Þjóðviljinn - 22.08.1951, Síða 3
Miðvikucfagur 22. ágúst 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (3
NEGRAOFSÓKNUt í FULLUM GANGI
'ml RooseveSf Ward lausan!
Hinn 31. maí s.l. var negrinn Ro.osevelt Ward, yngri, hand-
tekinn af Gestapolögreglu Trumans. Fór handtakan fram ná-
kvæmlega á iþai’ji hátt, sem, Mr. Morrison sagði í grein sinni
í P-avda, að handtökur færu ekki fram í Bretlandi: það var
bankað upp á hjá honum og inn komu lögleglumenn frá FBI
og Jiöfðu hann á brott með sér. Hafði hann enga aðvörun eða
tilkvnningu fengið, en var nú fluttur í fangelsi út af ákæru,
sem hann hafði ekki hugmynd um. Þetta er aðferðin
Truran notar gagnvart negrum,, og sér engan mun á henni
og aðferðum Hillers í gamla daga.
Roosevelt Ward yngri er
ungur baráttumaður fyrir rétt-
indum negra í Bandaríkjunum
og einlægur friðarsinni. Hann
hefur um langt skeið staðið
framarlega í réttindasamtökum
negranna og var einn af þeim
sem fremst stóðu í baráttunni
fyrir því að fá McGee lausan
og negrana sjö frá Martinsville.
Hann fór á alþjóðamót lýðræð-
issinnaðrar æsku í Búdapest
1949 og var að undirbúa þátt-
töku bandarískrar æsku í Berl-
ínarmótinu, þegar lögreglan
kom og handtók hann.
Tveimur vikum eftir að hann
var handtekinn, kom loksins á-
ikæran. Hún hafði auðvitað ekki
við neitt að styðjast og var að-
eins yfirvarp til að geta fjar-
lægt og einangrað þennan
negra. Hann var sakaður um
að hafa reynt að komast hjá
því að fara í herinn! Hann neit-
aði ákærunni strax frá upphafi.
„Ég hef alls ekki reynt á
neinn hátt að komast hjá því
að gegna herkvaðningu og
mundi ekki gera. Siíkt er í
andstöðu við mínar hugsjón-
ir, baráttu og fyrra starf“.
„Ég hef helgað mínu fólki,
Ai eriendum
eettvimgi
Nýleg ritstjórnargrein í
skójablaði menntaskólans
DARTMOUTH í Bandaríkjun-
um endar þannig: „Mac Arthur
■er ekki hetja — hann er GEIT
— og lægra eettur hermaður
hefði verið skotinn fyrir þá
herstjórn, sem hann sýndi
síðustu 6 mánuðina".
= ★ —
1 Vestur-Berlín verður bráð-
lega opnaður háskóli fyrir
hernaðarvísindi.
Sagt er að Marsjallstofnun-
in hafi lagt fram fé til bygg-
ingarinnar, sem er hluti af her-
væðingaráætlun Vestur-Þýska-
lands. Stofnun skólans er frek-
legt brot á Potsdamsamþykkt-
inni, sem bannar alla hernaðar-
háskóla Þýzkalands.
— ★ =
Hópur liðsforingja franska
innrásarhersins í Indókína, sem
nú eru stríðsfangar þjóðfrels
ishreyfingarinnar og ekki hafa
. reynzt stríðsglæp&rnenn, hafa
gefið út ávarp til frönsku þjóð-
arinnar. Þar segir meðal ann
ars:
„Eftir að hafa barizt í 5 ár
gegn Þýzkalandi, sem átti upp-
tókin að heimsstyrjöldinni, er
um við andvígir hervæðingu
jþess.
Dvöl okkar hér hefur sann-
fært okkur um það að þjóð
VIET NAM berst fyrir sjálf-
stæði og alheimsfriði en gegn
hagsmunum örfárra bankajöfra
sem viðhalda þe3su stríði".
Framhald á 7. síðu.
í
ísio Mertínarfararnir í Möin
Roosevelt Ward er 21 árs.
Brautskráður úr Michigan
háskóla. — Er vinsæll
söngvari og íþróttar
rnaður og ósérhlífinn
baráttumaður fyr-
ir negraréttind-
um í Banda-
ríkjunum.
hinu svarta fólki Ameríku,
alla krafta mína, starf mitt
er í þágu allrar þjóðarinnar
og ég mundi aldrei láta mér
til hugar koma að skorast
undan herþjónustu“.
Ward hafði aldrei neina til-
kynningu fengið um að láta
sem skrá sig í herinn.
Þegar hann fékk að vita
hver handtökuástæðan var, ósk •
aði hann strax eftir að fá að
láta skrá sig en það breytti
engu.
Hann hafði ekki gert hina
minnstu tilraun til að koma sér
undan herþjónustu, svo sem
villt á sér heimildir eða faríð
alveg huldu höfði. Herkvaðning-
arskiifstofan vissi um heimilis-
fang hans í Harlem-hverfinu í
New York, þar hafði hann búið
í þrjú ár. Hann kom oft fram
opinberlega og var mjög þekkt-
ur meðal hvítra og svartra.
Ward fékk sér lögfræðing til
að annast mál sitt fyrir dóm-
stóli í New York, en þar hefur
Ward átt heima í þrjú ár, en
af dularfullum ástæðum var
honum tilkynnt, að málið yrði
ekki tekið fyrir í New York
heldur í hinu þekkta negrahat-
arabæli Louisiana.
Lýðræðissinnuð æska um ali-
an heim fylgist af hryllingi með
hinurn viðbióðslegu negraof-
sóknum, sem viðgangast „í guðs
eigin landi“ undir sérlegri
verndarhendi Trumans forseta.
Þar er hvert réttarmorðið fram-
ið á eftir öðru og er skemmst
að minnast þess, er Truman lét
myrða ungan negra McGee fyr-
ir skömmu fyrir upplognar sak-
ir um nauðgun á hvítri konu,
sem þó var í annarri borg á
þeim tíma er nauðgunin átti að
hafa farið fram. Slíkum réttar-
morðum mótmæla allir heiðar-
legir menn.
EFKI MYNDIN: íslenzku Ber-
Iinarfararuir umborö í Drottn-
ihgunni þegar hún ieggst upp
að I Kaupmannahöfn 30. júli sl.
NEÐEI MYNDIN: Þar sjást
þeir lieilsast Jón B. Norðdahl
og Knud Erik Svends.en. Dansk-
ir Berlínarfarar fjölmenntu á
bryggjunni og fögnuðu þeim
íslenzku með söngvum og blóm-
um en þar næst var gengið
fylktu liði þangað, sem tslend-
ingarnir áttu að búa.
nj
ílialdið evkur skattrán sitt
Hvað varoar þá um það þótt tár falli úr augum
fátækra harna, eí beir geta fengið að-drekka
brennivin á kostnað hins opinbera?
Það mál er ofureinfalt
Á hnignunarskeiðir.u hefur
yfirstéttin alltaf verið föl hæst-
bjóðanda. Þetta mál er einfalt.
Hver stött er fulltrúi ákveð-
inna framleiðsluhátta.
Hinir rómversku höfðingjar
voru fulítrúar þeirra framleið-
sluhátta sem byggðust á mann-
inum, sem hinu eina framleið-
slutæki, þrælnum.
Og eins byggist tilvera borg-
arastéttarinnar í dag á vinnu
hins ,„frjálsa“ verkalýðs. í
byrjun er borgarastéttin fram-
sækin. Hún tekur völd þegar
framleiðsluhættirnir ha.fa ekki
enn skilið til fulls milli henn-
ar og verkalýðsins.
Hin unga borgarastétt sat
örugg að völdum því hvort-
tveggja var„ að verkalýðurinn
var ekki vaknaður til vitundar
um hlutverk sitt og hitt að
framleiðsluhættirnir voru ekki
vaxnir borgurunum yfir höfuð
Nú er hið græna tré borgar-
anna fúið. Hvað veldur? Það
fyrst að verkalýðsstéttin er
vöknuð til fulls um það hlut-
verk, er alltaf beið hennar og
hefur þegar stofnað víðlend
ríki m.a. meðal elztu menning-
arþjóðar heims; ennfremur eru
framleiðsluhættirnir vaxnir
borgaranum yfir höfuð.
Gleggst sést hrörnun borgar-
anna á því að þeir hafa leitt
yfir heiminn þau tvö ægileg-
ustu fól'kvíg,, sem yfir heiminn
hafa gengið, einnig mega menn
minnast kreppunnar miklu milli
stríðanna og langminnugir
megum við íslenzkir marsjall-
kreppunnar í dag. Og loks er
svo komið fyrir þessari stétt,
að þeir fulltrúar hennar, sem
taldir verða með fullu viti, og
ekki eru blindaðir af ofstæki,
sjá nú sína sæng útbreidda.
Framhald á 6. síðu.
ÍHALDIÐ hefur nú með aðstoð
Framsóknarflokksins lagt á
Ókkur Reykvíkinga margra
milljóna króna aukaniður-
jöfnun. Eins og við var að
búast kemur þessi niðurjöfn-
un harðast niður á vinnandi
æskulýð og verkalýðinn yfir-
leitt. Auðl\raldið og annar
braskaralýður, sem um
margra ára skeið hefur
stundað margvísleg skatt-
svik sleppur að venju bezt,
enda er „lagt á eftir efnum
og ástæðúm“!!
EF Reykvíkingar koma ekki
í veg fyrir l>essa aukaniður-
jöfnun mun hún leiða til
þess að aliur almenningur
verður að herða sultarólina.
Efnilegt námsfólk verður að
liætta námi, og til þess liggja
aSallega tvær ástæður:
fyrsta lagi vegna þess að
bæjarstjórnaríhaldið liefur
vanrækt að sjá skólaæsk-
unni fyiir sumaratvmnu o;
i öðru lagi þær gífurlegu
skattabyrðar sem á verkalýð-
inn eru lagðar. — Á sama
tíma og bæjarstjórnaríhald-
ið heimtar af okkur reyk-
vískum skattgreiðendmn
meiri skatta, lieldur það á-
fram óhófslifnaði sínum, en
allur þess „sparnaður" ligg-
ur í því að reka fátæka
verkamena úr atvinnu, en
neita að lækka framlög bæj-
arins til veizluhalda og fyll-
iríis-„parfcía“, neitar að
draga saman skrifstofubákn
bæjarins, sem einkennist af
skriffinnsku. Bæjarstjórnar-
íhaldið neitar að lækka þá
geysilegu fjárupphæð sem
fleygt er í aílskonar óþarfa
bílakost, og upplýst hefur
verið að fleygt sé í óþarfa
auglýsingalestur tugum ef
ekki hundruðum þúsunda 4
hverju ári. Margt fleira
mætti nefna um óhófseyðslu
afturhaldsins I bæjarstjóru
Reykjavíkur, en öll stjóra
þess á Reykjavík einkenraist
af f járaustri í alskyns óþarfa
og afturhaldið „sparar“ ein-
göngu fé til verklegra fram-
kvæmda, það reynir allt sem
það mögulega getur ti! þess
að auka atvinnuleysi í bæn-
um, auka fátækt og skapa
örbirgð.
X ERKAMENN, sem verða að
sjá fyrir stórum fjölsliyld-
um hafa nú ekki meiri laun
en það að það dugar vart
til þess að fæða og klæða
fjölskylduna og nú hefur
íhaldið í Reykjavík og Fram-
sóknarflokkurinn ákveðið að
ræna af þessum verltamanna-
fjölskyldum hundruðu.m
króna til viðbótar því, sem
áður hefur verið ákveðið að
ræna af þehn. Ein af undir-
lægjum íhaldsins ritaði grein
í VTísi um daginn og komst
að þeirri niðurstöðu, að
verkamenn munaði nú ekkf
mikið um að rétta Gunnarl
Thoroddsen og öðrum slíkum
óhófsseggjum, eitt hundrað
Framhald á 6. síðu.
málgagn
Æskulýðsfylikingarinnar —
sambands ungra sósíalista
Ritstjórar:
Halldór B. Stefánsson
Sigurður Guðgeirsson