Þjóðviljinn - 04.06.1950, Page 8
HryHJleg meSferS á föngum sem
herínn tók i Aþenu fynr fimm
árum
Sex hundruð menn, ílest Grikkir, haía i íimm
ár verið haíðir í algerri einangmn í leynilegum
brezkum íangabúðum á Italíu í nánd við háínar-
borgina Galta, að því er gríska blaðið Machi skýrir
irá mjög áberandi. Machi er aðalmálgagn hinna
hægrisinnuðu grísku sósíaidemókrata sem haía
náið samband við sósíaldemokraiaíiokka Vestur-
Evrópu gegnum Comisco.
Grískiu bargaxamir meðal
fangabúðarmanna í Gaeta
voru handteknir af brezka her-
námsliðinu í Aþenu í sambandi
við desemberatburðina 1944 og
voru fyrst sendir til fargabúð-
anna El-Daba í Líbíu, en
,,hurfu“ þaðan og ensk yfir-
völd lýstu yfir opinberlega að
þeir væru „týndir“.
Það sanna var að beir vom
fluttir til Gaetafangabúðanna
og hafa verið hafðir þar í haldi
í fimm ár, sviptir rétti til sam
bands við ástvini sína og alger
lega lokaðir frá öllum samskipt
um við heiminn utan gaddavírs
■girðinganna. Aðeins iítill hóp-
ur manna hefur allan þennan
tíma haft hugmynd um tilveru
fangabúðanna.
Vitneskja mn þær barst út
af einskærri tilviljun. Grísk
kona, Sofía Valsami kom á
ferðalagi til Gaeta og rakst á
hinar leynilegu fangabúðir
skammt frá borginni. Henni
tókst að ná sambandi við
nokkra hinna innilokuðu landa
sdnna sem báðu hana fyrir bréf
til fólks síns. Sofía Valsami
skýrði blaðinu Machi frá nöfn-
um margra fanganna og lagði
-áherzlu á slæman aðbúnað
þeirra.
Fangarnir em hræðilega út-
lítandi eftir langvarandi liung-
ur og klæddir tötrum. Þeir eru
í gæzlu sérstaklega valins
ítalsks lögregluliðs.
Erindi oni írska
leiklist
Prófessor Roger McHugh frá
þjóðháskóla fra flytur tvö er-
indi um írska leiklist í Þjóðleik
húsinu næstkomandi þriðjudag
og miðvikudag kl. 5. Erindin
verða flutt í litla leiksalnum
(æfingasalnum) og er inngang
ur frá Lindargötu og kostar
aðgangur að hvoru erindi fyrir
sig kr. 10 en kr. 15 ef aðgöngu-
miðar eru teknir fyrir bæði er-
indin í einu. Aðgöngumiðar fást
hjá dyraverði Lindargötumegin
í leikhúsinu eftir kl. 1 á mánu-
dag. Erindin verða flutt á
ensku og er efni þeirra: Ire-
land’s Nationaltheatre and poe-
tic Drama og Realistic Drama
in Ireland. Húsrúm í litla leik-
salnum er mjög takmarkað,
sætin aðeins 121, og leiksviðið
er ekki komið í það horf, sem
síðar á að verða, en þetta er í
fyrsta sinn sem salurinn er op-
in almenningi.
Alolf lipásson
íil&ai verðlamim lyrir
Á Sjómannadaginn er venju-
lega veittur bikar er Félag ís-
lenzkra botnvörpuskipaeigenda
gefur til þess manns er unnið
hefur mesta og bezta björgun-
arafrek á tímabílinu milli sjó-
mannadaga.
Á þessum 13. sjómannadegi
Verða þessi verðlaun veitt
Adolfi Magnússyni stýrimanni,
á m.b. Mugg Ve. 322 frá Vest-
mannaeyjum. Bjargaði hann
matsveinum á Mugg Árna
Pálssyni er hann féll fyrir borð
er skipið var við veiðar ca. 10
sjómílur suður af Grindavík 4.
október s.l. M.b. Muggur er
eign Helga Benediktssonar
Vestmannaeyjum.
Sósíalistaflokkurinn fiefur skor
að Framséknarflokkinn að
mæta á opinberum fundi í
Borgarnesi 10. jání n. k. ti! að
ræða stjórnmálaviðhorfið
Sósíalistaílokkurinn heíur ákveðið að
eína til opinbers fundar í Borgarnesi þann
10. júní næstkomandi til þess að ræða stjórn-
málaviðhorfið.
í því tilefni hefur Sósíalistaflokkurinn
skrifað Framsóknarflokknum og óskað eítir
í því að hann sendi fulltrúa á fundinn til þátt-
töku í umræðunum með jöínum ræðutíma á
við Sósíalistaflokkinn. Þess er sérstaklega
\ vænzt að þingmaður Mýramanna, herra
Bjarni Ásgeirsson mæti á fundinum.
Fundurinn mun hefjast kl. 8.30 síðdegis.
Srengislækkasiai-
stjómarinna?
Framhald af 1. eíðu.
un íslezku þjóðarinnar bygg-
ist fyrst og fremst á.
I þennan byggingarsjóð
aldraðra sjómanna hefur
ríkisstjórnin gert innflutt
efni til byggingarinnar 74%
dýrara en það áður var. Slík
var hin fyrsta gjöf gengis-
læklíunarstjórnarinnar til
aldraðra sjómanna.
1 dag, á sjómannadaginn,
réttir hún þeim aðra gjöf:
SYNJUN Á LEYFI TIL AÐ
BYGGJA HEIMILI FYRIK
ALDRAHRA SJÓMENN!
I dag munu valdhafarnir
ekki frem'ur en endranær
spara skjallið um „hetjur
hafsins“, en hugur þeirra í
þJÓÐViyiNN
Skipbrotsmenu af Sævari á sjómannaheimilinu í Aberdeen
Sitjandi: Magnús Grímsson skipstjóri, Gunnar Hjálmarsson 1.
stýrimaður, Bjarr.i Pákson háseti, Aðalsteinn Jochumsson kynd-
ari, Guðm. Böðvarsson háseti, Jörundur Gíslason 1. vélstjóri, Jó
hannes Amórsson bátsmaöur. Standandi: Kristján Ólafsson há-
seti, (með blaðið) Guom. Sigurosscn bræðslumaður, Ilalldór Sig
urðsson háseti, Elías Ámason matsveinn, Garðar Óskarsson há-
seti, Hjálmar Hélgason 2. vélstjóri.
Bezta aShlynnlng skspsbrots-
manna — á skozka visu
Skipbrotsmt-nnimir af Sævari fengu bcztu aðhlynn-
ingu er þeir komu í land á Oensey við Skotland — að
því er segir í enskum fréttaskeytum til íslenzkra blaða.
íslendingar leggja sína merkingu í orðin „beztu að-
hlynningu skipbrotsmanna“, cn Skotar virðast hafa aðra
ar hugmyndir um þau.
Áhöfnin af Sævari komst að
landi í tveimur vélarlausum
björgunarbátum. Skipið sökk á
siglingaleið, en skip sem til
sást, sinnti ekki bátunum þó
þaðan væri skotið neyðarrak-
ettum og höfð uppi rauð blys.
Lendingin gekk vel en flestir
voru orðnir nokkuð blautir.
Hittu þeir fyrst strandvörð sem
vísaði þeim á strandvarðstöð
um tvær mílur inni á eynni.
Á leiðinni þangað komu þeir
á bóndabæ og reyndu að vekja
þar upp, kom loks út maður,
en veitti þeim engan beina eða
fyrirgreiðslu. Slysið varð að
kvöldi, en ki. var orðin 5—6
um morguninn er þeir komu til
strandgæzlustöðvarinnar, þar
fengu þeir sinn tebolla hver og
ekkert með, og voru látnir hýr-
ast í ísköldu herbergi, þar til
garð sjómanna birtist hins-
vegar í því að í dag banna
þeir að „hetjur hafsins“
megi eignast heimili í ellinni.
Þetta mun hinsvegar ekki
verða til þess að menn hætti
að kaupa merki dagsins,
hætti að leggja lítinn ekerf
í heimili öldruðu sjómami-
anna. Þvert á móti. En hvert
% sjómannadagsmerki sem
keypt verður í dag er MÓT-
MÆLI gegn allri framkom'a
valdhafanna í garð sjómanna
stéttarinnar.
bíll kom að sækja þá og flytja
til sjómannaheimilis í bænum
Port Charloíte. Þar fengu
þeir að borða, en lélegan að-
búnað áð öðru leyti, var t. d.
ætlað að sofa við druslur ein-
ar, en fundu sjálfir af tilviljun
stafla af ullarteppum sem þeir
tóku sér til skjóls. Engum voru
borin þurr föt og urðu þeir
sem blautir voru að þurrka föt-
in á sér.
Daginn eftir voru skipsbrots-
menn fluttir til Glasgow og
þaðan til Aberdeen og fengu
góðan viðurgjörning úr því.
Heim komu þeir með togaran-
um Agli Skallagrímssyni.
Skotlandsferðir
Hekla fer héðan í fyrstu
Skotlandsferðina á þessu sumri
n.k. föstudag, 9. þ.m. Þátttaka
í ferðum þessum, af hálfu út-
lendinga, er mun meiri en áður
hefur verið. Þó eru ekki öll
farrými skipuð, og geta því Is-
lendingar fengið að fljóta með,
en þó því aðeins, að gjaldeyris-
tekjur af ferðum skipsins og
dvöl hinna erlendu farþega hér,
hrökkvi til að veita íslending-
um nauðsynlegan gjaldeyri til
Skotlandsferða. Fyrst um sinn
verða veitt 7 pund sterling á
mann, en þaraf fara 4—5 pund
í ferðakostnað í Skotlandi, svo
að eftir verða aðeins 2—3 pund
í vasapeninga.
Kaupið og seljið happdrættismiða Sósíalistaflokksins