Þjóðviljinn - 19.03.1950, Page 4
Þ J ðÐVILJINN
4
‘f Jm
Sunaudagur lð. mar2 1950.
(IIÖÐVILIINH
Ctgefandl: Samelnlngarflokkur alþýtiu — Sósíalistaflokkurlnn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjórl: Jón Bjamason.
Blaðam.: Art K&rason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Amason
Auglýslngastjórl: Jónsteinn Haraldsson
Rltstjóm, afgrelðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu-
■tig 19 — Siml 7600 (þrj&r linur)
Xskrlftarverð: kr. 12.00 & m&n. — Lausasöluverð 60 aur. elnb
Prentsmiðja ÞJóðvlljans h.f.
Sóstailstaflokkurlnn, Þórsgötu 1 — Siml 7610 (þrj&r linur)
„Rét! gengi'
Þegar íslendingar undirrituöu marsjallsamninginn
við Bandaríkin tóku þeir m. a. á sig þá skuldbindingu
að „koma á og viðhalda réttu gengi“, og réttmæti gengis-
ins var þá að sjálfsögöu matsmál bandarískra ráöamanna
Þegar þetta er ritað er veriö aö ljúka viö aö koma á hinu
,,rétta“ gengi. Það verk hefur verið unniö 1 tveim áföng-
um: Fyrst var krónan lækkuð um 30% í haust og nú er
veriö áö lækka hana um 42,6%. Hsildarbreytingin gagn-
vart dollar er því 60% lækkun krónunnar eöa 150% hækk
un dollarsins, en það merkir á venjulega mæltu máli aö
þær bandarískar vörutegundir sem ísienzkur launþegi
vann áður fyrir á átta sundum kosta hann nú 20 stunda
vinnu. Það er sem sagt hið „rétta gengi“ á íslenzku
vinnuaflL
74,3%.
Ýmsir rugiast í því að talað
er um 42,6% lækkun á íslenzkri
krónu og 74,3% hækkun á er-
lendum gjaldeyri. Sú breyting
á genginu sem fram kemur í
daglegu lífi er hækkunin á er-
lenda gjaldmiðlinum, gengis-
lækkunin merkir að innkaups-
verð á öllum erlendum vamingi
hækkar um næstum því þrjá
fjórðu. Hlutfallstalan 74,3%
er því sú tala sem raunveru-
lega sýnir áhrif gengislækkun-
arinnar, talan 42,6% merkir
hinsvegar að gullgildi íslenzku
krónunnar hafi enn rýmað sem
því nemur, en gullgildið er nú
aðeins 17 V2 eyrir!
□
14 stunda vinna í stað 8.
Hvernig 42,6% lækkun á
gengi íslenzku krónunnar getur
samsvarað 74,3% 'hækkun á er-
lendum gjaldmiðli má ef til
vill skýra með örlitlu dæmi.
Hugsum okkur að maður með
10 kr. kaup á klukkustund
verði fyrir kauplækkun niður í
lyfinu, þá er svarið tíðast hið
sama, að ,,nú fari það bráðum
að koma. ...“ En svona sleifar-
lag má að mínu áliti ekki láta
endalaust ganga ómótmælt.
Víða er mikið og óeigingjarnt
starf unnið til að klæða þetta
fallega land okkar skógi á ný,
og það verður ekki þolað, að
opinber aðili, eins og Grænmet-
isverzlunin, torveldi þetta starf
með eintómum slóðahætti og
trassaskap. —
Garðyrkjumaður."
□
Þökk fyrir
skemmtunina.
Lítil telpa bað mig um dag-
inn fyrir þau tilmæli, að Trí-
pólíbíó hefði bamasýningu á
bíómyndinni góðu, Óð Síberíu.
Forráðamenn kvikmyndahúss-
ins munu hafa orðið við þessum
tilmælum, og nú hef ég fengið
orðsendingu frá telpunni, þar
sem hún biður mig að færa
þeim beztu þakkir fyrir skemmt
unina. — Einnig hef ég feng-
ið orðsendingu um skylt efni
frá annarri lítilli telpu. Hún
er mjcg þakklát leikurum og
Og þessu gengi á samkvæmt marsjallsamningnum
að „viðhalda“. Það átti aö gera meö annarri grein lag-
anna sem kvaö svo á um aö gengiö skyldi lækka ef kaup
hækkaði!
Ákvæði marsjallsamningsins er þannig haldið út í
yztu æsar, enda var framkvæmdinni ntjórnaö af banda-
rískum starfsmanni, Benjamíni Eiríkssyni. Hann er í
þjónustu bandaríska alþjóöagjaldeyrissjóðsins, og hann
kom hingaö meö fyrirmælin um hvert hiö „rétta“ gengi
væri og hvernig bæri aö „viðhaida“ því.
ÞaÖ er fróðlegt aö viröa fyrir sér hina margrómuðu
,,marsjallhjálp“ í ljósi gengislækkunarinnar. Fyrir nokkru
skýröu Bandaríkin frá því aö á þessu ári myndu íslending
ar fá 5,2 milljónir dollara í ,,marsjallhjálp“, eöa sem
svarar rúmlega tvöföldu hæringsláni. Þaö er 1,8 milljón-
um dollara minni „hjálp“ en á síðasta ári — Örlætiö er
í öfugu hlutfalli við þýlyndi leppþjóöanna. Samkvæmt
hinu nýja, tvílækkaða gengi samsvarar sú upphæö 85
milljónum króna, og er þaö óneitanlega allálitleg fúlga.
En viö skulum halda áfram aö reikna. Á síöasta ári
nam innflutningur íslendinga frá Bandaríkjunum 71,5
milljónum króna, og munu gjaldeyrisyíirvöidin telja þaö
algert lágmark. Sama vörumagn myndi nú kosta, eftir
hina tvöföldu gengislækkun, 179 milljónir. Hækkunin er
þannig 107 milljónir á einu ári, eða 22 milljónum meiri
en öll „marsjallhjálpin"! Hin höföinglega „gjöf“ er þann
ig öll veitt á kostnaö móttakandans og rösklega það. Og
í þokkabót fá Bandaríkin auk þessa endurgreidda ,,hjálp“
sína að fullu, ýmist beint eins og hæringslánið sem nú
hækkar úr 15 í 37,5 milljónir, eöa óbeint með yfirráðum
yfir jafngildi ,,hjálparinnar“ í íslenzku fjármagni.
Og enn skulum viö reikna áfram. Á síöasta ári fluttu
íslendingar inn vörm- fyrir 300 milljónir króna. „Hag-
(fræöingarnir“ töldu aö sama magn myndi kosta 523
milljónir eftir gengislækkunina, en hækkunin veröur
•meiri. Um 100 milljónir hafa verið innflutningur frá
dollaralöndunum, og sú upphæð hækkar nú í 250 milljón-
ir. Afgangurinn hækkar í 349 milljónir þannig að nærri
mun láta að innflutningsmagnið tvöfaldist 1 verði mið-
að við íslenzkar krónur,veröi 600 milljónir!
Annars vegar 85 milljóna króna „hjálp“ hins vegar
300 milljóna króna rán reiknað í striti launþega. Þannig
standa nú reikningar okkar við hina miklu marsjall-
herra effcir að búið er að koma á „réttu gengi“.
5 ltr. á klukkustund. Kaupið
hefur þá lækkað um 50%. Það
merkir hins vegar að hann verð
ur að vinna tvöfalt lengur fyrir
sama kaupi og áður og jafngild
ir því allt vöruverð tvöfaldist.
50% kauplækkun samsvarar
þannig 100% lengingu á vinnu
tíma eða 100% hækkun á vöru-
verði. — Á sama hátt merkir
sú gengislækkun sem nú er ver-
ið að framkvæma að það erlent
vörumagn sem áður fékkst fyr-
ir 8 stunda vinnu á nú að kosta
14 stunda vinnu.
□
Ýtt við Grænmc*lis%'erzl-
uninni.
Garðyrkjumaður skrifar: —
„Mig langar að biðja Bæjarpóst
inn að ýta ofurlítið við Gr-æn-
metisverzluninni í sambandi við
eitt sérstakt atriði. — Þannig
er mál með vexti, að ef vel á
að vera hlúð að trjáræktinni,
þá þarf á ári hverju að úða
trén með sérstöku efni, sem
ver þau sýkingu og ágangi skor
dýra. Heppilegasta tímabilið til
að úða trén eru mánuðirnir
marz og apríl. Og það er Græn
metisverzlunarinnar að sjá um
innflutning þessa nauðsynlega
efnis, gæta þess, að í landinu
séu ávallt fyrir hendi nægar
birgðir af því, þegar „úðunar-
timabilið" hefst.
□
Lyfið fæst ekki fyrr en
seint og síðarmeir.
„En Grænmetisverzlunin
stendur vægast sagt ekki vel í
stykkinu með þessa hluti. Ár-
eftir ár liefur það gengið svo,
að lyfið, sem svo mjög er nauð-
synlegt til verndar trjágróðri
okkar, fæst ekki fyrr en langt
er liðið á tímabilið marz-apríl,
þegar heppilegast er að nota
það. Og þegar maður spyr eftir
hljómlistarmönnum, sem störf-
uðu við „bláu kápuna", fyrir
þá greiðasemi þeirra sem gerði
það kleift að hafa sérstaka
barnasýningu á þessari ágætu
óperettu.
★
Ríkisskip
Hekla er í Reykjavík og fer
þaðan föstudaginn 24. marz aust-
ur um land til Siglufjarðar. Esja
var væntanleg til Isafjarðar í gær-
kvöld á leið til Reykjavíkur.
Herðubreið var væntanleg til
Hornafjarðar seint í gærkvöld eða
nótt. Skjaldbreið kom til Reykja-
víkur um kl. 19 í gærkvöld og
fer frá Reykjavik næstkomandi
þriðjudag á Húnaflóahafnir til
Skagastrandar. Þyrill var í Vest-
mannaeyjum í gær. Ármann var í
Vestmannaeyjum í gær.
Eimskip
Brúarfoss fór frá Reykjavík 17.
marz til Leith, Lysekii, Gauta-
borgar og Kaupmannahafnar.
Dettifoss kom til Hull 15. marz,
fór þaðan væntanlega í gær beint
til Reykjavíkur. Fjallfoss fór frá
Húsavík 14. marz' til Menstad í
Noregi. Goðafoss fór frá Kefla-
vík í fyrrinótt til Leith, Amster-
dam, Hamborgar og Gdynia. Lag-
arfoss fór frá Reykjavík 13. marz
til New York. Selfoss fór frá
Reykjavík 17. marz, væntanlegur
til Isafjarðar kl. 1800 í gær 18.
marz. Tröllafoss kom til Reykja-
víkur í gærmorgun frá Halifax.
Vatnajökull fór frá Norðfirði 11.
marz til Holiands og Palestínu.
Einarsson & Zoega
Foldin er á leið til Hollands með
frosinn fisk. Lingestroom er vænt-
anlegur til Reykjavíkur á þriðju-
dag.
SKIPADEILD S. 1. S.
Arnarfell fór frá New York á
fimmtudagskvöld áleiðis til R-
víkur. Hvassafell lestar fisk fyrir
norðan,
Ungbarnavernd LIKNAR, Templ-
arasundi 3 er opin þriðjudaga og
föstudaga kl. 3.15—4 e. h.
Leiðrétting ,
Sú missögn var í bæjarfréttun-
um í gær, að sagt var að Bertu og
Gunnlaugi Snædal héfði fæðst son-
ur 14. þ.m., en átti að vera 17. þ.m.
Aðalfundur Kvenréttindafélags Is-
lands, sem fresta varð 1. marz,
verður haldinn þriðjudaginn 21.
marz kl. 8.30 í Tjarnarkaffi.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum —
Sími 5030.
Næturakstur í nótt og aðra nótt
annast Hreyfill, sími 6633.
Næturvörður er í Laugavegsapó-
teki, sími 1618.
Heigidagslæknir: Kjartan R.
Guðmundsson, Úthlíð 8. Sími 5351.
^ 1 gær voru gef-
in saman £
hjónaband af
sr. Bjarna Jóns-
syni, ungfrú
* Kristín Krist-
insdóttir og Guðlaugur Þorvalds-
son, viðskiptafræðingur. Heimili
þeirra er á Njálsgötu 104. — Ný-
lega voru gefin saman í hjóna-
band, ungfrú Sigurborg Helga-
dóttir og Guðmundur Auðunsson.
Heimili þeirra er í Efstasundi 70.
S. 1. föstudag op-
inberuðu trúlofun
sína ungfrú Anna
Kristjánsd. verzl-
unarmær, Smiðju-
stíg 12 og Einar
Kr. Sigurðsson járnsmiður, Þver-
veg 2 D.
Kvöldbænir fara fram i Hali-
grímskirkju á hverju kvöldi nema
sunnudaga og miðvikudaga, kl. 8
stundvislega.
Kl. 11.00 Morgun-
tónleikar (plötur)
a) Kvartett op. 18
nr. 1 eftir Beet-
iioven. b) Pianó-
sónata í c-moll
(K457) eftir Mozart. c) Concerto
i g-moll eftir Hándel. 14.00 Messa
i kapellu Háskólans (séra Jón
Thorarensen). 15.15 Útvarp til Is-
lendinga erlendis: Fréttir. — Er-
indi (Magnús Jónsson lögfr.) 15.45
Útvarp frá síðdegistónleikum £
Sjálfstæðishúsinu (Carl Billich,
Þorvaldur Steingrimsson og Jó-
hannes Eggertsson leika). 18.30
Barnatími (Þorsteinn Ö. Stephen-
sen): a) Gísli Jónasson stjórnar-
ráðsfulltrúi flytur fræðandi þátt:
Um sólina. b) Stefán Jónsson kenn
ari les framhald söguna: „Margt
getur skemmtilegt skeð“. c) Tón-
leikar o. fl. 19.30 Tónleikar: „Car-
men“-svita eftir Bizet (plötur).
20.20 Samleikur á flautu og píanó
(Willy Bohring og Fritz Weiss-
happel): Sónata eftir Phiiippe
Gaubert. 20.35 Erindi: Áróður (dr.
Broddi Jóhannesson), 21.10 Tón-
leikar: Rawics og Landauer leika
fjórhent á píanó (plötur). 21.20
Upplestur: Jón úr Vör les frumort
kvæði. 21.35 Tónleikar: „Háry Ján-
os“, svíta eftir Kodály (plötur).
22.05 Danslög (plötur). 23.30 Dag-
skráriok.
Mánudagur 20. marz.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þórar-
inn Guðmundsson stjórnar): Lög
eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Sigfús Einarsson, Sigvalda fealda-
lóns og Árna Björnsson. 20.45 Um
daginn og veginn (Karl Kristjáns-
son alþm.). 21.05 Einsöngur (Birg-
ir Halldórsson): a) „Where’er You
Walk“. eftir Hándel. b) „Sólskríkj-
an“ eftir Jón Laxdal. c) „Móðir
við barn“ eftir Björgvin Guð-
mundsson. d) Aria úr óperunni
„Don Giovanni" eftir Mozart. 21.20
Erindi: Rakel (séra Pétur Magnús
son). 21.40 Tónleikar (plötur) 21.50
Lög og réttur (Ólafur Jóhannes-
son prófessor). 22.10 Passíusálm-
ar. 22.20 Létt lög (plötur). 22.45
Dagskrárlok.
Dómkirkjan. Messa kl. 11 f. h.
Sr. Bjarni Jónsson. Messa kl, 5
e. h. Sr. Jón Auðuns. Laugarnes-
kirkja. Messað kl. 2 e. h. — Sr.
Garðar Svavarsson. Barnaguðs-
þjónusta kl. 10 f. h. — Sr. Garð-
ar Svavarsson. Fríklrlcjan. Messa
kl. 2 e. h. — Sr. Þorsteinn Björns-
son. — Fundur hjá K.F.U.M.F,
kl. 11. f. h. — Nesprestakall. Mess-
að í kapellu Háskóians kl. 2 e. h.
Séra Jón Thorarensen.
Framhald á 7. siðu.