Þjóðviljinn - 04.06.1950, Side 4
ÞJÓÐVILJIF N
Sunnudagur . 4. . júní 1950.
Þióðviliinn
Útgefandl: Sameiningarfiokkur alþýðu — Sósíalistafiokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
, Blaðamenn: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson,
Eyjólfur Eyjólfsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skölavörðu-
stíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: kr. 14.00 á mán. — Lausasöluverð 60 aur. elnt.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
| Eining og öflug samtök
l íslendingar eiga það sjómannastétt sinni að þakka að hægt
ihefur verið á fáum áratugum að vinna upp þá stöðvun í ís
lenzkri þjóðfélagsþróun sem varð vegna nýlendukúgunar Dana
Öldum saman. Auðurinn semi íslenzkir sjómenn hafa flutt í
]and er stórkostlegur og hefur komið allri þjóðinni til mikils
gagns, enda þótt innlendir auðmenn og erlendir auðhringir hafi
jafnan hirt ljónspart þeirra auðæfa.
Sjómenn ættu að vera forréttindastétt á Islandi, vegna
þess hver lífsnauðsyn það er þjóðinni að í þá stétt veljist einvala
lið æskumanna úr hverri kynslóð Isl. hér eftir sem hingað
til. En aðgerðir íslenzkra valdhafa hafa lítið mótazt af þessum
skilningi, með einni undantekningu: er sósíalistum tókst að
ná áhrifum á stjórnarstefnu landsins með nýsköpunarstefnu
sinni, sem var þó margsvikin í framkvæmd af afturhaldi lands-
ins. Það fékkst þó fram að sjómannastéttin íslenzka fékk glæsi-
legan flota að vinna á, einnig tókst að beina nokkrum hluta
hinna nýju og glæsflegu togara til bæjarfélaga og þatí tókst
að vinna sjávarafurðum Islendinga ágæta nýja markaði. En
til framhalds þeirrar stefnu vantaði Sósíalistaflokkinn þing-
fylgi. Alþýða landsins gerði sér það ekki Ijóst að til þess að
nýsköpunarstefnan héldi áfram að móta aðgerðir íslenzkra
valdhafa hefði Sósíalistaflokkurinn þurft að auka fylgi sitt
)enn meira og örar en orðið hefur.
i Afleiðingarnar eru nú öllum augljósar, afturhald landsins
ekreið saman í ríkisstjóm undir erlendri handleiðslu, bakaði
þjóðinni tugmilljóna tjón með stöðvun á dýrmætum r.ýsköp-
'unarfyrirtækjum, reyrði allt athafnalif í skriffinnskrviðjar,
hinum nýju mörkuðum fyrir sjávarafurðir íslendinga var fleygt
vegna pólitísks ofstækis og þýlyndis við fyrirskipanir Banda-
ríkjastjórnar, landið selt á vald erlendra hervelda og marsjall-
fjötrar lagðir á fjármál og atvinnulíf Islendinga. Jafnframt hef-
iur hver árásin annarri meiri verið gerð á lífskjör alþýcunnar,
þar til núverandi kreppuástand er fengið. „Verkin sýna merkin"
ium þá stefnu er tók við af nýsköpunarstefnu sósíalista.
Og sjómenn hafa ekki sízt fengið að kenna á stefnubreytingunni.
Öryggisleysið um afkomuna er hlutskipti alls þorra þeirra.
Bátasjómenn hafa orðið að bíða mánuðum saman eftir því að
fá greidda lágmarkstryggingu sína, margir neyðzt til að fara
í umfangsmikinn málarekstur til að fá kaup sitt greitt. Er
máttarstoðir Sjálfstæðisflokksins stelast úr landi með fiskiskip
eru þeir verðlaunaðir af flokksbróður sínum Ólafi Thórs, með
imilljónaeftirgjöfum skulda. En hagsmunamál sjómanna fá aðrar
viðtökur hjá valdamönnum íslands. I gengislækkunarlögin voru
sett. sérstök ákvæði til að öruggt væri að sjómenn hefðu ekki
að þeim nokkra uppbót á laun sín, og svo vandlega um búið
að lögin kveða á um beina launalækkun sjómanna. Meðferð
togaravökujaganna er rakin á öðrum stað hér í blaðinu. Öðru
brýnu máli sjómannastéttarinnar, tillögu Steingríms Aðalsteins-
sonar um rannsókn á hinum hörmulega tíðu togaraslysum og
löggjöf sem miðar að því að afstýra þeim, var tekið með algeru
tómlæti af þingmönnum allra flokka nema Sósíalistaflckksins,
Og fékkst tillagan ekki samþykkt á þinginu í vetur.
Sjómenn eiga mikið óunnið í réttinda og hagsmunabaráttu
m
einni. Árangur þeirrar baráttu er undir því kominn að þeim
takizt að treysta samtökf sín, og þá einkanlega að hefja Sjó-
mannafélag Reykjavíkur upp úr þeirri niðurlægingu sem land^
her og landkrabbar hafa haldið því í. Einhuga sjómannastétt,
með traúst samtök að vopni, er ósigrandi. I átökunum sem fram-
undan eru um hagsmunamál sjómanna verður kjörorðið:
Eining og öílug samtök,
Beðið eftir
fagnaðarfundum
Það er opinbert leyndarmál
og raunar ekkert leyndarmál,
að Jónas Árnason hefur séð
u(m bæjarpóstinn undanfarin
ár. En nú hefur Jónas tekið
sér frí frá þeim störfum í
nokkra mánuði, og hans mun
verða saknað. Hins vegar er
ástæðulaust að kveðja hann
með tárum, því hann kemur
aftur með haustinu, og þá verða
miklir fagnaðarfundir.
•
Nægjusamir betiarar
Hógværð, hlédrægni og sjálfs
útþurrkun éru sem kunnugt er
æðstu eiginleikar betlarans. Sá
sem vill lifa af náð annarra
gerir ekki kröfur, honum ber
að biðja um minna en hann
þarf og treysta á náðina., Þess
vegna eru Islendingar nú kart-
öflulausir. Þegar stjórnarvöld
landsins betluðu viðreisnarkart-
öflur úr eyðileggingarhaugum
Bandaríkjanna fóru þau aðeins
fram á 1000 tonn, þó haugam-
ir nægðu reyndar fyrir öllum
þörfum íslendinga í ótalda ára-
tugi. Stjórnarvöldin þurftu
nefnilega að sýna að þau vissu
hvað til friðar heyrði, þau væru
hógværir og nægjusamir betl-
arar sem ekki kynnu við að
skerða um of griðlandið fyrir
amerískum rottum.
Nú þarf Jón að flytja
nýja ræðu
Og nú eru viðreisnarkartöfl-
urnar sem sé búnar. Smáslatti
kom í búðimar í fyrradag
vegna vísitölunnar og sennilega
kemur smáslatti aftur kring-
um 1. júlí þegar enn á að
reikna, cn að öðru leyti fá
íslendingar engar kartöflur með
kjötleysinu og fiskskortinum.
Að sjálfsögðu er þetta merki
um bruðl og óráðsíu þjóðar-
innar, hún hefur ekki enn
tamið sér þá fullkomnun nægju-
seminnar sem mótar leppa Is-
lands andspænis yfirboðurun-
um fyrir vestan haf. Væri nú
ekki ráð að Jón Ámason héldi
nýjan reiðilestur yfir þjóð sinni
og sýndi henni fram á nauðsyn
kartöflusparnaðar. Fyrir þann
gjaldeyri sem sóað er í kartöfl-
ur er nefnilega ekki hægt að
kaupa lúxusbíla, engu frekar
en hægt er að éta hin nýju
módel Jóns Árnasonar og Vil-
hjálms Þór með soðningunni.
Gullfoss til útlanda á þessu
sumri, og flugfélögin hafa nóg
að gera að flytja íslendinga
bæði til austui’s og vesturs, þar
sem kartöflur eru nægar. Þetta
fólk hefur líti^ þurft að leita
á náðir Fjárhagsráðs um gjald-
eyri, en erlendis kemur eflaust
í Ijós að ekki skortir farar-
eyri sem betur fer. Og er það
ekki alltaf huggun í hallærinu
að vita að enn eru til íslenzk-
ir menn sem geta étið kartöfl-
ur á lúxushótelum með erlendu
fyrirfólki — og meira að segja
borgað fyrir sig.
★
Skipadeild*SlS
Arnarfell fór frá Cadiz í gaer á-
leiðis til Isiands. Hvassafeil fór
frá Reykjavik á föstudagskvöld á-
leiðis til Gdynia. Hefur viðkomu
í Kaupmannahöfn og verður þar
á miðvikudag.
Eimskip
Brúarfoss er i Antwerpen. Detti-
foss fór frá Lysekil 31.5. til Kotka
í Finnl. Fjallfoss kom til Leith
3.5., fór þaðan væntanlega 3.6.
til Gautaborgar. Goðafoss fór frá
Reykjavik 2.6. til Hull og Amster
dam. Gullfoss fór frá Reykjavik
kl. 12 á hádegi í gær 3.6. til Leith
og Kaupmannahafnar. Lagarfoss
er í Reykjavík. Selfoss fór frá
Reykjavík 2.6. til vestur- og norð-
urlandsins og útlanda. Tröllafoss
fór frá N.Y. 24.5. væntanlegur til
Reykjavíkur 4.6. Vatnajökull fór
frá Vestmannaeyjum 20.5. til N.Y
Minnlngarspjöld dvalarheimilis
aldraðra sjómanna fást í eftirtöld
um stöðum í Reykjavík, á skrif-
stofu Fulltrúaráðs sjómannadags-
ins Edduhúsinu við Lindargötu
9A efstu hæð, simi 80788, í bóka-
verzlunum Helgafells i Aðalstræti
18 og Laugaveg 100, og i Hafnar-
firði hjá V. Long.
Hannes Kjartansson, ræðismað-
ur í New York, verður til viðtals
í utanrikisráðuneytínu þriðjudag
6. júní kl. 10—-12 f. h.
Helgidagslæknir er Bjarni Odds
son, Laufásvegi 18A. Simi 2658.
Næturvörður er í Ingóifsopóteki.
Sími 1330.
Næturlæknir er í læknavarðstof
unni, Austurbæjarskólanum. —
Sími 5030. —
CillWf’H Dómkirkjan.
jMna Messa kl. 11 f.h.
rJsajólQ — Sr. Jón Auðuns.
Laugarneskirkja.
UfjsjjK Messa kl. 2 e. h.
‘-'&JJr Sr. Garðar Svav-
arsson. — Aðalsafnaðarfundur að
guðsþjónustu lokinni. — Messa í
kapellu Háskólans kl. 11 f.h. —
Sr. Jón Thorarensen.
Huggun í hallæri
Sem betur fer er dálítill hóp-
ur íslendinga sem fær kart-
öflur í sumar þó þjóðin sé
fátæk. Stefán Jóhann étur nú
kartöflur með dönskum þú-
bræðrum sínum og mun síðar
njóta þessarar fátæku vöru með
evrópuráðsmönnum ásamt Jó-
hanni Þorkeli og Heiðnabergs-
hermanni. Og í kjölfar fyrir-
mennanna fara fleiri. Upppant-
að mun nú með öllum ferðum
11.00 Morguntón-
leikar (plötur).
13.30 Dagskrá sjó-
manna (hátíðahöld
við Austurvöll): a)
Útiguðsþjónusta
(Sigurgeir Sigurðsson biskup pré-
dikar á svölum Alþingishússins;
Dómkirkjukórinn og Ævar R.
Kvaran syngja; dr. Páll Isólfst-
son leikur á dómkirkjuorgelið).
b) Ávörp (Ólafur Thórs siglinga-
málaráðherra, Þórður Ólafsson
útgerðarmaður og Henry Hálfdán-
arson formaður fulltrúaráðs sjó-
mannadagsins). c) Lúðrasveit
Reýkjavikur leikur; stjórnandi:
Paul Pampichler. — Einnig fer
fram afhending verðlauna. 16.15
Útvarp til Islendinga erlendis:
Fréttir. —■ Erindi (Tómas Sig-
valdason loftskeytam.) — 16.45
Veðurfregnir. 18.30 Barnatími (Jón
Oddgeir Jónsson fulltrúi.). 19.30
Erindi: Um dvalarheimili aldr-
aðra sjómanna (Pétur Sigurðsson
sjómælingafulltrúi). 20.20 Dagskrá
sjómanna: a) Ávarp (Gunnar
Thoroddsen borgarstjóri). b) Leik-
þáttur: „Það vantar rnann", eftir
Loft Guðmundsson. Leikstjóri:
ÆOvar R. Kvaran. Leikendur: Æv~
ar R. Kvaran, Jón Aðils, Elín
Ingvarsdóttir, Lúðvík Hjaltason
og Valur Giistafsson. c) Ræða
(Guðmundur Pétursson vélstjóri).
d) Einsöngur: Hreinn Pálsson
syngur (plötur). e) Samtal (Henry
Hálfdanarson og Einar Þorsteins-
son). f) Upplestur: Sjómanna—
kvæði (Andrés Björnsson). g)
Samtöl (Gils Guðmundsson talar
við Fríði Bjarnadóttur skipsþernu
og' Þorkel Pálsson sjómann). h)
Lesnar kveðjur til sjómannadags-
ins. 22.05 Danslög (af plötum og
frá Sjálfstæðishúsinu. 01.00 Dag-
skrárlok.
Útvarpið á morgun
19.30 Tónleikar: Lög úr kvik-
myndum (plötur). 20.20 Útvarps-
hljómsveitin (Þórarinn Guðmunds-
son stjórnar): a) Þýzk alþýðulög.
b) „Fest Polonaise" eftir Johann
S. Svendsen. 20.45 Um daginn og
veginn (Benedikt Gröndal blaða-
maður). 21.05 Einsöngur í Dóm-
kirkjunni (ungfrú Anna Þórhalls-
dóttir; Páll Isólfsson leikur undir
á orgel). 21.20 Erindi: Kennslu-
kona drottningarinnar (Jónína S.
Lindal húsfreyja á Lækjarmóti).
21.45 Tónleikar (plötur). 21.50 Frá
Hæstarétti (Hákon Guðmundsson
hæstaréttarritari). 22.10 Búnaðar-
þáttur: Vorverk í görðum (Ragn-
ar Ásgeirsson ráðunautur). 22.30
Dagskrárlok.
I dag kl. 2.30 sýnir Ferða-
skrifstofan kvikmynd frá Skot-
landi í Flugvallarhótelinu. Að-
gangur er ókeypis.
Bólusetning gegn barnavelki.
Pöntunum veitt móttaka í sima
2781 kl. 10—12 :f. h. fyrsta þriðju-
dag hvers mánaðar. Fólk er á-
minnt um að láta bólusetja börn
sín.
KafsMnna
Vorið er koniið
Vegfarendur, sem leið eiga
um Austurstræti um þessar
mundir, finna ilm vorsins þar
sem annarsstaðar, en auk þess
heyra þeir sætan fuglasöng, en
minna er um hann víðast hvar.
Menn leggja við eyrun og
hlusta, fara svo að litast um.
Jú, þarna er lausnin. Frá
skemmuglugganum ber3t söng-
urinn, en þar er RAFSKINNA
komin með vorið.
Mörgum var orðið hlýtt til
gömlu kVennanna, sem sátu þar
áður yfir kaffinu sinu og
klingdu bollum hver við aðra,
en auðvitað eru þær orðnar
kallilausir eins og aðrir, og
verða að láta sér nægja að
rabba saman á meðan þær bíða
eftir því að komast að gluggan
um til að skoða Rafskinnu, en
það þurfa margir að gera nú.
Gunnar Bachmann skemmtir
mörgum Reykvíkingum með
Rafskinnu sinni, jafnframt því
sem ýmis fyrirtæki kima að
auglýsingum á því sem þau
hafa upp á að bjóða. Flestum
þykir vænt um fuglakvakið á
vorin, og fuglinn í glugga Raf-
skinnu vekur hjá okkur löng-
unina til að komast út í gráena
náttúruna og hlusta á hina
fuglana.