Þjóðviljinn - 29.04.1951, Qupperneq 8
Spænskir og ísienzkir heildsaiar sammála:
Uppskeran frá í hitteðíyrra
skal í Islendinginn!
Félag matvörukaupmanna birti í gær orðsentlingu-
í Morgunblaðinu, þar sem þeir skýra frá því að þegar fé-
laginu varð kunnugt um það, 12. des. sJ., að Innflytj-
eridasambandið hefði fengið aprikósur frá Spáni af lipp-
skeru ársins 1949 í stað uppskeru s.l. árs, hafi félagið,
14. des., mótmæít þessuin innflutningi með eftirfarandi
bréfi:
„Stjórnin hafnar því, að þessi vara verði
tekin til dreifingar, og leggur eindregið til
að hún verði endursend og fyrsta flokks vara
flutt til landsins í staðinn."
Þetta bréf stjórnar Félags matvörukaupmanna var
að engu haft og hin gamla uppskera fl'utt inn engu að
síður. Stjórn Félags matvörukaupmanna ítrekaði hins-
vegar í gær að þetta væri ekki fyrsta flokks vara, og
vildi félagið engan þátt eiga að sölu hennar.
Þótt hér muni vera um nothæfa vöru að ræða, er
auðséð að hér er'u Spánverjar að troða inn á Isiendinga
leginni vöru sem þeir geta ekki selt annarsstaðar. Og
heildsalarnir gína við því og flytja hana inn þrátt fyrir
eindregin mótmæli matvörukaupmanna.
Uppskeran frá því í hittcðfyrra skal í Islendinginn!
er sameiginlegt álit hinna spönsku og íslenzku heildsala.
Útburður finnst á
Keflavíkurflug-
velli
S. 1. fimmtudagsmorgun
fannst á Keflavíkurflugvelli
fóstur vafið innan í umbúða-
pappír í skafli við bragga.
Læknar er til voru kvaddir
töldu það liafa verið á 4.
eða 5. mánuði og komið úr
móðurkviði fyrir einum til
hálfum öðrum sólarhring.
Seint í gærkvöld liringdi
Björn íngvarsson, fulltrúi
sýslumannsins í Gullbringu-
og Kjósarsýslu, til Þjóðvilj-
ans og skýrði frá því að mál
þetta væri nú upplýst, og
yrði blöðunum send greinar-
gerð um það eftir helgina.
Sunnuda'gur 29. apríl 1951 — 16. árgangur — 95.
tölublað
Mennia- og listamannasendinefndin
til Moskva fór með Gulifaxa
Mennta- og listamannasendinefndin er fer til Moskva í boði
rússneska menningarfélagsins VOKS, fór í gærmorgun með
Gullfaxa til Kaupmannahafnar, en þaðan mun hún halda áfram
austur um Stokkhólm. Formaður sendinefndarinnar er Kristinn
Andrésson, en alls eru 7 manns í förinni.
Auk Kristins Andréssonar
eru í sendinefndinni frú Þóra
Vigfúsdóttir ritstjóri, dr. Her-
mann Einarsson fiskifræðing-
ur, Þorsteinn Ö. Stephensen
leikari, Guðgeir Jónsson bók-
bindari, Jón Hj. Gunnlaugsson
Nýtt varðskip
I gær var sett á flot í
Álaborg í Danmörku nýtt varð
skip fyrir íslenzka ríkið. Mun
Guðrún kona Stefáns Þoírvarð-
arsonar sendiherra gefa skip-
inu nefnið Þór.
Þór verður væntanlega tilbú-
inn til heimsiglingar síðast í
ágúst.
læknir á Siglufirði og Guð-
mundur Helgason prestur í
Neskaupstað. Tveir hinir síð-
astnefndu eru báðir formenn
MÍR-deildanna á sínum stað.
Þjéðviljinn
Enn bættust 10 áskrifendur við
i gær i Reykjavik, og er þá
heildartalan orðin 59 alls, þar af
55 í Reykjavík. — Hér birtum
við fyrsta yfirlitið um samkeppni
Reykjavikurdeildanna:
1. Vogadeild 90 %
2. Njarðardeild .... 60 —
3. Þingholtsdeild.... 40 —
4. Túnadeild 30 —
5. Hlíðadeiid 30 —
6. Skóladeild 30 —
7. Vesturdeild 27 —
8. Laugarnesdeild .. 20 —
9. Sunnuhvolsdeild.. 20 —
10. Bolladeild 20 —
11. Nesdeild 20 —
12. Meladeild 10 —
13. Valladeild 10 —
14. Skerjafjarðardeild 10 —
15. Skuggahverfisdeild 10 —
16. Barónsdeild 10 —
17. Langholtsdeild .. 10 —
18. Kleppsholtsdeild . 10 —
rn A.S.I. til Bandaríkjanna
Vinnan
ag verkalýðurinn 3.—
hefti nýkomið út
-4.
VIN'NAN og verkalýður
inn, 3.—4. hefti 1951, er
nýkomið út.
Stefán Ögmundsson skrif-
ar þar: Húsbændur og þjón
ar, Björn Sigfússcin um bæj-
arbókasöfn. Kunóifur Björns
son: Úr Reykjavíkurlífinu
fyrir 80 árum, grein er um
Sjómannafélag Keykjavíkur
sem stéttarfélag, Uppsögn
samninga og kriifur um sam
eiginlegar aðgerðir verka-
lýðsfélaganna.
I heftiiiu eru að vanda hin
ir föstu þættir: Af alþjóða-
vettvangi, Skákdálkur,
Bridge, Gagn og gaman,
Heimilið o. fl. Nokkrar smá-
sögur og fjöldi kvæða og
mynda er í heftinu, sem er
hið fjölbreyttasta.
Bænadags-
messurnar
Þessi sunnudagur er almenn-
ur bænadagur hinnar íslenzku
kirkju; í öllum kirkjum lands-
ins, þar sem því verður við
komið, verður komið saman til
bænagjörðar. Síðasta presta-
stefna kaus nefnd til þess að
semja leiðbeiningu um tíðafiutn
ing, er styðjast mætti við um
land allt. Hið einfalda form,
Framhald á 7. síðu.
Leiðangar
náði flugvélinni upp
í gær
Vatnajökulsleiðangri Loft
leiða, undir forustu Egils Krist-
björnssonar, tókst að ná f!ug
vélinni upp úr jöktinum laust
eftir hádegi í gær. Höfðu leið-
angursmenn þá unnið a'ð upp-
greftri vélarinnar í nær 3 dæg-
ur. Er þetta mjög mikilvæg-
ur áfangi, en næst er að búa
vélina til flutnings niður af
jöklinum.
Málverkasýnsng Péfurs Friðriks
Aðsókn að málverkasýningu Péturs Friðriks í Listamannaskál-
anum hefur verið góð og hafa 20 myndir selzt. — Sýningunni
lýkur á morgun (mánudag). — Myndin liér að ofan er máluð
í Hafnarfirði
Herðum nú enn áskrifenda-
söfnunina þá 33 daga sem eftir
eru. — ÞjóðvHjann inn á livert
heimili!
Stjórn AIþýð'usambands Islands hefur fyrir nokkru verið
boðið til Bandaríkjanna, en ýmsar stjórnir verkalýðssambanda
Marshalllandanna liafa áður þegið slík boið.
Alþýðusambandsstjórn mun
hafa tekið boði þessu og að
því er Þjóðviljinn bezt hefur
frétt munu Helgi Hannesson,
Sæmundur Ólafsson, Sigurrós
Sveinsdóttir, Ingimundur Gests
son, Hálfdán Sveinsson og Guð
mundur Sigtryggsson fara til
Bandaríkjanna. — Heyrzt. hef-
ur að Gylfi Þ. Gíslason eigi að
vera fylgdarmaður hópsins.
Söngfélag verkalýðssamialanna
keldur samsöng 1. maí
Söngskráin helguð sögu verkalýðs-
hrevfingarinnar
Söngfélag verkalýðssamtakaniia í Reykjavík heldur opin-
berau samsöng í A'usturbæjarbíói kl. 6 e.h. þriðjudaginn 1. maí
Á söngskránni eru aðallega síéttarsöngvar, sem sör.gstjóri kórs
ins, Sigursveinn D. Kristinsson tónskáld, hefur ýmist samið
cða raddsetfc fyrir fjöklasöng, og eru sum lögin áður ókunn.
Einsöngvari með kórnum verður Hanna Bjarnadóttir frá Akur-
eyri, 'ung en efnileg söngkona.
Söngvar þeir, sem kórinn
flytur nú 1. maí eru sérstak-
lega valdir með tilliti ti! þes3’
að vera fluttir á hátíðisdegi
verkalýðsins, og er þeim ætlað
að gefa nokkra liugmynd um
þróun verkalýðshreyfingarinn-
ar á íslandi frá upphafi. Mun
Bjarni Benediktsson frá Hof-
teigi kynna með fáum orðum
texta stéttarsöngvanna, sem
verður röskur helmingur söng-
skrárinnar.
Þann stutta tíma, sem kórinn
hefur haft til æfinga í vetur
(ca. 3 mánuði) hafa söngstjóri
og kórfólkið lagt fram mikla
vinnu til að gera söngskrá sína
Verkalýðsfélögin á Akureyri sai-
einast í kauM ialdsbaráttunni
Eftirfarandi var samþykkt samhljóða á sam-
eiginlegum fundi trúnaðarmannaráða Verkamannaíélags
Akureyrarkaupstaðar og Bílstjórafélags Akureyrar:
„Sameiginlegur fundur tvúnaðarmannaráða Bíl-
stjórafélags Akureyrar og Verkamannafélags Akúreyr-
arkaupstaðar haldiitn 25. apríl 1951 samþykkir að boða
til sameiginlegs fundar stjórnir allra verkalýðsfélaga í
bænum, þar sem ræddar verði sameiginlegar aðgerð-
ir og samstarf félaganna í væntanLegri kjarabaráttu.
Ennfremur samþykkir fundurinn, að skrifa öllum fé-
lögun'um og óska eftir því ,að þau segi upp samrJngum
sínum frá og með 1. júní.“
fyrsta maí sem bezt úr garði.
Hvaða árangur hefur náðst, og
hvers alþýða Reýkjavíkur met-
ur þetta starf, kernur væntan-
lega í ljós á þriðjudaginn kem-
ur. — Aðgöngumiðar að sam-
söngnum verða seldir á morg-
un í bókabúð KRON og af-
greiðslu Þjóðviljans, og í Aust-
urbæjarbíói eftir kl. 13 á þriðju
daginn.
Lenti iiiidir vél-
skofín — cn
sakaði lítið
S.l. fimmtudag varð sjö ára
drer.gur undir vélskóflu í grjót
Inámi bæjarins, en sakaði furðu
lítið, slapp með hruílur og mar.
Dreng'ur þessi lieitir Pétur Guð
mundsstín og á heima að Sig-
túni 27.
Þegar slysið vildi til var vél-
skóflan að flytja mö'l frá muln-
ingsvél og leyfði stjórnandi
hennar drengnum að sitja hjá
sér í sætinu. Ók hann þá of
framarlega á bynginn, sem var
5—6 mannhæða hár, og valt
skóflan ofan af byngnum.
Stjórnanda vélskólfunnar tókst
að forða sér í tíma, en dreng-
urinn fór með skóflunni alla
leið niður og Iá undir henni
þegar að var komið, en þó ekki
fastur. Má það teljast einstök
heppni að hann sky!di ekki stór
slasast.