Þjóðviljinn - 22.04.1951, Page 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 22. apríl 1951
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Hagnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnaaon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Simi 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: kr. 15.00 á mánuði. — Lausasöluverð 75. aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Hannibal Valdimarsson skýrði frá því í eldhúsdagsumræð-
unum siðustu að Bandaríkin hefðu sett það að skilyrði fyrir
100 millj ikr. aukalegum mútugjöfum að ríkisstjórnin festi kaup-
gjaldsvísitöluna með þrælalögum og kæmi í veg fyrir að alþýðu-
samtökin svöruðu hinni skipulögðu verðbólgu með hækkuðu
kaupi. Frásögn þessari var ekki mótmælt og þarmeð var opin-
berlega staðfest að marsjall,,hjálpin“ er orðinn beinn stríðs-
kostnaður íslenzku auðmannaklíkunnar í átökunum við al-
,menning.
1 samræmj við þetta hafa svo Bandaríkin greitt fyrstu af-
borgun af mútum þeim sem boðaðar voru um áramót. Nema þær
2,2 milljónum dollara eða um 36 milljónum króna. I tæpa 10
mánuði hefur ríikisstjórnin þá veitt viðtöku 5,4 milljónum doll-
ara eða tæpum 90 milljónum króna, 9 milljónum á mánuði,
300.000 kr. á dag — eða 50.000 krónum á hvern ráðherra dag-
lega. Og það er von á meiru, ef ríkisstjórnin beitir allri orku
til að berja niður baráttu verklýðsfélaganna og leiðir heldur
yfir þjóðina hörðustu innanlandsátök en að launþegar fai nokkra
bót til að vega upp afleiðingar hinnar skipulögðu dýrtíðar.
Frá því að marsjallkerfið komst á laggirnar fyrir tæpum
þremur árum hafa ríkisstjórnir auðmannaklíkunnar hins vegar
veitt móttöku 24,7 milljónum dollara — eða sem svarar rúmum
400 milljónum dollara miðað við núverandi gengi íslenzkrar
krónu, marsjallgengið. Af þessari upphæð nema beinar „gjafir“
16,9 milljónum dollara, eða um 276 milljónum króna, einnig
miðað við marsjallgengið. Hið íslenzka andvirði þessara „gjafa“
er sem kunnugt er lagt í sérstakan sjóð sem ekki má nota nema
með náðarsamlegu leyfi Bandaríkjanna. Með þessari tilhögun
hafa Bandaríkin fengið yfirráð yfir svo verulegum hluta af
lausafé almennings að þau hafa getað ráðið öllu sem ráðamenn
. þeirra kærðu sig um í efnahagslífi íslendinga. Þeirri aðstöðu
hefur óspart verið beitt, og ekki er kunnugt um að ríkisstjórnin
hafi flíkað öðru en hundslegri auðmýkt sinni.
En það eru ekki aðeins yfirráðin yfir mótvirðissjóðnum
sem fært hafa Bandaríkjamönnum hin algerustu völd yfir efna-
hagslífi íslendinga. Nú er svo komið að æ meira af nauðsynjum
landsmanna er flutt inn fyrir marsjallfó. Um síðustu áramót
gerði ríkisstjórnin þá ráðstöfun að láta verja 100 milljónum
■króna af gjaldeyri þeim sem Islendingar afla sjálfir til sérstaks
innflutnings sem ekki má ná yfir neinar nauðsynjavörur. Nauð-
synjavörurnar á fyrst og fremst að flytja inn fyrir hinar vest-
rænu náðargjafir, svo að Bandaríkin fái einnig þá aðstöðu að
hóta íslendingum að svipta þá hversdagslegustu nauðþurftum
Æf á þarf að halda. Og hver verður aðstaða Islendinga þegar
marsjalláætluninni lýkur eftir þessa sérstæðu „viðreisn"?
íslenzkur almenningur þekkir orðið af sárri raun þær gjafir
,$em honum hafa verið gefnar af hinum erlendu valdamönnum.
jFólkið hefur ekki orðið vart við þær 400 milljónir sem ríkis-
stjórnin hefur þegið. I staðinn hefur það á ný fengið að kynn-
ast framleiðslubanni og atvinnuskorti, sívaxandi verðbólgu og
sílækkandi kaupgjaldi, fátækt og sáru basli. Og nú þegar svo
,er þrengt að, að engin tök eru að komast hjá kaupgjalds-
þaráttu, kasta yfirmenn marsjallkerfisins 100 milljónum króna
aukalega i íslenzku ríkisstjórnina með því skilyrði að hún berji
niður alþýðusamtökin. 100 milljónir króna eru mikið fé og ríkis-
stjórnin reiknar með að ekkert saki þótt framleiðslustarfsemin
eé stöðvuð um skeið á meðan múturnar endast.
Það er því vissulega ekki að ástæðulausu að félög þau
sem nú hafa sameiginlega snúizt til baráttu fyrir mánaðar-
legri vísitölu hafa krafizt þess af Alþýðusambandsstjórn að
hún tryggi fjárframlög frá því alþjóðasambandi sem A.S.I. er
meðlimur í ef deilurnar verða langvinnar. Auðmannastéttin
ætlar að heyja baráttu sína með erlendu mútufé, og þá ber
stjórn Alþýousambandsins að tryggja verklýðssamtökunum þá
aðstöðu að ekiki takist að svelta þau til hlýðni. Er ekki að efa
að hinir erlendu samherjar Alþýðusambandsstjórnar muni Skilja
jþessa aðstöðu cg láta í té fyllsta stuðning.
BÆJARPOSTIRINN
heldur leggja dómararnir bless-
un sína yfir þetta lagabrot
(með varaformann F.R.I. í fylk
ingarbrjósti) og veita Ármanni
þá sérstöku ánægju að sigra
sjálfan sig. Þetta er ekki skrif-
að með neinn félagsríg í huga
— þyert á móti — aðeins lang-
ar mig til að fá hljóð úr horni
stjórnar Frjálsíþróttasambands
ins. — Það þykir nefnilega illa
viðeigandi að troðið sé á lög-
unum, og það á svona opinber-
an hátt. — Óánægður."
□
Því ekki leigja
móð'urskip?
Loks er stutt fyrirspurn:
„Mér skilst, á umræðum um
útgerðarmál okkar þessa dag-
ana, að helzt muni vanta stór
móðurskip til þess að við get-
um gert út á hin fengsælu síld-
armið við Jan Mayen. Getum
við ekki fengið slík skip leigð
lijá öðrum þjóðum? Eimskipa-
félagið hefur löngum haft margt
leiguskipa I þjónustu sinni. Ég
skil ekki í öðru en að ísl. ríkið
sem slíkt gæti eins vel útvegað
sér til leigu nauðsynlegt skip í
nefndu augnamiði. — Bj. Þór“.
láaZlUIHtUútUMtXBXmiam&'-'-
* ★ *
Krían og hvönnin í
Tjarnarhólmanum.
„Skrítinn fugl“ skrifar: —
„Mér er sagt, að slökkviliðs-
menn hafi brugðið sér út í
Tjarnarhólma með skóflui, og
mun erindi þeirra aðallega
hafa verið að stinga upp hvanna
rætur. Er þetta vafalaust gert
í þeim tilgangi að láta hólm-
ann verða byggilegri fyrir krí-
una, sem er sögð mjög treg
til að verpa nema á berangri.
— Nú er það varla meiningin
að útrýma með öllu hvönn úr
hólmanum. En ég vil vara
þessa góðu menn við því að
ganga of langt í þessu efni.
Því að enda þótt hvönnin hafi
ef til vilí dregið nokkuð úr
áðsókn kríunnar í hólmana,
þá hefur hún boðið öðrum fugl-
um þar friðland fyrir egg sín,
öndunum. Og hver vill verða til
að flæma endurnar úr hólman-
um? Enn er þó ótalin ein sterk-
asta röksemdin í þessu máli.
og hún er sú prýði, sem hólm-
anum veitist af vexti hvannar-
innar. .... Við skulum sem
sagt gæta þess að dálæti okkar
iá kríunni hlaupi ekki með okk-
ur í gönur. Einn skrítinn fugl“.
□
Illa gengur með mjóltkur
flöskurnar.
Kristín skrifar: „Það þótti
mikil þrifnaðarbót í mjólkur-
málum bæjarins, þegar aftur
var farið að afgreiða mjólkina
í flöskum. .. . En nú hefur
málunum hinsvegar hrakað svo
aftur, að flöskumjólkin fæst
ekki nema rétt aðeins fyrst á
morgnana, fram til hádegis þeg-
ar allra bezt lætur. En þar með
er þó ekki öll sagan sögð. Þeir,
sem hafa verið svo óheppnir að
brjóta mjólkurflöskur sínar,
eða hafa ef til vill aldrei átt
neinar, þeir eiga þess engan
ikost að kaupa flöskumjólk, eins
og nú er ástatt. Afgreiðslustúlk
unum hefur nefnilega verið
bannað að selja glerið! . . Ég
veit ekki hvað þessu volæði
veldur, en erfitt á ég með að
skilja hvers vegna íbúar Reykja
víkur verða, einir íbúar allra
menningarborga heimsins, að
fara þess á mis að fá mjólk
sína afgreidda í flöskum. —
Kristín.“
□
5 manna sveitin í
víðavangshlaupinu.
„Óánægður" skrifar:
„Ég var einn þeirra, er lögðu
leið sína suður í Hljómskála-
garð á sumardaginn fyrsta, til
að horfa á viðavangshlaupið. I
sjálfu sér fór hlaupið ósköp
eðlilega fram. Ármann var vel
kominn að því að sigra þriggja
manna sveitarkeppnina, en um
fimm manna sveitarkeppnina
gildir öðru máli. Það ku nefni-
lega standa einhversstaðar í
lögum I.S.I. að sveitarkeppni
sé því aðeins lögleg, að tvær
sveitir minnst taiki þátt í hlaup
inu. Hér var það aftur á móti
aðeins ein 5 manna sveit, sem
tók þátt í hlaupinu, svo eftir
lögunum hefði 5 manna sveitar-
keppnin verið úr sögunni.
□
Hvað segir stjórn
sambandsins?
„En þó var það ekki svo,
EIMSKIB:
Brúarfoss kom til London 16.4.
fer þaðan ca. 23.4. til Grimsby,
Hull og- Reykjavíkur. Dettifoss fór
frá' Neapel í ítalíu 17.4. vaentan-
legur til Haifa i Palestínu 21.4.
Fjalifoss er i Reykjavík. Goðafoss
er i Rotterdam fer þaðan til R-
víkur. Lagarfoss fer frá Gauta-
borg 21.4. til Reykjavíkur. Trölla
foss fór frá Reykjavík 14.4. til N.
Y. Tovelil fermir í Rotterdam um
21.4. til Reykjavíkur. Barjama
ermir í Leith um 25.4. til Reykja
vikur. Dux fermir í Amsterdam
um 26.4. til Reykjavíkur. Hilde
fermir í Rotterdam um 27.4. til R-
víkur. Hans Boy fermir í Álaborg
og Odda í Noregi í byrjun maí
til Reykjavíkur. Katla fer frá
Reykjavík í næstu viku til N.Y.
fermir þar vörur til Reykjavikur.
SKIPADEILD S.I.S.:
Hvassafell losar sement fyrir
norðurlandi. Arnarfell er á leið
til Blyth í Skotiandi. Jökulfell er
væntanlegt til Reyðarfjarðar á
morgun, frá Kbh.
SKIPAÚTGERÐ RIKISINS.
Hekla verður væntanlega á Akur
eyri í kvöld. Esja fer frá Reykja
vík kl. 24.00 í kvöld vestur um
land til Akureyrar. Herðubreið fó.r
frá Reykjavík í gærkvöld austur
um land til Bakkafjarðar. Skjald
brejð var á Akureyri í gær. Þyrill
verður í Hvalfirði í dag. Ármann
átti að fara frá Reykjavík í gær-
kvöld til Vestmannaeyja.
Rafmagnsskömmtunin
1 dag kl. 11—12 verður straum-
laust frá Sogsvirkjuninni á 3.
hluta orkusvæðisins, sem nær yfir
Hlíðarnar, Norðurmýri, Rauðarár-
holtið, Túnin, Teigana og svæðið
þar norð-austur af.
Næturlæknlr er í læknavarð-
Btofunni. — Sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki. — Sími 1760.
HVAÐ getur þú gert til að
útvega Þjóðviljanum nýja á-
skrifendur ?
Á sumardaginn
fyrsta opinberuðu
trúlofun sína, ung-
frú Svanhvít Ing-
: varsdóttir frá Grá-
síðu i Kelduhverfi
*og Jónas Þórólfsson frá Hraun-
koti, Aðaldal. — Á sumardaginn
fyrsta opinberuðu trúlofun sína,
ungfrú Jóhanna Kolbeins, Meðal-
holti 19 og Árni Þór Jónsson, póst
maður, Fjölnisvegi 13, Reykjavík.
Á sumardaginn
fyrsta voru gef-
in saman í
hjónaband af
sr. Garðari
Svavarss. ung-
frú Stefanía Guðmundsdóttir og
Reynír Á. Ármannsson, póstm.
Heimili þeirra er á Laugateig 16.
Helgidagslæknir: Bergsveinn ÓI-
afsson, Ránargötu 20. Sími 4985.
i I j Hjónunum Elínu
Guðmundsdóttur
f /jj ^ og Stefáni Ög-
\ * mundssyni, Þing-
f K. holtsstr. 27, fædd-
jst 15 marka dóft-
ir 18. april. — Hjónunum Sigríði
Guðmundsdóttur og Kristni Ara-
syni, Grettisgötu 75, fæddist ný-
lega 15 marka sonur.
- «
11.00 Morguntón-
leikar a) Kvartett
í B-dúr op. 76 nr.
4 (Sólaruppkom-
an) eftir H.aydn
(International
strengjakv. leikur). b) Kvartett í
a-moll op 132 eftir Beethoven
(Capet kvartettinn leikur). 14.00
Messa í Aðventkirkjunni: Óháði
frikirkjusöfnuðurinn í Reykjavík
(séra Emil Björnsson). 15.15 Mið-
degistónleikar (plötur): a) Þáttur
,um franska tónskáldið Heator
Berlioz, ásamt tónleikum af plöt-
um (Sigurður Sigurðsson). b)
„Fordæming Fausts", hljómsveitar
verk eftir Berlioz (Philharm.
hljómsv. í London; Beecham stj.).
16.15 Ótvarp til Islendjnga erlend
is: Fréttir. 18.30 Barnatimi (Bald-
ur Pálmason): Frásaga (Theó-
dór Árnason). b) Harmonikuleik-
ur (Gunnar Guðmundsson). c)
Framhaldssagan: „Tveggja daga
ævintýri" (Gunnar M. Magnúss).
10.30 Tónleikar (plötur): Ballade
i g-moll og önnur píanólög eftir
Grieg (Leopold Godowsky o. fl.
leika). 20.20 Tónleikar (plötur):
„Dansskólinn", ballettmúsik eftir
Boccherini (Philhaim. hljómsv. í
London; Dorati stj.). 20.35 Erindi:
Hugleiðingar útlendings um Is-
land; I.: Danir og íslenzkaii
(Martin Larsen lektor). 20.55 Ein-
leikur á píanó; Þórunn S. Jóhanns
dóttir leikur: a) Fantasía og fug-
hetta í B^-dúr eftir Bach. b) Són-
ata op. 79 í G-dúr eftir Beethoven.
c) Prelúdía op. 11 eftir Scriabin.
d) Vals í Des-dúr op. 64 nr. 1
eftir Chopin. 21.25 Upplestur:
„Mona", smásaga eftir Dorothy
Parker (Edda Kvaran leikkona).
21.45 Tónleikar (plötur): Ungversk
fantasía fyrir flautu og píanó
eftir Doppler (Marcel og Louise
Moyse leika). 22.05 a) Danslaga-
keppni. Skemmtifélags góðtempl-
ara. b) Ýmis danslög af plötum.
— 01.00 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
8.30 Morgunútvarp. 9.00 Hús-
mæðraþáttur. 10.10 Veðurfregnir.
12.10 Hádegisútvarp. 13.00 Óska-
lög sjúklinga (B.R.E.). 15.30 Mið-
degisútvarp. 16.25 Veðurfregnir.
18.20 Framburðarkennsla í esper-
anto. 18.30 Islenzkukennsla; II.
fT. 19.00 Þýzkukennsla; I. fl. 19.30
Tónleikar: Lög úr kvikmyndum
(plötur). 20.20 Útvarpshljómsveit-
in; Þórarinn Guðmundsson stjórn-
ar; a) Islenzk alþýðulög. b) ,Suite
L’Arlesienne" eftir Bizet. 20.45 Um
daginn og veginn (Ingólfur Krist-
jánsson blaðamaður). 21.05 Ein-
SÖngur: Alexander Kipnis syngur
(plötur). 21.20 Erindi: Sauðfjár-
eign íslendinga á síðari öldum
(Gísli Guðmundsson alþm.). 21.45
Tónleikar (plötur). 21.50 Frá
Hæstarétti (Hákon Guðmundsson
hæstaréttarritari). 22.10 Létt lög
(plötur). 2.30 Dagskrárlok.