Þjóðviljinn - 08.08.1948, Qupperneq 8
Ástralskir sjómenn neita að flytja
vopn til Breta á Malakkaskaga
Haínarverkameimirnir neita sömuleiðis að ferma
skip með vörum. sem eiga að hjálpa kúgurunum í
Indónesíu, Grikklandi og á Spáni
Melborne (ALN)
Sjámannasamband Ástralíu hefur lagt bann á öll sldp, sem
ílytja vopn úr landinu, og er j>etta í þeim tilgangi gert að
ónýta ráðagerðir áströlsku stjórnarinnar um að hjálpa Bretum
til að kúga verkamenn Malakkaskagans.
Herbert V. Evatt, utanríkis-
ráðherra Ástralíu ljóstaði upp,
hversu áhrifamikið þetta bann
er, þegar hann sagði, skömmu
áður en hann fór til Englands
22. júlí, að vopn mundu „hvað
sem það kostaði" verða flutt
til Malakkaskagans til að ráða
niðurlögum „kommúnista".
Hin einarðlega afstaða ást-
ralsks verkalýðs, sem viil
hvorki framleiða né hjálpa til
að flytja vörur, sem eiga að not
ast til að kúga alþýðu annarra
landa, hefur vakið reiði hægri-
aflanna. Ástralskir hafnar-
verkamenn neituðu að ferma
nokkur skip, sem flyttu vörur
til Hollendinga á Jövu. Þeir
hafa látið sömu afstöðu gilda
gagnvart grískum skipum, síð
an fyrir skömmu, að verkalýðs
leiðtogar voru teknir af lífi í
Aþenu. Þetta bann þeirra hefur
gilt um spænsk skip, síðan
Franco hrifsaði völdin á Spáni.
Arthur Fadden, foringi hins
hægrisinnaða Sveitaflokks,
krafðist þess, þegar sjómenn
lögðu bann sitt við vopnaflutn
ingum til Malakkaskaga, að hið
opinbera hæfi málsókn á hend
ur „kommúnistum". Hann skýr
skotaði til fangelsana á komm-
únistum í Bandaríkjunum og
sagði að „samskonar aðgerðir
væru nauðsynlegar í Ástralíu”.
Bretar innleiða
allsherjarskrá-
setningu á
Malakkaskaga
Singapore (ALN)
Brezhu stjórnarvökJin á Mal-
akkaskaga hafa mælt svo fyrir
að allir íbúar iandsins skuli bera
vegabréf með Ijósmynd af sér
og fingraförum sínuin.
Þetta er nýjasti liðurinn í
hernaðaráætlun Breta gegn
verkamönnum í gúmmí- og tin-
framleiðslunni á Malakkaskaga,
en vérkamenn þessir hafa nú
hafið einarðlega baráttu gegn
þeim óbærilegu kjörum, sem
þeir eiga nú við^ að búa.. Þeir
eru studdir af öðrum alþýðu-
samtökum, sem krefjast sjáií-
stæðis. — Breskar hernaðartil-
kynningar, sem flytja fréttir
um daglegar árásir á verka-
Framhald á 7 .síðu.
Neita að sðgla
skipum frá Pan-
ama og Honduras
A ráðstefnu þeirri, sem Al-
þjóða sjómannasambandið hcit
í Ósló fyrir skemmstu, var gerö
samjíyldkt um að neita að sigla
á skipum frá Panama og Hon-
duras.
Fulltrúar á ráðstefnunni bentv
á, að útgerðarfélög í ýmsum
löndum láta skrásetja skip sín
í Panama eða Honduras, vegna
þess að í lögum þessara landa
eru engin ákvæði sem tryggja
sjómönnum öryggi og viðunandi
vinnukjör. Alþjóðasamband'ð
lýsti því yfir i greinargerð með
þessari ákvörðun að það mundi
„ekki lengur þola, að öryggi
sjómanna við vinnu yrði nokk-
ursstaðar ógnað“.
Kínverski alþýðuherinn í sókn á
öllum vígstöðvum
Kínverski alþýðuherinn héfur tilkynnt að hann haíi
náð 22 borgum á sitt vald í júnímámiði. Óstjórn og reiðn-
leysi Kuomintangstjórnarinnar í fjármálum fer vaxantli
með degi hverjum og er eklti annað sýnna, en algert gjald-
þrot vofi yfir ríkisltassa hennar.
Nýr vegur frá
Sandgerði til
Keflavíkur
í s. 1. viku var byrjað að
leggja nýjan veg frá Sandgeröi
beinustu leið til Keflavíkur.
Verður vegur þessi miklum
mun styttri en sá sem nú er,
eða aðeins 7—8 km. Er að
þessu mikið hagræði fyrir alla
flutninga að og frá Sandgerði
og þó alveg sérstaklega fyrir
útgerðina og annan atvinnu-
rekstur. Vegagerðin er fram-
kvæmd með stórri jarðýtu og
miðar vel áfram.
Jafnhliða er svo verið að
foera ofan í veginn um Stafnes,
og er hann um það bil full-
gerður.
í lok júnímánaðar tók kin-
verski alþýðuherinn Kaifeng,
höfuðborg Hoanfylkis, og tóa
samtímis 30 þús. Kuomintang-
hermenn til fanga. Síðan hafa
« *m
geisað látlausar orustur fyrir
sunnan borgina. I orustunum
næstu viku eftir að alþýðu-
herinn náði borginni á sitt vaid
missti Kuomintangherinn 50 þús
manns.
í Sjansifylki heldur alþýðu-
herinn áfram sókn sinni og heí-
ur Kuomintangherinn nú aðeins
níu einangraða bæi í fylkinu í
sínu valdi.
í Austur-Kína hafa Kuomin-
tanghersveitirnar orðið að
hörfa undan, og sækir alþýðu-
herinn að Nanking, höfuðborg
Sjang Kajseks. Á þessu svæði
ræður alþýðuherinn yfir 50 þús
ferkílómetrum og nýtur mikill
hluti íbúanna nú þegar góðs a.f
þeim þjóðfélagslegu umbótum,
sem alþýðustjómin hefur komið
á.
1 júnímánuði náði alþýðuher-
inn 22 borgum á sitt vald, en
Kuomintangherirnir misstu 155.
9.50 manns, þ. á. m. 94.000
fanga.
Loftflutningar til Múkdcii
Kuomintangstjórnin sendir
nú sveitum sínum í Múkderi,
höfuðborg Mongólíu, sem er al-
gerlega umsetin af alþýðuhern-
um, vopn og vistir með flugvél-
um. I borginni eru um 2 mili.j.
manns, og er þeim hungurdauði
vís, ef Kuomintanghersveitirnar
taka ekki þann kostinn bráðlega
að gefast upp.
Verðbólgan í Kuomintang-
Kína óstjórnleg
Úrræða og athafnaleysi Kuomi
tangstjómarinnar í atvinnumál-
um er nú að ná hámarki, og er
ekki annað sýnna en algeit
Sundlaug Neskaupstaðar
gjaldþrot sé fyrir dyrum. Helzta
ráð hennar til þess að bjarga
ríkiskassanum frá gjaldþrori
virðist að auka seðlaútgáfuna.
Til þess ráðs greip liún 19. júli
nýja bankaseðla, en þá var
s. 1., er hún gaf út 5.000.000
svartamarkaðsgengið á pund-
inu 32 millj. jen (1.000.000 jcn
í ísl. kr.)
Áfengisvarnar-
nefnd vill banna
íslenzkum skipum
að veita áfengi
innan landhelgi
Á fundi Áfengisvarnarnefnd-
ar Reykjavíkur 28. júlí 1918
var gerð eftirfarandi ályktim:
„Vegna úrskurðar dómsmála-
ráðuneytisins um, að vínveiting-’
ar skuli heimilaðar um borð í
„Esju“ í íslenzkri landhelgi
vegna þess, að „Esja“ sé nú
skemmtiferðaskip, þá leyíir
Áfengisvarnaraefdin sér að
benda á eftirfarandi:
Þegar áfengislögin voru sefct
árið 1935, áttu Islendingar eng-
in herskip eða skemmtiferðaskip
og hefur löggjöfin því tvímæxa-
laust átt við erlend skip cin-
vörðungu með undanþágu í 3.
grein.
Áfengisvarnarnefndin teluv
varhugavert, áð farið sc inn á
þá braut að úrsluirða í hvort
sihn, hvaða skip íslenzk skuh
teljast skemmtiférðaskip og á-
lítur, að áfram skuli íslenzkurn
skipum bannað að veita áfengí
í landhelgi.
Er það því ósk nefndarinnar,
að hið háttvirta dómsmálaráðu-
neyti taki mál þetta til nýrrar
athugunar“.
Þessi mynd er af hinni glæsilegu útisundlaug Neskaupstaðar.
Til hægri handar á myndinni sést áhorfendasvæðið, grasivaxnir
stallar, sem rúmað getur alla bæjarbúa, eða ca. 1250 manirs.
Fimm brezkir báskólaprófessorar
heimsækja Island
Koma hingað í boði Anglíu og ferðasf
inn Suður- og Norðurland
w* t* * * *» ** -«•-a-.-v-
Fimm brezldr háskólaprófessorar d\elja hér á landi þessa
dagana i boði ensk-íslenzka félagsins Anglía. Munu Jxeir ferðast
um Suður- og Norðurland og aimast Sigurður Nordal, prófessor,
leiðsögn þeirra hér á landi. Prófessorarnir dvelja hér til 15.
ágúst n. k.
Gestimir eru þessir: Mrs.
Ida L. Gordon, er samið hefur
doktorsritgerð um Vestfirðinga
sögur. Hún var gift kunnum
fræðimanni, prófessor E. V.
Gordon, en eftir lát manns síns
1938, hefur liún kennt ensku
og íslenzku við Manchester há
skóla. Tveir nemendur hennar
þar em nú að búa sig undir
meistararitgerðir um íslenzk
fræði. Mrs. Gordan kom hingað
til lands 1929. Var hún þá að
búa sig undir doktorsritgerð
sína um Vestfirðingasögur og
ferðaðist aðaJlega um Vest-
firði.
G. Turnville Petre er aðalkenn
ari Oxfordháskóla í íslenzkum
fræðum. Hann hefur m. a. gef •
ið út Víga-Glúms sögu, þýtt
sögu Guðmundar góða og rit-
að margar greinar um íslenzk
efni. Haun var formaður Vik-
ing Society á stríðsárunum, en
áður var hann sendikennari við
Háskóla Islands og vararæðis-
maður Breta í Reykjavík.
Gwyn Jones, prófessor við
háskólann í Wales, hefur þýtt
á ensku fimm íslendingasögur.
Hann er einnig höfundur
þriggja skáldsagna og smásögu
safns.
Próf Harold Orton, er var
lektor við Uppsala-háskólann
1924—28 og síðar í New-Castle-
on-Tyne til 1939, er ha-nn varð
forseti enskudeildar Sheffield-
háskóla. Hann kennir nú ensku
og íslenzku við háskólann t
Leeds.
Dr. A. H. Smith er kennir
engilsaxnesku og íslenzku í
Lundúna-háskóla. Hann hefur
Framhald á 7. síðu.
Enn um vínveit-
ingar hins opin-
bera
Á fundi sínum 28. júlí 1918
gerði Áfengisvarnarnefnd
Reykjavíkur eftirfarandi álykt-
un:
Áfengisvarnamefnd Reykja-
víkur leyfi sér hér með að skox a
á hæstvirta ríkisstjórn íslands
og bæjarstjóm Reykjavíkur að
veita ekki framvegis áfengi á
vegum þessara aðila.
Telur Áfengisvarnárnefndm
að taka þurfi upp markvissa
baráttu gegn hinni gegndav-
lausu áfengisneyzlu meðal þjob ■
arinnar og treystir því, að rik-
isstjórn íslands og bæjarstjórn
Reykjavíkur geri sitt í þessu
máli með því að ganga á und-
an með góðu fordæmi.