Þjóðviljinn - 21.07.1948, Síða 5

Þjóðviljinn - 21.07.1948, Síða 5
Miðvikudagur . 21. júli 1943 ÞJÓÐVILJINN S ÍMeiðarleíki ímj drengskap- ur Haildórs Kristjjáns- smiar ★ Blaðajnenn Tímans þykjast ósjaldan bera mikla umhyggju i'yrir lieiðarleika og drengskap i blaðamennsku, ekki sízt Hall- dór Kristjánsson sem skriiar svartletursdálk biaðsins. S.l. iöstudag sagði þessi heiðarlegi drengskaparmaður að Aki Jak- obsson heíði íarið norður á Sigluijörð ásamt tveimur ís-. ienzkum sjómöunnm sem ráðn- ir hefðu verið handa Rússum og starfsmanni úr rússneska sendi- ráðinu. S.I. sunnudag bar Áki þessa frásögn hins heiðarlega drengskaparmanns til baka a óvenju eftirminnilegan hátt og vísaði m. a. til vitna sem Hall- dóri Kristjánssyni eru hand- gengin, Bjarna Asgeirssonar landbúnaðarráðherra og Stein- gríms Steinþórssonar búnaðar- málastjóra. ★ Og nú reynir á hinar fögru dyggðir sem Halldór Kristjáns- son hefur mikiað svo mjög i orðum á ritferii sínum. Sem heiðarlegum drengskaparmanni bar honum að leiðrétta missögn sína og biðja Aka Jakobsson opinberlega afsökunar á jafn áberandí hátt og tógsagan var flutt. Hann hefði þá staðið jafn- réttur eftir, því það getur komið fyrir jafnvel heiðarlegustu drengskaparmenn að skýn rangt frá. En Tímiun kom út í gær og þar var ekki að finna nokkra leiðréttingu og engrar afsöknnar var beiðzt. ★ hannig er sagan um mann- inn sem lofaði hinar fegurstu dyggðir í mörgum greiuum, en sveik þær síðan þegar lögð var fyrir hann lítil prófraunt Aukin viðskipti Breta og Pólverja Nýr viðskiptasamningur milli Bretlands og Póllands hefur verið undirritaður í Varsjá. Er hann viðauki við þriggja ára viðskiptasamning þessara landa, sem gerður var í fyrra. Sam- kvæmt hnum nýja samningi kaupa Pólverjser í Bretlandi bíla, út'varpstæki, kæliskápa og ritvélar en selja í staéfinn vefa>- aðarvöru og búsáhöld. Brezka stjórnin hefur tekið vel í pólska tillögu um að skipa sérfræðinga nefnd til að jafna ágreiningsmál milli landanna. Sauðáifkróksbúar styrkja ©lympíufaraaa Bæjarstjóm Sauðárkróks hef ur veitt Ólympíunefnd eitt þús- xmd krónur til þátttöku í Ölym- píuleikunum 1948. Frétt frá Ólympíunefnd. VIÐREISN EYMDARINNAR Eftir að gerður hefur verið jafn yfirgripsmikill og örlaga- ríkur samningur og Marshail- samningurinn, sem að sögn ráð- hcrrans, sem gerði "hann á að valda „aldahvörfum til góðs“, þá skyldi maður ætla, að einsk is væri látið ófreistað af hálfu stjórnarflokkanna til að upp- lýsa almenning um samning- inn. En það er síður en svo. Þrjú af stjórnarblöðunum hafa ekki talið sér heppilegt að birta samninginn nema í fölsuðum út- drsétti og stjómarblöðin í heild eru yfirleitt ekki til viðtals um samninginn, en eru þeim mun háværari um allskonar slefsög- ur og persónulegan róg tun ein- staka sósíalista. Morgunblaðið, blað utanríkisráðherrans, hef- ur birt eina grein (eftir ráð- herrann sjálfan) til varnar samningsgerðinni og þótt grein þessi heiti: Viðreisnarsamning- urinn boðar öryggi og atvinnu, er ekki í henni gerð nein til- raun til að finna þeim orðum stað, lieldur er aðaláherzlan lögð á að reyna að sanna að samningurinn sé ekki eins skað legur og hanu virðist vera. Það sem sérstaka athygU vekur við athugim þessa samn- ings er það, hve gjörsamlega hann er laus við að tryggja ts- lendingum nokkurn skapaðan lilut. I venjulegum samningum milli einstaklinga og milli ríkja felast gagnkvæm réttindi og gagnkvæmar skyldur. Plagg, sem tryggir öðrum aðiljanum allan rétt án skyldna, en ákveð ur hinum allar skyldur án rétt- inda, heitir ekki samningur og slík plögg þekkjast yfirleitt ekki nema tilkomin fyrir at- beina hnefaréttarins. Morgunblaðið kallar samn- inginn ,,viðreisnarsamning“ og segir að hann tryggi áframhald nýsköpunarinnar og boði ör- yggi og atvinnu. Hvar felast slík ákvæði í samningnum ? Tryggir hami Islendingum fjár- magn, gjaldeyri, til nýsköpun- ar? Nei, það gerir hann ekki. í honum stendur aðeins að Is- lendingar eigi rétt á að fá þau lán, sem Bandaríkjamenn sam- þykkja að veita. Það sýnist ekki þurfa mikla samninga lil að veita íslendingum þann rétt. En jafnvel þótt þetta ákvaiði trj-ggi okkur aðgang að þeirri upphæð, sem nefnd hefur ver- i'ð að Islandi verði gefinn kost- ur á, þá er -hún svo sriiávægi- Icg, að jiað.er hlægilegt að tala um nýsköpun atvinnulífsins og ,,aldahvörf“ í sambandi við hana. Tryggir samningurinn okkur nauðsynleg hráefni til iðnaðar, vélar til nýsköpunar eða rétt U1 að fá smíðuð skip fyrir okkur? Nei, ekkert af þessu. Samning- urinn hefur aðeins að geyma loðin ákvæði um rétt Islend- Inga til að taka við þeirri „að- stoð“, sem Bandaríkin sam- þykkja á hverjum tíma að veita okkur. En hinsvegar tryggir samningurinn Bandaríkjamönn um aðgang að íslenzkum efni- vörum, sem þau skortir eða á- stæða er til að ætla að þau muni skorta, ,,með sanngjörn- um söluskilmálum1*. Rétturinn er Bandaríkjanna, en skyldurn ar Islands. * Tryggir samningurinn okkur markaði fyrir útflutningsafurð ir okkar? I samningnum er eng- in slík trygging, og það sem verra er, hann spillir markaðs- möguleikum okkar. Forsvars- menn samningsins halda því fram, að með lionum höfum við tryggt okkur markaði í Bret- landi, Vestur-Þýzkalandi og öðrum Marshalllöndum og er það raunar eina atriðið, sem þeir liafa tilfært sem ávinning við samninginn. Athugum það nánar. Markaðir okkar í Brsc- landi og Vest.ur-Evrópu yfir- leitt eru gamlir og þeir byggj- ast nú eingöngu á því, að við höfum að bjóða þá vöru, sem þessar þjóðir skortir mest, matvæli. Marshall-samningur- inn hefur á engan hátt fengið okkur þessa markaði. I ummæl - um forsvarsmanna samnings- ins hlýtur þá að felast það, of þau eru • ekki markleysa, ao hefði ríkisstjórnin ekki gert samn. þá hefði Island verið úti- lokað frá þessum mörkuðum, þ. e. a. s. að þá hefði þessum við- skiptalöndum okkar verið bann að að verzla við okkur, þótt þeim sé það hagur eins og nú. Sé þetta rétt, þá ber að skoða samninginn sem nauðungar- samning. En þá leiðir það ó- hjákvæmilega til annarrar á- lyktunar, sem ekki eri síður at- hyglisverð fyrir okkur. Hafi Marshall-löndin verið skuld- bundin til að útiloka okkur viðskiptalega ef við hefðum staðið utan við þau samtök, þá erum \ið nú orðnir skuldbundn ir til að hætta viðskiptnm við þær þjóðir, sem utan við standa og því með samningnum búnir að afsala okkur markaðsmög'u- leiltum í Mið- og Austur-Ev- rópu, afsala okkur beztu og hagkvæmuíXu mörkuðum sem vifi höfum unnið. Það er ekki nema um tvennt að ræða. Ann,- aðhvort hafa Marsliall-menn- irnir rétt fyrir sér og þá meg- um við ekki verzla við önnur lönd en Marshalllönd og þá ex samn. okkur til stórskaða, að þessu lejrii, eða þá að við fá- um að verzla við Austur-Ev- rópu og þá eru ummæli þessara manna markleysa og þvaður. Reynslan sker úr þessu. Þá hefur það verið talið samningnum til gildis, að með honum skapist möguleikar til að hafa upp á þýfi heildsalanna í Ameríku. I honum er aðeins talað um að ríkisstjórn Islands muni, ,,að því leyti, sem þvi verður við komið“ gera ráðstaf- anir til að hafa upp á þessum eignum og eigendum þeirra, en svo.segir: ,,Með ákvæði þessu er engin skylda lögð á ríkis- stjórn Bandaríkjanna til þess að aðstoða við framlcvæmd slíkra ráðstafana." M. ö. o. á- kvæðið er tómt orðagjálfur, sett til þess eins að blekkja. Það er sama hvar gripið cr niður, alstaðar er sama sagan: Bandaríkin hafa réttinn, en Is- land skyldui-nar. Samningurinn tryggir t. d. Bandaríkjamönn- um rétt til atvinnulegs jafa- réttis við Islendinga á íslandi, en hvar er ákvæðið, sem trygg- ir íslendingum rétt til atvinnu- reksturs í Bandaríkjunum ? Vit- anlega er það ekki til. I gamla sambandslagasáttmálanum við Dani, sem réttilega var talinn mjög hættulegur fj'rir Islend- inga, var þó ákvæði, sem trj’ggði íslendingum jafnrétti við Dani í Danmörku. En slíkt er ekki í liinum nýja sáttmála. Allt er -eina lund. Stuðningsmenn samningsins kalla liann „viðreisnarsamn- ing“. Með því mætti ætla að væri átt við það, að hann feli í sér einhverja viðreisn efnahags þjóðarinnar eftir áhrif styrj- aldarinnar og þá gengið út frá því, að um ísland sé eins ástaLt og ýms önnur Marshalllönd, sem komu ej’dd út úr styrjöld- inni. En slíkt á sér vitanlega enga stoð í veruleikanum. Það er ekki hægt að kalla baráttu Islendinga á undanförnum ár ■ um til efnahagslegrar velmeg- unar viðreisn, því að það er aldrei talað um að reisa við það, sem ekki hefur fallið og ajldrei staciið upprétt. Efna- hagur íslendinga hefur aldrei verið jafn uppréttur og á cmd- anförnum árum, enda hefur það verið aðalinntak boðskap- ar núverandi ríkisstjórnar til þjóðarinnar við öll tækifæri, að sanna, að óhugsandi sé, að Is- lendingar geti lifað við svona góð lcjör í framtíðinni. Fram- kvæmdirnar í atvinnumálum Is- lendinga undanfarið hafa rétti- lega verið kallaðar nýsköpun en ekki viðreisn. Ríkisstjómin meinar sýni- lega annað, þegar hún talar um viðreisn, og sé stefna hennar og aðgerðir athugað, þá sést hvað það er. Á undanförnum árum hafa Islendingar stigið stór skref til að tryggja efnaliag sinn og þjóðlegt sjálfstæði, Með stofn- un lýðveldisins var æðsta stjórn landsins flutt inn í land- ið og stjómarfarslegt fullveldi endurheimt og það viðurkenut af þjóðum heims. Á stj’rjaldar- árunum greiddi Island hinar er- lendu skuldir og lej'sti af sér þá fjárhagslegu fjötra, sem ýmsar lántökur höfðu lagt það í. Fjárhagslegt. sjálfstæði var endurheimt. Með nýsköpunar- framkvæmdunum var stigið stærsta spor, sem íslendingar hafa stigið að því að tryggja landsmönnum efnahagslega velmegun. Þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð, var hún mj’nduö Framboð Suður- ríkjademokrafta og stjórnarskrá Bandaríkjanna SÚ ÁKVÖRÐUN bandarískra Suðurríkjademókrata, að bjóða fram í forsetakosn- ingunum gegn Truman for- seta, hinum opinbera fram- bjóðanda Demokrataflokks- ins, er ekki jafn mikið asna- spark út í bláinn og í fljótu bragði kann að virðast. Hún er ekki aðeins gerð í hefnd- arskyni við Truman fyrir að hann liefur ákveðið að beita sér fyrir löggjöf, er tryggi svertingjum atvinnuréttindi, mannréttindi og örj’ggi fj'rir morðóðum Ku Klux Klan* skríl. STJÖRNARSKRá Bandaríkj- anna mælir n'efnilega svö fyrir, að til þess að ná kosn- ingu þurfi forsetaefni að fá hreinan meirihluta af at- kvæðum kjörmannanna, sem kosnir eru með almennum kosningum. Ef enginn fær hreinan meirihluta kjör- mannaatkvæða.nna ber full- trúadeild þingsins. að kjósa forsetann. Kjörmenn liyers ríkis eru jafnmargir og þing- menn þess* öldungadeiidar- menn og fulltrúadeildarmenn sa.mtals. En ef það fellur í hlut fulltrúadeildarinnar að kjósa forsetann fer fulltrúa- deildarmannahópur hvers ríkis með eitt atkvæði. KYNÞÁTTAKÚGUNARPOST- ULARNIR, sem standa fyrir uppreisninni gegn Truman í Suðurríkjunum vonast til að Thurmond, frambjóðandi þeirra fái það mörg kjör- mannaatkvæði, að hvorkl Truman né Dewej’ fái hrein- an meirihluta. Þá kemur til kasta fulltrúadeildarinnar a?> kjósa forsetann og þar með opnast ótæmandi möguleikar fyrir Suðurríkin til hrossa- lcaupa, því að þar þarf líka hreinan meirihluta atkvæða til að forsetalcosning sé lög- leg og kosningin er ekki ’ lengur bundin við þá . fram- bjóðendur, sem gáfu kost á sér í almennu kosningunum. RlKIN, sem börðust fyrir þrælahaldi í bandarísku borgarastyrjöldinni og síðan hafa stöðugt fylgt demokröt- um eru 11 talsins og liafa 127 kjörmenn. Suðurríl|a- demokratarnir hafa enga möguleika á að vinna öll þessi ríki, en þeir vonast til að vinna nógu mörg til að hvorki Truman né' Dewey geti náð atkvæðum 266 kjör- manna, sem þarf til að ná kosningu. M. T. Ó. af þeim öflum, sem voru og eru hatrömmustu andstæðingar þeirrar þróunar, sem hér átti sér stað á þessum árum. Því var; Framhalil á 7. siðut j

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.