Þjóðviljinn - 29.07.1951, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 29.07.1951, Blaðsíða 6
6) — ÞJÓÐVILjINN — Sunnadagur 29. júlí 1951 Framíaxii í síidaivmnsk Framha'd af 5. síðu. upp nýjar og líklega rnyndu byggingarnar ekki hœfa vel I eldur. En það er einnig hægt að fara aðra leið til að fá full- komna nýtingu á hráefninu, nefniega þá að eima skiivindu- vatnið, sem inniheldur öll efn- in sem leysast úr síldinni við suðu og pressun. Þetta er vel framkvæmanlegt og þyrfti þá aðeins að setja upp eimingar- tæki til viðbótar þeim vélum sem fyrir eru í verksmiðjunum. Límvatnið er sýrt með brenni- steinssýru og eimt þangað tii það inniheldur 50% þuirefni og (kallast þá soðkjarni. Soðkjarni þessi er mjög verðmætt skepnu- fóður og innihedur mörg dýr- mæt efni t. d. B-fjörefnin ríbó- flavin, B,j og mörg önnur vaxt- arefni. Ó.B.B. Biemiisfeissvinnsla úi hveragnín Framhald daf 3. síðu. risku. Brennisteinsmagnið í þeim er mjög lágt, 10—30%, og vinnsla dýr. StofnkostnaSur brennisteinsverk- smiðju um 6 millj. kr. Baldur Líndal telur áð úr jarðgufunum hér á landi mundi vera sérstaklega hagkvæmt að framleiða mjög hreinan brenni- stein, sem er allmiklu verðmæt- ari en venjuleg vara. Stofn- kostnaður brennisteinsverksm. við Námaf jall, sem ynni vöruna beint úr jarðgufunni, telur hann að yrði um 6 milljónir króna. Alltof litlu fé varið tl; hagnýtra jarðfræði- rannsókna Alltof litlu fé er árlega varið til hagnýtra jarðfræðirann- sókna á landi hér og fer því f jarri að kannað sé til nokkurr- ar hlítar hvaða verðmæti kunna að vera fólgin hér í jörðu. Því til sönnunar nægir að benda á þá staðreynd, að á allra síðustu árum eru efna- og jarðfræðing- ar okkar að finna ný verðmæt efni á rannsóknarferðum sínum. Síðastliðið sumar fann Tómas Trj'KKvason, jarðfræðingnr, t. d. blýstein í Álftafirðl og mun ekki enn rannsakað hvað finn- ast kann þar af slíku vegna þess að Tómas eða aðrir jarð- fræðingar hafa ekki haft tæki- færi ti[ að rannsaka staðinn neitt frekar. í rannsóknarleiðangri sínum um Suður-Þingeyjarsýslu í fyrrasumar fann Baidur Líndal leirtegund eina, fágæta og dýr- mæta, í Leirhnúk við Mývatn. Gestur Þorgrímsson í Laugar- nesi hafði áður fundið mola af þessari sömu leirtegund í Náma f jalli er hann leitaði þar leirs til listmunagerðar. Leirtegund þessi, sem bent- Kaf f ih Cora Sandel Og Katinka hlýtur að vera drukkin, þótt hún hafi aðeins drukkið úr einu glasi. Annars hefði hún að sjálfsögðu farið sína leið án þess að anza. Hún er engin daðurdrós, eða það er að minnsta kosti langt síðan hún var það. Kvæðið um hana, sem strákarnir syngja stundum á götunum, er óttalegt bull, leifar af gömlum orðrómi og aðdróttanir um drykkjuskap. Nú heyrir kvenfólkið áð hún segir vandræðaleg og dálítið hikandt: Þetta ei failega boðið, en ég er nýbúin að -y — Er nauðsynlegt að rjúka á dyr þótt einhver annar komi inn? Er nokkuð athugavert við það að fólk tali saman? Ég ætlaði einmitt að fara að fara — — Já, auðvitað og þegar ég kom inn fóruð þér að flýta yður. Ég held ég þekki þetta. 1 öðrum löndum, suður í heimi, er þetta allt öðru vísi. Þar getur fólk talað saman. Hér á norð- urlöndum er eins og maður sé pestarsjúklingur ef maður er einn. Getið þér neitað því? Það getið þér ekki. Já — — í Svíþjóð, þaðan sem ég er sprottinn, er þetta ennþá verra. Annárs get ég vel talað norsku. Ég hef siglt á norskum skút- um í mörg herrans ár. Ég kom hingað fyrst með norskri skútu. Svo datt ég niður í lest, fótbraut mig og var lagður inn á sjúkrahúsið hér. Og meðan sigldi skútan. Þannig fór nú það. Að vísu greiddu þeir öll útgjöld, en samt sem áður — — Vinnu hef ég reyndar, ég velti tunnum hérna niður við höfn- Dagu; í Skállhdlii Framhald af 8. síðu. f anda hans. Fagur staður er Skálholt, ög fegurri en mig varði. Ekki sjálf- ur heimareiturinn, eins og les- andinn mun nú þegar ráða í, heldur útsýnin: Island og áin og fjöllin. 1 austri blasa við svipsterk fell: Miðfell, Galta- íell, en Hekla sjálf miklu fjær; virðist þó sjást til róta og vera á næstu grösum. Sunnar gnæfa upp Tindafjöll og Eyjafjalla- jökull. Örspöl neðan við bæinn fellur Hvítá fram. breið og lygn og dýrðleg. En handan hennar rís Vörðufell á Skeið- um. En allmiklu fjær og vestar Hestfjall hið fagra, umflotið ónít nefnist, er hvít og deig- kennd. Hún er notuð til postuiínsvinnslu, leirkeragerðar og annars iðnaðar. Mjög mikið magn af bentóníti mun vera í Leirhnúk. • Þó áð rannsóknir þær sem hér hefur verið lýst séu enn á byrjunarstigi gefa þær mikl- ar vonir um að á jarðhitasvæð- inu við Reykjahlíð séu glæsi- legir möguleikar til sköpunar nýrra þýðingarmikilla iðn- greina. Hvort þessi náttúru- auðæfi verða tekin í þjónustu þjóðarinnar sjálfrar eða verða erlendum auðfélögum að bráð á eftir að koma í Ijós á næstu árum. A. K. Hvítá á þrjá vegu en Hesta- vatni að noi'ðvestan, og munar mjóu að fjalley verði úr öllu saman. Og enn sér lengra og fjær: til Ingólfsfjalls í Gríms- nesi,' og Laugarvatnsfjalia í norðvestri. Máttug voru þau fjöll á svipinn á sunnudaginn var, og þung á brún undir moldrokinu af öræfunum. En handan Brúarár lyftist dálítil öxl af brjóstum láglendisins og nefnist Mosfell. Undir því standa tveir fagrir bæir: Mos- fell og Sel. Síðan kemur áin hans Jóns Gerrekssonar, ojg þótt vikan sé liðin hefur mér enn ekki orðið ljóst hvers vegna þeir fóru ekki heldur með hann í Hvítá. Nema þeir hafi ekki viljað saurga Unda- poll sem skerst þar inn í mýr- ina mjúku niðurundan staðn-. um, eins og þskin um fegurð- ina hafi þó einu sinni rætzt. Og allt umhverfið bíður eftir plóg og herfi og starfandi hendi, og einnig í því er mikil fegurð fólgin. Og meira en það. Líf3- möguleikarnir eru fegursta fegurð á jörð. Eitt sinn var Skálholt „all- göfugastur bær á öllu íslandi“. Og hann er annar helzti höfuð- staður íslenzkrar sögu. Nú er hann fátækur bóndabær í níð- urníðslu. Hvað á að gera fyrir þennan stað? Það er spuming um sögurækt og nútíðarnauð- syn. Og ber hvort tveggja að einum brunni. FRAMHALD. - ina Maður hsíur nóg fyrir sig að leggja. En það er ein- hver munur að vera í millilandasiglingum. Og koma á nýjar hafnir. Og þar standa grannvaxnar stúlkur, svarteygðar og biða manns. Og það er einhver munur að eiga sitt eigið heimili og litla, indæla eiginkonu. Það er skrambans ári öm- urlegt að allf skuli vera eins og það er. Og þetta hlustar hún Katinka á. En hún er líka smáskrýt- in. Og auk þess hlýtur hún að vera full. Hún leggur meira að segja orð í belg. Hún segir: Getið þér ekki farið á sjóinn aftur?" Rétt eins og það skipti einhverju máli hvað svona náungi tekur sér fyrir hendur. Svona gæti enginn spurt nema kvenmaður. Já, þér verðið að fyrirgefa. Til sjós aftur? Þegar öll skip liggja í höfn um all- an heim. Það sigla engin skip lengur út af þessu bölvaða stríði. Meðan á því stóð var svo sem hægt að græða meö því að leggja iífið í hættu. En nú þegar allt er um garð gengið — — Það ,,borgar“ sig ckki lengur, segja þeir núna. Þessir háu herrar sem komu alln eymdinni á stað, ættu sjálfir að vera í okkar spomm. Til dæmis þýzki keisarinn--------- Og Katinka fer eigi að heldur Hún stendur kyrr, hún seg- iö: En þér hljótið að eiga einhverja vini? Jú mikil ósköp. Ekki sízt daginn sem ég fæ útborgað. Þá flykkjast vinirnir að manni. Það situr enginn heima og bíður eftir þeim penlngum, það eu um að gera að eyða þeim. Annars eru þetta prýðis náungar á sína vísu. En þeir eiga allir heimili og eiglnkonur. Stundum bjóða þeir mér heim til stn. En ég er of stórlyndur. ég vil ekki vera neinum til óþæginda. Og þessi björtu vorkvöld eru verst af öllu. Hvað er hægt að gera á svona kvöldi? Sem þar að auki er laugardagskvöld og öll vin..a hættir klnkkan eitt. Katinka svarar þessu engu. Ekkert heyrist að minnsta kosti En hún fer ekki. Það er ótrúlegt en---------, Konurnar frammi í kaffistofunni eru alveg dolfallnar. JEtlar hún aðvera þarna kyrr og tala við þennan líka manninn? Fyrst og fremst má hún alls ekki vera að því og auk þess er það óviðeigandi. Hún sem var staðin upp til að, fara. Hinum megin við dyrnar segir Harðkúluhatturinn: Það er eiria og maður sé útskúfaður. Það endar sjálfsagt með því að maður fer að eltast við kvenfólk aftur. Finnur einhverja leiðin- lega og heimska stúlku. Ég hef reynt að fara hingað á kvöldin I le.c að félagsskap. En maður verður að minnsta kosti að vera rakari eða eitthvað þvíjmlíkt til að litið sé á mann. Það er eins og allir hati mann — — Sögðuð þér eitthvað? Nei, ekkert. Nei. frú Stordal sagði ekkert. En hún hlustar á þetta bull, þetta ósæmilega tal. I stað þess að fara heim og sauma. Það var verst að kona.n mín skyldi deyja, heldur náunginn áfram. Síðan það kom fyrir----------Hún var fyrirtaks kona. Húr: annaðist mig Og hún var líka snotur, indæl og snotur. Allt í einu opnar hann dvrnar, svo að konurnar frammi þjóta hver í sína áttina af hræðslu. Um leið kemur einhver inn um útidýrnar og þær heyra að hann segir: Uss, það er einhver að koma. Setjizt þér. Sjálfur gengur hann aftur að borðinu og sezt. Og viti menn, hún Katinka sezt Iíka. Rétt eins og henni hefði verið skipað það. Að lvugsa sér. Það var frú Breien sem kom inn. Kún er röskleg að vanda. En hún hefur líka í mörgu að snúast Og alltaf er hún að hjáipa fólki. Hún heldur á stórum, ólánlegum böggli, nemur staðar. á miðju gólfi og lítur í kringum sig: Er Katinka — frú Stordal á ég við — stödd héma ? Rcdd frú Breien er oft dálítið hvell. Hún situr mni á prívatinu, frú Breien, segir frú Krane amleikanum samkvæmt, '; . • , . . ■ " Einmitt það iá? Þakka yður i'yrir. Þetta er afar árfðandi. Ég cr búin að leita að henni um allan bæ. Og frú Breien ryðst framhjá r'ennihurðinni með stóra böggul- inn. Það er dálítið erfitt en henni tekst það. Larsen ætlar að flýta sér að aðs^oða hana en hún kemur of seint. Frú Breien er cvo rösk. Hún hikar andartak þegar hún kemur auga á Harðkú'uhatt- inn leggur síðan böggulinn á borðið fyrir framan frú Stordal. Hún segir lágt en leggur áherzlu á hvert einasta orð: Hvað ertu eiglnlega að hugsa, Katinka ? ,

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.