Þjóðviljinn - 04.12.1951, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 4. desemebr 1951
Hólmavikur, Isafjarðar og Vest-
mannaeyja.
✓---—-----------------------------------------
þjófmuiNN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjorar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri. Jón Bjarnason.
B'.aðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Réttum æskunni örfandi hönd
Hin skipulagða kreppa sem verið er að leiða yfir
íslenzku þjóðina bitnar ef til vill sárast á æskunni.
Fyrsta bylgja atvinnuleysisins skall á skólafólkinu, það
fékk enga atvinnu á vorin, þegar skólum lauk, varð varla
matvinnungar á sumrin, og ófáir eru þeir draumar um
nám sem brostið hafa þessi síðustu ár vegna fjárskorts.
Eöa hvernig á ungt fólk að fara að því að stofna heimili
á þessum tímum verðbólgu, peningaskorts og atvinnu-
leysis.
Hin andlegu áhrif þessa ástands hljóta einnig að
bitna sárast á æskunni, þegar eðlileg bjartsýni og stór-
huga framtíðaráætlanir rekast á eymd og volæði hins
rúmhelga dags. Þeir árekstrar birtast á ýmsan hátt.
Nokkur hluti æskufólksins lokar augunum af alefli, geng
ur í Heimdall og skiptir á eðilegum framtíðardraumum
sínum og Bandaríkjadýrkun, kenndri við súperman, í
sjoppum Silla og Valda eða Holsteini. Annaö æskufólk
gengur feti lengra í sömu átt, missir síðustu fótfestuna,
leggst í drykkjuskap og tekur upp gripdeildir til að afla
sér fjár. En stærstur er þó sá hluti æskunnar sem ekki
missir fótanna, heldur reynir að gera sér grein fyrir
erfiðleikunum og yfirvinna þá. Kjarni þess æskufólks er
hin sósíalistíska æska, sem hefur aflað sér þekkingar á
þjóðfélaginu og veit þess vegna hvernig hún á að haga
baráttu sinni til þess jöfnum höndum að bæta aöbúnað
æskunnar nú þegar og undirbúa þjóðfélag æskunnar,.
skipulag sósíalismans.
Það er engin tilviljun að starfsemi hinnar sósíal-
istísku æsku í Æskulýðsfylkingunni hefur orðiö þrótt-
meiri cg markvissari meö hinum skipulögðu árásum aft-
urhaldsins á lífskjör almennings, það eru hin eðlilegu
viðbrögð heilbrigðrar æsku. „Ekki skal gráta Björn
bónda, heldur safna liði.“ Þegar ráöizt er á lífsafkomu
og framtíðarmöguleika ungs fólks, þá beygir það auð-
vitað ekki af, heldur hópast þéttar saman til að stöðva
ránin og hefja nýja sókn til bættra kjara og aukinna
möguleika. Og sú barátta gefur einnig tækifæri til heil-
brigðra og menntandi verkefna, beinir starfsorkunni inn
á eðlilegar bra-utir og er í algerustu andstöðu við sjoppu-
líf það sem yfirstéttin reynir að halda að ungu fólki.
Foreldrar þurfa ekki að bera kvíðboga fyrir hinni sósial-
istísku æsku.
En lánsfjárbannið og peningaskorturinn bitna auð-
vitað á Æskulýðsfylgingunni af fullum þunga, og til
þess að efla og auka starfsemina eins og nauðsynlegt er
þarf mikið fé. Því hefur Fylkingin nú ráðizt í skyndi-
happdrætti og sett sér það mark aö selja 20.000 happ-
drættismiða á þrem vikum. Verkefnið er stórt, en það
er einnig gengið að því af fjöri og eldmóði. Þegar að
kvöldi fyrsta dags var hver tíundi miði seldur. En til
þess að fullur árangur náist, þurfa allir vinir æskunnar
að rétta henni örfandi hönd, allir fylgismenn Sósíalista-
flokksins verða að taka beinan og óbeinan þátt í þessu
átaki. Æskulýðsfylkingin er vaxtarbroddur Sósíalista-
flokksins og hinnar rótttæku verkalýðshreyfingar og allt
þaö sem henni er unnið er í þágu framtíðarinnar.
Kolviðarhóll
Mikill vágestur hefur heimsótt Kolviðarhól, eins og
skýrt hefur veriö frá í blaðafregnum. Bandarískir her-
menn hafa vanið þangað komur sínar með drukkin
stúlkubörn í fylgd með sér og gerðu síðast tilraun til
aö eiga þar næturgistingu með fylgdarliði sínu. Af þess-
um ástæðum hefur komið óorð á Hólinn, og foreldrar
eru að vonum uggandi við að æskufólk venji komur sín-
ar þangað uppeftir.
Þetta er hið mesta vandamál fyrir forráðamenn ÍR,
sem á Kolviðarhól, en þeir hafa ekkert um atburðina vit-
aö fyrr en eftirá og hafa auðvitað fullan hug á að koma
í veg fyrir að slíkir atburðir endurtaki sig. En þegar
þeir fóru að starfa að málinu ráku þeir sig á furðulega
staðreynd: opinber stjórnarvöld höfðu engan áhuga á
að hjálpa þeim. Lögreglustjórinn í Reykjavík kvaðst
Troðningur í annatíma.
Herjólfur skrifar::
„Bæjarpóstur góður. — Full-
orðið fólk hefur oftast svo
mikið sjálfsálit, að því dettur
ekki annað í hug en að það sé
á öllum sviðum til fyrirmynd-
ar fyrir börn. En ég komst ný-
lega að raun um, að á einu
sviði að minnsta kosti væri ó-
hætt að snúa þessu við.
Flestir kannast við þann
troðning, sem oft skapast við
strætisvagnana á Lækjartorgi
í mesta annatímanum á daginn.
Stórir hópar fólks bíða þá eftir
vögnunum, og er þeir loks
koma á torgið, flýtir sér hver
sem mest hann má, og vilja
allir verða fyrstir inn í vagn-
ana. Af þessu verður oft mikil
þröng við dyr vagnanna — til
stórbaga fyrir gamalt fólk og
konur með börn.
m
Vandamálið leyst.
Þetta vandamál hefur börn-
um tekizt að leysa á svo prýði-
legan hátt, að mér finnst á-
stæða til að geta um það —
og kannski getum við eitthvað
lært af því.
í úthverfum Reykjavíkur
getur oft að líta börn, sem
standa í skipulegum röðum við
veginn. Ég vissi lengivel ekki,
hvað þetta ’átti að þýða, þar
til ég spurði lítinn frænda minn
um það. Þau voru þá að bíða
eftir skólabílnum, og hann
sagði, að þau fengju ekki að
fara upp í bílinn, nema þau
skipuðu sér áður í slíkar raðir.
Og aldrei hendir það, að neinn
reyni að troðasij' fram fyrir
annan, enda yrði sá hinn sami
brátt illa liðinn í biðröðinni. En
nú getur viljað til, að einhver
sé dálítið seinn fyrir, en vilji
þó gjarna lenda framarlega í
röðinni. Þá er ekki annar vand-
inn en að snarast út með skóla-
töskuna sína og láta hana á
sinn stað í röðina. Þá getur
maður skorppið inn aftur og
lokið við að borða eða búa sig,
því enginn vogar sér að hrófla
við töskunni. Hún hefur hér
sama rétt og eigandinn“.
Spurt um verðmismun.
Hulda skrifar:
,,Um daginn voru auglýstar
hér í blöðunum með töluverð-
um fyrirgangi svokallaðar Alad
dín-teppanálar, en þær eru m.
a. ætlaðar til þess að gera með
þeim mott.ur og jafnvel heil
gólfteppi. Það var áreiðanlega
uppi fótur og fit hjá ýmsum.
og ég var ein þeirra sem fór á
vettvang í Húsgagnaverzlun
Austurbæjar þar sem nálarnar
voru auglýstar. Ég keypti mér
eina nál, og kostaði hún 85
krónur. Lét ég það gott heita,
enda þó mér þætti verðið nokk-
uð hátt. En nokkru síðar voru
samskonar nálar auglýstar í
Gefjun — Iðunn í Kirkjustræti,
og kostuðu þar 40 og 45 krón-
ur. Nú langar mig til að
spyrja: I hverju liggur þessi
verðmismunur ? Er eir.hver hér
með óhreint mjöl í pokanum?"
•
Um snjó.
Snæöldin er hafin. Hann má
frjósa eins og hann vill. Hann
má koma svo oft á norðan sem
honum þóknast. Það skiptir
ekki meginmáli þótt blómanna
sjái hvergi stað framar. Sum-
arið getur jafnvel enzt miklu
lengur en litur þess grænkan.
Og við tökum ekki meira mark
á Almanakinu en Arnaldur í
Kófinu á vökunni. En sem snæ-
dúkurinn er breiddur á jarðar-
borð, þá er ekki lengur að tvíla
það: veturinn er kominn. Og
sem Bæjarpósturinn hélt til
vinnu sinnar í gærmorgun þá
sá hann úr strætisvagninum
hvar tveir snáðar leiddu skíðin
sín á eftir sér á túninu hjá
Undralandi. Því þegar snjórinn
hefur verið breiddur á jörðina
Framhald á 0. sxðu.
Flugfélag Islands
í dag er ráðgert að fljúga til
Akureyi-ar, Vestm.eyja, Blönduóss
og Sauðái'króks. Á morgun eru á-
ætlaðar flugferðir til Akureyrar,
Vestmannaeyja, I-Iellissands, Isa-
fjarðar og Hólmavíkui'. Gullfaxi
fór til Prestvikur og Khafnar í
morgun. Flugvélin er væntanleg
aftur til Rvíkur um kl. 17,30 á
morgun.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum. —
Sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki — Sími 1760.
yyr , 15.30—16.30 Miðdeg
isútvarp. — (15.55
Fréttir og veður-
fr.). 18.15 Fram-
burðarkennsla í es
perantó. — 18.25
Veðurfr. 18.30 Dönsltukennsla; II.
fl. 19.00 Enskukennsla; I. fl. 19.25
Þingfréttir. Tónleikar. 19.45 Aug-
lýsingar. 20.20 Fréttir. 20.30 Minnzt
níræðisafmælis Hannesar Haf-
stein: a) Erindi: Bernharð Ste-
fánsson alþm. b) Sönglög við ljóð
eftir Hannes Hafstein. c) Upp-
lestur: Vilhjálmur Þ. Gíslason
skólastjóri. 21.35 Erindi: Uppruni
og innflutningur íslenzku flórunn-
ar; II. Isaldargróður á Isiandi
(Steindór Steindórsson menntask.-
kennari). 22.00 Fréttir og veðurfr.
22.10 Upplestur: „Skýjafar", smá-
saga eftir Pái H. Jónsson kenn-
ara að Laugum (höf. les). 22.30
Kammertónleikar (pl.): Strengja-
kvartett nr. 3 í Es-dúr op. 14
eftir Carl Nielsen (Erling Bloch
kvartettinn leikur). 23.00.
Hjónunum Guð-
rúnu Hallgríms-
dóttur og Árna
ýS. Björnssyni, Fálka-
' götu 8, fæddist 13
Eimsklp
Brúax-foss kom til Amsterdam
2. þm.; fer þaðan til Hamborgar.
Dettifoss fer frá Rvík í kvöld til
Vestmannaeyja og Akureyrar.
Goðafoss fór frá Antwerpen 2. þm.
til Hull og Rvíkur. Guilfoss fer
frá Khöfn í kvöld til Leith og
Rvíkur. Lagarfoss fór frá Davis-
ville 28. fm. til Rvíkur. Reykja-
foss fór frá Hamborg í gær til
Gdynia, Gautaborgar, Sarpsborg,
Osló og Rvikur. Selfoss fór frá
Dalvilc 1. þm. til Rotterdam.
Tröllafoss er í New York; fer
þaðan væntanlega 6. þm. til Dav-
isville og Rvikur. Vatnajökull kom
til Rvíkur 2. þm. frá New York.
Skipadeild SIS
Hvassafell átti að fara frá
Stokkhóimi í gærkv. áleiðis til
Póllands. Arnarfell er væntanlegt
til Genova í dag frá Bilbao. Jök-
ulfell fór frá Rvík 1. þm. til
New York.
Skipaútgerð ríkisins
Hekla er i Reykjavík; fer það-
an á fimmtudaginn austur um
land i hringférð. Esja er í Ála-
borg. Herðubi'eið fór frá Rvík kl.
21 í gærkv. austur um Iand til
Reyðarfjarðar. Skjaldbreið fór frá
Rvík kl. 21 í gærkv. til Breiöa-
fjarðar og Vestfjarða. Þyrill var
á Vestfiörðum í gærkv. á norð-
urleið. Ármann átti að fara frá
Rvík í gærkv. til Vestmannaeyja.
LoftleiBir h.f.
í dag verður flogið til Akureyr-
ar og Vestmannaeyia. Á morgun
er áætlað að fljúga til Akureyrar,
ekkert geta um það sagt hvort hægt væri að banna her-
námsliðinu aðgang að Kolviðarhóli, og sýslumaðurinn í
Árnessýslu taldi að hernámsliðið ætti að hafa jafnrétti
við íslendinga á öllum sviðum á íslandi! Forráöamenn
ÍR, hafa því ekki treyst sér til annan’s og meira en að
biðja veitingamanninn á Kolviðarhóli að hleypa ekki
inn setuliðsmönnum.
Þótt Kolviðarhóll hafi sérstakhga orðið að dæmi um
þetta mál, vofir sami ófögnuðurinn yfir öllum greiða-
isölustöðum landsins, og víðar má finna dærni hliðstæð
þeim sem geröust á Kolviðarhóli. En þennan ófögnuð
verður að uppræta. Ef stjórnarvöldin fást ekki til aö
skerast í leikinn, verður almsnningur að taka máliö í sín-
ar hendur. Þau greiðasöluhús sem halda vilja hylli ís-
lendinga verða að banna hernámsliðinu aðgang skilyrðls-
laust, og fá til þess brautargengi hjá almsnningsálitinu.
yf
marka dottir 1
fyrradag, 2. des.
Hjónunum Guðrúnu J. Guðgeirs-
dóttur og Eyjólfi Jónssyni ]ög-
fræðing, Meðalholti 12, fæddist
16 marka sveinbarn í fyrradag,
2. desember. —
Silfurbrúðkaup eiga i dag hjón-
in Skúlina Haraldsdóttir og Ein-
ar Guðbjartsson, Efstasundi 6.
1 fyrradag voru
gefin saman í
hjónaband af
séra Garðari
Svavarss. ung-
frú Guðríður
Guðjónsdóttir
og Helgi Gunnarsson, verkamaður.
Heimili brúðhjónanna verður að
Hraunteig 15.
1. desember opin-
beruðu trúlofun
sina Ragnhildur
Smith, Hringbraut
74, og Stefán Ás-
björnsson, Suður-
götu 53, Hafnar-
firði. — 1. desember opinberuöu
trúlofun sína Ásta Eyjólfsdóttir,
Veghúsastig 2, og Paul Pampichl-
er, hljómsveitarstjóri.
Bazar verður hjá Barðstrend-
ingafélaginu í dag kl. 2. Margir
góðir munir.
^«7* SÖNGÆFING í
® » Mfi®' Edduhúsinu við
Lindargötu í kvöld. Tenór og
bassi mæti kl. 8; sópran og alt
kl. 8.30. — Mætið vel og stund-
vislega.
-sýningin í Þingholts-
stræti 27. Opin frá
kl. 16—22 daglega. Teiknimynda-
sýning kl. 21.15 í kvöld.
Ljósatími bifreiða og annarra öku-
tækja er frá kl. 15,20—9,10.
Bólusetning gegn barnavelki.
Pöntunum veitt móttaka þriðju-
dag 4, des. n.k. kl. 10—12 f.h.
i sima 2781.
Kirkjukvöld í Hallgrímskirkju í
kvöld kl. 8.30. Dagskrá: 1. Erindi.
Jónas B. Jónsson (fræðslufulltr.).
2. Söngur. Guðrún Á. Símonar.
3. Erindi. Bragi Friðriksson, stud.
theol.
Foreldrar: Leyfið börnum ykkar
að sjá hinar fallegu rússnesku lit-
kvikmyndir fyrir börn, sem nú
eru sýndar í Austurbæjarbíói dag
hvern, kl. 5.
Skaftfellingafélagiö heldur aðal-
fund sinn í kvöld kl. /8.30 í Tjarn-
arcafé. Að loknum aðalfundar-
störfum sýnir Vigfús Sigurgeirs-
son kvikmyndaþætti úr Skaftafells
sýslpm. Að lokum verður dansað.