Þjóðviljinn - 20.07.1948, Síða 4
1
ÞJÖÐVILJINN
Þriðjudagur 20. júlí 1948
þlÓÐVIIJINM
Útgefandl: Saraeiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb).
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Óiafsson, Jónas Ámason.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja. Skólavörðu-
etíg 19. — Slmi 7500 (þrjár línur)
Áskriftarverð: kr. 10.00 á mánuði. — Lausasöluverð 50 aur. elnt.
Prentsmiðja I’jóðvlljans h. f.
Sósíalist&flokkurLnn, Þórsgötu 1 — Sími 7510 (þrjár línur)
Þé það kosti stríð?
Er nú stríðið að skelia á, ætla þeir nú að fara að berjast?
Þannig er spurt á strætum og gatnamótum, og svörin, þau
eru ugglaust margvísleg, en þegar á allt er litið, spurningar og
svör, verður niðurstaðan ein og hin sama, flestir virðast álíta
stríð nauðsjm, sem ekki verði umflúin.
Þegai’ þannig er hugsað er vissulega tímabært að staldra við
og gefa sér tima til að athuga rök málsins og rej'na að gera
sér þess fulla grein hvort hag mannkynsins, er svo komið, að
stríð hljóti að koma, ef ekki í dag þá á morgun.
Fyrst verður manni á að spyrja, Hverjir vilja stríð?
Eru það þeir sem á tímum stríðsins eiga að líða og þjást,
þeir sem eiga að missa heimili, ástvini, heilsuna, lífið og limina,
eitthvað af þessu eða allt þetta, og allir vita að slíkt er hlut-
skipti þeirra, sem í stríðslöndum búa.
Ekki þarf að velta því fyrir sér að þessi stóri hópur vill ekki
stríð, hugsunin um stríð er þessu fólki ægileg martröð.
Það er naunxast hægt að ætla nokkrum manni það að hann
í raun og sannleika vilji stríð, undanskiidir eru þó aðeins hrein-
ir og beinir glæpamenn, en það værí "of mikil svartsýni að gera
láð fyrir að þeir hefðu slík völd í heiminum að þeir gætu ráðið
hvort friður helzt eða ekki.
En hvað er það þá sem ræður úrSlitum, hvað veldur, að allir
gera ráð fyrir að það geti orðið sem enginn vill? Eru mennirn-
ir ekki herrar þróunarinnar í sínum eigin málum?
Það er sagt að við búum við fullkomið lýðræðisskipulag og að
Jýðræðið sé okkur í blóð borið. En er þetta svo i raun og
Eannleika? Búa hinar marglofuðu vestrænu þjóðir við fullkomið
lýðræðisskipulag ?
Við skulum líta aftur í timann. Eftir stríðið frá 1914—18, var
rikjandi borgaralegt lýðræði í löndum eins og Italíu og Þýzka-
landi, með öllum Jiess miklu kostum, og öllum þess miklu tak-
rnörkunum. Verkalýður þessara landa leit svo á að tími væri
til kominn að hindra einstaka auðmenn í að hirða svo veruleg-
an hluta af arðinum, er vinnan skapaði, sem raun bar vitni.
Ho.num virtist hagsmunir þessara herra gætu krafizt rýrrar at-
vinnu og lélegrar afkomu fyrir fjöldann, að þeir gætu jafnvel
krafizt stríðs við aðrar þjóðir. Þessi verkalýður hefði því breytt
hinu þýzka og italska þjóðfélagi i sósíalistisk þjóðfélög ef hið
borgaralega lýðræði hefði verið i heiðri haft.
En auðmenn Þýzkalands og Italíu voru á öðru máii, þeir litu
svo á að aðstöðu sína yrðu þeir að verja hvað sem það kostaði.
Þeir höfðu ríkisvaldið og áróðurstækin raunverulega í sinni
hendi, og þegar þeim var íjóst að þeir myndu verða sviftir arð-
lánsaðstöðunni, á löglegan hátt, sa'mkvæmt leikreglum hins
þorgaralega lýðræðis þá köstuðu þeir hinu bergaralega lýðræði
fvrir borð, það var upphaf fasismans, fj'rsti þátturinn í undir-
búningi síðustu heimsstyrjaldar.
Það er mikil hætta á að þessi saga endurtaki sig.
Auðmenn auðvaldsþjóðfélaganna munu gera allt, sem í þeirra
valdi stendur til að hindra þróun til sósíalismans. 1 þeirra aug-
nm er týðræði aðcins tæki til að verja þá aðstöðu, sem þeir hafa,
sé hætta á, að tækið snúist í hendi þeim munu þeir vissulega
reyna að kasta því fyrir borð, áður en það ynni auðsöfnunarað-
stöðu þeirra geig. Ný fasistaalda ríður yfir, stríðsundirbúningur
hefst. Það er þetta sem nú er að gerast í heiminum. Það er þetta
sem ógnar friði og farsæld, það er sú staðreynd, að aðstaða
auðmannanna til auðsöfnunar er þeim dýrmætari en lýðræðið,
þess vegna verja þeir hana, hvað sem það kostar, þó að það kosti
stríð við þær þjóðir, sem icomið hafa á lijá sér sósíalistisku
hagkerfi. V
BÆ J AHjPOStiRI \! N
Engin sigin „sleppa“
„Áttu nokkra signa ,,sleppu“
núna ?“ sagði kona ein í gær-
morgun við manninn, sem sel-
ur fisk úr vagni útá Óðinstorgi,
og maðurinn sagðist því miður
ekki hafa neina signa „sleppu'-
núna. Konan hélt áfram með
mjólkurbrúsann sinn og lét um
leið í Ijós þá skoðun sína, að
-íslenzkt fiskát væri á glötunar-
vegi. — „Það er nú fleira fisk-
ur en sigin grásleppa", sagði
þá maðurinn, en konan svaraðí
ekki, því hún hafði annað við
tímann að gera en hefja rök-
ræður á þeim stað þar sem ekki
var sigin grásleppa.
★
Erfiðleikar
Eg spurði manninn, hvort
mikið væri uppúr því að hafa
að selja fisk úr vagni á torgi.
Maðurinn sagði, að lítið væri
uppúr því að hafa.
„En það fæst hvergi leigt
fyrir fiskbúð", sagði hann.
„Enginn vill hafa fiskbúð í
húsi sínu. Og maður fær eklci
heldur að byggja — bæjar-
stjórnin bannar manni að
bvggja sér fiskbúð. Fyrir
nokkru sótti ég um leyfi til ’að
byggja fiskbúð í Kleppsholti.
Þar hefði allt orðið „komplet",
kæliklefar, flísalagt gólf, sem
sagt allt „komplet", en bæjar-
stjórnin sagði nei. Þetta var
ekki nógu stórt, sögðu þeir.
Eg skil ekki hvað þeir meina.
Sem stendur er fiskur seldur
í þremur timburskúrum i
Kleppsholti, — fjalagólf, cngir
kæliklefar, ekki neitt.“
★
Tvö sporðstykki
„Hvort er þetta of salt eða
of dauft lijá þér núna?“ spurði
önnur kona og benti á blautan
saltfisk og maðurinn svaraði:
„Alveg mátulegt“. — Konan
ætlaði að fá tvö sporðstykki, en
kærði sig ekki um sjálfa sporð-
ana. Maðurinn skar þá af, —
fór síðan í bunka af gömlum
dagbiöðum ,tók þaðan einn
Þjóðvilja og pakkaði saltfiskn-
um innan i Bæjarpóstinn. —
Þegar konan var búin að borga,
sneri maðurinn sér aftur að
mér og sagði: „Nei, þeir eru
svosem ekki að klóra okkur,
þessum minni fisksölum, undir
eyrunum, kallarnir þama í bæj-
arstjórninni — ekki aldeilis að
gera okkur hægara fyrir.“
Gott á Óðinstorgi
Síðan fræddi hann mig um
ýmislegt varðandi fisksölu. Það
er ekki sama, hvar maður
selur fisk. Það er t. d. fiflshátt-
ur að selja fisk þar sem ekki
er mjólkurbúð á næstu grösum.
Húsmæðurnar vilja geta náð sér
í fiskinn um leið og þær sækja
mjólkina. — Til að selja fisk
úr vagni á torgi, þarf maður að
fá sérstakt leyfi bæjarstjórnar-
innar, og leyfið er bundið því
skilyrði að vagninn sé málaður
og líti yfirleitt út eins og sóma-
samlegur íverustaður fæðuteg-
undar handa fólk. — Óðinstorg
er hentugur staður fjTÍr fisk-
söluvagn; mjólkurbúðir í næsta
nágrenni og tiltölulega lítið um
bila. Það' má ekki vera mikil
umferð, þar sem fiskur er seld-
ur úr vagni.
Sérstakt torg fyrir
skyndisölu
Og maðurinn sagði, að eitt
þj’rftu skipuleggjendur bæjar-
ins að ákveða sem fj'rst. Þeir
þyrftu að ákveða sérstakt torg,
þar sem menn gætu framkvæmt
aliskonar skj’ndisölu, eins og
tíðkast í útlöndum. Þangað
kæmu menn með þyrskling, sem
þeir veiddu sjálfir, fugl, sem
þeir skytu sjáifir, sel, sem þeir
skytu sjálfr, egg úr bjargi. Það
er svo margt, sem ekki er í
skjótum svip hægt að fá selt í
búðum.
Þegar ég kvaddi manninn,
kom önnur 4kona og spurði um
signa ,,sleppu“. — Maðurinn
kvaðst vonast til að fá hana
bráðlega.
*
á isafirði sl. laugardag. Yarg á
Akureyri.
Útvarplð í dag.
19,30 Tónleikar: Zigeuhalög
(plötur). 20.20 Einsöngur: Ivirsten
Plagstad (plötur). 20.35 Erindi: Is-
lenzkur heimilisiðnaður á liðnum
öldum; síðara erindi (Inga Lárus-
dóttir). 21.00 Tónleikar: Tríó í a-
moll fyrir str-engjahljóðfæri, eftir
Max Reger (plötur). 21.25 Upplest-
ur: „Spjaldvefnaður", smásaga eft-
ir Theódóru Thoroddsen (frú Ólöf
Nordal les). 21.45 Kveðjuorð (séra
Valdjmar Eylands). 22.05 Djass-
þáttur (Jón M. Árnason).
Ingólfur Arnarson lcom frá
ÞJ-zicalandi í gær. Belgaum kom
frá Engiandi. Madonna kom í gær.
ISFISKSALAX.
Gylfi seldi 272 lestir í Hamborg
16. þ. m.
EIMSKI P:
Brúarfoss er í Leith. Fjallfoss er
á Siglufirði. Goðafos fór frá Rvík
kl. 20.00 í gærkvöld 19. 7. til N. Y.|
Lagarfoss i'ór frá Rotterdam 17. 7.®
til Kaupmannahafnar. ReykjafossS
er i Rvik; Selfoss fór frá Siglu-g
firði 144. 7. til Amsterdam. Trölla-
foss fór frá Halifax 17. 7. til Rvík-
ur. Horsa er væntanlega á Sauðár-
króki. Madona kom til Rvíkur í
gærmorgun 19. 7. frá Hull. South-
ernian lestar í Antwerpen og Rott
erdam 16.—20. júlí. Marinier kom
til Rvíkur í gærmorgun 19. 7. frá
Leith.
Skip Einarssonar og Zöega.
Foldin og Lingestroom er i Rvík.
Vatnajökull er á Vestfjörðum.
Westhor fór í gær áleiðis frá Hull
til Rvíkur,
KIKISSKIP:
. Hekla er á Siglufirðí, á leið til
Akurcyrar. Esja er á leið frá Glas-
gow til Rvíkur. Súðin er i Rvík.
Herðubreið var á Borgarfirði
eystra í gæi- á norðurleið. Skjald-
breið fór frá Rvík kl. 20 i gærkvöld
til Snæfellsnesshafna og Breiða-
fjarðar. Þyrill er í Rvík.
Skip S.I.S.:
Hvassafell er á leið til Kotka í
Finnlandi, Vigör er á leið til Ála-
borgar frá Kristiansand. Piico var
Víkverjl kvartar sáran undan
þri á laugardaglnn að erlendur
ferðamaður sem ætlaði að taka
myndir af miðbænum hjá Arnar-
lióli hér á dögunum, fékk ekki frið
til þess fyrlr ölvuðmn róna, sem
snerlst í krlngum hann nieð fífla-
látum“. — Eg skll ekki af hverju
maðurinn er að kvarta. „Róninn4*
hefur auðvitað haldið að hami,
hafi verið að vlnna þjóðþrlfaverk,
samkvæmt fordUemi dómsmálaráð-
herrans, og varla hafa „fíflalæti ‘
lians verið verri en þau sein tékk-
nesku vísindamennirnir urðu að
]>oIa liér á dögumun bæði af valda-
mönnum og sorpriturum. — Eu
kannski eiga þær manntegundir að
liafa forrét.tindl á fitlalátiun við
útlendinga?
Hjónaband. Sl. laugardag voru
gefin sarnan í hjónaband .ungfrú
Guðrún Árnadóttir og Pétur Hann-
esson, Stórholti 21.
„Noregur í litum“, kvikmyndin,
sem frú Guðrún Brunborg kom
með hingað til lands, hefur verið
sýnd í Tjarnarbíó um helgina við
vaxandi aðsókn. Ef sýningarleyfi
í Tjarnarbíó fæst framlengt mun
myndin verða sýnd þar í dag, á
morgun og á fimmtudaginn, en að
öðrum kosti mun frúin hei'ja sýn-
ingar á myndinni í Listamanna-
skálanum n. k. föstudag og halda
þeim áfram til mánaðarmóta.
Barnaheimilið Vorboðinn Rauð-
hólum. Allar heimsóknir strang-
lega bannaðar á heimilið.
Nefndin.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki. — Sírni 1616.
Nieturakstur í nótt annast Hreýf
ill. — Sími 6633.
Bólusetning gegn barnaveikl
heldur áfram og er fóllc minnt á
að láta endurbóiusetja börn sín.
Pöntunum veitt mottaka í síina
2781 alla daga kl. 10—12 nema
laugardaga.
t<<>í><<>K><><><t<>^^
I
NYLEGUR
bamawagn
til sölu.
Háteigsvcg 34 kl. 4—6 í dag.;
Sími 6789.
Síldin
Framhald af 8. siðu-
Pólstjaman, Dalvík .... 510
Rifsnes, Rvík ........ 566
Siglunes, Siglufirði .... 1601
Sleipnir, Neskaupstað .... 934
Snæfell, Akureyri .... 701
Stígandi, Ólafsfirði .... 631
Stjaman, Rvík ........ 596
Straumey, Akureyri .... 571
Súlan, Akureyri ...... 967
Sveinn Guðmundss. Akr. 508
Sædís, Akurej'ri ..... 522
Sæhrímnir, Þingej’ri .... 930
Valþór, Seyðisfirði .. 635
Víðir, Eskifirði...... 754
Víðir, Akranesi ...... 1306