Þjóðviljinn - 29.07.1951, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 29.07.1951, Blaðsíða 1
Sunnudagur 29. júlí 1951 — 16. árgangur — 170. tölublað Hefja Bandaríkin innrásarstríð í Viet-nam gegn sjálfstæðishreyfingu iandsins Er Thomas Dewey sömu erinda í Vietnam og Foster Dulles í Kóreu í fyrrasumar? de Tassigny farinn til Washington til að rceða „nýjar aðferðir í baráttunni gegn í Asíu" Isegir að þar sé álitið að Dulles og Truman hafi valið Dewey Fregnir írá Vietnam þykja benda ískyggilega tú fararmnar vegna Þess hve íllræmdur Dulles sjálfur er orð inn í Asíulöndum vegna hinnar , dularfullu“ farar hans til Kór- eu dagana áður en leppstjórn Bandaríkjanna hóf þar borgara styrjöldina. Hefði Dulles farið nú, gæti svo farið að Asíubúar yrðu trúlitlir á einlægni Banda ríkjastjórnar með vopnahlés- viðræðurnar í Kóreu. í þá átt að Bandaríkjastjórn hafi í hyggju að endur- taka þar sama leikinn og í Kóreu í fyrrasumar, er mistókst þar svo herfilega sem raun ber vitni. Thomas Dewey, einn æstasti stríðsæsingamaður Bandaríkjanna cg nákominn John Foster Dulles bess er sendur var til Jap&n og Kóreu í ,,dularfu.ll- um" erindagerðum dagana áður en Bandaríkin hófu innrás þar, er ná kominn til Vietnam, til að ræða , bandaríska hjálp í baráttunni við kommúnismann" að því er tilkynnt ?r. Samtímis er yfirhershöfðinai franska innrásar- hersins í Vietnam, Jean de Lattre de Tassigny, lagð- ur af stað frá Saigon, en Bandaríkjastjórn hefur boðið honum til Washington. Samkvæmt tilkynningu talsmanns franska ut- anríkisráðuneytisins 18. þ. m. ætlar de Tassigny að ræða við bandaríska stjórnmálamenn „Mýjas' aðferð- u í baráítunm gegn kommúnlsmantfm í Asíu efllr að samið hefur verið um vepaalilé í Kóreu." Þremur dögum áður en til- kynnt var opinberlega í París Washington-heimboð de Tass- igny, 15. júlí birti kvislingur Frakka í Indónesíu Bao Dai, fyrirskipun um skyldu herþjón- ustu allra vopnfærra karlmanna á þeim hluta landsins sem Frakkar ráða yfir. Bandarísk blöð segja frá því að William Chase hers- höfðingi, yfirmaður hernaðar nefndar Bandaríkjanna hjá Sjang Kaisék á Taivan, fari innan skamms til Saigon. Thomas Dewey hefur á sendiför sinni um Austur- Asíu átt ýtarlegar viðræður við Sjang Kaisék og Chase hershöfðingja á Taivan. Dewey er nú kominn til Saig- on og er talið að för þeirra beggja sé m.a. í sambanöi við THOMAS DEWEY þá 30 000 kúómintanghermenn sem flýðu inn í Indókína, voru afvopnaðir og dvelja þar enn. I Telepress-fregn frá París Einvígi Stefáns og Þérarins hafið Bandarísk áróðursmálgögn hvarvetna um heim virðast hafá fengið fyrirskiuun um að skrifa eina grein á dag eða bví sem næst um Berlínarmótið og bátttakendur har. Mogginn nöldrar, Stefán Pét- ursson öskrar ( honum dugði ekki minna í gær en fjórdálka fyrirsögn í heimsfréttastíl á for síðu!) og hefur einbeitt "áróðri sínum til að reyna að hindra fiir Gunnars Iluseby, en banda- rísku húsbændunum er sérstak- lega þyrnir í augum að frægir íþróttamenn taki þátt í Berlín- armótinu. Nú er aðalnúmerið að fjórir íþróttamenn (sjálfir hreinir sem englar, hafa aldrei farið á fyllerí né valdið hneyksl um, hvorki heima né erlendis) þykist ofgóðir að keppa með Gunnari Huseby framar! En þó er þáttur Tímans öm- urlegastur. Það blað hefur mannað sig örlítið upp annað veifið gegn hinum bandarísku fyrirskipunum, en ef dæma má eftir greininni í gær um Berlin- arfarana virðist búið að ,lækna‘ blaðamenn hans af þeirri til- hneygingu til heiðarlegs and- ófs gegn bandarískri sorablaða- mennsku. sem stundum hefur fundizt hjá þeim. Mun nú hefj- ast hörð samkeppni milli l>ór- arins og Stefáns Péturssonar hvor tileinkar sér á fullkomn- ari hátt bandaríska sorann og tilreiðir hann íslenzkum lesend- um. TT Undanfarin ár hafa „berir“ menn öðru mToru verið að skjóta upp kollinum hingað og þangað í bænum. Lengi hefur verið hljótt um þessa mann- gerð en nú hefur einum skotið upp inni í Laugarneshverfi. Ekki virðist tilgangur hans vera að hræða neinn, heldur kvað hann sækjast eftir því að sýna vegfarendum þeim sem kvenkyns eru dýrð sköpunar sinnar í sem fjölbreyttustum stellingum. ws *=* INDÓ-KlNA Skemmtiferð ÆFR um verzl- unarmannahelgina Eins og undanfarin sumur efnir ÆFK til skemmti- ferðar um verzlunarmannahelgina. Að þessu sinni verður farið að Hveravöllum, Kerl- ingarfjöllum og Hvítárvatni. Þeir, sem iéíla að taka þátt í þessari ferð, eru beðnir að skrifa sig á lista, sem Iiggur frammi í skrif- stofu ÆFK, fyrir miðvikudagskvöld 1. ágúst, eða láta vita í síma 7510. Skrifstofan er opin frá kl. 8—9 e. h. nema laug- ardaga frá kl. 1—3. FERÐANEFNDIN. /VVVVVVUVVWVWS^WVVWWbVW'wWVVVVVVWWW'UVVVVVV Bandarísk stríðshetja Mynd þessi birtist nýlega í danska blaðinu Land og Foik, og segir til skýringar m. a. að myndin af bandaríska liðþjálf- anum sé frá bandarísku frétta- stofunni Associated Press, hafi þetta lesmál fylgt: „Maurice Mosher, liðþjálfi, fyrrverandi kolanámumaður frá Glen Lyon, USA, sem drap 300 kínverska rauðliða og særði marga aðra, og það á 15 mínútum. Mosher, sem þegar hefur verið sæmdur þremur bronsstjörnum, hefur nú verið nefndur sem verðugur silfurstjörnu“. Bak við hann er mynd frá Kóreu, ein hinna ægilegu fjöldagrafa fólksins, karla, kvenna og barna sem bandaríski herinn og leppar þeirra í her Syngmáns Rhee hafa látið myrða á hryllilegasta hátt. — (Tíminn lét í ljós þáð álit í gær að einhverjir menn Syngmans Rhee kynnu að vera slæmir, — en gleymdi að bæta því við að Eysteinn Jónsson, Hermann Jónasson og Fram- sóknarflokkurinn hafi lagt nafn og heiður Islands og íslenzku þjóðarinnar við baráttu sem miðar að viðhaldi hins fasist- íska blóðveldis Syngmans Rhee í Kóreu.) r Flekklaus er ég Menntamálaráðherrann hann kókakóla Björn hefur nú látið sig hafa það að skrifa einn leiðara í. blað sitt Vísi þar sem hann lýsir sig hreinan sem engil, er staðizt hafi allar freistingar viðskiptalífsins. Ráðherrann hefur verið í meir en ár að reyna að kom- ast að því fyrir Þjóðviljann hver væri umboðsmaður Tu- borgs danska hér á landi, og hefur nú loks komizt að því, sýnilega til mikils léttis fyrir Vísi og alla hlutaðeigendur! -fc Man hinn flekklausi, vamm- lausi menntamálaráðlierra eftir heildsala sem lék það þokka- bragð á stríðsárunum að setja sem skilyrði fyrir sendiför til Ameríku sem átti að vera í þjónustu þjóðarinnar, að liann mætti nota ferðina til að raka saman umboðum handa sér prívat, og náði sér þannig í feita bita sem keppinautar hans komust ekki að vegna þess að þeir voru ekki sendir út í erind- um ríkisins? -jíj- Heldur kókakóla-Björn að dugi að stunda Iaugarnar til að þvc af sér braskaraóþrifin ?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.