Þjóðviljinn - 12.04.1951, Blaðsíða 1
Ritstjéri Verka-
mannsiits !ans
Fimmtudas'ur 12. aprO 1951 — 16. árgangur — 82. tölublað
Friðarvilji almeimmgs knýr Truman
aðgerða gegn siríðsæsingamanninum
Douglas MacArthur hershöíðingi heíur verið
sviptur hernámsstjórn í Japan, yfirstjórn herja
Vesturveldanna í Kóreu og yfirstjórn alls Banda-
ríkjahers í Austur-Asíu. Hershöfðinginn, sem í
fyrradag var einn. af voldugustu mönnum í heimi,
hefur í dag ekki yfir nokkurri hræðu að segja.
Steína MacArthurs að hefja sem fyrst stór-
styrjöld gegn Kína vakti svo eindregna andstöðu
allra friðelskandi manna hvarvetna í heiminum,
að Truman forseti sá þann kost vænstan, að sparka
stríðsæsingamanninum úr öllum ábyrgðarstöðum.
Uppá síðkastið hefur hver
yfirlýsingin rekið aðra frá Mac
Arthur og aðalefni þeirra hafa
verið kröfur um að fá að gera
flug- eða flota'árásir á Kína og
að nota her Sjang Kaiséks á
Taivan til árása á meginland
Kína.
Blaðamenn vaktir
um miðnætti
Um miðnætti í fyrrinótt vakti
blaðafulltrúi Trumans forseta
blaðamenn í Washington og
boðaði þá til Hvíta hússins. Á
mínútunni klukkan eitt var
þeim lesin yfir’lýsing frá Tru-
man, þar sem liann lýsir yfir,
að hann hafi 'ákveðið að svipta
MacArthur þá þegar allri her-
stjórn og skipa í hans stað
Matthew B. Ridgway yfirhers-
höfðingja landhers Vesturveld-
anna í Kóreu. Við yfirstjórn
þess liðs tekur James van Fieet
hershöfðingi, sem stjórnaði
bandarísku íhiutuninni í borg-
arstyrjöldinni í Grikklandi.
Truman lýsti yfir, að hann
hefði komizt að þeirri niður-
Repubíikanar hóta Trum-
an að fá hann settan af
Brottviking M&c&rthurs tildm mestu stjórnmála-
átaka í USA síðan á dögum þrælastríðsins
Stjórnmálamenn í Washington spá því, að brott-
viking MacArthurs muni hafa í för með sér hörðustu
stjórnmálaátök, sem átt hafa sér stað í Bandaríkjunum
i áttatíu ár.
Republikanar ætla að nota
sér herfrægð MacArthurs til
að gera hann að pislarvotti og
telja sér það vænlegt til sig-
urs í forsetakosningunum á
næsta ári.
Ávarpi þingið.
í báðum þingdeildum báru
republikanar í gær fram tillögur
um að MacArthur yrði boðið að
ávarpa sameinað þing til að
gera grein fyrir tildrögum þess,
aö honum var vikið frá. Wherry
formaður þingflokks republik-
ana í öldungadeildinni, lýsti
yfir, að hann hefði talað viö
hershöfðingjann í síma og hefði
hann fallizt á að þekkjast ^líkt
boð. Republikanar breiða það
út, að MacArthur ætli áð halda
inní Washington sem sigursæll
hershöfðingi og taka forystu í
herferð gegn utanríkisstefnu
ríkisstjórnarinnar.
hjóðin klofin.
Bandarískir stjórnmálamenn
játa, að þjóðin sé nú klofin i
íjandsamlegar fylkingar. Há-
værar raddir eru uppi um það i
republikanaflokknum, að gera
beri tilraun til að fá settan
landsdóm yfir Truman forseta
og helztu mönnum úr stjórn
hans einsog Acheson til að fá
þá setta af. Hafa öldungadeild-
armennirnir Jenner og Bridges
borið fram kröfur um það. Til
þess að setja landsdóm þarf
tvo þriðju atkvæða í fulltrúa-
deildinni og til sakfellingar
þarf tvo þriðju atkvæða í öld-
ungadeildinni. Landsdómur hef-
ur aðeins verið settur yfir ein-
um Bandarikjaforseta, eftir-
manni Lincolns á árunum eftir
þrælastríðið.
Meðal þeirra republikana, er
ráðizt hafa á Truman fyr:r
brottvikningu MacArthurs er
Dewey, frambjóðandi þeirra í
siðustu forsetakosningum, sem
til þessa hefur stutt utanríkis-
stefnu stjórnarinnar. Þrír öld-
ungadeiidarmenn republikana
hafa fallizt á aðgerðir Tru-
mans.
Forsetinn ætlaði aö ávarpa
þjóðina í útvarpi 5 gærkvöld.
McArthur
stöðu, að MacArthur væri ekki
fær um að styðja af einlægni
stefnu Bandarikjastjórnar og
SÞ í Kóreu. Jafnframt sagði
hann, að sig tæki sárt að þurfa
að gripa til þessara ráða gagn-
vart jafn ágætum hershöfð-
ingja og MacArthur.
Leyniskjöl birt
Skömmu eftir tilkynninguna
frá Hvíta húsinu birti banda-
ríska herráðið nokkur leyni-
skjöl, fyrirskipanir, sem það
hafði sent MacArthur en hann
virt að vettugi. Var þar á meðal
skipun frá því í desember, þar
íjem hershöfðingjanum var
bannað að gefa nokkrar opin-
berar yfirlýsingar um mjlli-
ríkjamálefni án þess að hafa
fyrst fengið þær samþykktar
af bandaríska utanríldsráðu-
neytinu. Einnig var birtur boð-
skapur, sem herráðið sendi uin
síðustu mánaðamót. Þar er
MacArthur tilkynnt, að með
töku mestallrar Suður-Kóreu
álíti Bandaríkjastjórn tímabært
að leita fyrir sér um friðsam-
leg málalok í Kóreu. Meðal
stuðningsríkja Bandaríkjanna
í SÞ sé það eindregin skoðun,
kaupfiélSum
Brottvikning MacArthurs
hafði þau áhrif á kauphöll-
um í London og New York,
að verðbréf féllu ört í verði
í gær. Orsökin er að brask-
ararnir telja nú auknar
horfur á friði í Kóreu. 1
London féllu hlutabróf í
gullnáimini mest en í New
York hlutabréf í fyrirtækj-
um, sem vlnna að fram-
leiðslu vegna hervæðingar-
innar. Yerðfallið þar nam
milljarð dollara.
r•**■*■*•**•*■*•*•*•*-*■*•*•***■»*■•*■*■*-*■*■*■*+* j
að ekki beri að sækja'með mikl
um liðsafla yfir 38. breiddar-
baug fyrren reynt hafi verið
að koma á friði.
„Hans stærsta stund“
Brottvikning MacArthurs
kom einsog reiðarslag yfir sam-
starfsmenn hans í Tokyo, sem
flestir hafa verið með honum
árum saman og dýrka hann
einsog goð. Einn þeirra, Court
Whitney, var með hérshöfð-
ingjanum er hann fékk skeyt-
ið frá Truman, og lýsir hann
viðbrögðum hans á þessa leið’:
„Það hreyfðist ekki eitt hár á
hershöfðingjanum. Alrei hefur
hann verið hermannlegri. Þetta
var hans stærsta stund“. -—
Fréttaritarar sögðu, að Mac
Arthur hafi dvaliö á heimili
sínu í gær og unnið að samn-
ingu yfirlýsingar, þar sem hann
ætlar að réttlæta afstöðu sína.
Anda léttara
I höfuðborgum Vestur-Evrópu
og aðalstöðvum SÞ í New York
draga menn að sögn fréttarit-
ara andann léttara eftir brott-
vikningu MacArthurs. I Lake
Success er rætt um að Vestur-
veldin gefi út yfirlýsingu um
að með töku allrar Suður-Kór-
eu sé hernaðarlegu markmiði
þeirra í Kóreu náð.
Þórir Daníelsson, ritstjóri
Verkamannsins á Akureyri kom
í gær úr því 15 daga fang-
elsi er Bjarni Benediktsson
dómsmálaráðherra lét dæma
hann í fyrir meiðyrði um hinn
landskunna sáttasemjara í
vinnudeilunum 1947, Þorstein
M. Jónsson, o. fl. mektarmenn
á Akureyri.
Álíka ummæli og þau er
Þórir var dæmdur fyrir m'á svo
að segja lesa daglega í öll-
um dagblöðum höfuðborgarinn-
ar. Verði framhald á slíkum
dómum er ekki ólíkiegt að
ritstjóra landsins verði flesta
að finna innan veggja á Skóla-
vörðustíg 9 1 Reykjavík. —■
Máske halda þeir innan þeirra
veggja áfram umræðunum og
mótmælunum gegn meiðyrða-
löggjöfinni, sem Bláðamanna-
félag Islands hóf fyrir mörgum
árum og ritstjóri Morgunblaðs-
ins var málshefjandi að.
Krýningarsteinninei sagður
kominn í skozka kirkiu
Þrír óþekktir menn skildu í gær eftir stein í kirkju-
rústum á Skotlandi, og bendir allt til að’ þar sé kominn
krýningarsteinninn, sem hvarf. úr Westminster Abbey á
íólanótt í vetur.
Mennirnir komu í bíl og tóku
úr skottinu á honum stein, sem
þeir- báru að háaltarinu í kirkj-
unni, sem er að mestu í rúst-
um. Kirkjuvörðinn báðu þeir að
taka við síeininum og tveim
nafnlausum bréfum.
Annað þeirra er til Georgs
konungs, og segir þar, að steinn
inn hafi ekki verið tekinn til
að gera konungi eða f jölskyldu
hans miska heldur tif að draga
athygli að réttmætri kröfu
Skota um sjálfstjórn. í hinu
bréfinu er heitið á stjórn
skozku kirkjunnar að sjá um.
að steininn verði ekki fluttur
á brott úr Skotlandi. Kirkju-
rústirnar, sem steinninn var
fluttur til, eru á þeim stað,
þar sem Skotar lýstu yfir sjálf-
stæði sínu 1320.
Steinninn var í gær fluttur
til næstu lögreglustöðvar og
tveir sérfræðingar Scotland
Yard, sem hefur leitað hans
árangurslaust, voru á leið
þangað til að ganga úr skugga
um, hvort hann væri sá rétti.
Botviiiník Wz
BronsteÍR Wz
1 kcppninni um heimsmeist-
aratitilinn í skák er nú búið að
tefla 12 skákir af 24 og vann
Botvinnik þá seinustu. Hefur
hann nú 61/2 vinning en Bron-
stein 5Yíí
BANDARÍSKA herstjórnin í
Kóreu tilkynnti í gær, að al-
þýðuherinn hefði víða gert
harðar gagnárásir í gær Þá
taldi hún sig hafa fengið vitn-
eskju um að alþýðuhernum
heíði nýlega borizt um 100.000
manna liðsauki og teldi hann
nú um 650.000 menn.