Þjóðviljinn - 29.04.1951, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 29.04.1951, Qupperneq 6
e) _ ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 29. april 1951 MANHBJÖRG OG MANNDRÁP Framhald af 3. síðu. böðla sinna. — Og við sjáum heiðursmerki fest í barm þeirra, sem skotið hafa niður flestar flugvélar, grandað flestum skip um, sprengt borgir í loft upp með „beztum árangri“ eins og það er gjarnan orðað, með cðr- um orðum meitt og kvalið og deytt sém flesta meðbræður sína í þessum heimi. Og er þá nokkur furða þótt einhver gef- ist upp fyrir þessari mynd. fórni höndum til himins og spyrji: Til hvers var verið ac segja mcr að ég ætti að elska náungann, að ég ætti að gera öðrum það, sem ég vil að mér sé gert, til hvers er að vinna lækninga- og líknarstörf, þegar menn drepa af ásettu ráði 10 þúsund fyrir hvern, sem þeim þóknast að lækna, til hvers er að kenna: þú ska!t ekki mann deyða, til hvers er að vinna í áratugi að mannvirki til hags- bóta fyrir mennina, þegar þeir eyða því með öllu á einu andar- taki sjálfir, til hvers hefir mönn unum verið leyft að gera nátt- úruna, jörðina, hafið og loftið sér undirgefið, þegdr það virð- ist vera til þess eins að tor- tíma lífinu á jörðinni. Til hvers er manni sagt að fara og bjarga lífi þessa í dag og fara og drepa þennan og þessa á morg- un, menn, konur og börn, sem aldrei hafa gert þeim sem drep- nr eða neinum minnsta miska, til hvers er verið að færa guði, guði kærleikans, börnin saklaus og smá í heilagri skírn, og kalla þau guðs börn og láta þau stað- festa skírnarheit sitt á ung- hngsárum og senda þau svo nokikrum árum síðar um loft og jörð og höf til að myrða og misþyrma öðrum guðsbörnum, og verða sjálf að skotspæni annarra. Og þá sjáum við aftur sem svar á hvitu tjaldinu púka fé- græðginnar og eitursnák valda- fíkninnar læðast, teygjast og smjúga, og við sjáum elfi gulls ins, sem nú hefir runnið í gegnum hergagnaverksmiðjurn- ar og vígvellina um alla jarð- kringluna og stefnir aftur ti! föðurhúsanna í foraðsvexti. Hún flæðir bólgin og þrútin yfir alla bakka, rauðari en nokkru sinni fyrr, rauð eins og iblóð, rauð sem blóð, í hana hefir runnið allt blóð, sem út- hellt hefir verið í lofti, á jörð og á sjó með manns hönd Og heila. Og svo nærgöngular eru þessar myndir, þessi áþreifan- legi veruleiki nútímamanninum, að litlu börnin okkar leika sér 1 dag að fuJlvinkum sprengjum frá síðustu heimsstyrjöld, og n|esta. styrjöld er þegar hafin. Litlu börnin fimm í Skerjafirð- inum voru óvitar og okkur hrý~ hugur við óvitaskap þeirra, þeg ar þau voru að berja sprengj- una, sem þau fundu þar, utan með grjóti, en fullorðnir menn með fullu viti hafa ekki óvita- skap sér til afsökunar, en deyða þó —- ekki fimm börn — heldur milljónir barna og ungmenna í hverri heimsstyrjöld, sem þeir taka bátt í. Er hægt að haga sér ókristilegar en kristnir nú- tímamenn gera í stríði, er hægt að umsnúa sannleika guðs ræk’ legar í lygi en með því að drepa og limlesta meðbræður sína andlega og líkamlega, sem hlýtur að fylgjast að. Er nokk- uð í hræðilegri mótsögn við guðspjall dagsins í dag, guð- spjaþ lífgjafarinnar. Er hægt að verja lífinu ver en í þjón- ustu dauðans. Er hægt að mis- lesa lífsins letur óskaplegar.“ Séra Emil víkur síðan að björgun Geysisáhafnarinnar og heldur áfram: ,,Út á við á að halda þessari lífgjöf, þessari björgun á lofti. Ekki til að vekja athygli á Is- lendingum þeirra vegna, lieldur vegna hinna stóru hervæddu og stríðsóðu þjóða, sem virðast vera að glata síðustu glætunni. Ekkert má láta ógert til að reyna að koma viti fyrir þær á elleftu stundu, og þá ekki heldur það að benda þeim á fyrirmyndina frá Vatnajökli, og mættu þá stóru bræðurnir í samfélagi þjóðanna blygðast sin og læra af. Við erum fá- mennasta . þjóð heimsins en þó gætu allar þjóðir lieimsins af ckkur lært í þetta sinn. Við eigum engin vopn til að skaða aðra eða drepa þá, en við eigum vopn andans og mannúðarinn- ar, og við liöfum notfært okkur nútímatækni í þjónustu lífsins eingö’ngu. Við eigum enga her- menn til að drepa aðra, en við eigum skipulagðar sveitir vaskra manna og kvenna tii lands og sjávar í hverju byggð- arlagi, skipulagðar til að bjarga mannsiífum úr hverskyns hættu, og þau störf bera launin í sjálfu sér og eru grundvölluð á guðstrú og mannkærleika. Og þegar aðrar þjóðir senda syni sína til að deyða en dætur sínar til að líkna þeim, sem ekki tekst alveg að deyða, þá sendum við bæði syni okkar og dætur til að líkna og gefa líf. Það er með öðrum orðum samræmi í okkar gerðum í þessu efni, en ekki þeirra sem viðurkenna að svipta megi lífi í samskiptum mann- anna. Hcr er ekki verið að gera samanburð á Islendingum og öðrum þjóðum, og hrósa okkur. heldur er verið að gera saman- burð á hugsunum, þeirri hugs- un að viðurkenna tortímingu mannslífa sem lausn á deilu- málum, og þeirri hugsun, sem heldur sér fast við boðorðið: Þú skalt ekki mann deyða. Og hrós er hér ekki um að ræða Islendingum til handa, því að það er ekki hrósvert að láta það vera að deyða aðra. Hern- aðarþjóðir syna oft göfugt hug arfar við björgur.arstörf eins og tíðum er sýnt hér, en þær tortíma mörg hundruð sinnum fleiri mannslífum en þær bjarga. og það gerir gæfumuninn, það gerir það að verkum að allar bessar þjóðir ættu að líta iil íslands en ísland ekki til þeirra. Þvert á móti á Island að láta til sín taka í samfélagi þjóð- anna og krefjast þess að þær leggi niður vopnin, hvað sem þau heita og hvar sem þau eru. krefiast þess í nafni mannúð- arinnar, allra mannlegra tilfinn inga, í nafni skynseminnar og hagkvæmninnar, í nafni lífsins. í nafni Krists, sem ikom til a? frelsa, líkna og gefa líf, í guðs nafni.“ Hunið smáauelýslnKamar á 7 síöu Undir eilífðorstiörnum Eftir A. J. Cronin DAGUR k________________________________________ Barras hnussaði og hélt áfram að fálma og fitla við hlutina á borðinu. ,,Þú valdir sjálfur fangelsið. Og ef þú sérð ekki að þér, þá er ekkert líklegra en að þú farir þangað aftur. Þú skilur það, er það ekki?“ Arthur svaraði: ,,Ég hef skilið margt og mikið. Manni verður margt ljóst í fangelsi”. Barras sleppti pökkunum á borðinu og sendi Arthur ógnandi augnaráð. Hann fór að ganga fram og aftur um anddyrið. Hann tók fram gullúrið sitt og leit á það. Svo sagði hann með fjandskap í rómnum: ,,Ég hef mælt mér mót við mann eftir 'há- degi. Ég þarf að fara á tvo fundi í kvöld. Ég hef engan tíma afgangs handa þér, ég er alltof Önnum kafinn". ,,Of önnum kafinn við að vinna striðið, pabbi? Er það það sem þú átt við ?“ Barras varð eldrauður i framan. Æðarnar í gagnaugum hans sáust greinilega. ,,Já. Fyrst þú vilt endilega orða það þannig. Ég hef lagt fram minn skerf til að viima strfð- ið“. Arthur glotti beizklega. Hann gat varla íáðið við geðshræringu sína lengui . „Mig skal ekki undra þótt þú sért hreykinn af sjálfum þér. Þú ert mikill föðurlandsvinur. Allir dást að þér. Þú ert í nefndum, nafn þitt er prentað í blöðunum, þú heldur ræður um glæsilega sigra, meðan þúsundum manna er slátrað í skotgröfunum. Og svo hrúgarðu áð þér auði á meðan, óstjórnlegum auði og þrælar verkamönnunum þínum út i Neptúnnámunni og hrópar manna hæst að a'lt sé þetta gert fyrir kónginn og fósturjörðina, og svo er það allt fyrir sjálfan þig gert. Já, fyrir sjálfan þig“. Rödd hans var skerandi. „Þér stendur alveg á sama um l'íf og dauða. Þú hugsar ekki um neitt nema sjálfan þig“. „Ég held mig þó utan fangelsisveggjanna", hrópaði Barras. „Vertu ekki of viss um það“. Arthur átti örðugt um andardhátt. „Hver veit nema þú eig- ir eftir að komast inn fyrir þá veggi innan skamms. Ég hef að minnsta kosti ekki í hyggju að taka út frekari refsingu fyrir þig“. ALLT Á SAMA STAÐ WILLYS-OVERLAND EXPORT C0RP0RATI0N Toledo Oliio, U.S.A. hefir veitt Hi. Egill Vilhjálmsson einkaumboð fyrir ísland á Willys-Jeep. (Jeppa bílum), ásamt annari framleiðslu sinni. Vér munum af fremsta megni reyna að hafa ávallt til birgðir af varahlutum eftir því, sem innflutningsleyfi heimila á hverjum tíma. Öllum fyrirspurnum um kaup á Jeppa bílum og varahlutum greið- lega svarað á skrifstofu vorri. H.f. Effiil Vilhjál m s s o f i * s í M I D 1 8 1 2. ALLT Á SAMA STAÐ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.