Þjóðviljinn - 06.08.1950, Side 7
Sunnudagur 6. ágúst 1950
ÞJÖÐV1L77N N
ms>
at v5
J':v Qft '..4
Á þessum stað tekur blaðið til birtingar smáauglýs
ingar um ýmiskonar efni. Þær eru sérstaklega
hentugar fyrir allskonar smáviðskipti, og þar sem
verðið er aðeins 70 aurar orðið eru þetta lang-
samlega ódýrustu auglýsingarnar sem völ er á.
Ef þér þurfið að selja eitthvað eða kaupa, taka á
leigu eða leigja, þá auglýsið hér.
Káup-Sala
Daglega
Ný egg
soðiu og hrá
Kaffisalan Hafnarstræti 16.
Kaupum — Seljum
og tökum í umboðssölu alls-
konar gagnlega muni.
GOÐABORG,
Freyjugötu 1. — Sími 6682.
Kaupum
húsgögn, heimilisvélar, karl-
mannaföt, útvarpstæki, sjón-
auka, myndavélar, veiði-
stangir o. m. f].
Vöruveltan
Hverfisg. 59. — Sími 6922.
Fasteignasölu-
miöstöðin,
Lækjargötu 10 B, sími 6530,
annast sölu fasteigna, skipa,
bifreiða o. fl. Ennfremur
allskonar tryggingar o. fl.
í umboði Jóns Finnbogason-
ar, fyrir Sjávátryggingarfé-
lag Islands h.f. Viðtalstími
alia virka daga kl. 10—5, á
öðrum tímum eftir samlcomu
lagi.
| Höfum nú á hendinni 3ja
í herbergja íbúð í Vogahverfi,
! með sæmilegu verði.
Munið
kaffisöluna
í Hafnarstræti 16.
Kaupum hreinar
Ullartuskur
Baldurgötu 30.
Stofuskápar
— Armstólar — Rúmfata-
skápar — Dívanar — Komm-
óður — Bókaskápar — Borð j
stofustólar — Borð, margs- j
konar. j
Hásgagnaskálinn.
Njálsgötu 112. Sími 81570. |
Allur útbúnaður til
ferðalaga.
Verzlunin Stígandi,
Laugaveg 53.
Lítið mótorhjól
í göðu lagi og gott
karlmannsreiðhjól,
til sqIu á Framnesveg 20.
Karlmannaföt —
Húsgögn
Kaupum og seljum ný og
notuð húsgögn, karlmanna-
föt og margt fleira. Sækjum
— Sendum,
Söluskálinn
Klappastíg 11. —Sími 2926
Húsgagnaviðgerðir
j Viðgerðir á dívönum og alls-
jkonar stoppuðum húsgögn-
! um.
Húsgagnaverksmiðjan
Bergþórug. 11. Sími 81830.
i
Skóvinnustofan
NJáLSGÖTU 80
annast hverskonar viðgerðir
á skófatnaði og smíðar sand-
ala af flestum stærðum.
Hremgemingamið-
stöðin,
símar 6718, 3247. Hreingern-
ingar, gluggalireinsun, utan-
hússþvottur.
Ragnar Ölafsson
hæstaréttarlögmaður og lög-
giltur endurskoðandi. Lög-
fræðistörf, endurskoðun,
fasteginasala. — Vonar-
stræti 12. — Sími 5999.
Sanmavélaviðgerðir —
Skrifstofuvélaviðgerðlr.
Sylgja.
Laufásvegi 19. — Sími 2656.
Nýja sendibílastöðin
Aðalstræti 16 Sími 1395
Lögfræðistörf:
Áki Jakobsson og Kristján
Eiríksson, Laugaveg 27,
1. hasð. — Sfmi 1453.
Shák
Ritstjóri: GUÐMURDUR ARNLAUGSS0N
Þegar erlendu gestirnir á
Norðurlandaskákþinginu voru
kynntir hér í blaðinu um dag-
inn var ekki tiltæk nein af skák
um Kinnmarks. En Kinnmark
er einn af litríkustu taflmönn-
um Svía, mikill bragðarefur og
hefur veitt áhorfendum margar
ánægjustundir. Skákir hans
sjást oft í sænskum skákdálk-
um, og úr einum þeirra er skák
in sem hér fer á eftir tekin.
Olov Kinnmark hefur hvítt,
en svörtu mönnunum leikur
Inge Johansson.
1. e2—e4 c7—c5
2. Rbl—c3 Rb8—c6
3. Rgl—e2 g7—g6
4. d2—d4 c5xd4
5. Re2xd4 Bf8—g7
6. Bcl—e3 Rg8—f6
7. Rd4xc6 —d7xc6
Eftir bxc6, e4—e5 yrði ridd-
arinn að hörfa til g8. Svartur
hefði átt að leika 6.—d6.
S.DdlxdSf Ke8xd8
9. 0—0—Of Bc8—d7
10. Bfl—c4 e7—e6
11. Hdl—d2 b7—b5
12. Be3—g5! Kd8—c7
13. Hal—dl Bd7—e8
14. Bg5—f4f Kc7—b7
15. Bc4—e2 b5—b4
16. Rc3—a4 Rf6xe4
17. Hd2—d7f! Be8xd7
18. Hdlxd7f Kb7—c8
19. Hd7xf7 e6—e5
20. Bf4—e3 Bg7—f8
21. Be2—a6f Kc8—d8
22. f2—f3 Re4—d6
23. Be3—g5f Kd8—e8
24. Hf7—c7
29. Ra4—c5 Hd8—d6
30. Rcð—d7f Hd6xd7
31. He7xd7 Bh6—g7
32. Ba6—c4!
og svartur gafst upp, þvi að
hann tapar að minnstakosti
manni.
Staða svörtu mannanna er
grátbrosleg; skiptamunurinn
og peðið hafa ekkert að segja
þegar alla samvinnumöguleika
vantar.
24...... Rd6—f7
25. Bg5—f6 Bf8—h6f
26. Kcl—bl Ha8—d8
27. a2—a3!
Kinnmark hirðir ekki um að
taka skiptamuninn aftur, hann
vill meira.
27.................. b4xa3
28. Hc7—e7f Ke8—f8
Nevðarop imi frið
Framhald af 3. siðu.
ar síns Nagasaki. Foreldrar
hans og 12 skyldmenni voru
þá askan ein. Þau höfðu
einnig verið drepin af kjarn-
orkusprengjunni sem hafði
verið notuð í annað sinn í
sögunni.
Kjarnorkusprengjurnar 2
myrtu hundruð þúsunda af
dýrmætum mannslífum,
jöfnuðu hamingjusöm heim
ili við jörðu og eyðiíögðu
frjósama akra.
í dag brennur hatrið t;.I
stvrjaldar í hjörtum vorum
Það gagntekur milljónir
manna um allan heim. Það
myndar ósigrandi vald sem
aldrei mun Iieimila nýja
heimsstyrjöid.
Æskufólk í öllum löndum!
Mikil ábyrgð hvílir á yður.
að tryggja framtíð mann-
kynnsins. Heyrið kall vort,
heyrið örvæntingaróp þeirra
sem lifðu af skeifingar at-
ómsprengjunnar: Skrifið
undir Stokkhólmsávarpið, á-
varp friðarins, ávarp lífsins“
\ Hafnarfiörður
\
.Tiinnlækningastofan verður i
í lokuð í mánuð.
i Halíur Hallsson
I
¥epa
FELIXAit GUÐMUNDSSONAR, fatsiicia. verö-
az shsiSstofa kirkjugaEðsiits og kirkjagarðam-
ir lokaðir allan daginn, mióvikudaginn 3.
ágúst, og engin vinna leylð þann áag.
KIRKIUGARÐAH REYKJAVlKUR
Mað'urinn minn og fáðir okkar,
FELIX GUÐMUNDSSON,
veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðviku-
doginn 9. ágiíst kl. 1.30 e.h.
Athöfninni veröur útvarpað. Það eru vinsam-
leg tilmæli til þeirra. er vilja minnast hans, að
í stað blóma og kransa láti þeir einhverja líknar-
stofnun njóta ai'dvirðisins.
Sigurþóra Þorbjörnsdóttir og böru.
Helspréngjan
Framhaid af 1. síðu.
vitneskju um afleiðingar kjarn-
orkuái-ásar, og er í henni átt við
samskonar sprengju og þá sem
notuð var gegn Japan og reynd
var við Bikini. 1 skýrslunni seg
ir: Brot úr sekúndu ljómar sól,
miklu skærari en sól okkar, á
himnj í nokkur hundruð metra.
hæð, og gufumökkur teygir sig
í líki gorkúlu allt að 13.000
metra upp í loftið, síðan....
I hring, sem er 1,5 km að þver
máli, umhverfis miðdipilinn þar
sern sprengingin á sér stað,
jafnast allar byggingar við
jörðu, nema þær séu úr járn-
bentri steinsteypu. 70% þeirra
síðastnefndu gereyðileggjast,
sérhverjum manni utan hann
sé sérstaklega varinn, er dauð-
inn vís, annaðhvort af völdum
þrýstingsins eða hinna hrynj-
andi rústa.
En þótt hann sieppi lifandi
frá fyrstu afleiðingum spreng-
ingarinnar, er hann samt dauð-
ans matur, því að allir hlutar
líkamans sem óvarðir eru fyrir
Ijósgeislunum steypast út í
brunasár, sem valda bráð-
um bana. Hitinn verður svo* of-
boðslegur, að í öllu kviknar sem
brunnið getur.
Og þótt hann fyrir sakir ein-
staks kraftaverks, sleppi lif-
andi frá loftþrýstingnum, Km-
um fallandi húsarústum og
brunasárunum, en sé hins veg-
ar ekki í ramgerðu byrgi með
þykkum múr- og stálveggjum,
og helzt grafið í jörðu, sleppur
hann ekki frá hinni banvænu
geislaverkan. Millj. örsmárra.
agna og hátíðnibylgjur
sprengja selluveggi mannslík-
amans, og leiðir þá, sem verst
eru á sig komnir, til dauða
fjórum til fimm dögum síðar.. .
Er hægt að verja sig fyrir
Itjarnorkusprengjunni ?
Gerum ráð fyrir, að kjarn-
orkusprehgju hafi verið varpað
á einhverja horg og frétt um
það hafi borizt til nágranna-
borgar, áður en allt símasam-
band slitnaði, þá er það fyrir
hendi að skipuleggja hjálpar- ^
starf.
Brezk sérfræðinganefnd hef-
ur eftir því sem segir í tímarit-
inu Atomic Scientists News áætl
að, að ef 100.000 íbúar stórborg
ar hafi orðið fyrir sprenging-
unni muni helmingur þeirra
geta lifað hana af, en 20.000
af þeim muni hafa særzt hættu
lega eða grafizt lifandi undir
húsarústunum. Að fenginní.
reynslu er óhætt að telja, að
til þess að bjarga þeim sem á
þennan hátt hafi komizt undan,
þurfi vinnu 200.000 manns í
fimm klukkntíma!
Til þess að hjálp geti borizt
í tæka tíð verSur að vera fyrir
hendi vitneskja um það, hvaða
leiðir hafa ekki lokazt af völd-
um sprengingarinnar, og það
sem meira er, hvar geislaverk-
anir geri vart við sig. Koma
verður i veg fyrir það að hjálp-
arsveitirnar fari á þau svæði,
eða a.m.k. takmarka þann tíma
sem þær eru á því og flytja
alla þaðan burtu í skyndi.