Þjóðviljinn - 08.02.1953, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 08.02.1953, Blaðsíða 1
Sunnudagur 8. febrúar 1953 — 18. árgangur — 32. tölublað Jamenn á KefBavikurflugvelli fá margfalt r sömu sförf og IsSendingar vinna Voru islenzkir sfarfsmenn hersins rœndir 500.000 kr. af kaupi sinu siSast liSið ár? Á Keflavíkurflugvelli vinna hlið við hlið beint á vegum hers- ins íslenzkir menn og bandarískir við sömu störf. Islendingarn- ir fá 3000 til 4000 kr.. á mánuði fyrir 8 tima vinnu á dag. Þeir Bandaríbjamanna sem lægst laun fá hafa hinsvegar 5000 kr. á mánuði, en flestir hafa langtum meira, allt upp í 12.000 kr. Auk þessa er sífellt reynt að brjóta á Islendingunum samn- inga, og hafa Bandaríkjamenn liælt sér af því að hafa rænt um hálfri milljón króna af íslendingum á síðasta ári með of lágum kaupgreiðslum. Er talið að sú upphæð liafi runnið til háttsettra bandariskra starfsmanna á vellinuin og mun það mál nú vera í rannsókn. KAUPA TOLLSMYGLAÐAR VÖRUR Auk þess sem íslendingar fá aðeins brot af því kaupi sem hei'raþjóðinni er greitt, njóta Bandaríkjamenn þeirra fríðinda að fá að kaupa tollsmyglaðar og skattsviknar vörur í verzlun sinni á vellinum. Eru þar allar vörur miklu ódýrari en í íslenzkum verzlunum. T. d. kostar 20 blaða pakki af Gillette-rakblöðum 8 kr , en 10 rakblöð sömu gerðar kosta hér 11 kr., svo að lítið dæmi sé nefnt. Verðmunurinn á öðrum varningi er hliðstæður. íslending- um er hins vegar algerlega bann- að að njóta þessara miklu fríð- inda( þau eru aðeins ætluð herra- þjóðinni. ENGINN KAFFITÍMI Vinnutími íslendinganna hjá hernum er frá kl. 8 á morgnana til kl. 5,30 á kvöldin. Einrr tími fer úr í mat, — enginn kaffitími er veittur! Er það að sjálfsögðu algeft brot á íslenzkum vinnu- reglum, en þau eru fleiri. Er yfir- leitt ekki tekið neitt tillit til óska íslendinganna á vellinum. Sem dæmi má nefna að bílar þeir sem flytja starfsmennina til Keflavík- ur að loknum vinnutíma eru nú hættir að miða brottför sína við þann tíma þegar vinnu er lokið, og verða íslendingar oft að bíða lengi eftir bílferð. Kvörtunum um þetta hefur ekki verið sinnt. PASSAR í SKYRTUNNI Eins og áður hefur verið rakið hér í blaðinu verða menn að fylla út mikið njósnaskjal áður en þeir fá vinnu og þeir verða að ganga með passa í Skyrtu sinni og sýna hann, hvena^r sem þeir fara um hliðið. Á passanum er mynd starfs mannsins, aldur, hæð, þungi, hára litur, augnalitur, starfsheiti, gild- istími og undirskrift bandarísks lögreglufulltrúa. íslendingarnir hafa hvíta passa, en Bandaríkja- menn ýmist bláa eða rauða. — Rauðu passarnir gilda um allan völlinn, en þeir bláu aðeins utan bannsvæðisins. ALLIR ANDSTÆÐIR HERNÁMINU Aðbúð íslendinga á vellinum er mjög erfið, og vistarverurnar sem þeir búa í margar hverjar hinar herfilegustu, eins og rakið hefur verið áður. Er okrað gegndarlaust á mönnum, algengt að þeir verði að borga 200—250 kr. á mánuði fyrir að sofa í rúmi í litlu her- bergi með fjölmörgum öðrum. í allri sambúð á vellinum eru herra þjóðarmennirnir ósparir á að sýna hug sinn til þeirra innbornu, og njósnir eru skipulagðar um sam- tök þeirra innbyrðis, svo að ekki sé minnzt á tilraunir til samtaka. Enda er það mál manna, áð allir íslendingar á vellinum séu and- stæðingar hernámsins hverjar sem stjórnmálaskoðanir þeirra eru að öðru leyti. 80.000 Hollendingar hafa hrakizt heiman frá sér Sandpokum vaipað úr flugvélum á varnargarða Stjórnendur björgunarstarfseminnar eftir flóðin miklu í Hollandi vonast til að búið verði að dæla sjó af öllu flasddu landi með vorinu.. Sandpokum er varpað niður úr flugvélum til þúsunda manna; sem vinna að því að fylla skörðin, sem sjórinn braut í vamargarðana á hollenzku eyjunum og í strandhéruðunum. Þjóðarsorg í dag. I dag er þjóðarsorg í Hol- landi vegna þeirra, sem drukknuðu í flóðinu. I gær höfðu fundizt 1375 lík. . Ekki er nákvæmlega vitað, hve margir hafa hrakizt frá heimilum sínum, en gizkað er á að það séu um 80.000 manns. Vonazt er til að brottflutningi fólks af flóðasvæðinu verði al- gerlega lokið á þriðjudaginn. Þá fyrst getur starfið að við- gerð varnargarðanna hafizt fyrir alvöm. Byggingaáætl'urt Breta úr skorðum. Ein afleiðing flóðanna í Eng- landi er að áætlun ríkisstjóm- Framhald á 12. síðu. Ándspænis byssusfingnum. Þessi mynd var tekin klukkan hálfþrjú um nóttu í brezku Austur-Afríkunýlendunni Kenya. Byssuskefti hafa harnrað á dyr svertingjakofa. Þegar ung svertingjakona kemur til dyra stendur hún andspænis byssusting hermanns, verið er að smala íbúum heils byggðarlags í fangabúðir. Brezkir blaðamenn í Kenya hafa farið hörðum orðum um hrottalega meðferð hers og lögreglu á svertingj- um. í gær skipaði Kenyastjórn lögrreglumönnum á sérsvæði Kíkújú- þjóðfIokksins að skjótá hvern þann svertingja, sem ekki næmi stað- ar við fyrstu fyrirskipun. íhúð brennnr. — Sjómanns- fjölskylda nifsslr íuhIbbí sitt Laust fjrir M. 11 í gærmorgun kom upp eldur í litlu timb- itrhúsi í Bræðratungu við Holtaveg. Gereyðilagðist nyrðri liluti hússins, þar sem hjónin Esther Jónsdóttir og Ágúst Arason bjuggu með ungu barni sínu. í Bræðratungu eru tvö timbur- hús, annað klætt járni, hitt as- besti. Standa húsin fast saman. Það var í vestara húsinu sem kviknaði, og stóð vindur af hinu húsinu þannig að það sakaði ekki. í norðurhluta hússins sem brann bjuggu hjónin Ágúst Arason og Esther Jónsdóttir með barni sínu tveggja ái'a gömlu, í einu her- bergi. í hinni íbúð hússins býr Sverrir Meyvantsson og fjöl- skylda hans. Ágúst er sjómaður, og er staddur á hafi úti. Esther hafði .skroppið í bæinn fyrir há- degið, og fengið dóttur Sverris til að gæta barns síns. Eldur var í kolavél í eldhúsi, og vissu börnin ekki fyrri til en eldur er kominn upp í húsinu, og lokaði hann þeg- ar útgöngudyrum barnanna. Tók litla stúlkan það ráð að brjóta rúður á stofuglugganum, og Fyrsta skipið, sem komizt hefur með olíu frá Iran, síðan olíudeilan við Breía hófst, fór í gær ura Súesskurðinn. Slcipið er ítalskt. Ekkert hefur verið lát- ið upp um áfangastað þess. komst hún þar út með barnið, enda kom fólk á vettvang er það heyrði köllin. Skarst stúlkan nokkuð á höndum á rúðubrotun- um. Slökkviliðið var kallað á vett- vang, og kom það fljótlega á staðinn. En því varð þó ekki forð- að að íbúð þeirra Ágústs brynni til ösku og þar með innbú þeirra allt. Þá brunnu einnig göt á veggi milli þessarar íbúðar og þeirrar er fjölskylda Sverris býr í, og má íbúðin heita ónýt þar til takast kann að gera við hana.. Eldurinn kviknaði út frá kola vélinni, og hefur hér orðið mikið tjón fátæku fólki um miðjan vet- ur. Æ.F.R. KL. 16.30 í dag; verður föndur- hópurinn að Hjallavegi 29. — Farið úr við SvalbarðT Fræðslunefnd Æ.F.R. Urslitakostír ! óviturlegir Brezka stórblaðið Manchest- er Guardian ræðir í gær úr- slitakosti Dulles, utanríkisráð- herra iBandaríkjanna, til A- bandalagsríkjanna í Vestur- Evrópu. Hafði Dulles hótgð því að allri dollaraaðstoð yrði hætt ef ekki væri orðið tryggt í aprílbyrjun að samningarnir um stofnun Vestur-Evrópuhers yrðu staðfestir. Manchester Guardian segir um þetta, að ekki sé viturlegt að hafa í frammi slíkar hótan- ir. Aðstæðurnar í Vestur- Evrópu geti breytzt svo á næstu mánuðum að Evrópu- hershugmyndin verði ófram- kvæmanleg í sinni núverandi mynd. Húsmœðrutn ber erlef Nefnd, sem norska stjórnin skipaði til að kynna sér þörf- ina fyrir og möguleikana á ár- legu orlofi húsmæðrum til handa hefur nú skilað áliti. Segir þar að ekki sé áhorfs- mál að húsmæðrum verði að tryggja orlof eins og öðru vinnandi fólki. 25 stiga frosí i Danmörku I Danmörku eru þessa dag- ana mestu kuldar á löngu ára- bili. Á stöku stað hefur frost- ið komizt upp í 20 til 25 stig og spáð er að enn eigi eftir að ikolna. í»brjótar eru teknir til starfa á siglingaleiðum um dönsku sundin. Stalín ræðir við sendiherra Argentínu Skýrt var frá því í Moskva í gær, að sendiherra Argentínu þar hefði gengið á fund Stalíns forsætisráðherra og rætt við hann. Vishinski utanríkisráð- herra var í fylgd með sendi- herranum. . 35 áskrifendur fvo fyrsfu dagana Fyrstu tvo dagana sem Þjóð- viljinn liefur verið 12 síður hafa lionum bætzt 35 nýir á- skrifendur. Áskrifendasöfnun er hins vegar ekki hafin enn; allir þessir nýju menn hafa tejálfir haft frumkvæði að því að panta blaðið. — Áskriftar- síininn er 7500. _ V. Góð giöf til Þióðviiians í fyrradag — daginn sem blað- ið stækkaði var Þjóðviljanum færð myndarleg gjöf. Stuðnings- menn blaðsins á Reykjalundi hafa gert lágborð, haglegan og vand- aðan grip, og var Þjóðviljanum fært það í fyrradag. Er til þess ætlazt að því verði komið í verð til ágóða fyrir stækkunarsjóðinn. Þjóðviljinn þakkar þessa ágætu gjöf og þann góða hug sem henni fylgir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.