Þjóðviljinn - 11.06.1948, Síða 4
'4
ÞJÖÐVILJINN
Föstudagur 11. . júni 1948.
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmutidsson (áb).
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólaísson, Jónas Árnason.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðu-
stíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur)
Áskriftarverð: kr. 10.00 á mánúði. — Lausasöluverð 50 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviijans h. f.
Sósialistaflokkurinn, Þórsgötu 1 Simi 7510 (þrjár línur)
138 milljónir þegar fundnar
Formaður annars stærsta stjórnarflokksins hefiu' talað
og upplýst að fundnar séu 130 milljónir kr. í dollurum, sem
íslenzkir ,,fjáraflamenn" eigi vestur í Ameríku. Það er ó-
þarfi að taka fram að þetta fé hefur safnazt vestur þar í
fullkomnu trássi við lög og rétt, þeir sem taldir eru eigendur
eru óheimildarmemi að því, féð er stolið frá íslenzka þjóð-
arbúinu, og mennirnir sem þann verknað hafa framið eru í
engu ólíkir þeim sem fara inn í hús náungans til að stela
penin.gum, nema því að þeii’ sem geyma féð fyrir vestan eru
stærri í sniðum og hafa meira upp úr erfiði sínu en vesælir
innbrotsþjófar.
Yfirlýsing formaims Framsóknarflokksins hlýtur að
vekja fjölda spurninga. Hvað hefm' ríkisstjóniin gert til
þess að afla upplýsinga um þetta falda fé?
Hafa þessar upplýsingar ef til vill borizt henni upp i
hendur án þess að hún leitaði þeirra?
Hefði hún ef tii vill helzt viljað vera án þeirra ?
Hversvegna eru þessar upplýsingar ekki birtar í stjórnar-
blöðunmn ?
Því fer formaður Framsóknarflokksins alla leið austur á
Homafjörð til að birta þær?
Því þegir Tíminn ?
í raun og sannleika er öilum þessmn spumingum fljót
svarað. Núvefandi ríkisstjóm var mynduð til þess að hilma
yfir með þeim glæframönnum, sem eru að svikja fjármimi
þjóðarinnar úr höndum hennar og til þess að tryggja sem
alira bezt að hún rækti þetta hlutverk, var einn hinn sekasti
meðal hinna seku settur á ráðherrastól.
En þá vakna aðrar spurningar.
Hverskonar vofu-tilvera er það sem formaður Framsókn-
arflokksins lifir á vettvangi stjórnmálanna ?
Hann fer til hinna f jarstu landshorna til að upplýsa að rík
isstjómin viti um hina stórfelldustu f járglæfra sem framd-
ir hafa verið á íslandi. Blað hans þegir. Flokkurinn þegir og
hiimar yfir. .Ekkert stjórnarblaðanna segh' eitt einasta orð.
Öll staðfesta þau meó þögninni að stjórnin ætli að himla
vfir þennan verknað, og formaður Framsóknarflokkshis fer
bara austur á Hornaf jörð og vitnar.
Hvíh'k vimiubrögð!
Heldur Hermann Jónasson að hann þvoi sig og flokk sinn
livítan með þessari Homaf jarðarför ? Það er ólíklegt, en ef
svo skyldi vera. skjátlast honum. Það sem hann hefur gert
er að upplýsa að hann sjálfiu’ og flokkur hans ber ábyrgð
á ríkisstjórn sem er skjól og skjöldur svindlara og fjár-
glæframanna. Það er virðingarvert að hann sýnir þessa
hreinskilni, en sú virðing verður skammæ, ef yfirlýsmgin
á aðeins að vera misheppnuð tilraun til að þvo vissa memi
í Framsóknarflokknum í a-ugum háttvirtra kjósenda.
Eða er skýringin á þessu öllu ef til vill sú að formaður
Framsóknarflokkshis fái ekki.lengur að skrifa í Tímann,
eru völd glæfrastjórnaiinnar svo algjör að hím lialdi um
liendina á ritstjóra Tímans og formaimi Framsóknarflokks-
ins.
Það er að lokum rétt og sjálfsagt að geta þess að Þjóð-
viljinn veit með vissu að um áramót voru óleyfilegar inn-
stæður í Ameríku 49M>ymillj. dollara eða um 320 millj. kr.
Það er vissa fyrir að stjórnin hefur alla stund síðan verið
að gefa skjólstæðingum sínum tækifæri til að fela sem mest
af þessu fé og ugglaust er ætlunin að bíða enn um shui og
láta fela meira og gefa síðan skýrslu þegar nógu lítið er
firmanlegt fyrir vestan.
BÆ.IABPOSTÍSffl
lÉMMIir ?■ I liilÉllÉISll
Niðurstaða manna af að
anda síðustu dagana
Það þykir nú sýnt, að á meðan
ekki er úr lagi farið eitt af 5
skilningarvitum Reykvíkinga,
sem sé það skilningarvitið, sem
tengt er þeffærunum, ’geti elcki
komið til mála að hafa stórar
fiskimjöls- eða síldarverksmiðj-
ur í næsta nágrenni höfuðstað-
arins. — Þessi hefur orðið nið-
urstaða manna af að anda hér
í Reykjavík siðustu dagana —
einkum þó í norðaustan átt, þeg
ar vindurinn stendur af vei’k-
smiðju einni, sem framleiðir
nvjöl úr fiskúrgangi á Laugar-
nesi.
~k
Alit yfirgnæfandi meiri-
hlutans
Reynsla sú, sem Reykvíking-
ar eru nú búnir að fá af téðri
verksmiðju, hefur vakið þá til
umhugsunar um, hvort ekki
muni rétt að bindast samtökum
til mótmæla gegn byggingu síld
arverksmiðju í Örfirisei', nær-
vera hennar hljóti að hafa ó-
þægileg áhrif á andrúmsloft
þess fólks, sem ekki gengur
með biluð þeffæri. — Fróðir
menn svara og' sc-gja, að til
séu fullkomin tæki sem fyrir-
byggi allan óþef af völdum
slíkrar verksmiðju. En fólkið
treystir varlega fullvrðingum
fróðra manna, enda oft fengið
slæma reynslu af ýmiskonar
tækjum, sem i upphafi voru
talin fullkomnunin sjálf. Það
er eflaust skoðun yfirgnæfandi
meirihlutans, að ekki megi hafa
verksmiðjur slíkar sem þær, er
hér hefur verið rætt um, í
næsta nágrenni höfuðstaðarins.
•k
Fær ekki efni til að
sauma á sig og börn sín
' Kona nokkur hefur sent mér
tilmæli um að minnast á nokkur
atriði, sem hún telur miður fara
í sambandi við skömmtunina á
vefnaðarvörum. Kona þessi á
fyrir mörgum börnum að sjá,
og í fátæktinni hefur hún haft
þann vana að sauma öll föt á
sjálfa sig og bömin, — En með
ríkjandi skömmtunarástandi er
henni meinað að gera þetta.
Hún getur ekki einu sinni feng-
ið efni til að sauma á sig slopp
eða svuntu.
~k
Réttmæt krafa
Þessar ráðstafanir stjórnar-
valdanna telur hún að sjálf-
sögðu undarlegar, og ennþá
undarlegri verða þær, þegar
þess er gætt, að ýmsum stór-
um fyrirtækjum virðast veittir
all ríflegir skammtar, gem þau
nota svo til að framleiða úr
þeim sloppa, kjóla og allskonar
fatnað á vinnustofum sínum.
Selja síðan flíkur þessar rán-
dýru verði, sem fátækar hús-
mæður verða að borga, vegna
þess að stjórnarvöldin meina
þeim að sauma á sig og sína.
Konan telur þetta ástand gjör-
samlega óviðunandi, og ég hygg,
að flestar húsmæður taki undir
þá réttmætu kröfu hennar, að
yfirvöldin losi dálítið um á-
kvæðin varðandi skömmtun á
vefnaðarvöru.
*
Mótmæli gegn hátíða-
höldum í Hljómskála-
garðiiium
Það er álit margra, að Illjóm-
skálagarðurinn sé ekki liinn
rétti vettvangur fyrir útisam-
komur. Bergmál Vísis birti í
fyrradag bréf, þar sem því var
harðlega mótmælt, að hátíða-
höld 17. júni yrðu höfð þar
enn í ár. Eg hef fengið bréf,
sem túlkar sömu skoðanir. Hér
er glefsa úr því: ...Það kem
ur alls eicki til mála að hafa há-
tíðahöld þessi (17. júní) í
I-Iljómskálagarðinum, þar sem
allur gróður er á byrjunarstigi.
.... Kunnugur segir mér, að í
fyrra (á 17. júní) liafi gróður
þarna verið eyðilagður svo nem
ur tugum þúsunda að vinnuverð
mæti. ...“ En nú vaknar spurn
ingin, hvaða staður annar mundi
hentugur, því ekki dugar að
láta falla niður útisamkomu 17.
júní.
*
Skallagrímur kom frá útlöndum
í fyrrinótt. Madonna fór til út-
landa í gærmorgun. Islendingur
kom af veiðum í gærmorgun og
fór til útlanda kl. 1 e. h. Vélskipið
Helgi frá Ves*tmannaeyjum kom
hingað í gær. Goðoíoss og Vatna-
jökull liggja hér á höfninni.
Isfisksíilan: 1 ga-r seldi Bjarnar-
ey 4924 vættir fyrir 11856 pund í
Grimsby. Forseti er nú á leið til
Bretlands. 1 fyrradag seldi Elliði
316,2' tonn í Cuxhaven I Þýzka-
landi.
RÍKISSKIP:
Esja kom til Breiðdalsvíkur kl.
10.30 í gærmorgun. Súðin var við
Vestmannaeyjar kl. 6 í gærmorgun.
Herðubreið, Sltjaldbreið og Þyrill
eru í Reylcjavík.
Skip S.Í.S.:
Hvassafell er i Kotka í Finn-
landi. Varg er á lcið til Kópaskers
Vard er væntanlegt til Borgarness
í dag. Vigör er í Hull.
Skip Eimussonar og Zöega:
Foldin fermir vörur í Hull í da.g.
Vatnajökull , er í Rvík. Lingest-
room er á ísafirði. Marleen fór
frá Amsterdam í fyrradag tii
Reykjavikur.
EIMSKIP:
Brúarfoss or í Leith. Goðafoss
kom til Rvíkur 8. 6. frá Hull. Fjall
foss fór frá Leith 9. 6. til Dan-
merkur. Lagarfoss kom til Lyse-
kil í fyrramorgun 9. 6. frá Leith.
Reykjafoss kom til Akureyrar .
gærmorgun. Selfoss fór frá Imm-
ingham í fyi-radag 9. 6. til Ant-
werpen. Tröllafoss fór frá Hali-
fax í fyrradág 9. 6. til Rvikur.
Horsa fór frá- Leith í fyrradag 9.
6. til Rvíkur. Lynga.i fór frá Ham-
ina í Finnlandi i fyrradag 9. 6. til
Köge.
Rangæingafélagið efnir til
skemmtiferðar austur í Rangár-
vallasýslu sunnudaginn 13. þ. m.
Lagt verður af stað Iré B.S.R. kl.
Einn blaðamaður
frá Alþýðublaöinu
var viðstaddur Kefla
ríkurtundinn s. 1.
þrið.judagskvöld:
Helgi Sæm. — Al-
þýöublaðið segir í gær í frétt af
fundinum: „Helgi Sæmundsson
flutti fyrstu ræðu af hálíu ungra
jafnaðamianna og hóf með henni
rökræður um innlend og erlend
stjórnmál sem lengi mun í minn-
um hafðar af fundarmönnum".
Úti-arpið í dag:
19.30 Tónleikar: Harmonikulög
(plötur). 20.30 Útvarpssagan:
„Jane Eyre“ eftir Charlotte Bronté,
X (Ragnar Jóhannesson skólastj.)
21.00 Strokkvartett útvarpsins:
Tveir kaflar úr kvartett op. 18 nr.
4 eftir Beethoven. 21.15 Erindi:
Hetjurnar með hirtingarvöndinn
(Pétur Sigurðsson erindreki). 21.40
Iþróttaþáttur (Árni Ágústsson).
22.05 Symfónlskir tónleikar (plöt-
ur): a) Fiðlukonsert í a-moll op.
47 eftir Spohr. b) Alexander
Nevski eftir Prokofieff.
Hjónaband. í gær voru gefin
saman hér í Reykjavik Sigríður
Gísladóttir frá Stóra-Hrauni og
Per Krogh verkfrreðingur. Heimili
þeirra verður á Akureyri.
Hjónaband. í ga-r voru gefin
saman í hjónaband af séra Jóni
Thorarensen, ungfrú Kolbrún Jóns
dóttir (Þarleifssonar listamálara)
Blátúni við Kaplaskjólsyeg og
Brandur Bryajólfsson, béraðsdóms
lögmaður, Barmahlíð 18.
Drengjafatastofan opnar í dag
nýja sölubúð og vinnustofu að
Grettisgötu 6.
„Refirnir“, eftir Lillian Hellman,
verða sýndir í Iðnó kl. 8 S kvöld.
Bláa stjarnau sýnir „Blandaða
ávexti" i Sjálfstæðishúsinu kl. 8,30
í kvöld.
Skrifstofa héraðslæknls vill vekja
athygii á að engln ástaiða er til að
óttost skort á bólueíni gegn barna-
veilci.
Skrifstofa borgarJæJknis, Póst-
hússtræti 7, er opin alla virka.dag.t
á venjulegum skrifstofutima. Við,-
talstími er kl. 10—11. Sími 1200.
Handavinnusýnlng Húsmæðra-
skóla Reykjavíkur verður opin kl.
10—22 í dag.
Næturakstur i nótt: Lifla bílstöð-
in — Sími 1380.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki.
— Sími 1330.
KBOSSGÁTA NK. 52.
Lúrétt, skýring: 1. Þrautin, 4. kað-
all, 5. húsdýr, 7. hljóma, 9. óðagot,
10. farvcgur, 11. tímaskerðing, 13.
mastraútbúnaður, 15. fisk, 16. líf-
gjafi.
Lóðrétt, ráðning: 1. vá, 2 .sár, 3.
hljóð, 2. næði, 3. kemst, 4. slóttug
dýr, 6. þvottaefni, 7. með st'uttu
miilibili, 8. það, sem menn fá eftir
rika frændur i Ameriku fþf.), 12.
óskert, 14. gott að hafa á hendi,
15. utan.
Lausn á krossgátu nv. 51.
Lárétt, ráðning: 1. Vísir. 4. fá, 5.
æf, 7. arg, 9. nóg, 10. afl, 11. nót,
13. ró, 15. ái, 16. lausn.
Láðrétt, ráðning: 1. vá. 2. sár, 3.
ræ, 4. tónar, 6. faldi, 7. agn, :J.
gat, 12. ólu, 14. ól, 15. án.
Veðrið í dag. Faxaflói: Aust-
an kaldi, síðar stinningskaldi.
Dálítil rigning.
Ileimilisrltið er nýlcga komið út
og er það apríl heftið. Efni: For-
vitni, smásaga eftir Jón H. Guð-
mundsson; Paganini rennusteins-
ins, frásöguþáttur eftir Ben Hecht:
Álagadómar, smásaga eftir Ralph
Smith; Hvernig hægt er að auka
lestrarhraðann; fcannleikurinn,
framhaldssaga eftir Rudyaid Kip-
Framhald á 7, síðu.