Þjóðviljinn - 24.10.1948, Blaðsíða 4
12
Sunnudagur 24. október 1948.
þJÓÐVILJ!
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb).
Préttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: £r' Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason.
Ritstjórn, afgroiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðu-
stig 19 — Sími 7500 (þrjár línur)
Áskriftarverð: kr. 10.00 á mánuði. — Lausasöluverð 50 aur. eint.
Prentsmiöja Þjóðviljans h. f.
Sósíalistaflokkurinn, Þórsgötu 1 — Sími 7510 (þrjár linur)
Sigur er vís
Við stofnun Sósíalistaflokksins, fyrir réttum áratug, voru
tengdar sterkar vonir. Alþýðan á íslandi hafði áður byggt upp
flokk sér til sóknar og varnar, með öllum þeim erfiðismunum
og fórnum sem það byggingarstarf kostar. En andstæðingum al-
þýðunnar tókst að slæva það vopn, saltið dofnaði í forystu hans,
og um 1930 var flestum beztu forvígismönnum alþýðusamtak-
anna Ijóst að Alþýðuflokkurinn og Alþýðusambandið samtvinn-
að í skipulagslega einingu var form sem alþýðuhreyfingin í land-
inu var vaxin upp úr, og óhugsandi var fyrir verkalýðsflokk að
gegna hlutverki sínu til sóknar og varnar í frelsisbaráttu alþýð-
unnar með því að gerast undirlægja íhaldssamra stjórnmála-
flokka er miðuðu stoefnu sina við andstæðu þess sem alþýðan
keppti að.
★
Þá var stofnaður Kommúnistaflokkur íslands, og því fór
fjarri að stofnun hans og starf yrði til að veikja verkalýðssam-
tök landsins, þau yngdust og efldust, það varð tryggt að til yrði
á íslandi marxistískur verkalýðsflokkur, hárbeitt vopn alþýðunn-
ar í baráttu um bætta hagsmuni, vopn í sókn verkalýðsins að
markmiði sínu, alþýðuvöldum á Islandi. Allt frá byrjun miðaði
viðleitni Kommúnistaflokksins að sameiningu allra heilbrigðra
afla alþýðunnar til samstilltrar baráttu. Áður en mörg ár liðu
kom up|p vinstri hreyfing í Alþýðuflokknum er vildi samvinnu
við kommúnista, og eftir kosningar 1937 varð hún að óstöðvandi
öldu. Á þingi Alþýðuflokltsins (og Alþýðusambandsins) 1937
voru þeir menn er vildu sameiningu við Kommúnistaflokkinn í
sterkum meirihluta, og hefðu flokkamir sameinazt það haust, ef
minnihluti flokksþingsins, flestir þingmanna Alþýðuflokksins og
allir bæjarfulltrúar hans, hefðu ekki hótað að kljúfa hann ef af
sameiningu yrði. Einingarmenn létu undan í bili, en það bil
notaði afturhaldsminnihlutinn til að kljúfa Alþýðuflokkinn,
hrekja einingarmenn úr honum og sölsa undir sig eignir verka-
lýðsfélaganna. Einingararmur Alþýðuflokksins hélt áfram sam-
vinnu við Kommúnistaflokkinn og stofnaði ásamt honum Sam-
einingarflokk alþýðu — Sósíaiistaflokkinn haustið 1938.
★
Sögu Sósíalistaflokksins hefur ekki unnizt tóm að
skrifa á þessu afmæli, en enginn íslenzkur stjórnmálaflokkur
mun eiga jafnmerka sögu eftir tíu ára starf. Nokkrir ágætustu
forystumenn flokksins benda á aðallínur starfs hans í greinum
hér í blaðinu í dag. Og varla mun til sá alþýðumaður að hann
telji ekki að þær miklu vonir sem vöknuðu við stofnun hans hafi
rætzt, og muni rætast. Það hefur verið stormasamt kringum
Sósíalistaflokkinn alla hans ævi, enginn íslenzkur stjórnmála-
flokkur hefur verið rægður eins og ofsóttur, innlenda afturhald-
ið hefur jafnvel ekki skirrst við að siga erlendu hervaldi gegn
íslenzkum sósíalistum. En upp úr ofsóknunum hefur flokkurinn
risið margfalt sterkari en áður. Á tíu ára afmæli Sósíalista-
flokksins hefur innlent afturhald enn gert bandalág við erlent
auðvald gegn alþýðu landsins og hyggur á nýjar ofsóknir. En
heldur ekki þær munu duga. Ekki þarf nema reynslu þessara
tíu ára til að sanna að í Sósíalistaflokknum hefur íslenzk alþýða
skapað sér vopn sem dugar henni til sigurs, og sigur á alþýðan
visan hve hörð sem baráttan verður.
Alþýðan getur tapað orusfcum. En hún vinnur stríðið.
í kvöld til Róm eins og grert haföi
veriö ráð fyrir. Geysir er til við-
gerðar í Kaupmannahöfn og kem-
ur ekki hingað fyrr en i | síðari
hluta þessarar viku.
Næturakstur í nótt Hreyfili. —
Sími 6633.
Hvöt til ungra Reyk-
víkinga
Hér er harðort bréf frá ung-
■
um sósíalista varðandi æskulýðs
höllina. Hvöt til allra ungra
Reykvíkinga:
„Borgaralegir siðaprédikarar
unum úr vegi, til þess að geta
gengið beint til verks.
Það kostaði óralanga baráttu
að bjarga börnunum af göt-
unni með þvi að byggja leik-
velli fyrir þau. Þeirri bar-
áttu er ekki lokið enn. Og bygg
ing leikvalla er þó eina hald-
Næturvörður er I IngólfsapóteKl.
11.00 Messa í Dóra-
junni (séra
Auðuns). 15.15
/llítyarp til Islend-
inga., erlendis:
Fréttir, erindi (prófessor Alexand-
er Jóhannesson háskólarektor).
15.45 Miðdegistónleikar 16.00 Lúðra
sveit Reykjavíkur leikur (Stjórn-
reyna sífellt með sínum „krón-
iska“ vaðli að kenna æskulýðn-
um um það spillingarfen, sem
hið opinbera og fjárplógs-
menn til samans hafa skapað,
til þess að geta haft æskulýð-
inn að féþúfu.
Nú skulum við minna siða-
prédikarana á nokkuð, sem þeir
gera sig hlægilega með því að
sniðganga.
Hin opinbera vínsala, ásamt
söluútibúum hennar, svo sem
Hótel Borg og Holstein, eru
aðaltæki afturhaldsins ti; að
gera æskuna að sljóum drykkju
skríl, sem gott er að stjórna
og stela af. Það eru uppeldis-
stofnanir afturhaldsins handa
æskunni. Þetta eru stofnanirn-
ar sem púkka undir andlegt
fóður kvikmjmdahúsanna.
*
Æðisgengið fyllirí
„Það afturhald spillingarinn-
góða slysavörnin fyrir yngstu
þjóðfólagsþegnana. — Alveg á
sama hátt er æskulýðshöllin
eina haldgóða vörn hinnar.
stálpaðri æsku, gegn hættunum,
sem stafa af gróðafyrirtækjum
peningamannanna.
★
Kröftuga sókn
„Æska Reykjavíkur hefur þá
reynslu af hinu borgaralega aft
urhaldi, að því er ekki trsyst-
andi til að leysa brýr.ustu
vandamál æskulýðsins. Það er
æskan sjálf, sem verður að
leysa sín vandamál, — bjarga
sér. Hún verður að nota sam-
tök sín, pólitisk og ópólitisk, til
að þjarma svo að ráðamönnun-
um að þeir eigi ekki undan-
komu auðið.
Ráðamenn verða að láta sér
skiljast að hæli fyrir róna er
skottulækning, en höll fyrir
æsku höfuðstaðarins er varan-
leg lækning.
andi: Albert Klahn). 18.30 Barna-
timi (Þorsteinn Ö. Stephensen o.
fl. ). 19.30 Tónleikar: „Plógurinn
braut landið" eftir Virgil Thomp-
son (plötur). 20.20 Samleikur á
tvö klarinett og básúnu (Egill
Jónsson, Gunnar Egilsson og
Björn R. Einarsson): Diverti-
mento nr. 2 í B-dúr eftir Mozart.
20.35 Dagur Sameinuðu þjóðanna:
Ávörp og ræður: a) Sveinn Björns
son, forseti Islands (útvarpað frá
Bessastöðum). b) Bjarni Benedikts
son utanrikisráðherra c) Sigurgeir
Sigurðsson, biskup Islands. d)
Tryggvi Lie, aðalritari Sameinuðu
þjóðanna (endurvarpað frá Stokk-
hólmi, ef skilyrði leyfa). 21.30 Tón-
leikar: Piðlukonsert i e-moll op 64
eftir Mendelssohn (plötur; — kons
ertinn verður endurtekinn næstk.
þriðjudag). 22.05 Danslög (plötur).
23.30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
18.30 Islenzkukennsla. — 19.00
þýzkukennsla. 20.30 Útvarpshljóm-
sveitin: Rússnesk þjóðlög. 20.45
Um daginn og veginn (Einar
Magnússon menntaskólakennari).
21.05 Einsöngur: Ivar Andreasen
(plötur). 21.20 Erindi: Iþróttir og
menning (dr. Matthías Jónasson).
21.45 Tónleikar (plötur). 21.50 Lög
og réttur. Spurningar og svör (Ól-
afur Jóhannesson prófessor). 22.30
ar, sem stendur á bak við slík-
ar stofnanir, skapar æskumsnn,
sem hafa það að aðaleinkenni,
að tala með taumlausri hrifn-
ingu um siðasta og „æðis-
gengnasta" fylliriið, sem þeir
hafi tekið þátt í, æskumenn,
sem lifa fyrir það eitt að
skapa sér nýjar endurminning-
ar um ,,æðisgengið“ fyllirí, sem
jafnist ekki á við æðisgcngna
fylliríið, sem var á þeim síð-
ast.
*
Seinagangurinn
skýrist
Vist er að fyrrnefndar stofn-
anir hafa ekki margt við slík
,,plön“ æskunnar að atbuga.
Én geta má nærri, hvernig það
passar í kramið hjá nefndum
stofnunum, þegar æskan áform-
ar að koma sér upp tómstunda-
húsi, sem bjarga mun henni
úr klóm vínokurs og spilling-
ar.
Ef athugað er vel sambandið
milli bæjarstjórnarmeirihlut-
ans og þeirra fjárplógsmanna,
sem draga æskulýðinn inn í
dilka drykkjuskaparins til að
rýja hann inn að skyrtunni,
ætti að skýrast seinagangurinn
á æskulýðshallarmálinu.
Byrjum veturinn með kröft-
ugri sókn í æskulýðshallai mál-
inu og höldum á okkur hita í
vetur með stöðugri baráttu fyr-
ir æskulýðshöll. Ó.“
★
Helgafell kom frá útlöndum í
gærmorgun. Hvalfell; Júpíter og
Belgaum eru væntanlegir frá út-
löndum og Pylkir af veiðum.
RIKISSKIP:
Hekla fer frá Reykjavík á morg-
un austur um land í hringferð.
Esja er á Vestfjörðum á norður-
leið. Herðubreið er á Austfjörðum
á norðurleið. Skjaldbreið er vænt-
anleg til Reykjavíkur í dag frá
Húnaflóa- Skagafjarðar- og Eyja-
fjarðarhöfnum. Þyrill er norðan-
lands.
E I M S K I P :
Brúarfoss er -í Hull, fer þaðan
væntanlega 25.10. til Reykjavíkur.
Fjallfoss fór írá N. Y. 20.10. til
Reykjavikur. Goðafoss er í Kaup-
mannahöfn. Lagarfoss er í Gautá-
borg. Reykjafoss er í Reylcjavík,
fer 26.10. vestur og norður. Selfoss
er á Siglufirði. Tröllafoss er í R-
vik, fer 27.10. til Akureyrar og
Siglufjarðar. Horsa kom til
Reykjavíkur 19.10. frá Leith.
Vatnajökull kom til Reykjavíkur
21.10. frá Hull.
Hindranir
pa
j Gulifaxi fór til
Prestvíkur og
Kaupmannahafnar
kl. 9 í gærmorgun
„Æskan þarf að þekkja þær
hindranir, sem verið hafa þess
valdandi, að æskulýðshöllin er
ekki orðin að vemleika. Æskan fmeðT35 farþega °íýér væntanlegur
fra Kaupmannahofn um Paris og
þarf síðan að ryðja þeim hindr- prestvík kl. um 9 í kvöld. Fer ekki
4 . i !.....tfg&'»
Dagskrárlok.
I géer voru gef-
in saman í
hjónaband, ung
frú Jóna S. Jen
sen og Axel H.
Eyjólfss., bæði
frá Seyðisfirði. — 1 gær voru gefin
saman í hjónaband, ungfrú Vil-
borg Kristbjörnsd. frá Sandlækj-
arkoti, Gnúpverjahreppi og Gisli
Sigurtryggvason bifreiðarstjóri,
Reykjavík. Séra Jón Thorarensen
gaf brúðhjónin saman. Heimili
ungu lijónanna verður að Flóka-
götu 7. — I gær voru gefin saman
í hjónaband, Ingveldur Jónatans-
dóttir Görðurn, Kolbeinsstaða-
hreppi og Alexander Kárason, tré-
smiður, Skólavörðustíg 15. Heimili
ungu hjónanna verður að Baugs-
veg 7. — Nýlega voru gefin saman
í hjónaband, Una Kristjánsdóttir
og Bolli Thoroddsen, bæjarverk-
fræðingur, Miklubraut 62.
Laugarnespresfa-
kall. Messa kl. 2 e.
h. í dag. Barnaguð
þjónusta kl. 10 f.
h. — Séra Garðar
Svavarsson. Frí-
kirkjan. Messa í dag kl. 2 e. h, —-
Séra Árni Sigurösson. Dómkirkjan
kl. 11 f. h. í dag. Séra Jón Auð-
uns. Aldarminning, Dómlcirkjunn-
ar, — kl. 5 e. h. í dag. Séra Bjarni
Jónsson. Aldarminning Dómkirkj-
unnar. Nesprestakall. Messa í Mýr
arhúsaskóla kl. 2.30 e. h. í dag.> —
Séra Friðrik Hailgrimsson predik-
ar. Kállatjörn. Messað ltl. 2 e. h. í
dag. — Séra Garðar Þorsteinsson.
Hallgrímsspkn. Messa i Austurbæj
arskóla kl. 11 f. h. í dag. — Séra
Sigurjón Þ. Árnason.
Söfnln: Landsbókasafnlð er opl3
kl. 10—12, 1—7 og 8—10 alla virka
daga nema laugardaga, þá kl. 10—
12 og 1—7. Þjóðskjalasafnið kl. 3
—7 alla virka daga. Þjóðminjasafn-
íð kl. 1—3 þriðjudaga, fimmtudaga
og sunnudaga. Listasafn Einars
Jónssonar kl. 1,30—3,30 á sunnu-
dögum. Bæjarbókasafnið kl. 10—10
alla virka daga. ... ,
Veðurútlitið í dag: Austan og
norðaustan gola. Bjartviðri.