Þjóðviljinn - 22.08.1951, Síða 7
Miðvikudagur 22. ágúst 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (7
r
m
A
v
æc
Afturhaldið þyngir hyrðar hinna sjúku
Rúllugardínur
! ávallt fyrirliggjandi. Einnig
;dívanar frá kr. 375,00 stykk
!ið. Dívanaviðgerðir.
Bólstraraverkstæðið
ÁFRAM,
Laugaveg 55 (Bakhús)
Umboðssala:
Verzlunin Grettisgötu 31
Sími 3562
Daglega ný egg,
soðin og hrá.
Kaffisaían
Hafnarstræti 16.
Herraföt — Húsgögn
Kaupum og seljum ný og
notuð húsgögn, karlmanna-
föt o. m. fl.
Sækjum — Sendum
Söluskálinn,
Klappastig 11 — Sími 2626
Karlmannaföt
Kaupum karlmannafatnað,
útvarpstæki, hljóðfæri, notuð
$ isl. frímerki o. f!. Sími 6682.
Fornsalan Laugaveg 47.
IÐJA H.F.
Lækjarg. 10.
; Úrval af smekklegum bruð-
argjöfum.
Skermagerðin Iðja,
Læ.kjargötu 10.
Minningarspjöld
Samband ísl. berklasjúkiinga
fást á eftirt. stöðum: Skrif-
Sigríðar Helgadóttur, Lækj-
argötu 2, Hirti Hjartarsyni,
Bræðraborgarstíg 1, Máli og
menningu, Laugaveg 19, Haf
liðabúð, Njálsgötu 1, Bóka-
búð Sigvalda Þorsteinssonar,
Efstasundi 28, Bók'abúð Þor
valdar Bjarnasonar, Hafnar-
firði, Verzl. Halldóru Ólafs-
dóttur, Grettisgötu 26,
Blómabúðinni Lofn, Skóla-
vörðustíg 5 og hjá trúnað-
armönnum sambandsins um
allt land.
Almenna
Fasteignasalan,
Ingólfsstræti 3. Simi 81320.
Munið kaffisöluna
í Hafnarstræti 16.
(Þessi grein var birt nýlega
í Mjölni, blaði siglfirzkra sós-
íalista).
Heimsmeistararnir
Það er nú orðið alkunnugt, að
íslenzka ríkisstjórnin hefur sett
heimsmet í dýrtíðaraukningu og
hefur metið verið staðfest af
yfirstjórn efnahagsmála SÞ.
Ríkisstjórninni nægir ekki að
hafa sett heimsmet, hún þarf
áð þjálfa sig meir án þess þó
hún þurfi að eiga von á harðri
samkeppni frá öðrum. — Til
þess er hún komin svo langt
fram úr, að engar líkur eru á
að metið verði „slegið út“ af
Amper h.f., i
raftækjavinnustofa, I
■iÞingholtsstræti 21 sími 81556;
Framköllun
Kopering — Stækkanir.
Aðalbúðin, Lækjartorgi.
Sendibílastöðin h. f.,
Ingólfsstræti 11. Sími 5113. j
Lögfræðingar:
Aki Jakobsson og Kristján;
Eiríksson, Laugaveg 27, 1. j
hæð. — Sími 1453.
Viðgerðir
á allskonar stoppuðum hús-
gögnum. — Húsgagnaverk-
smiðjan Bergþórugötu 11.
Ragnar Ölafsson
hæstarettarlögmaður og lög-
giltur endurskoðandi:
Lögfræðistörf, endurskoðun
og fasteignasala. — Vonar-
stræti 12. Sími 5999.
Útvarpsviðgerðir
Radíóvinnustofan,
Laugaveg 166.
Hýja sendibílastöSin
Aðalstræti 16. Sími 1395
T?
Farfuglar! Ferðamenn!
Fljótshlíðarferð um helgina.
Ekið austur að Múlakoti og
gist þar. Fljótshlíðin skoð-
uð. Upplýsingar í V.R., Vön-
.arstr. 4, kl. 8,30—10 í kvöld.
— Skotlandsfarar mætið.
Þróttarar!
1. og 2. fl„ æfing í kvöld á
Háskólavellinum kl. 8—9. —
Áríðandi að 1. fl. menn mæti.
öðrum. — Dýrtíðin hefur farið
hraðvaxandi með mánuði hverj-
um. Hafa sumar vörutegundir
hækkað vikulega en aðrar í því
stærri stökkum sem lengra hef-
ur liðið milli hækkananna.
Byrðar hinna sjúku
skulu þyngdar
Hér áður fyrr þegar sjúkra-
samlögin voru að byrja starf-
semi sína og fram að þessum
síðustu og verstu tímum hafa
þau greitt allverulegan hluta af
verði lyfja. I samræmi við aðr-
ar þjálfunaraðferðir heims-
meistaranna hefur nú skipazt
svo, áð flest öll sjúkrasamlög
á landinu greiða nú aðeins
helming lyf javerðsins í stað 3/i_
áður, og auk þess eru margar
lyfjategundir, sem þau greiða
engan hluta af. Þessar ráðstaf-
anir koma að sjálfsögðu aðeins
líggur leiðin
######<#<##»#*,##'###>#»».#^#^^#>#^^^F^^#
Framhald af 5. síðu.
ar í framkvæmd. Tilraunir Al-
þýðuflokksforingjanna að fela
þá staðreynd og afneita henni
eru vísvitandi skemmdarverk
gegn málstað íslenzkrar alþýðu.
Það vili svo vel til að meira
að segja einn þingmanna AI-
þýðuflokksins varð til að ljósta
því upp að huiidrað milljónir
króna sem ríkisstjórnin fékk
sem „gjafafé“ í marz 1951
fylgdi það skilyrði að ríkis-
stjórnin hindraði greiðslur
kaupgjaíds samkvæmt vísitölu
Ríkisstjórn Bandaríkjaleppa
Framsóknar og Sjálfstæ'ðis-
flokksins reyndi að standa við
það skilyrði, en samstillt og
markviss barátta verkalýðsfé
laganna í sumar, ur.dir for-
ystu Dagsbrúnar, neyddi hana
til undanhalds, og Eysteinn var
sendur í ofboði vestur um liaf
til að útskýra þann ósigur
bandarisku stefnunnar á Is-
lanai.
Það er fáránleg tilhugsun að
bandarískir verkamenn láti
þrengja að kjörum sínum í
þeirri trú að þeir séu með
„marsjallhjálp" að stuðla að
velmegun verkamanna á Is-
landi og öðrum löndum.
Þáð er til of mikils mælzt
að íslenzkir verkamenn þakkj
fyrir hina ósvífnu bandarísku
íhlutun um stjórnmál og at-
vinnulíf íslendinga, þakki þau
áhrif á lífskjör fólksins sem
þessi íhlutun hefur haft og hér
hefur verið minnst á, þakki
marsjallmútur og hernám.
Það verður íslenzka auðvald-
ið sem þakkar ofsagróða og
hjálp til þægilegri arðránsað-
stöðu. Og það verða stjórnmála-
leiðtogar afturhaldsins seni
þakka milljónarnúturnar sem
haldið hafa svikamyllu þeirra
gangandi. Og þáð verða hinir
hestbaksríðandi, biskvískoðandi
og bridgespilandi „verkalýðs-
foringjar‘‘ núverandi Alþýðu-
sambandsstjórnar sem þakka
kúgurum og arðræningjum ís-
lenzku þjóðarinnar kúgunina og
arðránið, þakka marsjallhjálp
og hernám íslands. En því mætti
skila til Bandaríkjanna að
alþýða íslands á ekki
hlut að þeirri þakkar-
gjörð.
niður á sjúkum.
Þegar lögin um almanna-
tryggingar, sem kratar' hafa
mest hælt sér af, voru sam-
þykkt, en skv. þeim áttu
sjúkrasamlögin að leggjast nið-
ur en tryggingarnar að taka
við hlutverki þeirra, var frest-
að um eins árs bil að leggja þau
niður. Síðan eru liðin fimm ár,
og alltaf hafa sjúkrasamlags-
gjöldin hækkað og eru nú orð-
in allþungur skattur á mann-
mörgum heimilum. Einn af nýj-
ustu æfingasigrum heimsmeist-
aranna eru bráðabirgðalög um
hækkun á gjöldum til Almanna-
trygginganna. Það var ekkert
minnzt á hækkun til bótaþega,
slík hækkun gefur enga stig-
hækkun á afrekalísta hinna
frægu íþróttamanna.
Allt er því á sömu bók-
ina lært hjá íhaldi og
Framsókn
Ekki er nóg með það, að
svikist sé um að framkvæma
lög, sem Alþingi hefur sam-
þykkt, heldur er þa'ð fyrirkomu-
lag, sem afnema átti, gert
margfalt erfiðara og þyngra
fyrir allan almenning. Lögin um
almannatryggingar eru ekki
einu lögin, sem svikizt er um
að framkvæma. 1946 voru samþ.
lög um verkamannabústaði, átti
með þeim lögum að vinna stórt
átak í þá’ átt að útrýma
slæmu og heilsuspillandi hús-
næði. í lögunum er gert ráð
fyrir hagkvæmum lánskjörum,
þannig, að efnalitlir menn sáu
sér opnast möguleika til að
eignast íbúðir, ef þeir yrðu að-
njótandi hagkvæmasta lána-
flokksins, en lögin gera ráð
fyrir þrem fl., þ. e. lán til 42
ára, til 60 ára og til 75 ára.
Vextir eru 2%. I lögunum er
gert ráð fyrir, að árlega sé lagt
í Byggingasjóð svo niikið fé,
að framkvæmd laganna sé
tryggð. Þetta hefur verið van-
rækt, og því eru þessi lög nú
Af erlendum
eetteangi
Framhald af 3. síðu.
Málgagn gyðinglegu æsku-
lýðssamtakanna í Bandarikjun-
um hefur sent Eisenhower hcrs-
höfðingja opið bréf, þar sem
segir meðal annars: „Við get-
um ekki lengur þagað yfir
þeim glæpum, sem nú eru
framdir, að nazistiskum morð-
ingjum skuli gefið frelsi og
þem leyft að undirbúa endur-
tekningú glæpaverka sinna gegn
mannkyninu: Við erum þess-
vegna að hefja herferð til þess
að hvetja lesendur blaðsins og
vini þeirra til þess að taka
upp öflugar aðgerðir gegn þess-
ari sjálfsmorðspólitík yðar“.
= ★ —
I mótsetningu við kynþátta-
kúgun ameríska auðvaldsins,
kínverska . alþýðustjórnin að
þurrka út leifarnar af kyn-
þáttamisrétti í landi sínu. I
Kweichow-fylki, þar sem eru
margir þjóðernisminnihlutar —
hefur 20-30% af húsrými mið-
skólanna verið fengið ungling-
um af þessum kynþáttum til
afnota. Þetta er í beinu áfram-
haldi af því að áður var búið
að stofna marga barnaskóla,
sem eingöngu eru ætlaðir þess-
um þjóðflokkum.
orðin lítið meira en hvert ann-
að pappírsplagg. Hér í bæ voru
býggð þrjú hús með samtals
30 íbúðum. I þær fluttu aðal-
lega eignalausir verkamenn, sem
vegna atvinnuleysis og ann-
arra erfiðleika hafa ekki getað
staðið í skilum með tilskild-
ar greiðslur. Hvað bíður nú
þessara manna og fjölskyldna
þeirra þegar endanlegt uppgjör
húsanna fer fram? Verða þeir
hraktir úr íbúðum sínum eða
lítur hið opinbera með sann-
gjörnum augum á aðstæður
þeirra allar?
Við sjáum af því, sem hér á.
undan hefur verið sagt, um
sjúkrasamlögin, almannatrygg-
ingarnar og verkamannabústað-
ina, að lii'ð svokallaða lýðræði,
sem við búum við, veitir al-
menningi enga möguleika til að
risa gegn ofbeldi og ágengni
ríkisstjórnar, sem þjónar 100%
hagsmunum auðstéttarinnar í
landinu. Kosningar á fjögurra
ára fresti gefa að vísu yfir-
skins tækifæri, en auðstéttinni
tekst venjulega að láta þær
snúast um allt annað en beina
hagsmuni fólksins í landinu.
Stj. flSÍ gleymdi
Framhald af 8. síðu.
Rumskuðu eítir veizl-
urnar.
Eftir heimkomuna frá lúxus
ferðalaginu um Bandarjkin og
veizíuborðum burgeisanna þar,
vöknuðu þeir Helgi Hannesson,
Sæmundur Ólafsson & Co. við
þann ónotalega draum að þeir
hufðu gleymt að tryggja síld-
veiðisjómönnum þá sjálfsögðu
réttarbót sem felst í dýrtíðar-
uppbót Dagsbrúnar og þeirra
verkalýðsfélaga, sem sigurinn
unnu í deilunum í vor. Sýnir
þessi dæmalausi sofandaháttur
afturhaldsþjónanna í Alþýou-
sambandsstjórn hver raunveru-
leg alvara hefur fylgt öllum á-
skorunum þeirra og mannalát-
um í sambandi við baráttu
verkalýðsins fyrir greiðslu dýr-
tíðaruppbótar. En eins og menn
muna fór töluvert.. fyrir sam-
þykktum þeirra og tilkynning-
um til verkalýðsfélaganna síð-
ari hluta vetrar.
Verða nú að fara bón-
arveg að L.I.t).
Atvinnurekendaþjónunum í
Alþýðusambandsstjórn varð
fljótlega ljóst, þegar þeir upp-
götvuðu glópsku sína og méstaí
viman var runnin af þeim eft-
ir Bandaríkjaförina, að þeim.
yrði illa stætt á því að hafa
með öllu af sjómönnum dýrtíð-
aruppbótina. En þar eð samn-
ingarnir voru bundnir áttu:
þeir engan kost annan en að
fara b'ónarveg að samtökum
útgercarmanna og biðja þau
að bjarga sér úr klípunni
með því að gera við sig sér-
stakt samkomulag um
greiðslu dýrtíðaruppbótar-
innar. Allt er þó enn í ó-
vissu um hvort samkomulag
næst um málið. En þess verð
ur fastlega áð vænta að LÍÚ
sem samningsaðili útgerðar-
manna, sjá sóma sinn í að
láta síldveiðisjómenn ekki
gjalda glópsku Alþýðusam-
bandsstjórnar. Hlutur sjó-
manna. eftir þessa vertíð
verður nógu lélegur þótt
það bætist ekki við að þeim
só neitað um sömu uppbót á
kaup sdtt og annað vinnandi
fólk fær vegna aukinnar dýr
tíðar.