Þjóðviljinn - 12.04.1951, Síða 8
AtvigmnleYsisskrázting verka-
lýðsiélaganna heist í dag
Allir aívisiiiMÍ^iisÍF eéa i síopiilii visiim
þitFÍa zið isiælst iil skráiilMgaFÍiiu-
ar Isjá lélagi' sinu
Atvinnuleysisskráningin er verkalýðsíélögin
í Reykjavík ákváðu að íramkvæma á sínum eigin
vegum, hefst í dag.
Nauðsynlegt er að allir .sem eru atvinnulausir,
eða hafa nú og undanfarið haft stopula vinnu mæti
til skráningarinnar, til þess að hægt verði að kom-
ast að réttri niðurstöðu um það hvernig atvinnu-
ástandið raunverulega er. Þeir sem hafa nú eða
hafa haft undanfarið lélega og stopula vinnu þurfa
einnig að mæta til skráningarinnar.
Verkamenn ættu að minnast þess, að ef þeir
sitja heima eru þeir beinlínis að styrkja aftur-
haldið í þeirri fullyrðingu að hér sé „ekkert veru-
legt atvinnuleysi".
Mætið því öll til skráningarinnar hjá félagi
ykkar!
DAGSBRÚN byrjar skráninguna kl. 10 f.h. í dag í
skrifstofu Dagsbrúnar og stendur hún til 12, hefst aftur
kl. 2 e. h. og stendur til kl. 6 síðdegis, og verður sami
skráningartími hjá Dagsbrún næstu daga.
FRAMSÓKN. Atvinnuleysisskráning v.k.f. Framsókn-
ar hefst kl. 2 e. h. og stendur til kl. 6 síðdegis. Verður
sami skráningartími daglega nema á laugardag frá kl.
10—12 fyrir hádegi.
IÐJA. Atvinnuleysisskráning Iðju félags verksmiðju-
lólks fer fram í skrifstofu félagsins á tímanum frá kl.
10 f. h. til kl. 6 síðdegis næstu daga.
SJÓMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR byrjar atvinnu-
Ieysisskráningu í dag kl. 3 e. h. í skrifstofu félagsins, og
fer skráningin fram 12„ 13. og 14. ]>. m. frá kl. 3—6
alla dagana.
ÞRÓTTUR. Atvinnuleysisskráning hefst hjá vörubíl-
stjórafélaginu Þrótti í dag og mun standa næstu daga.
Fiskiðjuver ríkisins gæti
arsamnmga
Landsfundur Vinnuveitenda-
sambands Islands, haldinn 19.
tál 21. þ. m. ákvað að taka upp
viðræður við stjórn Alþýðu-
sambandsins um heildarsamn-
inga milli þessara aðila „til
þess að tryggja vinnufrið í
Iandinu“, eins og það er orðað,
þ. e. að þessir tveir aðilar
ráði kaup- og kjarasamningum
allra verkalýðsfélaga í landinu.
Vinnuveitendasambandið og
A.S.Í. hafa nú skipað 3 menn
hvor aðili til þessara viðræðna.
Fyrir Vinnuveitendasamband-
ið semja Kjartan Thors for-
maður þess, Benedikt Gröndal
verkfræðingur og Björgvin Sig-
urðsson framkvæmdastjóri sam-
bandsins.
Fyrir Alþýðusambandsstjórn-
ina semja Jón Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri þess, Ingimundur
Gestsson framkvæmdastjóri og
Guðmundur Sigtryggsson, sá
er flýði sveitasæluna að norðan
og miðstjórn Framsóknarflokks
ins tilnefndi scm fulltrúa Dags-
brúnah í stjórn Alþýðusam-
bandsins — áður en Dagsbrún-
armenn höfðu fengið tækifæri
til að bera kennsl á þenna á-
gæta sveitamann.
afkastað miklu meira
Sverige-Island
ef vélar ©g vizmuafl væri fulhiotðo
gefur úf tímariS
Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs hefur Fískiðjuver ríkisins
tekið á móti rúmlega 1200 tonnum af fiski. Mestur hluti hans,
eða um 14000 kassar, hefur verið hraðfryst.
ÍHraðfrysti fiskurinn hefur
verið verkáður nokkuð að jöfnu
fyrir Ameríku- og Evrópu-
markað. — Á þessum tíma hef-
ur Fiskiðjuverið soðið niður
um 1000 kassa af hrognum.
Hrognin eru eftirsótt vara, en
nokkrum erfiðleikum hefur ver-
ið bundið að fá gott hráefni til
þeirrar fram’leiðslu.
Þegar unnið er bæði að nið-
ursuðu og frystingu, vinna um
Banaslys á togar-
anum Isborg
Banaslys varð um borð í
togaranum ísborg í fyrramorg-
‘un. Skipið var að veiðum úti
fyrir Vesífjörðum, í'ékk á sig
broltsjó með þeim afleiðingum
að einn af skipverjum, Jón
Valgeir Magnússon beið bana.
Hann skolaðist aftur eftir þil-
farinu og mun hafa lent á tog-
spilinu. ísborg hélt strax til
Patreksfjarðar til að fá lækn-
ishjálp, en er þangað kom var
maðurinn látinn. Jón V. Magn-
ússon var kvæntur og átti þrjú
börn.
70 manns í Fiskiðjuverinu, en
mikið vantar á að unnið hafi
verið með fullum afköstum í
vetur.
Dr. Jakob Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri er nú staddur
vestanhafs, og vinnur hann að
markaðsöflun o. fl. fyrir Fisk-
iðjuverið.
Á síðastliðnu hausti fékk
Fiskiðjuverið lán að upphæð
1 mi'llj. og 200 þús. krónur í
Englandi. Er það ætlað til véla
kaupa, en sökum langs af-
greiðslufrests hefur ekki enn
tekizt að fá allar þær vélar
sem óskað hefur verið eftir.
1562 fæðingar
Hin nýja fæðingardeild Lands-
spítalans hafði starfao í eitt
ár um sl. áramót. Hjúkrunar-
kvennablaðið skýrir frá því, að
á þessu fyrsta starfsári deild-
arinnar hafi fæðzt þar 1562
börn og voru 11 af fæðingun-
um tvíburafæðingar. Sveinböm
fæddust 840 og meybörn 722.
Er þetta mun meira en á gömlu
fæðingardeildinni, en þar urðu
flestar fæ'ðingar á ári 619.
Félagið Sverige-Island hefur
hafið útgáfu tímarits er á að
koma út tvisvar á ári, en fé-
lagi'ð er nú 20 ára, stofnað
alþingishátíðarárið 1930.
I þetta fyrsta hefti skrifar
forseti Islands, herra Sveinn
Björnsson;:i En hálsning och ett
tack frán Isiands president.
Prófessor Elias Wessén skrif-
ar: Ur Samfundets Sverige-Is-
lands historia. Helgi P. Briem
sendiherra skrifar um ísland:
Uppkomsten av namnet Island,
og fylgja greininni margar
prýðilegar myndir frá Islandi.
Sigurður Þórarinsson prófessor
skrifar: Kulturglimt frán Is-
land. Ennfremur er grein eftir
Malte Pripp um Svensk-Islánd-
ska handeln og ferð Islands-
cirklen s. 1. sumar hingað til
lands.
Flokksskóliim
Munið flokks-
slcólann í kvöld
að Þórsgötu 1.
Einar Olgeirs-
son heldur á-
fram erindafl.
sínum um ís-
Ienzlc stjórnmál
og: Ásgeir Blön-
dal talar um
marxismann. — Síðasta sinn. —
Fimmtudagur 12. apríl 1951 — 16. árgangur — 82. tölublað
því ú naínið væri slrikil út!
Sundrungaragentarnir ætluðu sér að
þvæla IÍRON ut í langvarandi
málferli
Það hefur nú komið í ljós að sundrungarpost'ularnir í
KRON höfðu bundizt samtökum um að þvæla félaginu út í
málaferli, og ætluðu sér að nota þáu 1—2 ár sem þau málaferli
hefðu staðið til látlausra rógsherferða gegn samvinnumönnum
í KRON. Með því móti hugsuðu þeir sér að ala á sundrungu
innan félagsins, en það er að þeirra dómi eina leiðin til að
leggja þessi hagsmunasamtök reykvískrar alþýðu í rúsíir.
Þessi áform sundrungarmanna afhjúpaði Sigurður G‘uð-
mundsson á Vinnumiðlunarskrifstdfunni á spaugiiegasta hátt á
kjörstjórnarfundi í fyrrakvöld, ]»egar komið var í veg fyrir
t'ð þau mættu takast.
Málavextir eru þeir að fyrir
nokkru barst kjörstjórn KRON
bréf frá 15 mönnum sem
„kröfðust“ þess að nöfn þeirra
væru numin burt af hinum
einróma tillögum hverfisstjórn-
anna í KRON um fulltrúaval,
Meðal þessara manna voru
Seingrímur Steinþórsson for-
sætisráðherra, Hannes Jónsson
félagsfræðingur, Hannes Jóns-
son fyrrverandi kaupmaður og
Sigurður Guðmundsson á vinnu-
miðlunarskrifstofunni; er kem-
ur sérstaklega við sögu.
Krafa þessi kom fram löngu
eftir að framboðsfrestur var
liðinn, og sá kjörstjórnin sér
því ekki fært að verða við
lienni. Þegar það svár var
fengið sneri einn krefjendanna,
Kristjón Kristjónsson, fulltrúi
Framhald á 6. síðu.
ðtsvör [ Hafnarf.
Fjárhagsáætlun Ilafnarfjarð-
ar var afgreidd á bæjarstjórnar
fundi í fyrradag. Niðurstöðu-
tölur hennar er 6 millj. 112 þús.
650 kr. Útsvör eru áætluð 5
millj. 492 þús. 650 kr., en voru
í fyrra 4 millj. 797 þús. og 50
kr. og hafa því hækkað um nær
700 þús. kr., eða tæpa miljj. ■—
Til verklegra framkvæmda er
áætlað 1 millj. og 300 þús. kr.
fiiosicl llllft
helglua
Athygli lesenda skal vak-
in á auglýsingu frá kjör-
stjórn KKON í blaðinu í
dag urn kosningarnar, en
þær fara fram á laugardag
og sunnudag. Verður kosið
í sex kjördeilduni.
VegÍF tepptust
I hríðarveðrinu í fyrradag
spilltust flestir vegir meir og
minna og Mosfellsheiðarvegur-
inn og Krýsuvíkurvegurinn lok-
uðust báðir, ennfremur Grinda-
víkurleiðin.
I fyrrinótt gistu milli 20—30
bílstjórar í Krýsuvík, vegna
þess að vegurinn meðfram
Kleyfarvatni var tepptur.
Vegagerð ríkisins sendi snjó-
ýtur sínar 'á vettvang snemma
í gærmorgun og var Krýsuvík-
urleiðin sæmileg í gær. Enn-
fremur var Grindavíkurvegur-
inn opnaður. Hvalfjarðarleiðin
spilltist litið og var fær. —
Austanfjalls urðu vegir ófærir
um tíma vegna fannkomunnar.
Norðaustanveðri er spáð
fram eftir deginum í dag og
jafnvel nokkurri snjókomu.
Leigfftmiillun Fastelgisaeig-
endafélagsiiis
Eitt af því sem Leigjendafélag Reykjavíkur hefur hafið
baráttu fyrir er að komið verði á fót nokkurskonar húsnæðis-
miðstöð, er bæði húseigendur og leigjendur geta snúið sér til,
þannig að húseigendur tilkynsi skrifstofunni laust húsnæði og
leigjendur Ieiti þangað um húsnæði til leigu, og verði ]>ar einnig
gerðir leigusamningar.
Að því er segir í frétt frá
Fasteignaeigendafélaginu var á
síðasta fundi í félaginu „sam-
þykkt að gera tilraun með að
koma á fót leigumiðlun í því
skyni að létta undir með fólki
um öflun húsnæðis og spara
bæði húseigendum og leigjend-
um kostnað og fyrirhöfn, eftir
því sem unnt væri....
Leigumiðlunin verður starf-
rækt þannig, að fólk sem vant-
ar húsnæði, getur gefiö sig
fram í skrifstofu Fasteignaeig-
endafélagsins og látið skrá sig
þar. Þess er vænzt, að þeir
húseigendur sem hafa íbúðir
til leigu, snúi sér til skrifstof-
unnar og kynni sér það, hvort
þar séu ekki skráðir menn sem
þeir gjarna vildu fá sem leigj-
Framhald á 7. síðu.