Þjóðviljinn - 18.11.1951, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 18.11.1951, Blaðsíða 4
4) _ ÞJÓÐVILJINN — Surinudagur 18. nóvember 1951 —---------------------------------------------•\ þióoyiuiNN Útgefandl: Sameiningarflokkur alþýSu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Frétierltstjóri: Jón Bjarnason. Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 1S. — Síml 7500 (3 línur). Áskrlítarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. V............................................../ Með hendur í skauti Þegar atkvæðagreiðsla fór fram á síðasta bæjarstjórn- arfundi um iþá tillögu sósialista að bæjarstjóm ákvæði að verða við kröfu Hreyfils um endurráðningu vagnstjór- anna sjö, sem íhaldið svifti atvinnu algjörlega að ósekju 1. okt. s.l., sátu bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins, Jón Axel og Benedikt Gröndal, lúpulegir með héndur í skauti og greiddu ekki atkvæði. Þrátt fyrir skringilegan bægslagang Alþýðublaðsins og málamyndatilburði Alþýðuflokksins í „hinni ábyrgu stjórn arandstöðu“ kemst Alþýðuflokkurinn ekki hjá því að opinbera hvaö eftir annað þjónustusemi sína og auðmýkt gagnvart matmóður sinni. íhaldi og Framsókn. Og svo þrælbundnir eru þessir margseldu vesalingar á klafa afturhaldsþjónustunnar að þeir lýsa því beinlínis yfir að þeir séu skoðanalausir þegar um það er barist hvort hnekkja á skipulögðum ofsóknum íhaldsins og tilraun- um þsss til að svelta dugmestu meðlimi verkalýðsfélag- anna til fullkominnar undirgefni. Sýnir fátt betur en þessi flatmagandi afstaða Alþýðuflokksins í bæjarstjórn hve óralangt Alþýðuflokksforingjarnir eru komnir út á braut algjörra svika við verkalýðsstéttina og þá stefnu sem Alþýðuflpkkurinn var stofnaður til að berjast fyrir í upphafi. Enginn heiðarlegur verkamaður eða launþegi getur treyst þeim flokki sem tekur raunvenilega afstöðu með íhaldinu í ofsóknarherferð þess gegn þeim meölimum verkalýðsfélaganna sem afturhaldið þykist þurfa að ná sér niðri á og hikar ekki við að svipta atvinnu án minnstu saka. Só samábyrgð sem Alþýðuflokkurinn hefur tekið á sig með íhaídinu í þessu máli mun verða til þess að opna augu margra heiðarlegra fylgjenda Alþýðuflokksins fyrir því hvernig komið er fyrir þeirra gamla flokki síðan forusta hans kom sér í „fást fæði“ hjá því afturhaldi sem hún átti að berjast gegn. Þaö er þqssi augljósa vinnumennska Alþýðuflokks- broddanna hjá aftui’haldinu og flokkum þess, sem hefur átt drýgstan þáttinn í að svifta Alþýðuflokkinn tiltrú almennings. Með sama áframhaldi verður þess skammt að bíða aö foringjarnir standi einir eftir, rúnir öllu fylgi og trausti, en að sama skapi vel haldnir persónulega í vistinni hjá fjandmönnum íslenzkrar alþýðu. Fúifflepp-skan bak wið „h]á!pssmlnau í ályktun. flokksþings Sósíalistaflokksins um atvinnu- mál er á það bent hvernig marsjallféð hafi þurrkað upp stórfellt fjármagn í landinu cg bundið það. Þetta er mjög athyglisverö staðreynd sem vert er að gefa gætur. Hið eðlilega ástand í verzlunarmálum er það að gjald- eyris er aflaö með sölu afurða og fyrir gjaldeyririnn eru svo fluttar inn nauðsynjavörur. Útfluttu vörurnar eru afrakstur af vinnu og veruleg-ur hluti af andvirði þeirra fer í vinnulaun. Vinnulaunin eru síðan hagnýtt til að kaupa innfluttu vörurnar. Þetta er hin eðlilega hringrás. Með marsjall„hjálpinni“ fer þetta kerfi úr skorðum. Samkvæmt henni er flutt inn mikið magn af vamingi sem ekki er greiddur á venjulegan hátt. í sambandi við þann innflutning fer ekki fram nein gjaldeyriísöflun og engin vinnulaun eru greidd. Hins vegar eru vörurnar grsiddar fullu verði af almenningi og andvirðiö síðan bundið í ákveðnum sjóði mótvirðissjóði, og bannaö að leggja fé úr þeim sjóði til framleiðslunnar. Afleiðingin verður sú að féð fer úr umferð, smám saman minnkar framleiöslan innanlands sem gjöfunum svarar og vinnu- launin rýrna aö sama skapi. Atvinnuleysið magnaist, kaupgetan rýrnar og almenningur veröur að láta sér nægja að horfa á ,,gjafirnar“ í búðargluggunum. Það er engum efa bundið að þeir vísu hagfræðingar sem að marsjall„hjálpinni“ stóðu hafa séð þessa þróun fyrir, enda er hún liður í ,,jafnvægi“ því sem um er rætt í marsj allsamningnum. En sú útspekúleraða fúlmennska sem býr á bak við slíka „hjálpserni“ er vissulega alger nýung í alþjóðamálum. SjúkrasamlassjíjöUl unglinga A. K. á Isafirði skrifar á þessa leið um sjúkrasamlags- gjöld unglinga: „Kæri bæjar- póstur! Ég vil vekja athygli almennings og alþingis á máli sem einkum varðar æskuiýðinn. Þegar unglingur verður 16 ára er hann orðinn fullgildur skatt- borgari. Einn af þessum skött- um er sjúkrasamlagsgjald. Það mun yfirleitt vera 20 kr. eða meira á mánuði, þ. e. að minnsta kosti 240 kr. á ári. Fátækt námsfólk, sem litla at- vinnu hefur á sumrum munar um þessa peninga, allra helzt þegar þar bætist ofaná gjaid til almannatrygginga. Finnst mér engin sanngirni í öðru en sjúkrasamiagsgjald verði ekki heimtað af ungu fólki fyrr en það er 21 árs. Fólk á þessum aldri er yfirleitt heilsuhraust og mestur hlutinn af þessu fé fer einungis í gagnslítið meíala- sull handa meira og minna hysterísku fólki. Ösanngjörn innheimta I stórri fjölskyldu nema þess- ir sjúkrasamlagspeningar svo hárri upphæð að fullkomnir blóðpeningar mega kallast. Það sem sjúkrasamlag gefur í aðra hönd kemst ekki í hálfkvisti við það sem lagt er fram til þeirra með þessari ósanngjörnu og miskunnarlausu innheimtu. Ungt fólk þarf ekki að sulla í sig meðulum daglega og ekk- ert réttlæti að neyða það til að leggja fram háar upphæðir til stofnunar, sem enga þjón- ustu að gagni leggur fram á móti, sizt nú þegar atvinnu- leysi þjarmar að mönnum og margir eru háðir fjárhag og pyngju foreldranna. Skora ég á alþingi að nema þennan órétt- láta skatt á unglingum úr lög- um. — A. K.“. Svar til Sigurðar J. Ásg. sljrifar: „Einhver Sigurður skrifar mér í bæjar- pósti Þjóðviljans 16. þ. m, og kvartar yfir því, hvað ég hafi skrifað langa grein um dúfna- drápið. ÍEinnig, að ég skrifi mjög einhliða um málið. hafi nefnilega gleymt honum og hans líkum,. sem verði daglega að liða ýmsar hörmungar fyr- ir það. að þessar dúfur skuli vera li'ðnar bótalaust i bæn- um. — En mér finnst, að ég eigi mína afsökun í því, að ég vissi fyrst og fremst ekki um hans persónulegu þjáningar í sambandi við þetta mál og svo bað, að mér datt það aldrei í hug, að dúfurnar væru svona dónalegar og ósvífnar að drita iafnvel á skrifstofumenn og fín hús. sem níkir menn eiga og húa í. — Ég skai játa það, að þetta er fremur óþokkalegt. • Persónuleg eða félagsleg sjónarmið En hvort er heillavænlegra fyrir þjóðfélagið nð litið sé að- oins á málin frá persónulegfi hlið eða félagslegri? Nú er það vitanlegt, að alltaf cru einhverjir að dfita á okkur í þessu þijóðfélagi (enda þótt það séu ekki dúfur), en við þegjum við því, of margir, jafnvel þökk- um fyrir það. Þá er ekki talað um neinn óþrifnað, þótt við og aðrir liðum við það alla ævi. Og marga vill það henda að vera á móti góðu málefrii fyrir það eitt. að þeir persónu- lega hafa einhver óþægindi af því, verða að fórna einhverju fyrir það. -— Annars hef ég heyrt að lögreglustjórarnir hafi neitað að drepa dúfumar nema einn þeirra. Bæði hefur þeim þótt það leiðinlegt verk og svo hafa þeir vitað hve óvinsælt það mundi verða. Enda hefur það komið í ljós að margir hafa klagað og sérstaklega yfir því að byrjað var á því að drepa tömdu dúfurnar. Það hefði líka sýnt réttmætari áð- ferð úr því að á þessu var byrjað að eyðileggja villtu dúf- urnar en hlífa fremur hinum. m Var eltki möimum sinnandi Ein kona sagði mér, að drengurinn sinn hafi ekki verið mönnum sinnandi siðan dúfurn- ar hans vom drepnar. Hans fyrsta verk hefði ailtaf verið það, þegar hann kom heim úr skólanum, að geía dúfunum. Umhyggjan fyrir dúfunum hafi áreiðanlega frelsað hann marga stund frá götunni. — Og svo lofsyngur þessi Sigurður þetta blessaða dúfnadráp, er hann orðar svo, en fáheyrt mun vera að þannig sé tekið til orða um nokkurt dráp. Og telur það hafa þroskandi áhrif á unglingana, sérstaklega ef það er útskýrt fyrir þeim, hvað það sé illa gert af dúfunum að drita á hús eins og Tjamarcafé. Hús með fallegum nöfnum. Nöfn- um sem hafa útlendan hala. Hala þar sem ekkert óhreint kemur undan. — J. Ásg.“. Ríkisskip Hekla er á leið frá Austfjörðum til Akureyrar. Esja fór frá Kefla- vík x gærkvöld til Gautaborgar og Álaborgar. Herðubreið er á Vest- fjörðum. Skjaldbreið fór frá Rvík í gærkvöld til Húnaflóahafna. Þyrill er á Austfjörðum á suður- leið.’ Eimskip Brúarfoss er á Austfjörðum; lestar frosinn fisk. Dettifoss fór frá Rotterdam í gær til Antwerp- en og Hull. Goðafoss fór fxá Rvík 16. þm. til London, Rotterdam og I-Iamborgai-. Gullfoss fór frá Leith 16. þm.; væntanlegur til Reykja- víkur 19. þm. Lagarfoss er í New York. Reykjafoss er í Hamborg. Selfoss fór frá Huil 14. þm.; vænt- anlegur til Rvíkur. Tröllafoss fór frá Rvík 9. þm. til New York. • Skipadeild SIS Hvassafell lestar síld á Akra- nesi. Arnarfell fór frá Hafnarfirði 15. þm. áieiðis ttl Spánar. Jökul- fell fór frá N.Y. 9. þm. áleiðis til Reykjavikur. Fiugíélag Islands: 1 dag er ráðgert að fijúga til Akureyrar og Vestmannaeyja. Á morgun eru áætlaðar flugferðir til Akureyrar, Vestmannaeyja, Neskaupstaðar, Sevðisfjarðar cg Egilsstaða. Loftleiðir h.f.: 1 dag verður flogið til Vest- mannaeyja. Á morgun verður flog- ið til Akureyrar, Bíldudals, Isa- fjarðar, Patreksfjarðar, Vest- mannaeyja og Þingeyrar. Helgidagsiæknir: Ófeigur J. Ó- feigsson, Sólvallagötu 51, sími 2907. •, 11.00 Messa í kap- ellu Háskólans (sr. Jón Thorarensen). — 12.55 Útvarp af stálþræði frá fundi Stúdentafélags R- víkur 13. þ. m. Fundarstjóri: Páli Ásgeir Tryggvason formaður fé- lagsins. Umræðuefni: Skattamálin. Málshef jendur: Alþingismennirnir Gísli Jónsson, Gylfi Þ. Gíslason og Skúli Guðmundsson. Aðrir ræðu- menn: Lárus Sigurbjörnsson rit- höfundur, Gunnar Þorsteinsson hrl. og Geir Hallgrímsson lögfr. (Framhaldi fundarins útv. kl. 16.30). 15.30 Miödegistónleikar: a) Cellósónata í a-moll eftir Grieg (Feiix Salmond og Simeon Rum- schisky leika). b) „Rio Grande", kór- og hljómsveitarverk eftir Con stant Lambert (St. Michaels kór- inn og Hallé hijómsveitin flytja; höfundurinn stjórnar). c) ,Le Cid‘, danssýningarlög eftir Massenet (Sinfóníuhljómsv. í San Francisco; Alfred Hertz stj.). 16.30 Framhald Stúdentafélagsfundarins um skatta mál (af stálþræði). 18.30 Barna- tími (Baldur Pálmason): Upþiest- ur og tónleikar. — Leikrit: „Úti- legumenn í Ódáðahrauni ........“ eftir Ragnar Jóhannesson, skóla- stjóri. Leikstjóri: fflvar Kvaran. Nemendur úr ieikskóla hans flytja. 19.30 Tónleikar: Píanólög eftir Liszt (plötur). 20.20 Tónleikar (piötur): Óbókonsert i d-moll eftir Vivaldi (Leon Goossens og strengja hljómsv.; Sússkind stj.). 20,35 Frá- söguþáttur: Minningar af Snæfells nesi (eftir séra Villijálm Briem. Ásgeir Ásgeirsson fyrrum próf- astur flytur) — fyrri hluti. 21.00 Óskastund (Benedikt Gröndal rit- stjóri). 22.05 Danslög (plötur). — 23.30 Dagskrárlok. Útvarpið á morgun: 15.30—16.30 Miðdegisútvarp. — (15.55 Fréttir og veðurfregnir). 18.15 Framburðarkennsla. í ensku. — 18.25 Veðurfregnir. 18.30 ís- lenzkukennsla; I. fl. —• 19.C0 Þýzku kennsla; II. fl. 19.25 ÞJngfréttir. — Tónleikar. 20.20 Útvarpshljóm- sveitin; Þórarinn Guðmundsson stjórnar. a) Lög eftir íslenzk tón- skáld. b) „Um morgun, kvöld og miðan dag í Vínarborg", forleikur eftir Suppé. 20.45 Um daginn og veginn (Jón Eyþórsson veðurfræð- ingur). 21.05 Einsöngur: Skafti Pétursson frá Hornafirði syngur; Fritz Weisshappel leikur undir: a) „1 djúpið mig langar“ eftir Bj. Þorsteinsson. b) „Vor og haust" eftir Bjarna Þorsteinsson. c) „Heyr mig, lát mig lífið finna“ eftir Inga T. Lárusson. d) „Til næturinnar“ eftir Sigvalda Kalda- lóns. e) „Friður á jörðu“ eftir Árna Thorsteinsson. 21.20 Dagskrá Kvænfélagasambar.ds íslands. — Erindi: Hið þríþætta. uppeldi (séra Árelíus Nielsson). 21.45 Búnaðar- þáttur: Úr Hríséy; — Gísli Krist- jánsson ritstjóri ræðir við Cdd Ágústsson bónda. 22.10 „Fram á eileftu stund", sa,ga eftir Agötiiu Christie; X. (Sverrir ICristjánsson sagnfræðingur). 22.30 Tónleikar (plötur); a) Bevei'ley Sisters syngja. b) „Smásögur", hljómsveit- arverk eftir Gade (Danska út- v'arpshijómsveitin leikur; Erik Tuxen stj.). 23.00 Dagskrárlok. 75 ára er í dag Friðrikka Jensen, Barónsstig 27, Reykjavík. Nýlega hafa opin- berað trúlofun sina ungfrú Sigurlína Hannesdóttir, Mel- breið, . Fijótum og Kristjón Sigurðss., Ásgarði, Garðahreppi. DraumgySjan mín, kvikmyndin sem Stjörnubíó hefur sýnt að und- anförnu er einhver vinsælasta og bezt -sótta mynd sem lengi hefur verið sýnd hér. Þótt búið sé að sýna myndina lengi hefur alitaf verið fullt hús á kvöldsýningu fram að þessu. Myndin verður sýnd i dag kl. 7 og 9 en úr því má búast við að sýnihgum fari að fækka. Biaðamannaféiag íslands heldur fund í dag ltl. 2 e.h. í Café Höll uppi. I . Hjónunum Mariu V Oddsdóttur og Þor valdi Jóhannessyni Vitastíg 11 fædd- ist 11 marka dóttir í gær, 17. nóv. s.l. Skólagarðar Eeykjavfkur. Nem- ondur skólagarðanna frá sl. sumri eru beðnir að koma til viðtals í Melaskólann kl. 4 í dag og taka á móti vitnisburði sínum. Enra- fremur verður kvikmyndasýning.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.