíínverska verkalýðshreyfingin svipt
öllum réttindum
„Við viljum að Bandaríkin hjálpi til við efnahagslega
viðreisn Kína. Við erum mótfalhiir því, að Bandaríkin
hjálpi Sjungkingstjórninni til Jæss að halda borgarastyrj-
öldinni áfram. Stjórnin rnundi ekki geta haldið áfram hern-
aðaraðgerðum án aðstoðar Bandaríkjanna.“
grímsson frá
Rauðsdal sextíu
og fimm ára
Hann er fæddur 10. ágúst,
og hefur dvalið mestan hluta
ævi sinnar á Vestfjörðum,
var þar smali í æsku og
verkamaður á fullorðinsár-
um. Síðustu níu árin hefur
Jóhannes dvalið í Reykjavík,
og á nú heima í Bragga 44
á Skólavörðuholti .(við Ei-
ríksgötu).
Þannig fórust formanni kín
verka alþýðusambandsins
Sjú Hsjúfan orð í viðtali við
fréttaritara ALN og þetta er
skoðun allra leiðtoga kín-
versku verkalýðshreyfingar-
innar bæði á yfirráðasvæði
Sjungkingstjórnarinnar og
kommúnista. Það er því
meiri ástæða til að gefa
gaum að orðum Sjús, þar
Sósíaldemókrata-
leiðtogi heimtar
Jóhannes er vinsæll af
þeim sem þekkja, enda glað
vær og ræðinn í kunningja-
hóp. Heilsuleysi og öðru and
streymi hefur hann tekið
með karlmennsku og still-
ingu. Jóhannes er hagorður
vel þó ekki haldi hann kveð-
skap sínum á loft, og er á-
reiðanlega margt prentað
sem síður er þess vert en sum
ar vísur hans.
Eg óska Jóhannesi til ham
ingju með þennan merkisdag,
með ósk um margar bjartar
stundir framundan.
Kunningi.
Æ, T,
< Ferðalag austur í Laugar-
Í1 dal laugardaginn 16. ágúst.
( Þátttaka tilkynnist skrif-
| stofunni Þórsg. 1, sem fyrst,
| opið kl. 6—7 sími 7510.
Ferðanefndin.
1
nazistahreinsun á
hernámssvæðiim
vesturveldanBa
Efnahagsleg óreiða er ríkj-
andi á hcrnámssvæðum Breta
og Bandaríkjamanna í Þýzka- |
landi, segir í skýrslu er dr.
flugo Buschmann, hefur sent
brez’íum yfirvöldum.
Hugo Buschmann er einn af
leiðtogum sósíaldemókrata og
var áður yfirmaður birgða- og
viðskiptamála á rússneska her-
námssvæðinu, en fór þaðan
vegna þess að hann hélt að
betra væri að vera undir brezkri
stjórn.
Samkvæmt frásögn hans er
„Vestur-Þýzkaland orðið einn
allsherjar svartimarkaður", þar
sem um það bil 50% fólksins
lifi góðu lífi, en hinn hlutinn,
sem ekkert hefur til að selja
er ofurselt „seigdrepandi hung-
urdauða". Ráðið gegn þessu, seg
ir Busehmann, er að reka þau
hundruð nazista sem enn gegna
háum trúnaðarstöðum.
(ALN)
sem hann er álitinn einn í-
haldssamasti leiðtogi kín-
verksu verkalýðshreýfingar
innar og var eitt sinn traust-
ur stuðningsmaður Kuomin-
tang.
Sjú sat ráðstefnu alþjóða
sambands verkalýðsins í
Praha fyrir skömmu, en er
nú kominn til Hongkong, þar
sem hann dvelst raunveru-
lega í útlegð. Þaðán mun
hann halda áfram baráttu fyr
ir endurheimt þeirra réttinda
sem Sjungkingstjórnin svipti
kínversku verkalýðshreyfing
una, þegar hún bannaði starf
semi alþýðusambandsins.
Sjúngkingstjórnin bannaði
verkföll og gerði aðrar ráð-
stafanir til að hindra eðlilega
starfsemi verkalýðsfélaganna,
jafnframt því sem hafnar
voru ofsóknir gegn forystu-
mönnum þeirra.
Dómar mildaðir
Hæstiréttur hefur mildað
nokkuð dóma þá, sem kveðnir
/oru upp yfir samsærismönn-
unum í Ungverjalandi i byrj-
un þessa árs. M. a. var dauða-»
dómur Lajos Veres de Delnoks
breytt í 15 ára fangelsi.
Herkostnaður Norð-
manna 375 millj.
Herkostnaður Norðmanna
nemur samtals 375 millj. kr.
Herinn fær 100 millj., flotinn
110, flugherinn 38, strandvarn-
arliðið 10, loftvarnarliðið 10
og heilbrigðisþjónustan 2. 5
milljónir verða notaðar til
raketturannsókna.
þJÓÐVILJINN
við ágætiim árangrí á meit-
aramótinu sent hefst í im.
Verða sett ný íslandsmet í 400 og 110
m. grindahlaupum?
Tuttugasta og fyrsta Meistaramót íslands í frjálsum
íþróttum hefst í dag, kl. 2 e. h. á íþróttavellinum. í dag
verður keppt í 7 íþróttagreinum: 200 m. hlaupi, hástökki,
800 m. hlaupi, spjótkasti, 5 km. lilaupi, langstökki og 400
m. grindahlaupi.
Á mánudagskvöldið verður mótinu lialdið áfram og
þá keppt í 8 greinum: 100 m. hlaupi, stangarstökki, kringlu
kasti, 400 m. hlaupi, þrístökki, 15 km. hlaupi, sleggjukasti
og 110 m. grindalilaupi.
Færustu íþróttamenn okkar keppa í hverri grein að
undanskildum Gunnari Huseby, sem ekki tekur þátt í mót-
inu.
Keppnin í dag
Fyrri dag mótsins hefst
keppni á 200 m. hlanpi og
verður vafalaust hörð keppni
milli Finnbjarnar og Hauks
Clausen úr ÍR um meistara-
nafnbótina, en keppendur
verða 9 alls. í kúluvarpinu er
Vilhjálmur Vilmundarson úr
KR talinn líklegastur til að
sigra, en auk hans keppa þeir
Sigfús Sigurðsson frá Selfossi
og Friðrik Guðmundsson úr
KR sem báðir kasta um 14 m.
og Sigurður Sigurðsson úr ÍR
og Ástvaldur Jónsson úr Ár-
manni. 1 hástökkinu má telja
Skúla Guðmundsson KR viss-
an um sigur, en Kolbeinn Krist
insson frá Selfossi og Sigurð-
ur Friðfinnsson frá Fimléikafé-
lagi Hafnarfjarðnr munu keppa
um 2. og 3. sætiö. I 800 m.
hlaupi eru þuir Óskar Jónsson
og Kjartan Jóhannsson taldir
líklegastir til að hljóta meist-
aratignina, en auk þeirra keppa
Pétur Einarsson KR og Hörð-
ur Hafliðason og Stefán Gunn-
arsson úr Ármanni. Búast má
við skemmtilegri keppni í spjót
kasti, milli Hjálmars Torfason
ar frá Héraðssambandi Þingey
inga og methafans Jóels Sig-
urðssonar úr iR, en keppendur
eru 4 í þeirri grein. 1 5 km.
klaupi keppa m. a. Þórður Þor
geirsson og Indriði Jónsson úr
KR og Sigurgeir Ársælsson úr
Ármanni. I langstökki verður
hörð keppni um meistaratign-
ina milli Olivers Steins og
Finnbjarnar en auk þeirra kepp
ir ágætur langstökkvari frá
Héraðssambandi Þingeyinga,
Stefán Sörensson, og eru alls
9 keppendur í þessari grein.
Loks verður keppt í 400 m.
grindahlaupi og er Haukur
Clausen talin líklegur til að
setja nýtt íslandsmet í þeirri
grein, en keppendur eru 5 alls.
Keppnin á morgun
Kl. 8,15 á morgun verður
meistaramótinu haldið áfram
og hefst þá með keppni í stang
arstökki. Keppendur verða þar
5 að tölu og óvíst um úrslit,
en meðal keppenda eru þeir
Torfi Bryngeirsson úr Ármanni
og og Kolbeinn Kristinsson frá
Selfossi. í 100 m. hlaupi þykja
þeir Finnbjörn og Haukur lík-
legastir til að verða meistarar
en auk þeirra keppa Pétur Sig
urðsson, Þorbjörn Pétursson
o. fl. 1 Kringlukasti eru 11
keppendur og er Ólafur Guð-
mundsson ÍR þeirra kunnast-
ur. I 400 m. hlaupi eru margir
góðir keppendur, þ. á. m.
Kjartan Jóhannsson og Hauk-
ur Clausen. I þrístökki eru 10
keppendur, m. a. Stefán Sör-
'ensson, sem er methafi í þeirri
grein. I 1500 m. hlaupi keppa
Óskar Jónsson, Þórður Þor-
geirsson og Hörður Hafliðason.
1 110 m. grindahlaupi er búizt
við áð Skúli Guðmundsson
setji nýtt íslandsmet en auk
hans keppa þeir Finnbjörn og
Ólafur Nielsen. I sleggjukasti
eru 5 þátttakendur og munu
þeir Símon Waagfjörð frá Vest
mannaeyjum og Áki Granz frá
Selfossi keppa þar um meist-
aratignina.
Ekki hefur enn verið hægt
að ákveða hvenær meistara-
mótinu verður lokið, en á
mánudagskvöldið verður ólok-
ið keppni í þessum 6 íþrótta-
greinum: 4x100 m. boðhlaupi,
4x400 m. boðhlaupi, fimmtar-
þraut, 4x1500 m. boðhlaupi, 10
km. hlaupi og tugþraut. 1
Sá árangur, sem næst á
þessu móti í einstökum íþrótta-
greinum hefur aðra og meiri
þýðingu en að skera úr því
hverjir hljóti meistaranafnbót
á þessu ári. Eins og skýrt var
frá hcr í blaðinu nýlega, verð-
ur hann látinn skera úr því
hvaða þátttakendur verða héð
an í frjálsíþróttakeppninni við
Svía er hinar Norðurlandaþjóð
irnaj- taka þátt í á þessu hausti.
Má því búasi við óvenjugóðum
árangri af þessu móti ef gott
veður og ÖnauJ skilyrði fyrir
því verða nú fyrir hendi.