Þjóðviljinn - 29.07.1951, Page 7
Suruiudagnr 29. júlí 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (7
„Jig Sög"
til sölu. Upplýsingar Berg-
staðastræti 45, kjallara, milli
kl. 5 og 7.
1
rojfl h.f.
Lækjarg. 10.
Úrval af smekklegum brúð-
argjöfum.
Skermagerðin Iðja,
Lækjargötu 10.
Gólfteppi
keypt og tekið í umboðsölu.
sími 6682. Fornsaian Lauga-
veg 47.
Seljum
allskonar húsgögn o.fl. undir
hálfvirði.
PAKIvHtSSALAN,
Ingólfsstræti 11. Sími 4663.
Minningarspjöld
Krabbameinsfélags
Reykjavíkur
fást í verzl. Remedía, Aust-
urstræti 7 og skrifstofu Elli-
og hjúkrunarheimilisins
GRUNDAR.'
Myndir og málverk
til tækifærisgjafa. Verzlun
G. SigUrðssonar,
Skólavörðusííg 2S.
Almenna
Fasteignasalan,
Ingólfsstræti 3. Sími 81320.
Kaup — Sala
Umboossala:
Verzlunin Grettisgötu 31,
Sími 3562.
Daglega ný egg,
soðin og hrá. — Kaffisalan,
Hafnarstræti 16.
Herraföt — Húsgögn
Kaupum og seljum ný og
mtuð húsgögn, karlmanna-
föt o. m. fl. — Sækjum —
Sendum. — Söluskálinn,
Klapparstíg 11, sími 2926.
Munið kaffisöluna
í Ilafnarstræti 16.
Sigmundur M. Jénsson.
1 læknir, gegnir sjúkrasamlags
'störfum fyrir mig næstu 2
'vikur. Viðtalstími hans er í
j Lækjargötu 6 B, kl. 2,30—
[3,30, laugardaga kl. 12,30—
1,30. Símj 1368. Heimasími
9717.
Friðrik
Einarsson,
læknir.
Amper h.f.,
raftækjavinnustofa,
Þingholtsstræti 21 sími 81556 J
Sendibílastöðin h. f., \
^ Ingólfsstræti 11. Sími 5113.
Gúmmíviðgeiðir
Stórholti 27.
Móttaka eianig í Kamp Knox
G-9.
Lögfræðingar:
Áki Jakohsson og Kristján
Eiríksson, Laugaveg 27, 1.
hæð. — Sími 1453.
Viðgerðir
á allskonar stoppuðum hús-
gögnum. — Húsgagnaverk-
smiðjan Bergþórugötu 11.
Ragnar Ölafsson
hæstaréttarlögmaður og lög-
giltur endurskoðandi: —
^Lögfræðistörf, endurskoðun
!;og fasteignasala. — Vonar-
stræti 12. Sími 5999.
Utvarpsviðgeiðir
Radíóvinnustofan.
Laugaveg 166.
Nýja sendibíIastöSin
Aðalstræti 16. Sími 1395
iVaxmynda-
; safnið
er opið í Þjóðminja-
safninu alla daga kl.
1—7 og sunnudaga
kl. 8—10.
Sófasett
og einstakir stólar, margar
gerðir.
Húsgsgnabélstmn
Erlings Jónsscmar
Sölubúð Baldursg. 30, opin
kl. 2—6. Vinnustofa Hofteig
30, sími 4166.
Mréf og mthugasemd
liggur leiðin
Auglýsið í
ÞJÓÐVILJANUM
Þjóðviljanum hefur borizt
þetta skrýtna bréf frá Þór-
halli Pálssyni:
Herra ritstjóri.
í grein, er birtist í blaðinu 25.
þ. m. um útburð er framkvæmd-
ur var á Freyjugötu 4, liér í
bænum 23. þ. m. er mín getið
persónuiega á mjög óviður-
kvæmilegan hátt. M. a. er því
haldið fram að lesendum, að
ég hafi sagt konu þeirri er
þoldi útburðinn, að til hans
myndi aldrei koma. Ef þetta
væri rétt hermt, fólst í því lof-
orð henni til handa um svo
langa vist i íbúðinni, sem hún
óskaði eða til lífstíðar, ef hún
kærði sig ekki um að skipta
um dvalarstað fyrr. Þegar af
þessari ástæðu mátti hverjum
þolanlega . greindum manni
verða ljóst að tilvera slíkrar
ýfirlýsingar hlaut að vera
hreinn uppspuni, nema gert
væri ráð fyrir því að ég væri
óvenjulega mikið flón eða ó-
þokki, þar sem slíkt framfer'ði
hefði bakað ófjárráða skjól-
stæðingi mínum gífurlegt tjón.
Vegna þess að ofangreind um-
mæli eru til þess fallin að koma
ógreindara fólki, sem litla þekk-
ingu hefur á réttarlegum sam-
skiptum manna, til að trúa því
að ég hafi beitt svikum við um-
rædda konu, verða önnur um-
mæli blaðsins um atburðinn
einnig meiðandi fyrir mig, því
a'ð þau verða að sjálfsögðu skil-
in af lesendum sam frásögn
af atferli ,,svikarans“ eða sem
bein afleiðing þess. )
Ég vil leyfa mér að átelja
harðlega slíka blaðamennsku,
sem birtist í grein þessai’i og
benda yður í fullri vinsemd á,
að það er almennt miður skyn-
samlegt að ausa æru manna
auri að tilefnislausu; Blöðin
eiga a'ð sjálfsögðu ekki að vera
athvarf rógbera í iðju þeirra
a.m.k. verður að gera þá kröfu
til þeirra, að frásagnir slikra
manna, sem þau ætla til birting-
ar, feii ekki sjálfar í sér a,ð
um hreinan uppspuna sé að
ræða eins og sýnt er um ofan-
greind ummæli um mig.
Ég taldi mig geta vænzt þess,
að mér yrði sýnd sú vinsemd,
að blaðið sýndi mér umrædda
grein áður en hún væri birt, en
einhver leyndur ótti við það,
að athugasemdir mínar mundu
varpa um koll lygum rógber-
anna, sem ætlunin virðist hafa
verið að þjóna dyggilega, sýn-
ist hafa komið í veg fyrir þá
sjálfsögðu kurteisi, Ég hefi í
höndum yfirlýsingu sjálfrar
sögusmettunnar, undirritara
fyrir 11 mánuðum, þar sem
hún lofar að rýma umrætt hús-
næ'ði á ákveðnum degi að við-
lögðum útburði. Yfirlýsing þessi
er full sönnun þess, að frásögn
hennar er vísvitandi ósannindi,
sem ekki verða afsökuð með því
að hún hafi misskilið orð mín.
Því jafnvel þó að ég hafi á
annað ár, eða allt frá þvi hún
var'ð vegalaus innlyksa í íbúð'
inni við það að þáverandi leigu-
taki sagði leigunni upp, sýnt
henni óvenjulega linkind, þráti
fyrir taumlausa óreglu og lög-
regluheimsóknir, sem gerði hin-
ar íbúðir hússins næstum ó-
byggilegar venjulegu fólki, gat
hún ekki skoðað þó hlífð sem
neitt loforð um endalausa dvöl
þarna, enda hafði ég þvert á
móti sagt henni æ ofan í æ að
að húsinu. nema hún flytti ejálf,
til útburðar myndi eflaust
koma þegar eigendaskipti yr'ðu
og um væntanlega sölu hússins
vissi hún þegar hún greiddi
leigu eftir íbúðina í fyrsta sinn,
en þá gerði ég ráð fyrir við
hana að salan mundi ekki drag-
ast lengur en fram í september
1950.
Ég hefi verið svo margorð-
ur um þetta vegna þess að ég
vildi gera yður ljóst hversu
vel hefur verið vandað til heim-
ilda að umræddri grein og þætti
mér vissulega ánægjulegt a'ð
heyra frá ábyrgum aðila að
hér væri um eindæmi að ræða.
Að sjálfsögðu gæti ég svar-
að margnefndri grein opinber-
lega og auk þess fengið ábyrgð-
armann blaðsins dæmdan fyrir
hin staðlausu meiðyrði. Þetta
hefi ' ég þó ekki í hyggju a'ð
gera, a.m.k. ekki að svo stöddu,
Hins v'egar vildi ég mega vænta
þess að sú tegund málflutn-
ings, sem ég hefi rætt um,
verði hér eftir útlæg ger af síð-‘
um blaðsins. Hinar tilefnislausu j
ærumeiðingar urn mig eru mér,
að sjálfsögðu enginn ánægju-'
auki, hitt svíður þó sárar að
blaðið skuli leggja sig í það að
útbreiða slúður mannorðsþjófa,
sem þannig eru settir, að bók-
staflega enginn, sem til þekkir
mundi taka mark á, ef nöfn
þeirra sjálfra stæðu undir vitn-
isburðinum.
Ég hefi í dag tilkynnt af-
greiðslu blaðsins, að ég muni
í mótmælaskyni framvegis ekki
styrkja blaðið umfram venju-
lega áskrftendur þess.
Virðingarfyllst
Þórhallur Pálsson.
-rjm-., ---
Ef Þórhallur Pálsson hefði
lesið fregn Þjóoviljans af um-
ræddum útburði og hann hefði ^
ekki sjálfur átt h'ut að málinu,
hefð'i hann væntaniega scð að
atburður þessi er tekinn sem
dæmi um það vandræðaástand j
feem húsnæ'ðispólitík Sjálfstæð-
isflokksins og Framsóknar hef-
ur skapað Reykvíkingum. Hann
hefði væntanlega ekki verið
það flón að sýnast Þórhallur
Pálsson neitt meginatriði í
greininni, sem í engu er frá-
brugðin öðrum þeim greinum
blaðsins þar sem s.tungið er
vægðarlaust á kýlum aftur-
haldsins í landinu.
En nú var minnzt á Þórhall
Pálsson og hann skrifar þessa.
furðulegu grein, til að kenna.
ritstjórn Þjóðviljans hvernig
fara eigi með þjóðfélagsádeilu,
til að hneykslast á „ærumeið-
ingum“ og hóta meiðyrðamál-
sókn. En svo óhöndugega tekst
til að grein lögfræðingsins mor-
ar af orðum eins og „sögu-
smetta“, ,.rógberi“ „mannorðs-
þjófur“ að ógleymdri þessari
getsök til ritstjórnar Þjóðv.:
, einhver leyndur ótti við það
að athugasemdir mínar mundu
varpa um koll lygum rógber-
anna, sem ætlunin virðist hafa
verið að þjóna dyggiléga“, o. s.
frv. (leturbreyting Þjóðv.). —
Heldur Þórhallur Pálsson að
meiðirðalöggjöfin nái ekki til
lögfræðinga ?
Ef að er gáð þá er í þessarl
vandræ'ðaíegu grein Þórhalls
aðeins véfengt eitt atriði, og um
það bera aðilar sinn hvað. Sem
lögfræðingur hlýtur Þórhallur
að vita, að oft er nær ómögu-
legt eða alveg ómögulegt að
vita í slíkum tilfellum hvor fer
með rétt mál.
Hann hefði átt að spara sér
þessa kyndugu ritsmi'ð, og at-
liuga heldur í næði hvort hann
er þess umkominn að kenna
ritstjórn Þjóðviljans hvernig á-
deiluaðferðir skuli viðhafðar í
baráttunni við rotnun þjóðfé-
lagsins. Þjóðviljinn heldur að
sjálfsögðu áfram að vekja at-
hygli á hinni hneykslanlegu
husnæ'ðispólitík íhalds bg Fram-
sóknar, alveg án tillits til þess
þó það komi við kaun lítilla
karla, og alveg án tillits til
þess þó einhver þeirra hafi
styrkt Þjóðviljann og hefnir
sín með því að spara þá skild-
inga.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Gullfoss
fer frá Reykjavík laugardaginn
13. ágúst kl. 12 á hádegi til
Leitli og Kaupmannahafnar.
Pantaðir farseölar skulu
sóttir eigi síöar en þriðjudag
7. ágúst. Þaö skal tekiö fram,
að farþegar veröa aö sýna full-
gild vegabréf þegar farseölar
eru sóttir.
Skráning nemenda
sem sækja eiga 1. og 2. bekk gagnfræöaskóla
(gagnfræðadeilda) í Reykjavík næsta vetur, fer
fram dagana 30. og 31. júlí og 1. ágúst (mánu-
dag, þriöjudag og miövikudag) kl. 10—12 f. h. og
2—5 e. h. í Hafnarstræti 20 (Hótel Heklu) uppi,
gengið inn frá Lækjartorgi.
FRÆÐSLUF'ULLTRÚINN.