Þjóðviljinn - 20.07.1951, Qupperneq 8
Síldln er m dfúpt á austursvæðinu
Lltil síldveiði en ágætt veSur í gær.
Raufarhöfn. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Ágætt veður var í dag á austursvæðinu, en engin veiði fyrr
en um kl. 9 í kvöld aí sjómenn byrjuðu að fara í bátana. Var
það 30—40 miiur iit af Sléttu. Síldarleítarf2ugvél sá síld djúpt
út af Langanesi í kvöld. Síldin á austursvæðjnu er öll mjög
djúpt.
Leiíarflugvéliimi
hlektist á
Annarri síldarleitarflugvél-
inni hlekktist á er hún ætlaði
að lenda á Kópaskeri í fyrra-
kvöld. Brotnaði af henni annar
vængurinn í lendingunni. Flug-
maðurinn slapp ómeiddur og
sömuleiðis annar maður er í
|flugvélinni var.
Margir trillubótar gerðir út
á Bakkafirði í sumar
Byggð verður I sumar brú yfir Fimtafjiröará
Allmargir trillubátar hafa verið gerðir út frá Bakkafirði í
vor. Hafa þeir fiskað misjafnlega en nokkrir bátar þó fengið
góðan afla. Róðrum verður haldið áfram í sumar. Nok'krir bát-
arnir eru langt að komnir t. d. sumir héðan úr Reykjavík. Ekki
er um annað að ræða á Bakkafirði en að salta aflann, því frysti-
hús er ekki á staðnum.
Hér á Raufarhöfn hafa nú
verið saltaðar um 5 þúsund
tunnur og verksmiðjan hefur
tekið á móti yfir 40 þús. mál-
um. I dag var saltað um 400
til 500 tunnur úr nokkrum bát-
um, afli frá í fyrrinótt.
Aldrei hefur venð hér eins
mikill viðbúnaður til að taka á
móti síldinni og nú, eru hér
4 söltunarstöðvar og tvær
þeirra stórar. Á morgun er
væntanlegt skip með 10 þús.
tómar tunnur.
Að því er fréttaritari Þjóð-
viijans á Akureyri símaði hafði
Krossanesverksmiðjan tekið á
móti um 9 þús. málum í fyrra-
kvöld, og saltað hafði verið í
tæplega 300 tunnur. í fyrra-
dag komu til Krossancs Auður
með 790 mál, Stjarnan með 573
og Snæfell með 265.
Æ. F. R.
Ef nægileg þátttaka fæst,
fer Æskulýðsfylkingin í sum-
arleyfisferð í Þjórsárdal
laugardaginn 28. júlí,
Fundurinn kaus í sérstaka
nefnd til þess að annast fram-
kvæmdir þá: Svein Guðmunds-
ison, Reykjavík, Stefán Jónsson,
Hafnarfirði, Þorgeir Jósefsson,
Akranesi, Valdimar Björnsson,
Keflavík og Eggert Jónsson,
Reykjavík, og gaf nefndinni
fullt og ótakmarkað umboð til
þess:
Túnaspretta er léleg í
Sikeggjastaðahreppi eftir kalt
vor og harðan vetur, og lítur
illa út með heyfeng í sumar.
Útengi eru víða betur sprottin
en túnin, einkum þar sem vot-
lent er. Sláttur er nú almennt
hafinn í N.-Múl. Lambahöld
hafa verið ágæt í vor og fé
gengið vel fram. — Verið er að
lagfæra veginn milli Bakka-
fjarðar og Þórshafnar og
byggð verður í sumar brú á
Finnafjarðará, en hún getur
orðið allerfiður farartálmi í
leysingum og vatnavöxtum á
vorin, þótt hún sé vatnslítil að
jafnaði.
1. Að reyna að fá ríkisstjórn
og Alþingi til þess að bæta iðn-
aðarmönnum að einhverju eða
öllu leyti tjón það, er þeir hafa
orðið fyrir vegna skuldaskil-
anna.
2. Að höfða mál til þess að
fá úr því skorið fyrir dómi,
livort skuldaskilalögin brjóti
Framhald á 4. siðu.
Góður trillubáta-
afli á Þórshöfn
Margir triirubátar eru gerðir
út frá Þórshöfn á Langanesi í
sumar og hafa þeir fengið á-
gætan afla eða allt að 9 skip-
pund í róðri. Bátarnir þurfa þó
að sækja fiskþin alllangt eða
austur fyrir Langanes og tekur
í'óturinn sólarhring. Fiskað er
á handfæri.
Allmikil síldarsöltun verður
á Þórshöfn í sumar verði góð
veiði. Auk söltunarplans sem
fyrir var og starfrækt var í
fyrra sumar, hefur Kaupfc.lag
Langnesinga byggt nýja sölt-
unarstöð í vor og sumar, sem
er um það bil tilbúin til starf-
rækslu — Frystihús kaupfé-
lagsins hefur keypt afla trillu-
bátanna.
Á liann að keppa?
íþróttamaður hringdi til Þjóð-
viljans og bað fyrir eftirfar-
andi: Alþýðublaðið birti á mið-
vixudaginn mynd af bandarísku
íþróttamc'nnunum við komu
þeirra til landsins. Á miðri
myndinni er McGaw hershöfð-
ingi. Vill Alþýðublaðið upplýsa
hvort McGaw er mættur þarna
sem einn af frjálsíþróttamönn-
unum, á hann kannski að keppa
eða er hann mættur þarna til
að taka á móti þeim sem full-
trúi Islands ? — Fyrirspurn-
inni er hér með vísað til réttra
aðila. >
Iðnaðarmemi skipa neínd
til að gæta hagsrauna sínna við
skuldaskil vélbátaflotans
Að tilhlutan stjórnar Landssambands Iðnaðarmanna héldu
iðnaðarmenn þeir og fulltrúar iðnfyrirtækja, er beðið hafa tjón
vegna yfirstandandi skuldaskila bátaútvegsins, fund með sér í
'Baðstofu iðnaðarmanna þriðjudaginn 17. þ. m. Rætt var um,
hverjar leiðir tiltækilegast myndi að fara, til þess að rétta
hlut iðnaðarmanna í þessum málum eða fá bætt tjón það, er
þeir hafa orðið fyrir.
Þegar síldarskipin
koma með góðan
afla að landi norð-
anlands er uppi fót-
ur og fit, og allir
sem vettlliigi geta
valdið vinna að hag-
nýtingu síldarinnar.
Húsmæðurnar yflr-
gefa eldhúsin, kla ð-
(ast hlífðarfötum sín-
um og skunda út á
söltunarplönln. Mik-
ill fjöldi ungra
stúlkna frá öllum
landshlutum -legfgur
leið sína norður að
sunirinu í síldarviun-
una. Undanfarandl
ár hafa þær flestar
borið smátt úr být-
um. En samt seiðir
síidin, og enn flykkj-
ast stúlkurnar norð-
ur. Ailir vona að nú
verði gott og tekju-
drjúgt síldarsumar.
Föstudagur 20. júlí 1951 — 16. árgangur — 161. tölublað
Þarasláttuvélínni — eða máske menn vílji heldur kalla hana
botnvörpu — í fyrsta sinn sökkt í sjó. — Sjá grein á 5. síðu.
Hvers vegna hafa blöð hinnar frjálsu
samkeppni leynt þessu í 4 mánuði
fyrir lesendum sínum?!
IJm mánaðamótin maxz—apríl s.l. vetur kom Olav Olsen í
Ytri-Njarðvík fram með nýstárllega og athyglisverða tillögu.
llann lagði til að fram yrði látið fara nokkurskonar hæfn'spróf
á olíukyntum m'ðstöðvarkötlum. Skyldi sjálft fjárhagsráð hafa
yfirumsjón með rannsókn þessari.
Benti Olsen á að með því að nota aðeins sparneytnustu og
hagkvæmustu gerðina Væri hægt að spara mikið fé í erlendum
gjaldeyri.
Greinargerð um þessa tillögu sína sendi Olsen öllum Reykja-
víkurdagblöðunum til birtingar, en svo undarlega liefur viljað
til, að aðeins Þjóðviljinn og Tíminn hafa skýrt Iesendum sínum
frá þessari hugmynd.
Hvað veldur? Hvernig stendur á því að blöð hinnar „frjálsu
samkeppni“ hafa haldið þessari samkeppnishugmynd Olsens
leyndri fyrir lesendum sínum í nær fjóra mánuði?!
Tillaga Olsens var alveg í
samræmi við kjörorðið um
frjálsa samkeppni. Allir sem
framleiða miðstöðvarkatla áttu
að fá að sýna gæði og hæfni
framleiðslu sinnar. — Árang-
ur þessarar samkeppni hefði að
sjálfsögðu átt að verða sá að
almennt yrðu keypt sú gerð
katla sem bezt reyndist. Þar
með myndi álmenningur spara
stórfé í lækkuðum hitunar-
kostnaði og ríkið einnig i gjald-
eyri fyrir olíu.
Olíueyðslan minnkaði
um helming
I áður ámiUnztri grein sinni
sag'ði Olsen m. a. á þessa leið:
„Notkun hráolíu til upphit-
unar húsa hefur vaxið stór-
lega á síðustu árum. Má hik-
laust telja að varla sé svo reist
nýtt íbúðarhús, að það sé ekki
liitað upp með olíu og viðbúið
að svo verði enn um skeið a. m.
k. Auk þess hefur fjöldi manna
sem áður hafði kolakyndingu
skipt um og nota nú olíu í stað
kola. Ástæðau er fyrst bg
fremst hin miklu þægindi sem
olíukyndingu eru samfara mið-
að við kolakyndingu. Við þessa
þróun hefur skapazt allmikill
markaður fyrir olíukyndingar-
tæki, bæði katla og brennara.
Allmörg fyrirtæki hafa seit slík
tæki undanfarin ár. Það er eng-
um efa undirorpið að tæki þessi
eru mjög misjöfn að gæðum
hvað olíueyðslu snertir. —
Dæmi eru þess að menn hafi
minnkað olíueyðslu sína um allt
að helming við það að skipta.
um miðstöðvarketil“.
Fram fari hæfnis- *
samkeppni
Síðar í greinargerð sinni seg-
ir Olsen þannig frá hugmynd
sinni um samkeppni:
„Hún er sú. að settur sé á
stofn einskonar rannsóknarrétt-
ur dómbærra manna á gildi
þeirra olíukatla, sem á boð-
stólum eru. Virðist eðlilegt að
framkvæmd málsins sé í hönd-
um Fjárhagsráðs, þar sem hér
getur verið um að ræða veru-
legt gjaldeyrismál. Framkvæmd
málsins get ég hugsað mér
þannig t. d., a'ð öll þau fyrir-
tæki, er slíka katla og kynding-
artæki hafa á boðstólum, láti
nefndinni í té til afnota einn
ketil í einskonar prófraun. Síð-
an eru allir þessir katlar settir
upp á þar til völdum stað undir
eftirliti framleiðendanna og
Framhald á 7. síðu
ii Beriínarfarar ii
Fundur verður haldinn '1
í kvöld kl. 8,30 að Þórs-
<1 götu 1.
!; Mjög áríðandi er að <!
allir Berlínarfararnir !;
! mæti. Á fundi þessum ;>
!; verða þátttakendur að '!
;| greiða þátttökugjaldið ;;
3000.— kr. A fundinum ;|
!; verða gefnar mjög mikil- ;!
!; vægar upplýsingar. !;
NEFNDIN j;
1 >•