Þjóðviljinn - 08.08.1948, Síða 4
frj ÖÐVILJINN
Sunirudagur S. ágúst 1&4S.
þlÓÐVILIINN
Ctgefandl: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíallstafiokkurlnn
Ritstjórar: ilagnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb).
Fréttaritstjóri: Jón Bíarnason.
Bla&am.: Ari Kárason, Magnús Torfi öiafsson, Jónas Árnaaon.
Ritetjóm. afgreiðsla, auglýslngar, prentsmiðja. Skólavörðu-
stig 19. — Sími 7500 (þrjár licur)
Áskriftarverð: kr. 10.00 á mánuði. — Lausasöluverð 50 aur. elnt.
Frentsmiðja Þjóðviljans h. t,
Sósialistafiokkuriim, Þórsgötu 1 — Simi 7510 (þrjéx linur)
Landráðin verða ekki þöguð í he!
Það kemur ekki oft fyrir að afturhaldsblöðunum verði
•orðfall, þau reyna venjulega að klóra i bakkann, bvað sem
]íður málstað og heiðarledka, beita lygum, rangfærslum og
fúkyrðum, ef ekki er betri vopna völ, eins og oft vill verða.
En nú hafa þeir atburðir gerzt að jafnvel aðstandendur
afturhaldsbJaðariþ^L telja slík vopn fánýt og hafa valið sér
þögnina eina að^jkjób. Þessir atburðir eru undirskrift Mars-
hallsamningsins, umræðumar um hann og skilyrði hans.
Það er sama hvemig blöðin hafa verið særð, hvernig á
þau hefur verið skorað, þótt þau hafi beinlinis verið mönuð
til umræðu — þau hafa þagað, steinþagað, hvað sem á hef-
ur dunið. Þau hafa ekki treyst sér til að verja eitt einasta
af skilyrðum þeim sem Islendingmn em lögð á herðar, og
þau hafa þó átt til þá greind að láta sér skiljast að hin
venjulegu vopn lyga, rangfæi'slna og fúkyrða vom hald-
]aus. Þau hafa þagað eins og sneyptir rakkar. Sú stað-
reynd talar vissulega sínu skýra máli, engu síður en há-
værar úmræður.
Sennilega vonast aðstandendur Marshall-blaðanna til
þess að hin algera þögn þeirra verði til að þagga umræð-
umar niður smátt og smátt, að þjóðin verði þreytt á að
mótmæla., þegar engu er svarað. En þeim mun ekki verða
að von sinni. Marshall-samningnum mun vei'ða mótmælt
jafnlengi og einhver ákvæði hans klafabinda íslenzku þjóð-
jna. Og ahnenningur mun ekki þreytast á að íhuga ákvæði
hans, þau munu verða rif juð upp, þar til hvert mannsbam
kami þau utanað og veit hverju er verið að farga.
Dettur Marshall-blöðunum í hug að hægt sé að þegja i
hel þæi- staðreyndir
að Bandarílíin fá rétt til að koma á „ströngu eftiriits-
kerfi“ með auðlindum landsins, fá íhlutun um gengi krón-
unnar, f járiög, „öryggi í innanlandsf jármáium“ og tolla á
handaríslíum varningi,
að Bandaríkin ía rétt til að liefja hér franikvæmdir „sein
ríkisborgarar Bandaríkja Ameríku hafa gert tillögu um“,
að Bandaríkin fá rétt til að veita íslendingum „aðstoð“,
«n fá ráð yfir ísl. f jármagni í staðinn samkvæmt eigin rnati,
að Bandaríkin fá rétt til forgangsíiaupa á ollum íslenzk-
«m afurðum sem þau kæra sig um „með saruigjörnuin
söluskilmálum“ og jafnrétti til framleiðslu á slíkum af-
urðum,
að Bandaríkin fá rétt til að kref ja íslendinga „nákvæmra
skýrslna" um öll ii.naalandSmál (Fjárhagsráð er þegar
byrjað.),
að Bandaríkin fá rétt. til að senda hingað „sérstaka sendi-
nefnd“ sem hafi yfirumsjón með efnahagsmálum landsins,
að Bandaríkin fá rétt til að leggja öli deilumál vegna
samningsins fyrir alþjóðadómstól sem verður æðri en
Hæstiréttur íslands.
Slíkar staðreyndir verða aldrei þaggaðar í hel, allra sízt
þiar sem afleiðingar þeirra munu leggjast því fastar á þjóð-
ina sem lengri tími líður. Einasta ákvæði samningsins sem
viðunanlegt má teljast er uppsagnarákvæðið, sá samningur
er ekki með öllu illur sem hægt er að segja upp! Og gifta
þjóðarinnar er undir því komin að það ákvæði verði notað
áður en hið erlenda farg hefur lagzt á þjóðina af fullum
Níeturmyrkur í Keykja-
rík
Tr. skrifar: „Nú langar mig
til að biðja þig, kæri bæjarpóst-
ur, fyrir nokkur orð til þeirra,
sem ráða því, hvenær logar á
götuljósum hér i bænum. Starfi
mínu er þannig háttað, að ég
kem heim að næturlagi
(er samt ekki innbrotsþjófur!!)
og skelfing finnst mér það ó-
þægilegt, núna síðan fór að
dimma, að meirihluti bæjarius
er ljóslaus. Það er langur gang-
ur fyrir mig af vinnustað og
heim, sjón mín orðin frekar
léleg, og þessvegna í fáum orð-
um sagt af þessu mikil óþæg-
indi fyrir mig. Viltu nú ekki
spyrja þá, sem ráða hvenær
kveikt verður, hvort þeir ætU
ekki bráðum að fara að kveikja"
— Eg tek undir þessa spur;.-
ingu mannsins. Starfi mínu er
nefniiega eins háttað og starfi
hans. Það er oft nótt, þegar ég
fer heim úr vinnunni.
¥
Sómi að gistihúsinu
í VOt'
Kona nokkur, sem fyrir
skömmu dvaldist á gistihúsinu
austur i Vík í Mýrdal hefur beð
ið mig að koma á framfæri fyr
ir sig lofsyrðum um það. Hún
segir sem rétt er, að þeir gisti-
staðir séu vissulega ekki margir
hér á landi, sem eiga skilið hróa
en þeim mun meiri ástæða sé að
vekja athygli á þeim gististöð-
um, sem teljast til undantekn-
inga. Gistihúsið i Vík í Mýrdal
sé til fyrirmyndar hvað aliar,
aðbúnað og fæði snerti. Og for-
ráðamenn þess gæti allrar'sann
girni í verðlagi.
vagna", sem segir: „Mér finnst
að tíma þann, sem til stefnu er,
þangað til veður fara að gerast
válynd í haust, ætti að nota til
að hrinda i framkvæmd þeirri
margítrekuðu tillögu okkar, að
byggð verði skýli við helzíu
stoppstöðvar strætisvagnann i,
svo að maður þurfi ekki aftur
í vetur að. standa berskjaldaður
fyrir öllum veðrum, biðandi eft-
ir strætisvagninum ..."
★
Braggarústirnar enn
Loks ætla ég aðeins að drepa
á bréf, sem fjallar um hið marg
umtalaða sleifarlag, sem rík.r
hér á landi varðandi hreinsun
þeirra svæða, þar sem áður
stóðu braggar hemámsaðiljanna
Bréfritarinn telur mikið rett,
að sumstaðar haf ivel verið
gegnið fram i því að græða þes;si
sár á ásjónu landsins, en liann
kveðst nýl. kominn úr langfeið
um mörg héruð og sér hafi
blöskrað hversu viða hafi mátt
sjá braggarúst. eins og „holds-
veikisár'1 í landslaginu. „Verst
er ástandið samt hér i nágrenni
höfuðstaðarins, og er það okk-
ur hérsveitarmönnum sízt til
sóma'1.
★
•trá höíninni*
Enskur toe-ar kom hing-að i gær
morgun með veikan mann. Esja og
Skjaldbreið fóru í fyrrakvöld.
Sutherland, Lagarfoss, Hvassafell.
Foldin og Vatnajökull voru hér ái-
degis i gær.
Var fólk gabbað?
Þá er kafli úr bréfi, serr,
„Njáll“ skrifar útaf því, hve
miklar vonir mönnum voru geir.
ar um möguleika Islendingar til
afreka á Olympiuleikjunum.
„.. Sú skoðun hefur komið fram
í blöðum að þessi mikli áróður
(um möguleika íslenzku Olym-
píufaranna) hafi verið til þess
rekinn, að fá fólk til að styðja
betur þessa för með f járframlög
um, þátttöku í happdrættinu og
svo framvegis. Mér finnst mjög
hæpið að láta þetta gilda sem
afsökun. Það má alveg eins
scgja, að almenningur liafi veriö
gabbaður til að styðja utanför
fólks, sem aldrei hafði neitt með
það að gera að fara utan. —
Og svo er eitt, sem ég fæ ekki
skilið: Var það nauðsynlegt, að
allur þessi fjöldi færi á kostn-
að Olympíunefndarinnar, til vié-
bótar við sjálfa keppendurna?"
*
Skýli handa strætis
vagnafarþegum
Annar bréfkafli, að þessu
sinni frá „notanda strætis-
ISFISKSALAN
Engar nýjar fregnir hafa ho,-
izt af aflasölu togaranna. Vegna
misritunar i símskeyti frá Bret-
landi var rangt skýrt frá sölu
Bjarnareyjar og Haukanessins hér
i blaðinu. Bjarnarey seldir 2630
kits en Haulranesið 1890 kits, en
ekki öfugt eins og stóð í blaðiuu
RIKISSKIP:
Hekla er á leið frá Akureyri tii
Rvíkur. Esja er á leið til Glasgow.
Súðin er á Skagafirði á suðurleið
Herðubreið er á Austfjörðum á
norðurleið. Skjaldbreið er á Breiða
firði. Þyrill er í Reykjavík.
EIMSKIP:
Brúai-foss er í Leith. FjallCoss
hefur væntaniega farið frá Rotter
dam í gær 7. 8. til Hull. Goðafoss
fór frá New York 2. 8. til Reykja-
víkur. Lagax-foss kom til Reykja-
víkur 4. 8. frá Leith. Reykjafoss
kom tíl Rotterdam 5. 8. frá Hull.
Selfoss kom til Reykjavíkur ki.
23.00 i gærkvöld 7. 8. frá Leith.
Tröllafoss fór frá Vestmannaeyjum
4. 8. til New York. Horsa kom .il
Huli 5. 8. frá Vestmannaeyjum.
Sutherland er í Reykjavík.
Hjónaband. í gær voru gefin sarn
an í hjónaband Kfristbjörg Hall-
dórsdóttir Framnesvegi 21 og Leif-
ur Jóhannesson, hárskeri. Heimiii
þeirra veður á Laugavegi 54 b.
Ctvarpið í dag:
11.00 Messa í Dómkirkjunni (séra
Jón Auðuns). 15.15 Miðde.gistónleik
ar (plötur): a) Pianósónata i I>-
dúr op. 28 eftir Beethoven. o)
Heinrich Schlusnus syngur lög eft
ir Richard Strauss. c) Fiðlusónata
í A-dúr o. 100 nr. 2 eftir Brahms.
16.15 Útvarp til Islandinga erlend-
is: Fréttir, tónleikar, erindi (Frið-
rik Hailgrimsson f. dómprófastur).
18.30 Barnatími (Þorst. Ö. Steph-
ensen o. fl.). 19.30 Tónleikar: ,,Ame
rikumaður í París" eftir George
Gershwin (p)ötur). 20.20 Einlei.t-
ur á fiðlu (Josef Felzmann): a)
Berceuse eftir Madame Lawrenoe-
Townsend. b) Malaguena eftir Sar.i
sate. c) La Cinquantaine eftir
Gabriel-Marie. 20.35 Erindi: Fiá
frændþjóð okkar, Færeyingum
(Ólafur Ólafsson kristniboði). 21.00
Tónleikar: Symfónia nr. 7 eftir
Beethoven (symfónían verður cnd-
urtekin næstkomandi miðviku-
dag). 21.40 „Heyrt og séð“ (Gisli
J. Ástþórsson blaðamaður). 22.05
Danslög (plötur).
Útvan>ið á morgun.
19.30 Tónleikar: Lög úr óperett-
unni „Brosandi land" eftir Lehar
(plötur). 20.30 Útvarpshljómsveit-
in: Islenzk alþýðulög. 20.45 Um
daginn og veginn (Vilhjálmur S.
Vilhjálmsson ritstj.) 21.05 Einsöng-
ur (frú Svava Þorbjarnardóttir):
a) Finnsk vögguvísa (Merikanto).
b) Flökkumannaljóð (Merikanio)
c) Seinasta nóttin (Árni ThorstMns
son). d) Hjá fjalla bláum straumi
(Emil Thoroddsen). e) Sólskins-
nætur (Schrader). 21.20 Þýtt og
endursagt (Andrés Björnss.) 21.45
Tónleikar (plötur). 21.50 Spurning-
ar og svör um náttúrufræði (Ást-
valdur Eydal licensiat). 22.05 Létt
lög (plötur).
UppIýslngHskrlístofa stúdenta
verður eftirleiðis opin daglega k>.
1—2 i háskólabókasafninu.
Næturakstur i nótt: Litlo bíl—
stöðin. — Simi 1380. Aðra nótt:
B.S.R. — Sími 1720.
GuSþjónusta i Dómkixkjunni kl.
11. f. h. — Séra Jón Auðuns pié-
dikOr.
Hallgrímsprestkall: Messa i Aust
urbæjarbarnaskóia ki. 11 f. h. —
Séra Sigurjón Árnason.
Triilofun. Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína ungfrú Sofie Andreas
sen, Þórsgötu 21 og Rolf Marltan,
Auðarsti’æti 13 .
Næturvörður er í Ingól'fsapótelsl.
— SLmi 1330.
Söfnln: Landsbókasafnið er opKl
kl. 10—12, 1—7 og 8—10 alla virka
daga r,ema laugardaga, þá Icl. 10—
12 og 1—7. Þjóðskjalasafnið ki. 2
—7 alla virka daga. Þjóðminjasafn-
lð kl. 1—3 þriðjudaga, fimmtudaga
og sunnudaga. Listasafn Einars
Jónssonar kl. 1,30—3,30 á sunnu-
dögum. Bæjarbókasafnið kl. 10—10
alla vlrka daga, nema yfir sumar-
mánuðina, þá er safnið opið kl.
1—4 á laugardögum og lokað á
sunnudögum.
HeHsuverndarstöð ReykjavíJxur
tilkynnnir, að ungbarnavernd Linic
ar Templarasundi 3, liafi nú verið
opnuð aftur. Verður stöðin opin
fyrir ungbörn þriðjudaga og föstu-
daga, kl. 3.15—4 e. h. — fyrir barns
hafandi konur verður stöðin opin
á mánudögum og miðvikudögum
kl. 1—2. Mæður eru hvattar til a'5
leita til stöðvarinnar þar sem ekki
verður unnt að anna nema litiu
af húsvitjunum sökum veikinda-
forfalla hjúkrunarkvenna stöðvar-
innar.
Maiakkaskagi
Framh. af 8. síðii.
menn þessa bæði úr lofti og af
landi, nefna þá nú „óvini".
Meðal þeirra samtaka, seu
Bretar bönnuðu þegar óeirðirn-
ar liófust, eru samband verka-
lýðsfélaganna á Malakkaskaga,
samtök þeirra mamia, sem áð-
ur börðust gegn Japönum, hið
nýja samband lýðræðissinnaðr-
ar æsku og kommúnistaflokk-
urinn.
/