Þjóðviljinn - 04.11.1951, Side 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 4. nóvember 1951
þláðilUINN
Útgefandi: Sameiningarfloklcur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Bitstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fróttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Simi 7500 (3 línur).
Aakriftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. elnt.
Prentsmxðja Þjóðviljans h.f.
Athyglisverðar staðreyndir
í útvarpsumræöunum um verzlunarmálin kom Einar
Olgeirsson meó' athyglisvert dæmi um ráðsmennsku
stjórnarvaldanna. Hann skýröi frá því aö rannsókn hefði
sýnt að verðmyndun á bátagjaldeyrisvörum skiptist sem
hér ssgir miö'aö viö vörumagn sem kostar' hálfa áttundu
milljón í útsölu hér í verzlunum:
Innkaupsverð ..................... 1.958.000 kr.
Sérstök álagning til bátaútvegsins . 738.000 —
Verzlunarálagning ................ 2.413.000 —
Tollar og skattar stjórnarinnar .... 2.391.000 —
Samtals 7.550.00 —
Okrið á bátagjaldeyrisvörunum er mjög óvinsælt áö
vonum, enda hefur þaö í för með sér geysilega féflett-
ingn almennings. Sú féfletting er yfirleitt kennd bátaút-
veginum, enda er ýtt undir þá skoðun óspart í blööum
þríflokkanna og persónuáróöri þeirra. Hins vegar sýnir
sú sundurliðun sem hér er birt aö aukaálagning útvegs-
jns nemur ekki nema tæpum tíunda hluta af útsölu-
veröinu.
Okurálagningin rennur annað. Næstum 65% af út-
söluverðinu er hlutur verzlunarstéttarinnar og ríkissjóðs,
og hefur sá hlutur hækkaö um milljónir við hið nýja
kerfi. Ráöstafanir til að hjálpa útveginmn hafa fyrst og
iremst reynzt ráö til að færa heildsölunum okurgróöa og
Eysteini Jónssyni milljónir í ríkissjóð. En þegar fólk
kaupir vörurnar í búöunum éða ’spyr um verð þein*a,
fylgir ævinlega skýringin: þetta eru bátagjaldeyrisvörur.
þótt hitt sé sannmæli að þetta eru okurvörur heildsal-
anna og ríkisstj órnarinnar.
Sósíalistar hafa bent á þaö á undanförnum árum
að erfiðleikar bátaúrvegsins stafi ekki sízt af því hvernig
hlaðið hefur verið undir heildsalastéttina á kostnaö fram-
leiöslunnar og aö vandamál útvegsins bæri aö leysa á
kostnað verzlunareinokunarinnar. Ríkisstjórnin hefur
ekki viljaö anza slíkum tillögum, þvert á móti hefur
hún „leyst“ vandamál útvegsins með því aö gefa heild-
sölunum færi á nýju milljónaokri og Eysteini Jónssyni
mögukika til nýrrar féflettingarherferðar.
En annaö er einnig athyglisvert í þessu dæmi. Sá
hluti útsöluverðsins sem rennur til útvegsins fer aö
nokkrum hluta til aö greiöa kaupgjald og afmarkar
kaupgjalddð, ekki aöeins hjá sjómönnunum sjálfum,
heldur að verulegu leyti hjá launþegum í heild. Upphæö
sú sem til þess fsr í þessu dæmi nemur tæplega einni
milljón króna, eöa um þaö bil áttunda hluta af útsölu-
verðinu. UpphæÖ sem nemur milljón á sem sagt að
nota til að kaupa vörur sem kosta hálfa áttundu milljón.
Það bil sem þarna er á milli er oröiö svo geigvænlegt
að þaö hlýtur aö skapa sáran skort á alþýðuheimilunum
og almenna kreppu í viöskiptum.
Þetta kerfi er úthugsað af Benjamín Eiríkssyni og
aflsiðingar þess tala sínu skýra máli um tilganginn.
sleiiitidarvðrk
Tvískinxumgurinn í afstöðu bæjarstjórrxarmeirihlutans til söl-
unnar á Akurey er mikið ræddur manna á meðal sem vonlegt
er. Er mönnum lítt skiljanlegt hvernig Ihaldið ætlar að halda
jiví til streitu að hafna forkaupsrétti bæjarins til kaupa á skip-
inu en banna jafnframt eigandanum að selja skipið. Sé það rétt,
sem engin ástæða er til að efast um, að ástæðan til þess að
skipið er til sölu sé sú, að núverandi eigandi fái ekki nauðsyn-
legt rekstursfé til útgerðar skipsins liggur það í augum uppi að
sú hætta er yfirvofandi að skipið verði bundið við hafnarbakk-
ann. Og hvert gagn hefur þá bærinu af þvj að banna sölu? Hér
ber allt að sama brunni: Reykjavíkurbær verður að neyta for-
kaupsréttar síns að Akurey og tryggja þar með skipið í bænum
og að útgerð þess stöðvist ekki. Allt annað er auðsær skrípaleik-
ur og fullkomið ábyrgðarleysi, ekki sízt ein,s og nú horfir í at-
vinnumálum bæjarins.
Reykvíkingar munu fylgjast vel með þróun Akureyjar-málsins.
Þeir munu ekki taka því þegjandi og hljóðalaust að nýsköpunar-
togarar verði bundnir við bryggju og rekstur þeirra stöðvaður
vegna skammsýni bæjarstjórnaríhaldsins og skemmdarverka
ríkisstjórnarinnar.
Sýning Ásmundar.
J. Ás. skrifar: ,,Ég gekk einn
daginn inn á Freyjugötu 41 til
þess að koða listasafn Ásmund-
ar Sveinssonar og látum það nú
vera ef ég hefði getað setið á
mér að fara að skrifa um það,
sem ég sá þar og heyrði. Haft
vit á því að þegja. Maður sem
hefur ekki vit á list ætti ekki
að skrifa um list. En málgefnir
menn þykjast hafa vit á öllu,
eins og karlinn sagði. — Það
sem ég sá fyrst þarna. var
,,-Svarta dýrið“ við dyrnar. Ég
hrökk ekkert við, því mcr
fannst ég kannast við svipinn,
eins og stendur í vísunni:
Þú er góður Gvendur minn,
þó gáfur séu ei hjá þér.
Ég held ég þekkti hunds-
svipinn
þó hausinn væri ekki á þér.
(Tryggvi Kvaran.)
★
Islenzkur andi.
En þegar inn úr dyrunum
kom blöstu við allskonar línur
og form. Línur og form mynd-
anna, sem sögðu liver sitt, en
áttu þó eitt sameiginlegt: ís-
lenzkan anda. — Þarna eru
hlutir eins og vatnsfatan, ham-
arinn. plógurinn, strokkurinn
og malkvörnin, sem hafa verið
óaðskiljanlegir baráttu fólksins
í striti þess fyrir daglegu
brauði. Freyja nr. 12, er góð
mynd. Hún túlkar vel það sem
henni er ætlað að segja. En
hvað hún ségir. ■— Ég gæti
bezt trúað því að him segði
sitt hverjum; járnsmiðurinn er
hann ekki járnsmiður frá
hvirfli til ilja? Og svo er það
malarinn, sem stendur við
kvörnina. Sum um finnst kannski
tilburðir hans séu annarlegir og
óeðlilegir, en geta þeir eigi að
siður verið góð tjáningarform
fyrir lífskjör og örlög íslenzku
þjóðarinnar á tímum hand-
kvarnarinnar ? En tímar kvarn-
arinnar eru langt frá því að
vera liðnir í vissum sldlningi.
Ennþá stendur hinn vinnandi
maður í fáránlegum stillingum
og malar gull fyrir sinn höfuð-
óvin, Fróða-gull, -—■
★
Vopn vitsmunanna.
Og þá er það myndin í trölla-
höndum. Hún segir sítt, en
þumalfingur myndarinnar segir
þó máski mest. Hann er eins
og tákn þess illa, sem þjóðin
hefur orðið að berjast við gegn
um aldirnar, til þess að glata
ekki tilveru sinni. Og ef við
gáum betur að þá sjáum við
að fætur ófreskjunnar eru ó-
hugsanlega sverir. Máttur henn-
er er mi'.rill. Við megum vera á
verði. En mesta listaverkið
þarna er máski Helreið. Þeii ri
mynd þýðir ekki að lýsa. Hún
segir sitt hverjum, eins og
Freyju-myndin, sem getið var
hér að framan. — Sæmundur á
selnum er gömul og góð mynd,
þjóðleg og táknræn í senn. Hún
er sígilt listaverk, sem alltaf
hefur sinn boðskap að flytja,
boðskap sem helzt ungur og
ferskur þó tímarnir breytist. —
Flest illt er hægt að sigra með
vopnum vitsmunanna og sterkri
trú á málstað þess góða. Sem
flestir ættu að sjá þessa sýn-
ingu. En eitthvað kemur það
ónotalega við mann, þegar mað-
ur sér og heýrir að það er verið
að tyggja og kjamsa þarna inni
á meðal þessara listaverka. Og
hvað er verið að tyggja? Má
ekki leggja þann ósið niður rétt
á meðan staðið er á lielgum
stað? — J. Ás.“
Jafnréfcti i útvarpinu.
R. M. skrifar: ,,Kæri Bæjar-
póstur! Þú birtir bróf frá
,,Hljómlistarunnanda“ í dálkum
þínum s.l. miðvikudag og á það
að vera svar til mín. Vil ég í
því tilefni benda á að hormon-
ika og jass er mjög óskyld
tónlist, nema „Hljómlistarunn-
andi“ haldi að öll músik önnur
en sinfóniur og fúgur séu
harmonikulög. Og sé svo er
ekki að furða þótt honum finn-
ist harmonikan fá mikið rúm í
dagskrá fitvarpsins. „Hljóm-
listarunnandi“ talar um að sin-
fóníur séu aðeins fastir dag-
skrárliðir tvisvar í hverri viku
og finnst lítið. Hann getur hins-
vegar ekki bent á að harmon-
ikan sé nokkurntíma fastur
dagskrárliður í útvarpinu. Hann
talar um óþolinmæði harmon-
ikuaðdáenda Vegna. þess að
þeir fara fram á jafnrétti í út-
varpinu. Vil ég gefa „Hljóm-
listarunnanda" það heilræði
meðan skammdegishjúpur vetr-
arins grúfir yfir höfði hans, að
hann leitist við að kveikja. á
ljósi, sem lýsir honum á veg
jafnréttis. — R. M.“
Sklpadeild SIS
Hvassafell er væntánlegra á leið
til Akui-eyrar frá Skagasti-önd.
Axnarfell er i Rvík. Jökulfell er
í New Yoi'k.
Bíkisskip
Hekla fer frá Reykjavik kl. 24
i kvöld vestur um land í hringi-
fei’ð. Esja er í Reykjavík. Herðu-
breið er á Austfjörðum á norðui’-
leið. Skjaldbreið er á Eyjafirði.
Þyrill er á leið til Hollands. Ár-
mann fór frá Reykjavík í gærkv.
til Vestma.nnaeyja.
Eimskip
Brúarfoss, Goða.foss, Tröllafoss
og Bi’avo eru í Reykjavík. Detti-
foss fór frá Rvík í gærkv. til
Boulogne og Hambox-gar. Gull-
foss fór frá Rvik í gær tii Leitli
og Khafnar. Lagai-foss fór fxá
Rvík 31. f. m. til New York.
Reykjafoss er í Hamborg. Selfoss
er i Delfzyl í Hollandi; fer þaðan
6. þm. til Antwei-pen.
Eoftleiðir li.f.:
1 dag verður flogið til Vestm,-
eyja, Á morgun verður flogið til
Akureyrar, Bíldudals, ísafjarðar,
Patreksfjarðar, Vestmannaeyja og
Þingeyrar.
11,00 Morguntón-
leikar . (pl.): a)
Tríó nr. 2 í c-moll
eftir Mendelssohn
(Hermann Silcher,
Adolf Shearing og
Ernes Cahnbley leika). b) Pianó-
kvartett í A-dúr op. 81 eftir Dvo-
rák (Olga Loeser-Lebert og Lenér-
kvartettinn leika). 14,00 Messa í
Aðventkirkjunni: Óháði frikirkju-
söfnuðurinn í Reykiavík (sr. Emil
Björnsson). 15,15 Fréttaútvarp til
Islendinga erlendis. 15,30 Miðdegis;-
tónleikar: a) Lúðrasveit Rcykja-
víkur léikur; Paul Pampichler stj.
b) 16,00 Islenzkir kórar syngja
(pl.) 18,30 Barnatími (Ba'dur
Pálmason): Samfelld dagskrá um
Þingvelli: Upplestrar og tónleik-
ar (Guðmundur M. Þorláksson
kennari tekur saman efnið). 19,30
Tónleikar: Max Carr leikur á pí-
anó (pl.) 20,20 Tónleikar: Andrés
Segovia leikur á gítar (pl.) 20,30
Einsöngur: Guðrún Á. Simonar
syngur; Fritz Weisshappel leikur
undir; a) „Cantu atimuni" Alberto
Favara. b) „Seligkeit" eftir Schu-
bert. c) „Se" eftir Denza. d)
„Svanasöngur á heiði" eftir Sigv.
Kaldalóns. e) „Kirkjuhvoll" eftir
Árna Thorsteinsson. — Einieikur
á píanó: Fritz Weisshappel. — f)
„Islenzkt vögguljóð á Hörpu" eftir
Jón Þórarinsson. g) „Lindin" eftii'
Eyþór. Stofánsson. h) Aria úr úl>
éfúnni „Brúðkaup Fígarós" eftii'
Mozart. i) Aria úr óp. „Rakarinn
frá Sevilla" eftir ossini. — 21,00
Öskastund (Benedikt Gröndal rit-
stjóri). 22,05 Danslög: a) Ýmis
danslög af plötum. b) 23,00 Hljóm-
sveit Björns R. Einarssonár Ifeik-
ur. 23,30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun
12,45—13,30 Óskalög sjúklinga
(Björn R. Einarsson). 15,30—16,30
Miðdegisútvarp. 15 55 Fréttir og
veðurfregnir. 18,15 Framburðar-
kennsla i ensku. 18,30 Islenzku-
kennsla; I. fl. 19,00 Þýzkukennsla;
II. fl. 19 25 Þingf réttir. í— Tón-
leikar. 20,20 Útvarpshljómsveitin;
Þórarinn Guðmundsson stjórnar:
a) Lög eftir islenzk tónskáld. b)
Prelúdía eftir Armas Jáarnefelt.
20.45 Um daginn og veginn (Gylfi
Þ. Gíslason prófessor). 21.05 Ein-
söngur: Guðmundur H. Jónsson
syngur; Fritz Weisshappel leikur
undir: a) „Plaisir d’amour'" eftir
Martini. b) „Smalastúlkan" eftir
Emil Thoroddsen. c) „Man ég þig’
mey“ eftir Karl O. .Runólfsson.
d) „Vögguvisa" eftir Schubert. e)
Aría úr óperunni „La fanciulla
del West" efti'r Puccini. 21.20 Dag-
skrá Kvenfélagasambands Islands.
— Upplestur: „Anna' Maria", sögu
kafli (Elinborg Lárusdóttir rithöf-
-undur). 21.45 Hæstaréttarmál Há-
kon Guðmundsson hæstaréttarrit-
ari). 22.10 „Fram á elleftu stund",
saga eftir Agötu Christie; IV.
(Sverrir Kristjánáson sagnfræðing
ur). 22.30 Tónleikar (plötur):
Geraldo og hljómsveit hans leika.
23.00 Dagskrái'lok.
Kvennadeiid Slysavarnafélagsins
heldur :fund annað kvöld kl. 8,30
í Tjarnarcafé. Sjá nánar' auglýs*
ingu i blaðinu.
Starfsmannafélag Reykjavíkurbæj-
ar beldur a.Imennan félagsfund
að Borgartiini 7 i dag, sunnud.
4. nóv. kl. 2 e. h. Þar flytur hr.
borgarstjóri - Gunnar Thóroddsen,
erindi um réttindi og skyldur op-
inberra sta.rfsma.ijna, auk þess
verðg ' féiagsmál rædd
** ' ' ; ‘ ' . ’’ r';
SunnudagaskóIi Guðfræðideildar
háskölans hefst í dag, sunnudag,
4. nóv, kl.. 10 i háskólakapeílunnir
Athygli er vakin á, að börnin
eiga að ganga um aðaldyr háskól-
ans og koma stundvísiega,- húsið
er ekki opið fyrr en la.ust fyrir
klukkan 10.
Nýlega yoru
gefin samán í
hjónaband á
Akureyri, ung-
frú Matthéa
Arnþórsd. og
Ólafur Stefánsson, iðnverkamaður,
Byrgi, Glerárþoi-pi. — Nýlega
voru gefin saman i hjónaband á
Akureyri, Iíelga Jóhanna Daníels
dóttir. og Ólafur Þorsteinn Jóns-
son, Heimili þeirra er . að Snæ-
bjarnarstöðum í Fnjóskadal.
Nýlega vo.ru gefin saman í hjóna-
band á Akureyri, urigfrú Sigur-
laug Friðgeirsdóttir og Konráð
Sæmundsson, sjómaður. — 1 gær
voru gefin saman í hjónaband á
Blönduósi ungfrú Ingibjörg Kolka
og Zóphónías Ásgeirss. ö Blöndu-
ósi og ungfrú Halldóra Kolka
og Hans Júlíusson, bifvélavirki.
— 1 gær voru gefin saman í hjóna
band af séra Þorsteini L. Jóns-
syni, iingfrú Guðríður Þórðardótt-
ir, Borgarholti, Miklaholtshreppi
og Njáll Þorgeirsson frá Helga-
felli. — 2. nóv. voru gefin saman
í hjónaband af séra Ásgeiri Ás-
geirssyni, Anna- Aðalheiður Árna-
dóttir frá Flatey Breiðafirði og‘
Leifur Jónasson frá Öxnaey.
Gamanieilí urinn Dóri eftir Tóm-
as Hallgrímsson, verður sýndur í
Þjóðleikhúsinu kl. 20.00 í kvöld.
Saumanámskeið Freyju.
Tvær stúlkur geta ennþá kom-
izt að á saumanámskeiði á vegum
Þvottkvennafélagsins Freyju, sem
hefst 6. nóvember.
Helgldagslivknir: Ólafur Jóhantis-
son, Njálsgötu 55. — Simi 4034.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum. -
Sími 5030.