Þjóðviljinn - 29.04.1951, Síða 1
SuKmidagur 29. apríl 1951 — 16. árgangur — 95. tölublað
Botvirmik 10,
Bronsfein 9
Nítjánda skákin í einvíginu
um heimsmeistaratitilinn var
tefld til úrslita í gær og vann
Botvinnik hana. Hefur hann þá
10 vinninga en Bronstein 9.
Fimm skákir eru eftir.
Frá leyni-
fundum þing
i mannanna:
■r\
IslencSingar biðji um nýtt hernám!
3—4000 iiiaiiiia Iser koitti síðari Iiluia mai
Danir og Norðmenn neita að taka við erlendum herjum
Eins og Þjóðviljinn skýrði írá fyrir nokkrum
dögum hefur þingmönnum afturhaldsflokkanna ver-
ið smalað í bæinn undanfarið og leynifundir þeirra
eru nú að hefjast.
Tilefni þessa leynilega þinghalds afturhalds-
flokkanna er nýtt hernám íslands. Ríkisstjórnin
hefur staðið í samningum við Bandaríkin um slíkt
hernám um langt skeið, eins og Bjarni Benedikts-
son játaði opinberlega í útvarpsræðu fyrir skömmu.
Lýsti Bjarni þá yfir því að hernámið yrði fram-
kvæmt þegar er ástæða þætti til, og nú er komið
að þeirri stund.
Málið er þannig lagt fyrir, að íslendingum er
ætlað að biðja um hernámið, og deildir úr Evrópu-
her Eisenhowers eiga að taka það að sér. Herinn
á að koma eftir miðjan maí, og fjöldi hans á að
vera 3—4000 manns úr öllum hergreinum. Jafn-
framt er talað um ráðstafanir til að fjölga hernum
fljótlega upp í eina herdeild (ca 20 þús. manns).
Bækistöðvar hersins eiga að vera á Keflavíkur-
flugvelli, í Hvalfirði og væntanlega einnig í Skerja-
firði, sömu stöðvunum sem Bandaríkin vildu íá til
99 ára 1945.
Búast má við að ákvarðanir þessar verði ekki
lagðar fyrir Alþingi, heldur láti stjórnin sér nægja
að tryggja meirihluta þingmanna án þess. Þing-
mönnum afturhaldsflokkanna er sagt á leynifund-
unum að engin ákvörðun hafi verið tekin enn um
þessar aðgerðir, en engu að síður er það staðreynd
að Bandaríkjaher hefur nú þegar fengið yfirráð
yfir geymum í Hvalfirði, og hafa þeir nú verið
fylltir til að undirbúa herkomuna.
Serið t. Etisí að glæsiEegum degi
einhuga reykvískrar alþýðu
Fyrirkomulag kröfugöngu verkalýðssamtakanna 1. maí
verður með sama sr.iði og undaníarin ár. Safnazt verður til
kröfugöngunnar við Iðnó og farnar þaðan sömu götur og und-
anfarin ár og staðnæmzt á Lækjartorgi, en þar verður útifund-
tvrinn.
Ræðumenn útifundarins eru
þessir: Sæmundur Ólafsson,
formaður Fulltrúaráðs verka-
lýðsfél., Arngrímur Kristjáns-
son varaform. BSRB, Eðvarð
Sigurðsson ritari Dagsbrúnar,
Tryggvi Sveinbjörnsson for-
maður Iðnnemasambands Is-
lands og Sigurjón Jónsson for-
ma'ður Félags járniðnaðar-
manna.
Seljið merki dagsins
Merki dagsins verða seld á
götunum og á útifundinum. —
Verða þau afhent til sölu í
skrifstofu Fulltrúaráðs verka-
lýðsfélaganna að Hverfisgötu
Eins og áður er sagt er ætl-
unin að Islendingar eigi að
biðja um hernámið. Ilafa sam-
svarandi samningar staðið yf-
ir við Norðmenn og Dani en
þeir hafa báðir neitað að biðja
um slíkt hernám.
I viðræðunum við Bandarík-
in hafa herfræoingar Banda-
ríkjanna sagt eins og jafnan
fyrr að Islendingar þyrftu ekki
að óttast árás frá- Sovétríkjun-
um, en í umræðunum innan
rikisstjórnarinnar hefur Bjarni
Bandarískift
herskipiit
Svo einkennilega viidi til
að um leið og leynlfundir
þingmahnanna hófust komu
tvö bandarísk herskip til
Reykjavíkur, tundurspillar.
Þjóðviljinn sneri sér í gær
til Bjarna Guðmundssonar
blaðafulitrúa ríkisstjórnar-
innar, og spurðist fyrir um
skip þessi og vissi hann þá
engin deili á þeim. Síðar
skýrði hann biaðinu hins
vegar svo frá að umsókn
fyrir komu þessara skipa
hefðl verið send fyrir löngu
og leyfi veitt.
Benediktsson lýst yfir því að
eklti væri vert að leggja of mik
ið upp úr slíkum staðhæfingum.
Reynslan hefði sýnt að leyni-
þjónusta Bandaríkjanna væri
léleg, eins og t.d. hefði bezt
komið í ljós aftur og aftur 1
sambandi við Kóreustyrjöldina:
Hefur Bjarni haldið því fram
á ráðuneytisfundum að í samn-
ingum Kína og Sovétríkjanna
væru ákvæði um það, að ef ráð-
izt yrði á Kína væru Sovétrík-
Framhald af 1. síðu.
21 á morgun kl. 10—12 f.h.
og frá kl. 9 á þriðjudagsmorg-
uninn. Félagsmenn verkalýðs-
félaganna eru eindregið livattir
til að taka merki dagsins til
sölu.
sver
a
Áhlaups
I
€S
Alþýðuherinn hélt áfram
sókn í Kóreu í gær og tók borg
irnar Uijongbu og Chunchon
norður og norðaustur af Seoul.
I gær voru fremstu sóknararm-
arnir sagðir 8 km frá Seoul og
búizt við áhlaupi á borgina á
hverri stundu.
Votta Bevan
tr aifst
Aneurin Bevan skýrði Verka-
mannaflokknum í kjördæmi
sínu, Tredegar í Wales, frá því
í gær, hversvegna hann sagði
af sér ráðherradómi. Fundar-
menn samþykktu einróma á-
kvörðun hans og lýstu trausti
á honum. Gaitskell fjármáia-
ráðherra reyndi að réttlæta
hervæðingarfjárlög sín, sem Be-
van gerði að fráfararatriði, fyr-
ir þingi Alþýðusambands Skot-
lands í gær, en varð minna en
ekkert ágengt, því að fulitrú-
arnir samþykktu með miklum
meirihluta að krefjast þess af
honum, að hann hætti við að
krefjast borgunar af fólki fyr-
ir gleraugu og gervitenur.
22. apr. 1949 komst Bjarni
Benediktsson þannig að
orði i Morgunblaðinu um
þátttöku íslands í Atl-
anzhafsbandalaginu undir
fyrirsögninni „Sérstaða okk-
ar tekin fyllilega til greina":
,.Við skýrðum rækiléga
sérstöðu okkail sem lá-
mennrár og vopnlausrar
þjóðar, sem hvorki gæti
né vildi hahla uppi lier
sjálf. Og mundum aldrel
samþykkja, að erlendur her
né herstöðvar væru í landi
okkar á friðartímum. I)ean
Acheson utanríkisráðheira
og starfsmenn hans skyldu
fyllilega þessa afstöðu okk-
ar. Er því allur ótti um það
að fram á slíkt verði farið
við okkur, ef við göngum í
bandaiagið, gersamlega á-
stæðuiaus“.
Svo afdráttarlausir voru
svardagar Bjarna Behedikts
sonar þegar hann var að
flækja Isiand inn í árásar-
kerfi Bandaríkjanna. Þann-
ig er hvert skref á land-
láðabrautinni varðað mein-
særum.
Ihaidið hélt velli
i
ístralíu
Þingkosningar til beggja
deilda fóru fram í Ástralíu í
gær. Eftir því sem búið var
að telja í gærkvöld þótti lík-
legt að, íhaldsflokkarnir myndu
tapa þingsætum í néðri deiid-
inni en halda þar þó meirihluta
en að Verkamannaflokkurinn
myndi halda meirihluta í efri
deildinni.
Enska klrkinréðið hvetur til
fimmveldcs friðarfundar
samþyhhí
[>jéðnvtingdifQrsprakk-
inn forsætisráðherra
Fulltrúadeild Iransþings sam
þykkti í gair einróma þjóðnýt-
ingu eigna brezka olíufélagsins
Anglo Iraniían og alls annars
olíuiðnaðar í fandinu.
Fyrr um daginn hafði full-
trúadeildin falio foringja þjóð-
ernissinnaflokksins, Mohamed
Mossadegh, að mynda nýja
stjórn. Mossadegh er formaður
olíunefndar þingsins og hc-fund-
ur þjóðnýtingarlaganna.
Forystumenn 17 helztu trúfélaga mótmælenda
í Bretlandi hafa skorað á fylgismenn sína að leggja
lið hugmyndinni um samningaviðræður við Kína
og Sovétríkin, er hafi það markmið að „finna rétt-
láta og framkvæmanlega lausn þeirra óleystu
vandamála, sem heimsfriðnum stafar hætta aí". Á-
skorunin er send út á vegum enska kirkjuráðsins,
sem er æðsta stofnun mótmælendakirkjanna í land-
mu.
Á fundi í London í næstsíð-
ústu viku var áskorunin sam-
þykkt einróma. I umræðunum,
sem á undan gengu, tóku með-
al annarra þátt dr. Garbett
erkibiskup af York og biskup-
inn af Chichester. Kirkjuráðið
skorar á alla aðila að því, að
starfa samkvæmt þessari stefnu
yfirlýsingu og kveðst vilja
taka fyrir hönd allra kirkju-
félaganna forystu fyrir sameig-
inlegum aðgerðum með eftirfar
andi markmið fyrir augum,:
1. Að varðveita og efla sam-
bönd við forystumenn og safn-
aðarfólk í kirkjufélögum í
Austur-Evrópu og Kína ,,í við-
leitni til að koma í veg fyrir
hinn alvarlega misskiining á
báða bóga“.
2. Að styðja ríkisstjórnina og
SÞ ,,í ötulum tilraunum, um
áraskeið ef þörf gerizt, til að
semja við Sovétrítin og Al-
þýðu-Kína um rcttláta og
framkvæmanlega lausn þeirra
óleýstu vandamála, sem heims-
friðnum stafar hætta af“.
3. Að vinna gegn kynþátta-
ofsóknum „hvar sem þær eiga
sér stað, hvort heldur er heima
fyrir eða erlendis“.
Nýft kosninga-
lagafronvarp
Stjórn Queuille í Frakklandi
hefur lagt fram nokkuð breytt
frumvarp að kosningalögum í
stað þess, sem ekki fckk til-
skilda atkvæðatölu á þingi. Bú-
izt var við að atkvæði yrðu
greidd snemma í morgun.