Þjóðviljinn - 20.11.1951, Síða 8
IIvaðaBi liafði Jón Axel'upplýsingar sínar?
Er afsfaéa lians afsfaða Aljsýðtiflokksins?
Akranesstogarinn Bjarni Ólafsson hefur alltaf
undanfarið lagt afla sinn á Iand á Akranesi til vinnslu
þar. Á Akranesi hefur ekkert atvinnuleysi verið hjá verka-
fólki á þessu hausti.
Hér í Reykjavík eru hundruð manna atvinnulausir.
Togarar Bæjarútgerðar Reykjavíkur sigla allir með afla
sinn og flytja saltfisk til Danmerkur, Danir senda ís-
Ienzka saltfiskinn síðan til Ítalíu!
Hér er það notað sem röksemd að togaramir tapi á
að leggja upp aflann hér. Á Akranesi hefur enn ekki
komið til þe(3is að bæjarsjóður þyrfti að greiða neinn
halla á rekstri togarans vegna þess að hann Ieggur aflann
upp þar, að því er framkvæmdastjóri bæjarútgerðarinnar
á Akranesi tjáði Þjóðviljanum í gær.
Fyrir bráðum þrem vikum
flutti Hannes Stephensen þá
kröfu Dagsbrúnar á bæjar-
stjórnarfundi að togararnir
væru látnir leggja afla sinn
upp til vinnslu hér, og þar með
sköpuð atvinna fyrir þá sem
nú hafa verið hraktir út í
sultartilveru atvinnuleysisins.
Eorgarstjórinn, Gunnar Thor-
oddsen, lát vísa tillögu Hannes-
ar frá, á. þeim grundvelli að
hún væri óþörf og ástæðulaus,
þar sem verið væri að semja
um það að togararnir gætu
landað hér — án þess að vera
reknir með tapi.
Gurnar var að „semja“
Það leið hálfur mánuður án
iþess að nokkuð fréttist af
„samningum" Gunnars Thor-
oddsen. Á síðasta bæjarstjórn-
arfundi flutti Hannes tillögu
Niðursett weri
á aðgöngumiðum að
Sirkus Zoo
Athygl ska] vakin á því, að
í dag er allra síðasti sýning-
ardagur Slrkus Zoo og verða
þá tvær sýningar, kl. 5 og kl.
9, með niðursettu verði, kr. 10
fyrir fullorðna og kr. 5 fyrir
börn.
Er þetta tilvalið tækifæri fyr-
ir þá, sem hefur þótt verð að-
göngumiða að -sirkussnum of
hátt til að sjá hann tvisvar. —
Urn frekari framlengingu á sýn-
ingum getur ekki orðið að
ræða.
I gær voru 36 þúsund manns
búin að sjá sirkusinn, þar af
voru 8 þúsund utanbæjarfólk.
Haustmótið:
Lárus efsfur
7. umferð á haustmóti Tafl-
félags Reykjavíkur var tefld á
föstudagskvöldið og standa nú
leikar þannig að Dárus John-
Framha’d á 7. siðu.
um að togarar Bæjarútgerðar
Reykjavíkur legðu upp afla
sinn hér. I umræðunum kom
það í Ijós að „samningum"
Framhald á 7. síðu.
Krefst imiflutn-
ings nanðsynlegra
varahluta
„15. þing FFSÍ skorar á rík-
isstjórnina að skipa 3ja manna
nefnd til að semja reglugerð um
skyldur vélaumboða til að hafa
jafnan fyrirliggjandi nauðsyn-
legar birgðir varahluta í þær
vélar er þau selja, enda sé
þeim ávallt séð fyrir nægum
gjaldeyri til þeirra h'.uta. Fram
kvæmd reglugerðarinnar verði
falin Fiskifélagi Isiands“.
F.Ll. og LJ. vilja fá iðnbanka
Laugardaginn 17. þ. m. var sameiginlegur fundur haldinn
með stjórn Landssambands iðnaðarmanna og Félags ísl. iðn-
rekenda. — Rætt var þar um nýtt og aukið samstarf iðnaðar-
manna og iðnrekenda um hagsmunamál iðnaðarins, einkum
stofnun Iðnaðarbankans og lánsfjárútvegun. til iðnaðarins.
Var það einróma álit fund-
arins, að stofnun bankans mætti
eigi dragast lengur, enda nokk-
urnveginn sýnt að meirihluti
Alþingismanna myndi vera mál-
inu vinveittur, þrátt fyrir harða
andúð nokkurra þingmanna.
Fundurinn taldi að umræður
á Alþingi um ráðstöfun á fé
mótvirðissjóðs til landbúnaðar-
Bílsiys
á Mikladalsvegi
S. I. laugardagskvöld valt
jeppabifreið með tveimur mönn-
um út af Mikladalsvegi milli
Tálknafjarðar og Patrek^fjarð-
ar. Meiddist annar maðurinn
taisvert, en hinn slapp lítið eða
ekkert meiddur.
Mennirnir voru Ólafur Árna-
son og Jón Sveinsson, báðir af
Patreksfirði. Hálka var á veg-
inum og fór annað framhjól
bifreiðarinnar út af. Ólafur sat
við stýrið og greip til þess ráðs
að snúa beint undan brekk-
unni til að forðast veltu, en
bifreiðin hófst á loft og kom
niður á hjólin. Stórgrýtt er
þarna og bratti mikill. Þykir
furðulegt að ekki skyldi verffa
þarna stórslys. Ólafur hand-
leggsbrotnaði, meiddist á hné
og skrámaðist víða, en Jón
sakaði lítið. Vörubifreið frá
Tálknafirffi bar þarna að og
flutti hún mennina til Patreks-
fiarðar. Liggur Ólafur nú í
sjúkrahúsinu þar.
ins gæfu enn ríkara tilefni til
þess en áður a]3 iðnaðurinn
gerði kröfu til þess að hluta
sjóðsins yrði vari'ð til þess að
greiða úr lánsfjárþörf iðnaðar-
ins, og samþykkti fundurinn að
beina áskorun um það til þeirra
Alþingismanna, sem vitað er að
eru hlynntir iffnaði í landinu,
að þeir vinni að því að Al-
þingi láti fylgjast áð sam-
þykkt um ráðstöfun á fé mót-
virðissjóðs að jöfnu til land-
búnaðar og iðnaðar, enda hafi
nýa-fstaðinn landsfundur eins
stærsta stjórnmálaflokks í
landinu lýst yfir eindregnu
fylgi sínu við því, að bætt yr-ffi
úr lánsfjárþörf iðnaffarins eftir
þessum leiðum.
Akureyri. Frá fréttaritara Þjóð-viljar.s.
Eftirfarandi tillögur voru samþykktar á fundi í Verkamanna-
félagi Akureyrarkaupstaðar í fyrradag:
„Fundurinn fagnar því að
fram er komin í bæjarstjórn
tillaga um byggingu hraðfrysti-
húss hér í bænum. Telur fund-
urinn að stofnun slíks at-
vinnufyrirtækis geti haft úr-
slitaþýðíngu um afkomu verka-
fólks hér á Akureyri og skor-
ar því á bæjarstjórn að hraða
svo sem unnt er undirbúningi
þessa mikla nauðsynjamáls“.
Þá samþykkti fundurinn enn-
fremur:
„Fundurinn skorar á hið háa
Alþingi að samþykkja þingsá-
lykthnartillögu Jónasar Kafn-
ars um tunnuverksmiðju rík-
isins“.
Truxa-hjónin
KOMA EFTIR ÁRAMÖT
Það cr nú fullráðið að Truxa-
hjónin komi hingað eftir ára-
mótin og haldi hér sýningar
á vegum sjómannadagsráðsins
til ágóða fyrir dvalarheimili
aldraðra sjómanna. iíefur ver-
ið gengið frá öllum nauðsynleg-
um leyfum í því sambandi. —
Verða um 30 skemmtiatriði á
þessum sýningum Truxa-hjón-
anna og aðstoðarfólks þeirra.
Böðvar Steinþórsson, fram-
kvæmdastjóri sjómannadags-
riðs, fékk nýlega bréf frá
Truxa þar sem hann færir ráð-
inu beztu þakkir fvrif síðast og
biður að heilsa kunningjunum
hér.
Sýningar sjómannadagskab-
arettsins hafa orfiið ýmsum
minnisstæðar og þó einkum
yngstu sýningargestunum. Hef-
ur sjómannadagsráði nýlega
borizt teikning frá átta ára
dreng og er hún af Austurrík-
ismönnunum tveimur þar sem
annar stendur á höfði á flösk-
um er hinn ber á höfðinu. —
Drengurinn, sem gerði teikn-
inguna heitir Guðbergur Au-3-
unsson og er sonur Auðuns
Hermannssonar, formanns skip-
stjóra- og stýrimannafélagsins
Gróttu.
þióÐviumM
Þriðjudagur 20. nóvcmber 1951 — 16. árgangur — 260. tölublað
3. þing AlþýSusambands NoíöuiTands:
Á 3. þingi Alþýðusambands Norðurlands var eftirfarandi á-
lyktun samþykkt:
„Með tilliti til þess geigvænTega ástands sem nú ríkir ír.cðal
liins vinnandi fólks á Islandi, vegna margendurfekÍTina árása
ríkisvaldsins, sem meðal annars koma fram í gcngislækkunum,
sívaxandi sköttum og tollum, óbærilegri dýrtíð, auk stöðvunar
heilla atvinnugreina, svo sem byggingariðnaðarins og stórfelld-
um samdrætti og atvinnuleysi í f'jcstum öðrum atvinnugreinum,
ályktar 3. þing A.N. haldið á Akureyri 28. og 29. október 1951,
að Iaunastéttum landsins sé nú meiri þörf en nokkru sinni fyrr
öflugrar og óskiptrar pólitískrar forustu á vettvangi þjóðmál-
anna, þar sem um baráttu gegn afturhaldin'u og einokunarklík-
um þess er að ræða.
Fyrir því skorar þingið á miðstjórnir Sameiningarflokks al-
þýðu — Sósíalistaflokksins og AJþýðuflokksins, að hefja strax
\ iðræður sín á milli um það, hvort ekki sé finnanlegur grund-
völlur fyrir samstarfi milli þessara flokka um brýnustu hags-
rnunamál Iiins vinnandi fólks. Þingið Iítur svo á, að ein höfuð
orsök þess, að afturlialdinu í landinu hefur tekizt að rýra lífs-
afkomu fólksins, eins og raun ber vitni, sé sú, að forusta
verkalýðsins er klofin í tvo floklva sem ekki hafa getað unnið
saman að hagsmunamálum hans, heldur staðið á öndverðum
mciði.
Þingið telur að eir.ing alþýðunnar, jafnt í pólitískum sem
faglegum efnum, sé það reginafl, sem fyrr en varir leysir hana
úr viðjum auðvalds og afturhalds, og muni gera Iiana frjá'Jsa."
1 sambandi við þessa athygl-
isverðu ályktun Alþýðusam-
bands Norðurlands skal á það
bent að Sósíalistaflokkurinn
hefur æ ofan í æ lýst yfir
þeim vilja sínum að vinna með
Alþýðuflokknum að hagsmuna-
málum . íslenzkrar aíþýðu og
oftar en einu slnni snúið sér
formlega til Alþýðuflokkslns
með tillögur úm slíkt samstarf
á undanförnum árum. Ennþá
oftar hafa þó forsprakkar Al-
þýðuflokksfns lýst yfir því að
slíkt samstarf kæmi ekki til
greina, og heldur formaður Al-
þýðuflokksins, Stefán Jóhann
Stefánsson, t. d. aldrei ræffu,
svo að hann Icggi ekki megin-
áherzlu á það atriði. Er fátt
elng lærdómsríkt um hlutvcrk
Alþýðuflokkssbroddanna og ein-
mitt sú síaðreynd.
F.F.S.l. viil fá
rnaim i síjórn
„15. þing FFSÍ endurtckur
fyrri áskoranir sínar til Al-
þingis, um a'3 stjórn Síldar-
verksmiðja ríkisins verði skip-
uð þannig, að FFSl skipi einn
mann í stjómina. Lítur þingið
svo á, að ekki geti vanzalaust
talizt, að þessu stóra fyrirtæki
sjávarútvegsins verði framveg-
is stjórnað eingöngu af full-
trúum hinna pólitísku flokka,
on þeir aðilar sem raunveru-
lega bera fyrirtækið uppi fái
bar cngu um að ráffa. Jafn-
framt verði hrásíidarver'ðið á-
kveðið framvegis í fullu sam-
ráði við verðlagsráð sjávarút-
vegsins eins og undanfarið hef-
ur átt sér staff hjá Síldarút-
vegsnefnd.
Þá skorar bingið á stjórn
Síldarverksmiðja ríkisins og
affra stjómendur síldarvérk-
smiðja í landinu, að sjá svo um
a'ð öll síld verði framvegis veg-
in upp úr skipi, en ekki mæ!d“.
Smáþjófar
athafnasamir um helgsna
Smáþjófarnir voru með iðn-
asía móti um helgina, mörg
innbrot og þjóínaðir voru ]iá
framdir.
Á laugardaginn tapaði kona
nokkur veski með 13—1400
krónum í. Yar hún að skoða
kápu í Feldinum og hafði lagt
veskið frá sér á meffan. 1 fyrra-
kvöld var farið um borð í
vélbátinn Þorstein og stolið
þar miklu af fatnaði, ennfrém-
ur var þá stolið frakka úr bif-
reiðinni R-5270. I fyrrinótt var
brotizt inn í afgrei'ðslu Lax-
foss í Tryggvagötu 10 og leit-
að að peningum, en sú leit bar
engan árangur. Bifreiðinni R-
556 var stolið þar sem hún
stóð við liúsiff Öldugata 3. og
ekið eitthvað um bæinn. Enn-
fremur var gerð tilraun til að
stela tveimur bifreiðum. Stóð
önnur þeirra læst í Naustagötu
og voru snúnir af lienni allir
liurðarhúnar, en hin stó'ð við
Stýrimannastíg. Lögreglan hef-
ur handtekið 15 ára pilt, sem
viðurkennir að hafa reynt að
stcla bifreiðunum tveimur og
var hann þá drúkkinn.
s-
mótið liefst í
kvölc! ■
Kandknattleiksmót Reykja-
víkur fyrir meistará og II. fl.
kvenna, 1„ 2. og 3. fl. karla
hefst að Hálogalandi í kvöld.
Rlótið stendur yfir til mánu-
dagsins 26. þ. m., með ]ieirri
undantekningu, að ekki verður
lcikið Iangardaginn 24. ]). m.
Alls taka 23 íþróttaflokkar
frá 7 félögum bæjarins bátt
í mótinu og verða samtals
Framhald á 6. síðu.