Þjóðviljinn - 20.07.1951, Side 3
Föstudagur 20. júlí 1951
ÞJÓÐVILJINN — (3
Lög
gegn Uálri
TÍf Sú saga mnn leugi í
minnum höfð, þegar Bjarni
Benediktsson utanríkisráðherra
kærði nokkrar hafnfirzkar
skátatelpur fyrir Guðmundi I.
Guðmundssyni bæjar.Úgeta í
Hafnarfirði. Sök telpuanna var
sú að þær höfðu hlegið að ráð-
herrin’<m. Höfðu þær setið
aftan á vörubíl á leiðinni frá
Krýsuvík til Hafnarfjarðar, en
ráðherrann hafði ekið á eftir
þcim og gert árangurslausar til-
rauni'r til að komast framúr.
Voru svipbrigði og allt fas
þessa skrýtna manns á þá leið
að skátatelpurnar höfðu aldrei
komizt í annað eins bíó, og
jeskuhlátur þeirra kvað við
marga kílómetra. En ráðherr-
ann hefndi sín sem sagt með
því að kæra hinar æskuglöðu
meyjar og krefjast þess að
þær væru að minnsta kosti sekt-
aðar, ef ekki tukthúsaðar —
Skynsamir menn komu þj i
veg fyrir að kærunni yrði fram-
fylgt, en þetta tiltæki ráð-
herrans varð til þess að h‘á+-
ur ungmeyjanna breiddist úv ti)
þjóðarinnar allrar.
En það eru fleiri en
Bjarni Benediktsson utanríkis-
ráðherra sem viðkvæmir eru
fyrir hlátri. Eins og Þjóðvilj-
inn hefur skýrt frá komu hing-
að nýiega tvö bandarísk herskip.
Þegar það síðara ætiaði að
leggjast utan á það f.vrra tókst
mjög bögulega hjá sjóliðunum
að koma fangalínunni í land.
Þesr misstu hana aftur og aftur
í sjóinn. Meðan á þessum að-
förum stóð safnaðist saman
hópur af fólki á hafnarbaklt-
anum og hafði gaman af og
var ófeimið við að láta skemmt-
un sína í ljós. Að iokum gripu
Bandaríkjamennirnir til þess
hragðs í öngum sínum að skjóta
iínunni í land með línuhvssu!
Klappaði þá hópurinn í landi
fyrir þessu ágæta sjómennsku-
afreki „verndaranra". — En
eftjrleikurinn var eins og hjá
ráðherranum. Herraþióðin sendi
formlega kæru tii Eimskipa-
félagsine daginn eftir, þar sem
kvartaS var undan því að
starfsmenn félagsins hefðu
haidið uppi óviðurkvæmilegum
lilátrum og gleðilátum andspæn-
Is hinran erlenda her!
'ér Og nú er saat að menn-
Ingarvinurinn McGavv hafi
gengið á fund Bjarna Bene-
diktssonar utanríkisráðherra og
krafizt þess að nýju landráða-
iögin verði aukin oa endurbætt
Verði ]íar komið fvrir nýjum
kafla sem bauni íslenflingum að
hiæia ef herrabjóðarmenn eru
náiægir, að viðlögðum þvngstu
refsimrum. Benti menningarvin-
urinn á að hlátur þessi væri af
rússneskum rótum runninn. tii
þess ætlaöur að grafa undan
Örvggi og fullveldi frjálsra
þjóða og í fvlista máta óamer-
áskur. Er ekki annars getið en
að ráðhérrann hafi fullkom-
lega fallizt á siónarmið menn-
ingarvinarins, að öðru levti en
því að hann vildi láta ákvæð-
in ná til sjálfs sía, Má því bú-
ast við bráðabirgðalögum um
þetta efni einhvern næstu daga.
IÞROTTIR
RITSTJÓRI: FRlMANN HELGASON
#»##############################.
„Aðeins bezta
er nógu
• gott6í
Brátt verður annar lands-
leikur Noregs og íslands leik-
inn.
Knattspyrnusamband Noregs
hefur ákveðið að leikurinn fari
fram í Lerkendal í Þrándheimi,
og er auðvelt að spá áhorfenda
fjölda 26. júlí. íslenzka liðið
fer síðan til Gjovik og keppir
við úrval frá Opland, og að
lokum fer það til Oslo og kepp
ir þar við B-landsliðið (iBdslett)
2. ágúst.
Fyrir þann tima hafa íslend-
inga'r fengið eigin grasvöll á
Sögueyjunni. Hann skal vígður
af Válerengen. —
Við skulum gæta okkar vel
að vanmeta ekki styrk Islands
í knattspyrnu. Aðeins bezta
liðið er nógu gott fyrir Noreg
í leikina við frændur okkar. —
(Chat í Sportsmanden)
Z.Ð.K.A. efsl í rússnesku
knattspyrnunni
Rússneska iknattspyrnukeppn
in er um það bil hálfnuð og hef
ur Z. D. K. A. forustuna með
því -að vinna um fyrri helgi
Torpido Moskva 2:1. Áður
var Dynamo Tbilisi efst.
Rússnesku íþróttablöðin eru
óánægð með efstu félögin. —
Krefjast þau meiri baráttu-
vilja, meiri aga og samleiks.
Frakki setur Evrépumef í
400 m sundi
Franskir sundmaðurinn Jean
Boiteux setti nýlega Evrópu-
met í sundi 400 m þar sem á-
rangur hans varð 4.33.3. Gamla
metið átti landi hans Alex Jany
sem var 4.35.2. Setti Jany það
3947. Enn er nokkuð eftir til
að ná meti John Marshall sem
hann setti 25. marz í ár og er
4.26.9
Þegar Randolpfa Turpin vann Sugar
Ray Robinson í hnefaleik
Það þótti einn mesti viðburð-
ur sem skeð hefur um langan
tíma í hnefaleikum er Sugar
Ray Robinson tapaði fyrir
enska hnefaleikaranum ' Rand-
olph Turpin. Kappar þessir eru
í milli-vigt. Robinson vann að-
eins tvær lotur, fjórðu og efl-
eftu en leikurinn var 15 lotur.
Fyrirfram var ekki gert ráð
fyrir að Turpin hefði nokkra
möguleika gegn Robinson, en
hann hefur að undanförnu ver-
ið svo sigursæll í leikjum sín-
um að einsdæmi er, og er af
flestum talin snjallasti hnefa-
Sheila Lervill setur
heimsmet í hástökki
kvenna *
Enska frjálsíþróttakonan
Sheila Lerwill sem Varð Evrópu
meistari í hástökki í Briissel í
fyrra, setti nýlega heimsmet í
þessari grein fyrir konur. Hæð-
in var 1,71,5.
Alþjó|askautasamband'ð
staðfestir 7 met
rússneskra kvenna
Á þingi alþjóða skautasam-
bandsins sem nýlega var hald-
ið í Kaupmannahöfn voru stað
fest 7 heimsmet í skautahlaupi
kvenna, og voru konurnar all-
ar rússneskar, sem þau áttu.
Árangurinn var þessi:
1000 m Sofia Kondakova 1,36,8
1500 m Runna Shvkova 2,36,5
1500 m Maria Isakova 2,29,5
3000 m Olga Akifjeva 5,22,2
5000 m Tatjana Karelina 9,10,7
Samanlagt fyrir hinar á-
kveðnu f jórar vegalengdir:
210,413 st. sett 4. febr. s.l. af
S. Kondakova en það er bætt
11. og 12. febr. af T. Karelina
í 208,820.
6. ÞÁTTUR:
Hvernig get ég orðið góður
knattspyrnumaður?
Svo er annað sem er skylt
þessu sem ég var að segja þér
áðan. Ef þú hefur náð það góð-
um árangri að koma til greina
í lið, þá máttu gera ráð fyrir
því að þú verðir fyrst kjörinn
sem varamaður til að mæta vi'ð
kappleiki. Þetta varamannstíma
bil getur orðið stutt eða langt
eða þú fáir einn og einn leik
og síðan varamaður aftur. Til
að byrja með finnst þér þetta
viðurkenning á hæfni þinni, og
þér finnst eðíilega gaman að
vera kominn þetta nærri því áð
taka þátt í keppni fyrir félag
þitt.
Þetta varamannstímabil hefur
mörgum reynzt erfitt vegna
þess að þeir hafa ekki skilið
það rétt. Þýðing varamannanna
er jafn mikil og sjálfra kepp-
endanna. Sá möguleiki er alltaf
fyrir hendi að keþpendur for-
fallist á síðu3tu stundu eða
menn meiðist í leik, þá eru vara
mennirnir orðnir beinir þátttak-
endur í keppninni og um leið
baköryggi liðsríis — félagsins.
Þetta baköryggi má aldrei
vanta og íiðið þarf og vefður
álltaf að hafa áfla. varamenn
tilbúna þegar keppt er. Ég veit
Framhaid á 6. síðu.
leikari sem nú er uppi. I byrjun
leiksins kom Turpin hörðu höku
höggi á Robinson. sem talið
var að hann hefði liðið af all-
ar loturnar. Hann vantaði allan
kraft í högg sín, Turpin hafði
örugglega forustuna í leiknum
frá byrjun. —
Áhorfendur að leiknum voru
18.000 og þess getið að það
hafi verið yfirleitt betri borg-
arar. Sárabætur mega þa.ð
kallast fyrir. Robinson að hann
fékk sem svarar 1,4 millj. ísl.
króna fyrir leikinn. en Turpin
fékk aðeins um 450 þús. ísl.
króna sem þó er mesta upphæð
sem enskur hnefaleikamaður
hefur fengið í einum Ieik.
Bru.ttó tekjur af leiknum voru
milli 4 og 5 milljónir króna.
Frá því segir að fréttir blað-
anna af leiknum hafi jafnvel
sett fréttirnar frá Kóreu og Tr-
an í skuggann. I ár eru liðin 60
ár síðar. Breti hefur náð þess-
um titli en það gerði Bob Fit/
immons 1891, og hefur það auk-
ið gleði Bietanna.
Búist er við að þeir keppi aft-
ur irj'oð haustinu og lét Ro’oin-
son orð falla eftir leikinr. að
hann vildi mæta Turpin í leik
brátt aftur. Mun sá leikur fara
fran. í Bandaríkjunum Gert er
’-áð fyrir að áhugi fyrir þessum
’eik verði svo mikill að le;i:ur-
inn E>zard Charles hverf' í
skuggann fyrir honum.
Hinn nýi meistari.
Þessi nýi meistari er blökku-
marur aðeins 23 ára gamall.
Framhald á 7. síðú.
Djurgárden vann sænsku
atvinnumennina með 3:1
Sænska liðið Djurgárden kojn
nýlega í kring knattspyrnu-
kappleik milli þess og atvinnu
manna þeirra frá Svíþjóð er
leika á ítalíu, Frakklandi og
Spáni. Var. mikill áhugi fyrir
þessum leik og htífðu 40 þús.
áhorfendur komið á Rásunde-
leikvanginn til að sjá þessa við
ureign.
Áhorfendur urðu vonsviknir
á „útlendmgunum“ sínum, sem
Framh. á 7. síðu
Var stýrið sagað
sundur eða ekki?
Frá því var sagt hér í blað-
inu nýlega að hjólreiðakappi
nokkur Allan Karlson af
sænsku þjóðerni hefði kært
skemmdarverk, sem hann taldi
að gert hefði verið á kapp-
reiðarhjóli hans eða nánar til
Framhald á 7. síðu.
í stuttu máli
Veiziufögnuður hægri krat-
anna, séin eru á fimm viltna
flakki um Bandaríkin virðist nú
svo takmarkalaus að þeir eigi
varla nægilega sterk orð til að
lýsa hrifningu sinni og aðdáun
á hinum bandaríska kapítal-
isma. Hefur útvarpið og marsh-
allblöðin eftir Finni Jónssyni,
að þeir félagar þekki ekkert
þjóðfélag sem búi verkalýðnum
önnur eins sældarkjör og hiö
háþróaða kapítaliska þjóðskipu
lag Bandaríkjanna. Ekki fylgir
það sögunni hvort innkaupafor
stjóri ríkisins byggir þessa um-
sögn sína á persónulegum við-
tölum og kynningu við þær
milljónir verkamanna í Banda-
ríkjunum, sem á „normaltím-
um“ kapítalismans þar ganga
atvinnulausar og eiga ekki fyr-
ir næsta málsverði.
□
Nú fer lítið fyrir öllum þjóð-
félagsumbótum „bræðraflokk-
anna“ á NorðurlÖndum í hug-
um hinnar veizluglöðu sendi-
nefndar afturhaldsfylkingarinn-
ar í Alþýðusambandinu. Hingað
til hefur þó Alþ.fl. burðast við
að halda því fram að, sósíal-
demókratar Norðurlanda hafi
framkvæmt svo víðtækar þjóð-
félagsumbætur, að þau lönd séu
lang 'engst komin á braut ör-
yggis og velmegunar. En nú
bliknar gjörsamlega áratuga
starf og barátta „bræðraflokk-
anna“ (og dúsbræðranna) á
Norðurlöndum við hlið þeirrar
dýrðar og allsnægta sem kapí-
talismi Bandaríkjanna hefur
skapað verkalýðsstéttinni! Það
var mikill skaði að Finni Jóns-
syni, Helga Haiinessyni og Sæ-
mimdi Ölafssyni skyldi ekki
fyrr gefinn kostur á að kynnast
fyrirmyndarríki heimskapítal-
ismans, því sýnilegt er að öll
„baráttan" fyrir hinni „lýðræðÍ3
legu jafnaðarstefnu“ hefur ver-
ið byggð á mjsskilningi og al-
gjöru þekkingarleysi á þetm ó-
tvíræðu yfirburðum sem kapítal
isminn í Bandaríkjunum hefur
fram yfir önnur þjóðfélagsform.
□
Eftir heimkomu þeirra félaga
má vafalaust vænta gagngerðr-
ar endurskoðunar á stefnuskrá.
Alþýðuflokksins, sem þrátt fyr-
ir allan svikaferil flokksforingj-
anna byggist enn á sósíalisma.
A. m. k. verður því ekki trúað
fyrr en á reynir, að Alþýðu-
flokkurinn geri sig beran að
þeim tvískinnungi að halda hér
eftir fram yfirburðum „lýðræð-
islegrar jafnaðarstefnu“ eftir
að einn áðalleiðtogi hans hefur
uppgötvað þá paradís, sera kapí
talisminn hefur búið verkalýð
Bandaríkjanna. Væri það vissu-
lega nokkurs virði ef vesturför
Finns og félaga hans yrði til
þess, að hér eftir reyndu beir
ekki að fara dult með auðvalds-
þjónustu sína og rótgróið hat-
ur á verkalýðshrevfingu og sós-
íalisma. Það er alltaf betra að
átta sig á þeim sem koma til
dyranna eins og þeir ern klædd-
ir.
□
Já, nú er liðin sú tíð þegar
ungur og fátækur póstmaður
norður á Akureyri, snortinn af
sósialisma og verkalýðshreyf-
ingu vildi engum frekar líkjast
én Lenín. og undirstrikaði þessa
þrá sína með því að stæla hixrn.
mikla foringja rússnesku verka-
Framhald á 7. síðu. J