Þjóðviljinn - 25.04.1951, Side 3
Miovikudagur 25. apríl 1851 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Undanfarin ár, og þó sérstaklsga nú undanfarna
rnánuöi hefur afkoma verkalýösins, og alls vinnandi
fólks fariö hraðversnandi. Meö hinni skipulögöu og sí-
vaxandi verðbólgu hafa launþegarnir sífellt færst fjær
því aö geta sómasamlega lifaö af launum sínum. Ofan
á allt þetta hefur svo bætzt verulegt atvinnuleysi. — Þaö
gat ekki hjá því fariö að þessi þróun leiddi til stétta-
átaka. Hið vinnandi fólk er beinlínis nauöbeygt til aö
taka upp hanzkann og reyna aö verja lífskjör sín.
Nú fyrir skömmu hafa nokk-
ur af stærstu og þýðingar-
mestu verkalýðsfclögunum
sagt upp samningum sínum við
atvinnurekendur, og í næsta
mánuði má reikna með víðtæ'.c-
ari og harðvítugri stcttaátök-
um en hér hafa átt sér stað
um langt skeið. Ef til vill
verða þessi átök þau hörðustu
sem nokkurn tíma hafa átt sér
stað hér á landi.
Það ^hefur nú um alllangt
skeið verið hér hlé á harðri
stéttabaráttu.' Megin liluti
æskunnar sem upp hefur vaxið
seinni hluta styrjaldarinnar og
síðan, þekkir stéttabaráttuna
þar af leiðandi aðeins lítillega,
og þá mest af afspurn. Og at-
vinnuleysinu hefur þetta unga
fólk ekki kynzt neitt, fyrr en
á síðastliðnum vetri.
Eigi þessi æska, sem nú í
fyrsta sikipti á að taka virkan
þátt í baráttunni fyrir brauði
sinu, að geta orðið sjálfri sér
trú, og orðið stétt sinni að veru
legu liði, verður hún nú að
læra að skilja til lilítar eðli
og inntak þessarar baráttu.
Ælskulýðssíðunni fannst því
tímabært að gera hér eina til-
raun til að skýra stéttabar-
áttuna í heild, eðli hennar og
frumstæðasta tilgang. •— Hér
verður þó vitanlega að taka
viljann fyrir verkið, því að
tími og rúm er takmarkað, en
milcið efni við að fást..
FRAMLEIÐSLUKERFI
AUÐVALDSINS.
1 þjóðfélagi, eins og því sem
við lifum i, er daglega háð
grimm barátta. Þeir sem eig-
ast við í þessari baráttu eru
fyrst og fremst hinar tvær
stóru stéttir: auðmannastéttin
og verkalýðurinn. — Hið sí-
fellda þrætuepli er auðvitað
gæði lífsins. Það er að segja
skipting þeirra auðæfa sem
þjóðin framleiðir á hverjum
tíma.
Málum þessum er þann veg
skipað, að auðmannastéttin eða
,,hið frjálsa einstaklingsfram-
tak“, eins og hún sjálf er vön
að kalla sig, á eða ræður yfir
flestum þeim tælkjum sem nauð
synleg eru til framleiðslunnar.
Sömu sögu er einnig að segja
um það fjármagn sem nauð-
synlegt er til að þessum tækj-
um sé haldið gangandi, það
ýmist á hún, eða hefur a.m.k.
full umráð yfir því.
Verkalýðurinn aftur á móti
hefur hvorki fjármagn né tæki
til umráða. En hann á og ræð-
ur yfir þriðja aflinu, sem nauð-
synlegt er til framleiðslunnar,
því aflinu sem hitt hvort-
tveggja byggist á, hinu mann-
lega vinnuafli.
SKILYRÐI AUÐVALDS-
FRAMLEIÐSLUNNAR. .
Til þess að framleiðsla geti
átt sér stað, við þessi skilyrði,
LANDNEMINN
Á síöasta félagsfundi Æskulýðsfylkingarinnar
1 Reykjavík var samþykkt einróma aö hefja her-
ferð til söfnunar nýfra áskrifenda aö málgagni
Æ s k u 1 ýös fy Ik i níj a r i n n a r -— LANDNEMANUM. í
því sambandi var skoráö á allaúélagja.déiidapnn-
ar aö afla sem flestra nýrra áskrifend^a íýr'i'r ’ li júní
næstkomandi og þeim heitiö verolaiÍiÍLfm; fevo sem
hér segir:
Sá, sem safnar 20 áskrifendum cöa fleirum
fyrir 1. júní, fær að gjöf alla fjóra árganga
LANDNEMANS bundna í skinnband.
SÁ, sem safnar 10—20 áskrifendum fyrir 1.
júní, fær sjálfur ókeypis 5. árganginn.
Stjórn Reykjavíkurdeildarinnar og Landnema-
nefndin skora á alla meðlimi Æskulýösfylkingarinn-
ar aö taka virþan þátt í þessari áskrifendasöfnun
og hafa samstarf við skrifstofuna áð Þórsgötu 1.
í síma 7510 er tekiö á móti nýjum áskrifendum aö
LANDNEMANUM.
bg báðar stéttirnar, eða þjóðin
sem heild, geti lifað, er nauð-
syn á stöðugum, daglegum við
skiptum þessara stétta.
Auðmannastéttin þarf að
leigja vinnuafl verkalýðsins, til
að reka. atvinnutæki sín, fram
leiða Iífsgæðin og öðlast gróða
af framleiðslunnar, en það er
hennar höfuðtilgangur. Verka-
lýðurinn þarf aftur á móti
markað fyrir vinnuafl sitt, svo
að hann geti keypt af auð-
mannastéttinni vörur þær sem
honum eru nauðsynlegar til að
viðhalda lífinu.
INNTAK
STÉTTABARÁTTUNNAR,
Hin stöðuga og grimma bar-
átta stendur um verðhlutfallið
i þessum viðskiptum. Verðið á
hinu mannlega vinnuafli, ann-
arsvegar og verðið á lífsnauð-
synjum verkalýðsins hinsvegar.
Eða með öðrum orðum hve
mikinn hluta framleiðslunnar
hvor stéttin um sig skuli
hljóta fyrir þann skerf sem
hún hefur lagt frarn.
BARÁTTUTÆKI
STÉTTANNA.
Hvor stéttin um sig hefur
sín samtök til að beitá fýrir sig
í þessari baráttu. Verkalýður-
inn verkalýðssamtökip, auð-
mannastéttin samtök atvinnu-
rekenda. Þessi samtök hafa
fyrst og fremst það hlutverk að
berjast um verðið á hinu maun
lega vinnuafli, sem auðmanna-
stéttin verður að kaupa af
verkalýðnum. Annarsvegar eru
svo ikaupfélögin, sem verkalýð-
urinn og önnur alþýða hefur
skapað scr til að halda niðri
verðinu á lífsnauðsynjunum, og
af hálfu auðmannastéttarinnar
samtök heildsala og kaup-
manna, sem mynduð eru til að
halda vörð um stéttarhagsmuni
auðmannanna á þeim vett-
vangi, þ.e. að halda verðinu
uppi.
STÉTTABARÁTTAN OG
BARÁTTUAÐ-
FERÐIRNAR.
Baráttan um verð vörunnar
fer fram í verzluninni daglega,
og’að mestu þegjandi og hljóða
laust, þannig að kaupfélögin
rpyi>n, eftír megni að halda
veiiðiiftt'-niðflý.íaé verka þannig
sem hemiíl, sem kaupmenn eru
nauðbeygðir að taka tillit til,
vegna samkeppninnar. En
vegna þess að auðmannastétt-
in er eigandi þeirra vara sem
framleiddar eru, og er þar að
auki hin ráðandi stétt í þjóð-
fclaginu, sem hefur í sinni
þendi lpggjöf og ríkigvald, ‘hef-
ur hún einnig ótal leiðir til að
sneiða framhjá þessum hemli,
og hækka verð vörunnar þfátt
fvrir kaupfélögin. f-
Kaupfélögin eru þvi ekki sá
aðilinn sem úrslitum ræður í
baráttu stéttanna, og mega
eikki skoðast sem slík, heldur
Málgagn Æskulýðsfylk-
ingarinnar — sambands
ungra sósíalista
RITSTJÖRAR:
Guðlaugur E. Jónsson
Iialldór B. Stefánsson
Sig Guðgeirsson (áb.)
_____________________________/
aðeins hemill á auðmannastétt-
ina, þýðingarmikið hjálpartæki
verkalýðsins. Þau samtök sem
úrslitum ráða í baráttunni, og
sem höfuðþýðingu liafa« eru
verkalýðssamtökin, annarsveg-
ar og samtök atvinnurekenda
hinsvegar. Samningar þeirra á
milli um verð vinnuaflsins cr
sá grunnur sem skipting þjóð-
arteknanna fyrst og fremst
byggist á.
Baráttuaðferð verkalýðsins á
þessum vettvangi er sú, að
verkalýðurinn allur, eða ein-
hver ákveðinn afmarkaður
hluti hans, segir upp samning-
um sínum við atvinnurekendur
og neitar að halda áfram að
selja vinnuafl sitt við því verði
sem undanfarið hefur verio
greitt fyrir það, og setur fram
ikröfur um hækkað verð. Það
er það sem í daglegu tali eru
kölluð verkföll.
Það segir sig sjálft, að verk-
föll geta aldrei staðið nema tak
markaðan tíma. Viðskiptin
milli stéttanna sem fara fram
með kaupum og sölu hins mann
lega vinnuafls, eru grundvöll-
ur framleiðslunnar, og þar með
lífs þjóðarinnar sem heildar.
Hvorugur aðilinn, verkalýður-
• iig uv»..uiu.>_.,.r
geta til lenguar lifað án þeirra
viðskipta. Meðan verkfall stend
bác.ar stéttir að
ur verða
f n »
Á alþjóðaæskulýðsfriðarmótið
í Berlín í ágúst í sumar koma
fiilltrúar allra hinna ólílcustu
þjóðflokka, sem jörðina búa.
Verður mótið einstakt tæki-
færi <il að kynnast kjarna
heimsæskunrar, viðhorfum og
baráttu unga fólksins í heim-
inum fyrir sérhagsmunamálum
sínum svd og þátttöku þess í
frelsisbaráttu þjóða sinna og
hinni alþjóðlegu friðarbaráttu.
— Kanadiskur æskulýður fjöl-
mennir mjög til Berlínar svo
og Norðmenr, sem koma með
heila sinfoníuhljómsveit og vel
þjálfað knattspyrnulið til Ber-
línar. — Myndin hér að ofan
er af kóreönskum stúlkum, er
þátt tóku í æskulýðsmótinu í
Búdapest 1949
þrengja nokkuð að sér. En úr-
slitin fara eftir því livor aðil-
inn er betur skipulagður, hvor
°r stéttvisari, og hvor hefur
meira þrek til að halda út.
Gj.
LÍSTÁVERKASAMKEPPNI
í tilefni af friðarmóti heimsæskunnar í Berlín ;
5.—19. ágúst í sumar efnir hin íslenzka undirbún-
ingsnefnd Æskulyösfylkingarinnar, Iðnnemasam-
bands íslands og Félags róttækra stúdenta til lista-
verkasamkeppni meöal íslenzkrar æsku í eftirtöld-
um greinum:
TÓNLIST: semja skal kórsöngslag tileinkað friöi.
SKÁLDSKAPUR: semja skal kvæöi eöa stutta
sögu hvorttveggja tileinkað friöi.
MÁLARALIST: gera skal málverk (eöa teikningu)
tileinkaö friöi.
HÖGGMYNDALIST: gera skal höggmynd tileink-
aða friði.
Á SVIÐI LJÓSMYNDA: gera skal ljósmynd til-
einkaöa friði.
Verölaun veröa veitt fyrir bezta listaverk í
hverri gxein, en verölaunin eru
FIMM HUNDRUÐ KRÓNUR
Öllu æskufólki á íslandi 30 ára og yngra er
heimil þátttaka í þessari samkeppni.
Öll listaverk, sem'berast, eru eftir sem áöur
eign viökomandi sendanda, en íslenzka undirbún-
ingsnefndin áskilur sér aöeins rétt til að fara með
þau listaverk, sem hún telur, að þess -séu verö, til
Berlínar til þátttöku í samskonar alþjóölegri lista-
samkeppni, sem þar fer fram. Hljóti eitthvert lista-
verkið verölaun í Berlín, fær eigandi listaverksins
þau öll og óskipt.
Dómnefndir, skipaöar færustu mönnum í hverri
grein, munu dæma um listaverkin, en fari svo aö
dómnefnd í einhverri grein telji ekkert þeirra lista-
verka, sem berast, veröugt verölaunanna, veröa eng-
in verölaun veitt í þeirri grein, enda ekki fáriö meö
þau verk til Berlínar, heldur endursend eigendunum.
Frestur til aö skila listaverkunum er til 17. júní.
Væntanlegir þátttakendur í þessari samkeppni
snúi sér til Inga R. Helgasonar, Kverfisgötu 11 b,
sem veitir allar nánari upplýsingar.