Þjóðviljinn - 29.04.1951, Page 4
4:) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 29. apríl 1951
Útgefandl: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.).
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi ólafsson, Jónas Árnason.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áakrlftarverð: kr. 15.00 á mánuðl. — Lausasöluverð 75. aur. elnt.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Verkalýðseining 1. maí
Ein meginaöferðin sem Bandaríkin beita til að ná
sem öruggustum yfirráðum í fylgiríkjum sínum er sú að
reyna að tvístra verkalýðssamtökunum og einangra þann
hluta verkalýðsins sem fylgir að málum róttækum sós-
íalistum og kommúnistum. Þessi áætlun hefur tekizt all-
vel hvað' forustumennina áhrærir, hægrisósíaldemókrat-
ar um allan heim hafa frá upphafi verið þægustu hand-
bendi heimsvaldasinnanna í Vesturheimi. Hins vegar
mótar hugsjónin um einingu alþýðunnar enn verkalýð-
inn, einnig á yfirráðasvæði bandaríska auðvaldsins, en
þó sést sundrungin glöggt á því að afturhaldinu hefur
tekizt aö tryggja að 1. maí mun um allan hinn vestræna
heim verða haldinn hátíðlegur í tvennum fylkingum —
nema hér á íslandi!
Það skortir þó ekki að Bandaríkin hafi beitt áhrifum
sínum dnnig hér á landi í skjóli mútukerfis síns. Þær til-
raunir speglast einnig í .sögu fyrsta maí undanfarin ár.
Árið 1948 — fyrsta marsjallárið — gerðu þríflokkarn
ir allir tilraun til að sundra einingu verkalýðsins. Al-
þýðuflokksbroddamir efndu til klofningssamkomu á Arn-
arhóli og atvinnurekendaflokkurinn hélt aðra á Aust
urvelli. Enn er mönnum í fersku minni háðung klofnings
agentanna þann dag. Á Arnarhóli söfnuðust nokkrar
bitlingahræður kringum Alþýðuflokksbroddana á sama
tíma og kröfuganga verkalýðsins var voldugri en nokkru
sinni fyrr og Lækjartorg rúmaði ekki alþýðu Reykjavíkur
undir merki einingarmanna. Atvinnurekendasamkoman
á Austurvdli leystist upp.
Árið 1949 vom dollaramúturnar byrjaðar að streyma
til íslands. Þeim stórfellda árangri hafði þá verið náð að
Alþýðusambandiö var komið í hendur afturhaldsins með
svikum og lögbrotum. Nú skyldi því klofið svo um mun-
aði. Alþýðusambandsstjórnin kallaði til klofningsfundar
á Lækjartorgi 1. maí; nú skyldu þríflokkarnir sameinaðir
sýna hversu vel hefði tekizt að sundra alþýðunni. En
háðung afturhaldsflokkanna var söm og árið áður. Á
Lækjartorg safnaðist álíka hópur og venjulega hlustar
á karlinn á kassanum á sunnudögum, en kröfuganga
reykvísks verkalýðs rann framhjá eins og straumþung
elfur.
Árið 1950 höfðu marsjallmúturnar enn margfaldazt
og eftirlit Bandaríkjanna var orðið harðvítugra en
nokkru sinni fyrr. Þá skyldi reynd ný aðferð til að kljúfa
og sundra. Afturhaldsblöðin, með Alþýðublaðið í broddi
fylkingar, hrópuðu tii manna: mætið ekki í kröfugöngu
kommúnista, en komið á útifundinn á eftir, þar sem
Helgi Hannesson á að halda ræðu! Svar reykvískrar al-
þýðu var það að gera kröfugönguna þá langstærstu sem
sézt hefur á íslandi, og sjaldan munu Alþýðuflokksbrodd
arnir hafa gert sig seka um fráleitari sálfræðilega skekkju
en þegar Helgi Hannesson var látinn þylja bandarískan
dollaraáróður yfir þúsundunum á Lækjartorgi á þeim
degi.
í ár eru marsjallmúturnar komnar upp í 400 milljón
ir, og Bandaríkin telja sig eiga ísland og íslendinga. En
einmitt nú þegar verkið ætti að vera fullkomnað hafa
sundrungarpostularnir gefizt upp, að því er bezt verður
séð, á baráttudegi verkalýðsins. Einingarmenn í verkalýðs
hreyfingunni hafa undanfarið unnið að því með glæsi-
legasta árangri að tengja öll helztu verkalýðsfélög lands-
ins saman til ómótstæðilegrar sóknar fyrir bættum kjör-
um. Allar tilraunir sundrungarmanna til að rjúfa þessa
einingu með einangruðum verkföllum og öðru slíku hafa
misheppnazt á eftirminnilegasta hátt. Og upp ur þessu
samstarfi um kjarabaráttuna hefur sprottið alger eining
1. maí, svo sjáífsögð og eðlileg að Stefán Pétursson og
hans nótar hafa hvergi þorað að láta á sér kræla. Al-
þýðublaðið þegir að vísu um 1. maí, en enginn harmar
það. — ísland mun vera eina land mársjalisvæðisins þar
sem alger eining er 1. maí í ár. Þetta er svar íslenzkrar
alþýðu við sundrungartilraunum bandaríska auövaldsins
°g þjónustusemi leppa þess hér. Það svar mun svo verða
undirstrikað á þriðjudag, með því áð 1. maí veröur gerð-
ur öflugri baráttudagur en nokkru sinni fyrr.
Ástaiidið í Gunnars-
borg.
Stk. skrifar: „Ég efast um
að fólk geri sér álmennt grein
fyrir því, hvílíkt ómenningar-
ástand ríkir hér sumsstaðar í
höfuðborg landsins, undir
st jórn „S j’álf stæðisf lokksins“.
Tökum t. d. hverfið hér inni-
frá, þar sem ég bý, Herskóla-
camp eða Gunnarsborg eins og
nú er algengara að kalla það
með sérstöku tilliti til þess hve
mikið íbúamir eiga að þakka
okkar ágæta borgarstjóra! Það
yrði reyndar of langt upp að
telja allt það sem miður fer
hverfinu, enda þyrfti til þess
dugmeiri penna en minn. En
tvö, þrjú dæmi ættu að nægja
til að gefa mönnum sæmilega
Ijósa mynd af ástandinu.
beina þeirri spumingu til íhalds
ins, hvað það hyggist fyrir í
þessum málum, hvort það ætl-
ar sér að gleyma okkur alveg
þangað til kannske við næstu
bæjarstjórnarkosningar ? —
Stk“.
Engin skolpræsi, engar
vatnsleiðslnr.
„Hér em engin skolpræsi,
ekkert byrgt frárennsli fyrir
skolp og annað þess háttar.
Það er því í rauninni ekki um
annað að gera fyrir húsmæðurn
ar- en að skvetta skolpinu út
um dyrnar, þó að margir reyni
að vísu að gera rotþrær eða
útvega sér aðgang að rotþróm,
þar sem hægt er að losa sig
við skólpið og annan úrgang.
En þess ber að gæta, að þrær
þessar eru, af skiljanlegum á-
stæðum, nærri húsunum, og
stunda blessuð börnin leiki sína
í kringum þær. — Væri vissu-
lega fróðlegt að vita, hvað
háttvirt heilbrigðisyfirvöldin
segja um þetta atriði.
□
Á að bíða næstu
kosninga?
„Hér er yfirleitt ekki heldur
nein vatnsleiðsla í húsin, held-
ur mega húsmæðumar, eða við
karlmennirnir, þegar við erum
heima, leggja á sig erfiðan
vatnsburð, langar leiðir stund-
um, hvernig sem viðrar, jafnt
í brunagaddi sem beljandi rign
ingum ........ Hér eru engar
götur sem heitið geti, aðeins
ruðningar sem liggja óskipu-
lega innan um óskipulega
byggð (því að hér hefur verið
leyft að byggja án nokkurs
eftirlits um skipulag, að því
er virðist), og þessir ruðningar
eru orðnir eitt forarsvað óðara
sem vætutíð og hláku gerir -—
Læt ég sem sagt þessi fáu
dæmi nægja. En gjarnan máttu
Eimskip
Brúarfoss er í Hull; fer þaðan
væntanlega 1, maí til Rvíkur.
Dettifoss kom til Haifa í Palestínu
21. þm. Fjallfoss fór frá Rvík 26.
þm. til vestur og norðurlandsins;
var á Þingeyri í gær. Goðafoss
er í Rvík. Lagarfoss fór frá Vest-
mannaeyjum í gær til Keflavíkur
og Akraness. Selfoss kom til R-
víkur í gær frá Gautaborg. Trölla-
foss kom til New York 24. þm. frá
Rvík. Tovelil fór frá Rotterdam
25. þm. til Rvíkur. Barjama fór
frá Leith 25. þm. tij Rvikur. Dux
fermir í Rotterdam og Hamborg
um þessar mundir til Rvíkur.
Hilde fermir í Rotterdam og Leith
um þessar mundir. Hans Boye
fermir í Álaborg og Odda í Nor-
egi í byrjun maí til Rvíkur. Katla
fór frá Rvík 25. þm. til New York.
Liibeck fermir í Antwerpen og
Huii 2.—6. maí til Rvíkur. Teddy
fermir í Khöfn um 30. þm. til
Rvíkur.
11.00 Almennur
bænadagur: Messa
í Dómkirkjunni
(Sigurgeir Sigurðs-
son bislcup; séra
Jón Auðuns þjón-
ar fyrir altari). 14.00 Útvarp frá
Gamla bíói: Hljómleikar Karla-
kórs Reykjavíkur. Söngstjóri: Sig-
urður Þórðarson. Einsöngva og
tvísöngva syngja: Frú Svava E.
Storr, Guðmundur Jónsson, Guð-
mundur Halldór Jónsson og Hei>
mann Guðmundsson. Við h]jóð-
færið: Fritz Weisshappel. .15.30
Miðdegistónleikar (plötur): „Svana
vatnið", ballettmúsik op. 20 eftir
Tschaikowsky (Philharm.hljómsv.
x London leikur; Antal Dorati stj.)
17.00 Almennur bænadagur: Messa
í Dömkirkjunni (Sigurbjörn Ein-
arsson prófessor prédikar; séra
Garðar Þorsteinss. prestur í Hafn-
arfirði þjónar fyrir altari). 18.30
Barnatimi (Baldur Pálmason): a)
Söngur skólabarna á Akranesi.
b) Leikþáttur: „Láki í ljótri kþpu"
(Skólabörn á Akranesi leika). c)
Framhaldssagan: „Tveggja daga
ævintýri" (Gunnar M. Magnúss).
19.30 Tónleikar: Casals leikur á
cello (pl.) 20.20 Samleikur á flautu
og orgel (Ernnst Normann og dr.
Páll Isójfsson): a) Sónata í G-dúr
eftir Hándel. b) Sónata í C-dúr
eftir Bach. 20.40 Erindi: Hugleið-
ingar útlendings um Island; XI.:
Nielsen á Eyrarbakka (Martin
Aðalfundur
Hiismæðrafélag Reykjavíkiir
verður haldinn mánudaginn 30. apríl kl. 8,30 í
Borgartúni 7.
Venjuleg aðalfundarstörf. — Lagabreytingar.
— FerSaþáttur (Gauta-kanal!) — Upplestur.
— KAFFI — Konur fjölmennið. —
STJÓRNIN,
Larsen lektor). 21.00 Tónleikar
(pl.): a) Erna Sack syngur. b)
„Dánte-sónatan“ fyrir píanó og
hljómsveit eftir Liszt (Louis Kent-
ner og hljómsv.; Lambert stj.)
21.30 Upplestur: „Vond ertu ver-
öld“, smásaga eftir Guðm. G.
Hagalín (höf. ]es). 22.05 Danslög:
a) Dánslagakeppni skemmtiklúbbs
templara (útv. frá Góðtemplara-
húsinu). b) Ýmis danslög af plöt-
um til klukkan 01.00.
Útvarpið á morgun
18.20 Framburðarkennsla í ésp-
erantó, 18.30 íslenzkukennsla; II.
fl. 19.00 Þýzkukennsla; I. fl. 19.30
Tón]eikar: Lög úr kvíkmyndum
(pl.) 20.30 Útvarp frá Þjóðleik-
húsinu: Minnzt aldarafmælis Ind-
riða Einarssonar rithöfundar: a)
Sinfóníuhljómsveitin leikur hátíð-
arforleik eftir dr. Pál Isólfsson;
höf. stjórnar. b) Ræða: Vilhjálm-
ur Þ. Gíslason form. þjóðleikhús-
ráðs. c) Einsöngur: Einar Sturlu-
son syngur lög úr sjón]eiknum
„Skipið sekkur", við hljóðfærið dr.
P. 1. d) Upplestur úr sjálfsævi-
sögu Indriða Einarssonar „Séð og
lifað": Arndís Björnsdóttir, Bryn-
jólfur Jóhannesson og Herdís Þor-
valdsdóttir lesa. e) Einsöngur:
Guðmunda Elíasdóttir syngur lög
úr sjónleikiium „Nýársnóttin";
við hljóðfærið dr. P. 1. f) Upp-
lestur úr ritgerðinni „Fójkorust-
an á Clontarf"; Gestur Pálsson
les. g) Meðlimir Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar leik forleik eftir Sig-
valda Ka]dalóns að sjónleiknum
„Dansinn í Hruna"; dr. Páll Is-
óifsson stjórnar. h) Lokaatriði
sjónleiksins „Dansinn í Hruna“.
Leikstjóri: Indriði Waage. Dans-
stjóri: Ásta Norðmann. 22.35 Dag-
skrárlok.
Bólusetning gegn barnaveikl. —
Pöntunum veitt móttaka þriðju-
daginn 1. maí kl. 10—12 f. h.
í síma 2781. —
. Hjónunmn Auði
Pálsdóttur og Á-
gústi Guðmunds-
fji \ syni, Grettisgötu
/t 53, fæddist 12
marka sonur 26.
apríl. — Hjónunum Laufeyju Ste-
fánsdóttur og Jóni Þórðarsyni,
Fálkagötu 9a, fæddist 16 marka
sonur nú í vikunni.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunn, sími 7911.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
heldur a'ðalfund sinn annað
kvöld kl. 8.30 í Borgartúni 7.
Auk aðalfundarstarfa verða
ýmis skemmtiatriði.
Messur á morgun.
Laugarneskirkja.
Messa kl. 2 e. h.
(Bænadagurinh) —-
Sr. Garðar Svav-
arsson. — Foss-
vogskirkja. Messa kl. 5 e. h.
(Bænadagurinn) — Sr. Garðar
Svavarsson. — Óliáði fríkirkju-
söfnuðurinn. Messa í Aðventkirkj-
unni kl. 2 e. h. (Bænadagurinn)
—- Sr. Emil Björnsson. — Fríkirkj
an. Messa kl. 2 e. h. (Bænadag-
urinn) — Barnaguðsþjónusta kl.
11. — Sr. Þorsteinn Björnsson.
— Nesprestakali. Messað í kapellu
Háskólans kl. 2 e.h. — Sr. Jón
Thórarensen. — Hallgrímskii-kja.
Messa kl. 11 f. h. Sr. Sigurjón Þ.
Árnason. Messa kl. 2 e. h. Sr.
Jakob Jónsson. (Engin messa kl.
5, en kirkjan verður opin til bæna-
gjörðar kþ 10—22).
Á sumardaginn
fyrsta opinberuðu
trúlofun sína ung-
frú Dagbjört
Bjarnadóttir, Bar-
ónsstíg 63 og Pét-
ur Einarsson, skrifstofumaður hjá
S.l.S. —
Helgidagslæknir: Stefán Ólafsson,
Laugaveg 144. — Sími 81211.
Flugfélag Islands
I dag eru íáðgerðar flugferðir
til Akureyrar og Vestmannaeyja.
Á morgxm er áætlað að fijúga
til sömu staða. Gullfaxi er vænt-
anlegur til Rvíkur frá Khöfn kl.
18.15 í dag. Flugvélin fer til
London kl. 8,00 á þriðjudagsmorg-
un. —