Þjóðviljinn - 20.07.1951, Blaðsíða 6
6) — ÞJQÐVILJINN — Föstudagur 20. júlí 1951
Þarasláttur
Fríimhald af 5. síðu.
ana og hyrjuðu að slá ( á slíku
skipi varð að slá með handafli).
Húit hafði slegið!
Það hófst spennandi bið. Tæk
ist hann þessi fyrsti sláttur á
hafsbotni við Islandsstrendur?
Myndi vélin vinna eins Og höf-
undar hennar ætluðust til?
Enginn vissi hvað var að ger-
ast niðri í sjónum, en þar átti
vclin nú að slá þaraskóginn
eins og hver önnur túnsláttu-
vél gras.
Stöðva! sagði Þorbjörn og
lyfti hendinni. Svo vaggaðist
kassinn hægt og letilega. All-
ir gengu í |kð að hifa afiann
inn. Það fannst bóma á þessu
skipi, en þegar til kom var
ekki hægt að nota hana nema
að nokkru leyti. Allir strituðu
nema ég, sem aðeins horfðj á
meðan aðrir strituðu og þrútn-
uðu í framan, .„Stattu ekki
þarna eins og hengilmæna,
skrattinn þinn!“ kallaði sagn-
fræðingurinn, það rann af hon-
um svitinn. „Nú er ég í þjón-
ustu sagnfræðinnar og ætla að
taka mynd“, svaraði ég glott-
andj og fór hvergi.
Lokst skaut kjafti sláttuvél-
arinnar upp úr sjónum. Spennt
ir menn gerðu hlé á drættinum
og skyggndust yfir borðstokk-
inn. Jú, það flutu breið þara-
bjöð út úr gininu. Nú var dreg-
ið eins hátt og unnt var með að
stoð bómunnar. Svo vörpuðu
stritandi menn mæðinni og
litu á aflann í pokanum. —
Vélín hafði slegið!
Og slátturinn hélt
áfram.
Nú var þyngsta þrautin eft-
ir: að koma vélinni upp á borð-
stokkinn og tæma úr vörp
unni. Það tókst. Og aftur var
kastað, og togað. Sagan end-
urtók sig. 1 næsta skipti var
miklu meiri afli í vörpunni og
höfundar vélarinnar voru á-
nægðir. Rannsóknarstjórinn
tók fram strigapoka og þara-
magnið sem fékkst í hverjum
slætti var vegið. (Verðmæti
hvers þarakílós var þá ein
króna). Þannig gekk fram eftir
degi.
Höfundar sláttuvélarinnar
voru i góðu skapi. Vélin þeirra
reyndist vaxin því hlutverki
sinu að slá þara á hafsbctni.
Við hinir, sem engan þátt höfð
um átt í sköpun hennar, urð-
um þátttajkendur í gleði þeirra
og sigri.
Safnað í þaragjölíiin.
Gróður hafsins á sína feg-
urð. Sum þarablö'ðin voru á að
líta að gerð eins og ofinn dúk-
ur. Og stundum kom allvæn-
ir þarastönglar sem höfðu slitn
að með rót, en ekki skorizt.
Þeir vöktu fögnuð verkfræðings
ins og sálfræðingsins, þvi rót-
ínni fylgdu oft klasar af kræk-
lingi. Kátir á svip söfnuðu þeir
skeljunum og töluðu glað-
klakkalega um hvernig þeir
skyldu matbúa þennan feng í
kvöld. Þeir voru að safna sér
1 þaragjöldin, því sennilega
væri þaraslættinum lokið á
sumripu. Og það voru líka ó-
boðnir gestir sem fylgdu þara-
rótunum, ormakvikindi sem
sugu sig fasta í hendur skelja-
safnaranna, en sá ófögnuður
■gleymdist við tilhlökkunina um
skelfisksveizlu.
Verður, þaraverksnaiðjan
reist?
Sólin var tekin að lækka á
lofti. Það var búizt til heim-
ferðar. Þetta hafði verið á-
nægjulegur dagur. Tilgangi
fararinnar var páð. Sláttuvélin
hafði reynzt hæf. Sli'.ct verk-
færi er hinn mesti nytjagripur,
því seinlegt væri að slá þar-
ann með orfi! Höfundar vél-
arinnar, . Marteinn Björnsson
verkfræðingur og Þorbjörn
Sigurgeirsson hafa vafalaust
verið stcltir af smíði sinni, en
þeir leyndu því afburðavel.
Og hvað svo ? Marteinn
Bjömsson fór á s.l. hausti til
Noregs til að kynna sér þara-
vinnslu og undirbúa áætlanir
um verksmiðju. Verður þara-
verksmiðjan reist? Það er und-
ir stjórnarvöldunum komið.
Eða máske þeir verði að biðja
um leyfi Rentukammers hins
nýja, hjá „manninum sem sit-
ur við íslandsborðið“ í nafn-
kunnri borg í fjarlægri heims-
álfu?
J. B.
Hvernig get ég orðið
góðnr kuattspyrmi-
maður?
Framhald af 3. síðu.
að þú skilur þetta og ert mér
alveg sammála um þetta atriði
og finnst það sjálfsagt, félags
þíns vegna og félaga.
Ef ég á nú að segja þér mín
kynni í þessu efni, þá eru þau í
mörgum thfelium mjög alvar-
leg. Manni liggur við að detta í
hug að mörgum varamönnum
finnist það hálfgerð móðgun við
þá að vera að boða þá sem vara
menn. I mörgum tilfellum bera
þeir fram tilliástæður til þess
að þurfa ekki að koma eða þeir
neita að mæta. Það er engu lík-
ara en það sé einhver skömm
að komp með búning, klæðast
honum og vera viðbúinn ef til
þarf að taka. Mörg félög og
einstaklingar hafa lent í hálf-
gerðum leiðindum og erfiði
vegna varamanna í kapplið. Ég
vi! því aðvara þig strax, að
láta aldrei henda þig að álíta
varamenn einhverja svarta
sauði sem séu til einskis nýtir.
Þú skalt því strax gera þér
grein fyrir því að staða vara-
manns er jafn nauðsynleg og
þess er keppir, að þú ynnir af
höndum sem varamaður, full-
komið félagslegt skyldustarf
eins og sá sem fer í búningnum
út á völlinn. Þetta hefur mikla
þýðingu fyrir öryggi liðsins.
Það gefur meiri samheldni og
festu í félagsstarfið. Það auð-
veldar þeim sem í frítíma sínum
og af áhuga hafa tekið að sér
að stjórna þessu fyrir félagið.
Ég vil bæta því hér við að
þess munu mörg dæmi að
menn hafa gefist upp og hætt
knattspyrnu ef varamannstíma-
bil þeirra hefur orðið lengra em
þeim þótti hóf að. En ég skal
segja þér að þessir menn hafa
ekki haft í sér þá leikgleði og
félagslund sem ég hef áður
sagt þér að sé nauðsynleg til að
verða góður knattspyrnumaður.
Eftir A. J. Cronin
211
DAGUR
vinnuveitandinn. í gorti sínu og digurbarkalát-
um kom hann fram sem velgerðarmaður þeirra,
maðurinn sem hafði komið Neptúnnámunni af
stáá aftur og lofaði nú hverjum einasta þeirra
atvinnu. Það átti allt að gerast eftir kosning-
arnar.
Kosningabaráttan varð æ harðari. Ramage,
sem hafði á sínum tíma þegar Jói var drengur,
sparkað í hanu fyrir stuld úr búðinni, skreið nú
manna mest fyrir honum. Eftir skipun frá Ram-
age hélt séra Lovv brennandi prédikun í Bethel
Street kirkjunni, þar sem hann talaði um lög og
rétt og hóf herra Jósep Gowlan til skýjanna og
vísaði þeim út í yztu mvrkur sem voguðu sér
að greiða Fenwick atkvæði. Connollý hafði lýst
því yfir á gasstöðinni í heyranda hljóði, að þeir
af starfsmönnum hans sem létu hjá líða að
greiða Gowlan atkvæði, væru bölvaðir bolsar sem
þyrftu ekki að búast við vihnu hjá sér framar.
Tynecastle blöðin voru öll með tölu á bandi
Jóa, og Jim Mawson hafði sín áhrif bakvið
tjö.din. Á hverjum degi komu tvær flugvélar frá
Rucford verksmiðjunum sem sveimuðu yfir
Sleescale kjósendunum til heiðurs. Þegar heið-
skirt var' sendu þær jafnvel frá sér reykmerki.
Áhrif peninganna komu fram á mörgum sviðum.
Oft mátti sjá aðkomumenn í Sleescale, sem gáfu
sig á tal við verkamennina á götuhomum og
veittu ríkulega á kránum. Og Jói var óspar á
loforð og fagurmæli.
Davíð varð var við öll þau öfl sem börðust
gegn honum og hann lá e'kki á liði sinu. En
vopn hans voru fá og léleg gegn ofureflinu.
Har.n varð alls staðar var við andúð og mót-
spyrnu, sem dró mátt úr honum og lamaði hann.
Hann missti ekki kjarkinn, heldur lagði sig
allan fram og notfærði sér alla þá reynslu sem
hann hafði aflað sér í stjórnmálalífinu. En því
ákafar sem hann barði frá sér, þeim mun út-
smognari urðu brögð Jóa, Hin sifelldu köll og
hróp áheyrendanna, sem allt frá byrjun höfðu
truflað fundi Davíðs, urðu smám saman óvið-
ráðanlegri. Venjulegar truflanir gat hann ráðið
við og tókst jafnvel oft að snúa þeim sér í hag.
En þessar truflanir áttu sér engin takmörk.
Hópur óróaseggja frá Tynecastle birtist á öllum
fundum sem Davið hélt undir forustu Pete
Bannon, gamals boxara sem nú var veitinga-
þjór.n og ævinlega reiðubúinn að slást. Enda
kom alltaf til óeirða, já, það varð næstum föst
venja að útifundir Davíðs enduðu í slagsmál-
um og ringulreið. Wilson kvartaði undan þessu
við lögregluna og krafðist. verndar, en það bar
lítinn árangur.
„Þetta kemur okkur ekki við“, sagði Roddam
ósvífnislega. „Bannon er ekki úr okkar umdæmi.
Þið eruð svei mér ekki of góðir til að halda
sjálfir uppi reglu á fundunum"
Þessi heiðarlega kosningabarátta varð æ harð-
ari. Næsta þriðjudagsmorgun, þegar Davið var
á leið á nefndarfund, sá hann að þvert yfir múr-
inn við endann á Lamb stræti var málað stór-
um stöfum: Þekkið þið konu Fenwicks? Hann
fölnaði og gekk nokkur skref í áttina að múrn-
um, eins og hann vildi þairrka letrið út. En
það var tilgangslaust. Sama spumingin blasti
við á hverjum einasta múrvegg og húsgafli,
já, jafnvel á rimlagirðingunum meðfram brautar-
teinunum. Örmagna af þjáningu og viðbjóði hélt
harrn áfram íeiðar sinnar. Wílson og Harrý
Oele yoru þegar komnir á fundinn. Þeir höfðu
báðir séð ósómann. Ogle var ofsareiður.
„Þetta gengur of langt Davíð“, hrópaði hann.
„Þetta er svívirðilegt. Við verðum að fara til
hans .... og bera fram mótmæli“.
„Hann neitar bara að hann beri nokkra á-
bvrgð á þessu“, svaraði Davið hljómlausri röddu.
, Við gætum ekki glatt hann meira en með því
að bera fram kvartanir við hann“.
„Þá skal hann líka fá þetta borgað á annan
hátt“, svaraði. Harrý vígreifur. Ég skal jafna
um gúlann á honum, þegar ég tala fyrir þig í
kvö’,d“.
„Nei, Harrý“. Davíð hristi höfuðið ákveðinn
á svip. „Ég vil ekki borga í sömu mynt“.
Upp á síðkastið höfðu þessar skipulögðu of-
sókr.ir gegn honum, hvorki fyllt hann reiði né
'natri, heldur aðeins styrkt og eflt sálarþrek
hans á furðulegan hátt, Hann leit á þetta and-
lega líf sem hinn eina sarina tilgang með tilveru
mannsins. Það var óháð öllum trúarbrögðum
og hafið yfir öll efnisleg vapdamál. Hinn hreini
tilgangur var eini mælikvarðinn á sálina. Ekk-
ert annað skipti máli. Og þessi háleiti, andlegi
skilningur á köllun hans. skildi ekki eftir neitt
rúm fyrir hatur eða beizkju.
En Harrý Ogle leit öðru vísi á málin. Hann
var gagntekinn réttlátri reiði og hann vildi
gjalda andstæðingnum líku líkt. Þetta kvöld
klukkan átta hélt Harrý Ogle útifund á gamla
námusvæðinu fyrir utan bæinn, og þá gleymdi
hann sér í svo ríkum mæli að hann lastaði bar-
áttuaðferðir Jóa. Davíð hafði verið í Hedley
Road End, nýja námumannahverfinu, og kom
ekki heim fyrr en seint og síðar meir. Hvað
eftir annað heyrði hann eitthvert hljóð fyrir
utan dyrnar og hann leit eftirvæntingar augum
til dyra í þeirri von að þetta væri Harrý til að
segja fréttir af fundinum. Klukkan tíu reis
hann á fqetur og ætlaði að læsa útidyrunum,
en þegar hann tók í hurðina reikaði Harrý inn
um gættina, náfölur og ataður blóði. Hann var
næstum meðvitundarlaus og blóðið lagaði úr
svöðusári fyrir ofan augað.
Davíð lagði hann á legubekkinn og sendi Jack
Kinch í skyndi eftir Scott lækni. Meðan Harrý
lá með kaldan bakstur á opnu sárinu, sagði
hann veikum rómi frá því sem gerzt hafði.
„Þegar við vorum á heimleið réðust þeir á
okkur, Bannon og kumpánar hans. Ég sagði
um Gowlan að hann mergsygi verkamenn sína
og framleiddi herflugvélar og sprengiefni. En
ég hefði sjálfsagt getað bjargað mér, ef einn
þeirra hefði ekki verið með blýstöng . ... “
Hann reyndi að brosa og svo leið yfir hann.
Ennið á Harrý var saumað saman með tíu spor-
um og svo var honum komið í rúmið Jói fylltist
auðvitað mikilli vandlætingu. Að slíkt og þvílíkt
skyldi geta átt sér stað á brezkri grund. Hann
hélt ræðu í ráðhúsinu þar sem hann formælti
þessum bölvuðum rauðliðum, bolsunum, sem réð-
ust í tryllingi á sína eigin forsprakka. Hann
skrifaði Harrý Ogle bréf og lýsti samúð sinni
fjálglega. Samúð Jóa var hafin til skýjanna.
Blöðin birtu tilkomu mestu setningar hans, og
honum varð mikið gagn að þessu atviki.
En þetta var mikið áfall fyrir Davíð. Nú
naut hann ekki lengur virkrar aðstoðar Harrýs.
Harrý var mikils metinn og hafði mikil áhrif
á þá sem fóru sér hægt og vildu ekki flana að
rieinu. Og nú fóru þessir rosknu menn, sem
vissu ekki hverju þeir áttu að trúa og voru
hálf hræddir við allar þessar óspektir, að hætta
að koma á fundina hjá Davið. Og um leið náði
ofsóknarbylgjan gegn verkamannaflokknum sem
hafði geisað rnn landið hámarki sínu. Fólk fyllt-
ist skelfingu yfir hinum æðisgengnu spádómum
um fjárhagslegt hrun. Fáránlegar myndir af
verkamanni, sem fékk laun sín borguð í ónýt-
um pappirsmiðum, sem hann reyndi í örvænt-
ingu að kaupa mat fyrir, blöstu alls staðar við.
Og í stað þess að gefa núverandi stjórnskipulagi
sökína, var verkamannaflokknum kennt um allt
saman. Látið þá ekki ræna peningum ykkar,
var hrópað. Peningarnir voru aðalatriðið. Við
verðum að halda fast í peninga okkar, fyrir
hvern mun halda fast í þá, þennan helgidóm,
peningana okkar .... blessaða peningana.
Með næstum yfirnáttúrlegu þreki varpaði
Davíð sér út í síðustu bardagana„ 26. október
ók hann um í bænum á gamla flutningsbílnum,
sem hafði á sínum tima stuðlað að sigri hans.
Hann vpr úti allan daginn og gaf sér varla tíma.
til að neyta matar. Hann talaði þangað til hann
kom ekki lengur upp orði. Klukkan ellefu fór
hann heim í Lamb Lane eftir lokafundinn sem
haldinn var fyrir utan samkomuhúsið, og fleygði
sér örmagna upp i rúmið. Hann sofnaði um leið
og hann lagðist út af. Daginn eftir áttu kosn-
ingarnar að fara fram.
Kosningaþátttakan var mjög mikil. Davíð
var heima allan fyrri hluta dagsins. Hann hafði
gert allt sem hann gat, lagt sig allan fram.
Meira gat hann ekki. Á yfirborðinu' var hann
ekki að velta fyrir sér úrslitunum eða hugsa
um þann dóm sem fólkið var að fella.yfir hon-
um. En í hjarta sinu var hann milli vonar og
ótta. Sleescale hafði alltaf verið talin örugg,
háborg námuverkamannanna. Þeir vissu að hann
hafði unnið og barizt fvrir þá. Það var ekki
honum a’ð kenna að það hafði mistekizt. Þeir
hlutu að gefa honum annað tækifæri til að
vinna og berjast fyrir þá. Hann gerði sér fylli-
lega ljóst að Gowlan stóð mun betur að vigi
sem eigandi nárrmnnar. Honum var Ijóst að Jói
hafði einskis svjfizt til a® sundra verkamönnun-
um og gera Davið tortryggilegan í augum þeirra.
Hoi.-um varð þungt um hiartað þegar hann hugs-
aði um dylgjurnar um Jenný, sem höfðu bakað