Þjóðviljinn - 30.01.1951, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 30.01.1951, Blaðsíða 6
\ ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 30. janúar 1951. Fárviðrið Framhald af 8. siðu hóli um helgina. Lagði það flest af stað frá Hó'.num um sama ievti og óveðrið skall á, en tepptist mjög bráðlega, og varð að bíða um 2 km.frá Ko - viðarhóli eftir snjóýtunum frá Skiðaskálanum. Óttast var íim 10 manna flokk, sem lagt hafði af stað í bæinn úr skíðaskála Ármanns í Jósefsdal í fyrrakvöld, en síð- an orðið viðskila við annað skiðafólk þaðan, sem náði til bæjarins um kvöidið. Fóru tveir menn frá Lögbergi upp í Jósefs- dal að leita og þegar ekkert fréttist að heldur • var gerður út leitarleiðangur héðan úr bæn um í gærmorgun. Kom þá i Ijós að fólk það sem óttazt var um hafði snúið við uppí Jósefs- dal um kvöldið. Áætlunarbifreiðir sem fóru frá StolUiseyri í fyrradag og ætluðu Krýsuvíkurveginn til Ttcykjavíkur tepptust í Krýsu- vík eftir fjögurra stunda ferð vegna blindhríðar og ákvað ■ fólkið að gista þar um nóttina, ■en í gærmorgun héldu bílarnir áfram til bæjarins og var snjór ekki til fyrirstöðu. Hins vegar var talsverður snjór á Hafnar- f iarðarvegi um kl. 8 í gærmorg- un, en þar voru 40 bílar, sem höfðu verið yfirgefnir um nótt- ina og var þó búið að taka rnokkra. Fjöldi bíla tepptist á götum bæjarins, lögreglubílar sem aðr- ir, en margir leituðu aðstoðar iögreglunnar til að komast milli húsa. og gat lögreglan ekki sinnt nema nauðsynlegustu beiðnum um aðstoð. Strætis- vagnaferðir lögðust einnig nið- ur á sumum leiðum innanbæjar á sunnudagskvöldið. Sjcmannafélagið Framhald af 8. síðu. Alþingis á vökulagafrumvarpinu og skora á þingmenn Alþýðu- flokksins að knýja það fram — og mun sjómönnum finnast von- um seinna gert að stugga við }j3im herrum! Þá bar Árni Jóhannsson sjó- maíur fram 2 tillögur varðandi atvinnumálin og var sú fyrri samþykkt, en hún var svohljóð- andi: „Aðalfundnr haldinn í Sjó- mannafélagi Reykjavíkur, hinn 28. janúar 1951, skorar e:n- dregið á eigendur gömlu togar- anna að grra þá út sírax vegna mjög mikils atvinnuléysis í bæn- um. Ef þeir teija sig ekki geta það þá skorar fundurinn á bæj- aryfirvöldin að leita eftir því að taka þessi skip á leigu og gera þau út undir stjórn Bæj- arútgerðar Reykjavikur“. Handknatileiksmótið r Framhald af 3. síðu. Víkingur setti fyrsta markið og gerði Pálmi það. Sveinn jafn ar og nokkru síðar eykur Sig- urhans tö.una fyrir Val. Pálmi jafnar fljótlega 2 : 2. Sveinn skorar fyrir Val. Björn jafnar fyrir Víking. Nú gerir Hail- dói- tvö mörk í röð fyrir Val. Sigurður skorar fyrir Vikjng, en Sigurhans gerir svo síðasta mark hálfleiksins 6 : 4 fyrir Val. í síðari hálfleik nær Valur betri tökum á leiknum, og hef- ur sjáifsagt keppnisreynsla átt sinn þátt í því. Halldór Hall- dórsson gerir fyrsta markið og Sigurhans eykur töluna litlu síðar, fyrir Val. Pálmi kemur þó hér inná milli með mark fyrir Víking. Halldór Lárusson bætir enn tveim mörkum við, en Pálmi skorar enn fyrir Vík- ing. Sigurhans og Halld. Hall- dórss. gera nú sitt markið hvor Kristján gerir 7. markið sem Vik'ngur setur en Halldór ger- ir 13. markið fyrir Val. Dómari var Hannes Sigúrðs son og náði sérlega góðum tökum á leiknum og tók ó- venju hart á öllu handapati og stympingum. leikmaður dæmdur í 3 mán. útilokun. Þess var getið hér að einn af keppendum Víkings, Ríkharður Kristjánsson. hefði kastað knetti í höfuð dómara í leik milli Víkings og Aftureldingar. Dómarinn, Sigurður Narðdahl,. kærði þetta fyrir H.K.R.R., sem nú hefur fellt þann úrskurð að nilturinn skuli útilokaður frá keppni í 3 mánuði, sem er byngsta refsing er ráðið getur læmt í. Það mun þó ekki hafa iagt til, að dómurinn yrði byngdur í næsta dómstigi. Leikjum fiestað. Vegna stórhríðarinnar sem skall á, síðarihluta sunnudags- :ns komust keppendur ekki leið ar sinnar innað Hálogalandi til keppninnar, svo henni varð að fresta. Var þetta mjög slæmt þar sem flokkur Akurnesinga var kominn, en þeir áttu að keppa við F.H. Hinn leikurinn át.ti að vera milli I.R. og Ár- manns. Síðari tillaga Arna var um að skora á bæjarstjórnina að gera ráðstafanir til þess að a. m. k. G af honum nýju togurum vcrði gerðir út frá Reykjavík, en Alþýðuflokks- broddarnir beittu sér af al- efli gegn því og fengu það fellt með 25 atkv. gegn 22! Undir Eftir A.J. Cronin 76. D A G U R á orðunum hjá honum: ,,Af stað Geordie: hlauptu til Franks Logan og fáðu honum þennan miða. Og farðu svo upp á yfirborð og afhentu verkstjóranum hinn mið- ann, heyrirðu það. Hlauptu nú, drengur minn, hlauptu“. Geordie hljóp af stað með báða miðana. Allt í einu heyrði hann dálítinn dynk og loftið sog- aðist inn. Geordie vissi, að þá hlaut eitthvað að vera á seyði niðri í Scupper. Hann langaði til að komast út, én hann mundi hva’ð faðir hans hafði skipað honum að gera; og milli þessara tveggja elda, óttans og skyldunnar, gleymdi hann sér og fór að ganga eftir brautartein- unum. Meðan hann gekk eftir brautinni kom skyndi- lega út úr myrkrinu sleðalest sem hafði losnað frá ofar á brautinni. Geordie hrópaði og hljóp til hliðar, andartaki of seint. Lestin hrifsaði hann með, dró hann með sér fimmtíu metra, ók yfir hann, skildi lemstrað líkið eftir á braut- arteinunum. Síðan brunaði hún áfram. Þegar Geordie var farinn stóð Dinning and- artak kyrr. Hann var rólegri við þá hugsun, að hann hefði gert það sem honum bar að gera. Síðan heyrði hann háan gný; það var dynkurinn, sem sonur hans hafði heyrt, en hann var svo miklu nær að í eyrum hans hljómaði þáð sem gnýr. Hann stóð eins og stirnaður með galopinn munn. Hann hafði búizt við erfið- leikum en engu svona óvæntu og hræðilegu. Hann vissi að það var vatnið, sem hafði brotizt inn. Ósjálfrátt sneri hann inn í Scuppergöngin, en þegar hann hafði geng- ið fimm eða sex metra, sá hann vatnið belja á inóti sér. Það kom eins og flóðbylgja með -þrumuhljóði. I vatnselgnum voru lík Ogle, Browns og tíu annarra manna. Gasið sem streymdi á undan vatninu slökti Ijósið á lamp- anum hans. I tvær sekúndur stóð Dinning í niðamyrkri og beið eftir vatninu, og hann hugs- aði: ,.Fari það til fjandans, ég er feginn að ég sendi Geordic út úr námunni“. En Geordie var dáinn. Svo tók flóðbylgjan Dinning líka. Hann barðist um, reyndi að synda. Það var tilgangs- laust. Hann varð hinn fjórtándi sem lét lífið í Scuppergöngunum. Frank Logan fékk ekki miðann frá Dinning. Hann lá í myrkrinu í blóðugri hendinni á Geord- ie. En Frank heyrði líka dynkinn og eftir andar- tak fann hann nð hann stóð i vatni upp í hné. Hann vissi án þess að hafa fengið nokkur skila- boð að vatnið hafði brotizt í gegn. Fimmtán menn unnu i grennd við hann. Tvo þeirra sendi hann til að aövara mennina i lægstu göngunum í paradísinni. Hina þrettán hvatti hann til að halda inn að námuopinu. Sjálfur var hann kyrr. Hann vissi að vinnustaðirnir í Scupper lágu dýpst i paradísinni. Hann vissi að þau göng myndu fyllast fyrst. I þeirri vissu hélt hann þangað til að aðvara mennina átján, sem unnu þar. Allir þessir menn voru drukknðair áður en hann hélt af stað. Og Frank Logan sást ekki framar. Mennirnir þrettán sem héldu út að námuopinu, komu inn í-Atlasgöngin. Þar liéldu þeir ráð- stefnu í flýti. Atlas sameinaði Paradís og efri göngin. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að sennilega væri minna vatn þar, og því væri ör- uggara að nálgast námuopið eftir Glopegöngun- um. Þegar þeir komu út úr Atlas, rákust þeir á nokkra múrara sem liöfðu verið að vinna í DAVÍB Glopegöngmium og höfðu ekki haft minnstu hug- mynd um vatnið, fyrr en þeir fundu loftið sog- ast inn. Múrararnír höfðu staðið og talað sáman og hlustað kviðafullif, án þess að vita, hvort þeir ættu að vera kyrrir eða fara. Nú slógust þeir í förina með mönnunum þrettán, sem komu upp úr Atlas, og hópurinn var samferða gegnum aðalgöngin inn að námuopinu. Þrem mínútum síðar kom vatnsflóðið eftir aðalgöngunum í paradísinni, upp Atlasgöngin og eftir aðalgöngunum í Glope. Mennirnir heyrðu vatnsniðinn og fóru að hlaupa. Þetta var góður vegur. Gólfið var hart á milli brautarteinanna. það var hátt til lofts, og allir mennirnir voru ungir og sterkir. Sumir þeirra höfðu aldrei hlaupið svona hratt á ævi sinni. Og þó fór vatnið énn liraðar. Hráði þess var ægilegur, það elti þá með djöfullegum ofsa, skali yfir þá þungt og ósigrandi eins og flóðbylgjá. Andartaki áður hafði ekkert vatn verið í öll- um Glopegöngunum, og nú var allt líf þar þurrk- að út. Vatnið fossaði áfram, kom að námuopinu og beljaði niður um það með ægilegum krafti. SVo mættust flóðin. Vatnið sem fossaði ofan úr Glopegöngunum mætti vatninu sem leitaði upp úr Paradísinni. Flóðbylgjan æddi til baka gegnum öll op og öll göng kringum námuopið og þyrmdi engu. Hestarnir fjórir, sem enn voru á lífi, stóðu á básunum — Nigger, Kitty, Warrior og Ginger — og hrinu af ótta. Warrior sló og spárkaði í vatnið og fékk æði á básnum; hann var næstum búinn að liálsbrjóta sig áður en hann drukknaði; en hinir stóðu kyrrir og lirinu og lineggjuðu. þangað til vatnið hafði flætt yfir þá. Þegar hér var komið hafði vatnið hækkað í báðum aðal- námuopunum, fyllt bæði Glope og Paradís og úti- lokað allan aðgang að ofan. Þetta hörmulega slys var jafn óskiljanlegt og það var fljótt að gerast. Það hafði ekki liðið lengri tími en kortér síðan vatnið brautzt inn, og nú þegar höfðu áttatíu og níu menn látið líf- ið, ýmist drukknað, lemstrazt til bana eða kafn- að af námugasi. En Róbert og félagar hans voru enn á lífi. Þeir voru að vinna innst í göngunum, og vatnið streymdi í áttina frá þeim. Róbert heyrði drunurnar þegar vatnið brautzt inn og andartaki síðar fann hann að vatnið sog- aðist burt. Þá vissi hann hvað hafði gerzt og sagði við sjálfan sig: „Guð minn góður, þar kom að því“. Leeming boxari sem lá á hnjánum við hlið hans reis hægt á fætur. „Heyrðirðu þetta, Róbert?" sagði hann ringl- aður. Af gömlum vana sneri hann sér að Róbert til að heyra álit hans. Róbert kinkaði kolli og sagði: „Sjáðu um að allir verði hér kyrrir, þangað til ég kem aftur. Allir“. Hann gekk eftir aðalgöng- unum í áttina að vatnshljóðinu sem drundi í eyrum hans. Hann öslaði áfram, óð dýpra með hverju skrefi, upp í hné, upp í læri, upp. í mitti. Hann vissi að hann lilaut að vera i nánd við gryfjuna, sem lá frá norori til suður's þveht yfir aðalgöngin. Skyndilega missti hann fótanna, og hann þyrlaðist inn í botnlausa hringiðu. Vatn- ið lyfti honum upp þangað til höfuð hans rakst upp undir. Hann greip dauðahaldi í loftið, spyrnti á móti með fótunum og fikaði sig áfram inn göngin, þaðan sem hann kom. Hann íiáði aftur fótfestu, losnaði úr straumsvelgnum qg stóð aftur uppréttur í grunnu vatninu skjálfandi af kulda. Hann vissi alveg hyað liafði kqmið fýr- ir. Vatnið náði upp undir loft í gryfjunni. Það lokáði öllum leiðum sem lágu yfir gryfjuna. : ■ Iskalt vatnið gerði það að verkum að Róbeht fékk hóstakast. Hann stóð kyrr, þangað ti’ kastið var liðið hjá, síðan sneri hann við óg gekk inn eftir aftur. Á leiðinni mætti hann Ppt litla Reedy. Pat var mjög hræddur. „Hvað er að, lierra Fenwick?“ spurði hapn. „Ekkert, vinur minn“, sváraði Róbert. „Komdu með mér“. Með drenginn við hlið sér kom Róbert aftur á vinnustaðinn, og þar stóðu hinir í hóp um- hverfis Leeming boxara; Þeir voru tiu í 'allt. þar á meðal Hughie, Harry Brace, Tom Reedy, Ned Softjey, Swee Messuer og Jesús Grét. Þeir biðu éftir Róbert,- Enginn: þeirra vissi,".að'á þeqs-1 ari stundu voru þeir hinir éinu eftirlifándi í 'aliri Neptúnnámunni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.