Þjóðviljinn - 25.04.1948, Síða 3
Sunnudagur 25. apríl 1948.
ÞJÖÐVILJINN
■4-1-H-H-ffI' t-I-M-H-H'I I »1 > 1 I I I I I I- III l-hH-H'l-l-H-
SKÁK
Ritstjórí Guðmundur Arnlaugsson £
í aprílhefti Chess er sagt frá
fyrstu sjö umferðum meistara-
mótsins í Haag.
Það kom alveg á óvart að
Fine skyldi ekki láta sjá sig og
ástæður þess eru mjög óljósar.
Hinir þátttakendurnir urðu sam
mála um að bæta einni umferð
við til þess að skákimar >Tðu
jafnmargar og ráð var gert fyr-
ir í fyrstu. Þessvegna verða
tefldar þrjár umferðir í Moskvu
í stað tveggja.
í Hollandi var áhuginn fyrir
mótinu afar almennur. Mikið
var um það rætt í blöðum og
útvarpi og áhorfendafjöldinn á
sjálfum skákstaðnum hefur ver
ið 900—1400 á kvöldi.
Hollenzka stjórnin fékk Euwe
bíl til uniráða, svo að hann gæti
búið heima í Amsterdam meðan
á mótinu stæði. Leikirnir voru
símaðir til Amsterdam jafnharð
an og sýndir þar fyrir fjölda
áhorfenda. s
Þegar skákunum var lokið á
kvöldin voru leikirnir sendir
símleiðis til Moskva og birtir
þar í útvarpi og blöðum því að
almenningur í Sovétríkjunum
fylgist vel með keppninni enda
eiga þeir þrjá fulltrúa þarna.
Skákirnar hafa verið misjafn
ar. Inn á milli þeirra glæsilegu
skáka sem við höfum heýrt um
og séð hafa-komið aðrar miklu
lakari eins og t. d. milli Keresar
og Botviniks- þar sem Keres er
sagður hafa leikið ótrúlega af
sér þrjá leiki í röð. Chess birtir
. þarna skákina milli Euwes og
Smisloffs úr fjórðu umferð þar
sem Euwe fórnar tveimur mönn
um í fallegri stöðu og sigurvæn
legri en vaknar svo við vondan
draum: hvergi finnst leið tii
að fylgja sókninni fram til sig-
urs.
Af þeim skákum sem birtar
eru í Chess verður viðureign
þeirra Euwes og Keresar einna
minnistæðust. Euw fær öllu
betri stöðu en kemst ekkert
áfram og eftir langa vörn nær
Keres gagnsókn sem rennu.
fram með leifturhraða.
Spænskur leikur
Haag, 2. marz 1948
14. Rd5 X 1'6 + Da8Xf6
15. f2—f3 Rg6—f4
16. Rd4Xc6 Bd7 Xc6
17. Bcl—e3 Ha8—d8
18. Ddl—d2 Rf4—g6
++.
Riddarinn varð að víkja. Híns
vegar kom.til greina að leika
honum til e6. Nú fá biskupar
hvíts fallegar línur.
19. Be3—(14 Df6—e7
(Re5? f4)
20. Hal—el De7—d7
Svart langar til'að leika d5
21. c3—c4 Bd7—a4
22. Bb3Xa4 Dd7Xa4
23. Dd2—c3 f7—16
Þetta er eina leiðin til að
valda g7. Svartur má hvorki nú
né í næstu leikjum drepa á a2,
peðið kostar drotninguna.
Ekki er ólíklegt að Euwe hafi
velt fyrir sér 24. BXf6 gXf6
25. DXf6, Rf8. Hvítur fær 3
peð fyrir biskupinn en kemur
hrókunum of.seint í leikinn.
24. f3—f4 Kg8—h7
25. b‘2—b3 Da4—d7
26. Dc3—13 b7—bö!
27. Df3—c3 b5Xc4
28. Dc3 X c4
Þetta lítur vel út vegna op-
innar c-línunnar og staka peðs-
ins á a6, en Euwe sést yfir
svarið. Bæði Yanofsky og skýr-
andi skákarinnar í Chess telja
'að Euwe hefði getað haldið betri
stöðu áfram með 28. bXc4, en
eftir c7—c5 er hvítur í klípu,
því að Be3 kostar e-peðið og
Bf2 fpeðið, Að vísu getur harm
náð peðinu aftur. 29. Bf2 R X f4
30. B X c5 en svartur stendur
þá sizt. lakar (t. d. Rh3+ og
síðan d Xc5) eða 29. f5 Re5.
Nú verður skákin hádrama-
tísk,
'28.----
29. Hel X e4
30. Dc4Xa6
31. Bdl—e3
IIe8Xe4!
d6—d5
d5Xe4
Dd7—g4
Euwe
1. e2—e4
2. Rgl—fS
3. Bfl—b5
4. Bb5—a4
Keres
e7—e5
Eb8—c6
a7—a6
d7—d€
Keres velur gamla vörn og
fær þrönga stöðu.
5. e2—c3 Bc8—d7
6. d2—d4 RgS—eí
7. Ba4—b3! h7—hC
Hvítur hótaði Rg5 og Be6
kostar manu.
8. Rbl—d2 Re7—g6
9. Rd2—c4 BÍ8—e7
10. 0—0 6—0
11. Re4—e3 B®7—f6
12. Re3—d,3 «BXd4
Nú verður hvitur að drepa
með riddarnnum,. því annarH
yrði Bg4 óþsegilegt. +
í fljótu bragði virðist hvítur
standa sízt lakan ennþá, biskup
inn stöðvar e-peð svarts og gæti
stutt a-peð hvíts. En í næstu
leikjum verða hinir ótrúlegustu
hlutir.
32. Da6—c4 Hd8—d3!!
Þetta kemur eins og þruma
úr heiðskíru lófti. Nú kostar
D X e4 biskupinn. Sjáið þið
hvernig svartur vinnur hann?
(32. h3 Dg3 33. De2 héfði af-
stýrt þessu framhaldi)
33. Be3—el RgG—h4!!
Þessi leikur er næstum ennþá
ævintýralegri en sá fyrri,
34. De4Xe4+ f6—f5
Nú er hvita drottningin bund-
in við að valda g2 og það not-
faerír Keres sér á glæsilegan
hátt,
35. Dc4—b7 c7—cð’!
36. Db7 X c6 Hd3—c3!
37. Dc6—d5 Hc3—cSlí
Kcrea hrekur drettninguna
£t& d-Ununni áður cn hann leik-
ur Hc2 svo áð hvStur , gctí ejdö
leíWð Bd2. .
. 84. WS-~d« s V
AUGLYSING
uiti skoðun bifreiða í iögsagnar-
umdæmi Reykjavíkur
Samkvæmt bifreiðalögum tilkjmnist bifreiðaeigendum hér með, að aðalskoðun
bifreiða fer fram frá 3. maí til 1. júlí þ. á. að báðum dögum meðtöldum, svo sem hér
segir:
Mánudag 3. maí R. 1— 150 Fimmtud. 3. júní R. 3151—3300
Þriðjud. 4. — — 151— 300 Föstud. 4. — . — 3301—3450
Miðvikud. 5. — — 301— 450 Mánud. 7. —' — * 3451—3600
Föstud. 7. — — 451— 600 Þriðjud. 8. — — 3601—3750
Mánud. 10, — — 601— 750 Miðvikud. 9. — — 3751—3900
Þriðjud. 11. — — 751— 900 Fimmtud. 10. — — 3901—4050
Miðvikud. 12. — — 901—1050 Föstud. 11. — — 4051—4200
Fimmtud. 13. — — 1051—1200 Mánud. 14. — — 4201—4350
Föstud. 14. — — 1201—1350 Þriðjud. 15. — — 4351—4500
Þriðjud. 18. — — 1351—1500 Miðvikud. 16. _— — 4501—4650
Miðvikud. 19. — — 1501—1650 Föstud. 18. — — 4651—4800
Fimmtud. 20. — —■=-■- -1651—1800 Mánud. 21. — — 4801—4950
Föstud. 21. — — 1801—.1950 Þriðjud. 22. — — 4951—5100
Mánud. 24. — — 1951—2100 Miðvikud. 23. — — 5101—5250
Þriðjud. 25. — — 2101—2250 Fimmtud. 24. — — 5251—5400
Miðvikud. 26. — — 2251—2400 Föstud. 25. — — 5401—5550
Fimmtud. 27. — — 2401—2550 Mánud. 28. — — 5551—5700
Föstud. • 28. — — 2551—2700 Þriðjud. 29. — — 5701—5850
Mánud. 31. — — 2701—2850 Miðvikud. 30. — . — ■ 5851—6000
Þriðjud. 1. júní — 2851—3000 Fimmtud. 1. júlí — 6001 og
Miðvikud. 2. — — 3001—3150 þar yfir.
Ennfremur fer fram þann dag skoðun á öllum bifreiðum, sem eru í notkun í
bænurn, en skrásettar eru annarsstaðar.
Bifreiðaeigendum ber .að koma með bifreiðar sínar til bifreiðaeftirlitsins, Borg-
artúni 7 og verður skoðunin framkvæmdþar daglega kl. 9,30—12 og kl. 13—17.
Þeir sem eiga tengivagna eða farþegabyrgi á vörubifreið skulu koma. me'ð þau
um leið og bifreiðin er færð til skoðunar, enda falla þau undir skoðun jafnt og sjálf
bifreiðin. . ...
Við skoðun skulu ökumenn bifreiða leggja fram fullgild ökuskírteini.
Ógreiddur bifreiðaskattur_ skoðunargjöld og vátryggingariðgjald ökumanna fyr-
ir tímabilið 1. apríl 1947 til 31. marz 1948 verða innheimt um leið og skoðun fer
fram. Séu gjöldin ekki greidd-við skoðun eða áður, verður skoðunin ekki fram-
kvæmd og bifreiðin stöðvuð, þar til gjöldin' eru greidd. 4
•>V ~
Sýna ber skilríki fyrir því, að lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi.
Athygli skal vakin á því, að umdæmismerki bifreiða skulu ávalt vera vel læsileg
og skal þeim komið fyrir og vel fest á áberandi stað, þar sem skoðmiarmaður tiltek-
ur. Er því hér með lagt fyrir þá bifreiðaeigendur, sem þurfa að endumýja eða lag-
færa númersspjöld á bifreiðum sínum, að gera það fafarlaust nú, áður en bifreiða-
skoðunin hefst.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á réttum degi, verður hann
látinn sæta ábyrgð samkvæmt- bifreiðalögunum, og bifreiðin tekin úr umfei'ð, hvar
sem til hennar næst. Ef bifreiðaeigandi (umráðamaður) getur ekki af óviðráðanleg-
um ástæðum fært bifréið sína til skoðunar á réttum tíma, ber honum að koma á
skrifstofu bifreiðaeftirlitsins og tilkynna það. Tilkvnningar í síma nægja ekki.
Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máli, til ef tirbreytni.
Tollstjórinn og lögreglustjórinn í Reykjavík, 24. april 1948.
6.
Torfi Hjartarsou.
Sigurjóa Stgurðssoa. .
- : V T' ■**.': •- •*«• • *.’, v*