Þjóðviljinn - 13.02.1953, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 13.02.1953, Blaðsíða 7
Föstudagur 13. febrúar 1953 — ÞJÖÐVILJINN — (7 Úr lífi alþýðuim&r Trollvnkt um Áramót HÉB keniur fyrsta verölauna- greinin- Úr lífi alþýöunnar, en fimm aðrar hafa borizt ogr koma þær áfram til álita í hvert sinn sem grein er valin. HÖFUNDUBINN Þorvaldur Steinason er fæddur 1907 að Narfastöðum í Borgarfirði og ólst þar upp. Hefur á fuilorð- insárum dvalið áðallega í Borg- arfirði, nú undanfarið á Akra- nesi. Var nokkur ár í Hvera- gerði og Beykjavík. Vann sveitavinnu fyrri hluta ævlnn- ar en verið við sjó um fimmtán ára skeið. Hefur skrifað grein- ar í Þjóðviljann og Dögmi (Akranesi). Eftir Þorvald Steinason „Ræs!“ Eg glaðvaknaðr við kall- ið, klukkan er sex á gaml- árskvöld 1952. Eg sef í stjórnborðsklefa niðri, sem hefur fengið nafnið Veðra- mót, ásamt fjórum félög um mínum á vakt annars stýrimanns. í bakborðs- klefa niðri, Villingaholti, búa tveir af vaktinni. í fremsta klefa niðn, Vælu- gerði, búa aðrir tveir, en i 'Klefanum' uppi, Vindhenn- um, eí enginn af rmnni vakt. Við klæðum okkur í flýti, þv: eftir hálftímia eigum við að vera mættir til vinnu. Aftur í borðsal ibíður okkar síðasta máltíð ársins, hangi- kjöt, svið og fleira góðgæti því Kiddi kokkur kann vei að búa til góðan miat. • Það var ys við borðið í matsalnum, glamur í hníf- um, göfflum og skeiðum Hávært samtal og köll til Inga annars kokks sem var á sífelldúm þönum milli borðsals og eldhúss eða búrs. Tveir hátalarar í borð salnum fluttu okkur aftan- sóng frá dómkirkjunm í Reykjavík. Meðan á máltíð stoð kom Eiríkur loftskeyta maður með nýársskeyti sem hann hafði tekið á móti til skipverja. Hann sagði okk- ur líka hverjir af þessari- vakt höfðu fengið kveðjur í útvarpi, því þær kveðjur voru lesnar meðan við vor- um í koju. Eftir matinn kom Kiddi með vindla handa öllum. En nú var ekki til langr- ar setu boðið að sinni, þvr trollið var á uppleið og kl. hálfsjö voru allir tilbúnir á sínum stað að leysa bóts- mannsvaktina af. Hátalar- inn aftan á hvalbaknum flutti aftansönginn út í næt urhúmið, en togvindan var í fullum gangi og hávaði hénnar blandaðist kirkju- tónunum svo úr varð einn •allsherjar glymur. Enda var um nóg annað að bugsa en það sem frá kirkjunni kom, því hér vorum við á fisk- veiðum en ekki í kirkju. Trollið var tekið inn og kastað aftur í snatri. Þegar trollið var komið í 'hafið var af skyndingu gengið að fisk- aðgerðinni og tók það skamma stund, því afli var fremur tregur. Tók þá einn trollvakt. Þegar engin vinna er á dekki er einn maður látinn standa til eftirlits við spilið að ekki renni út vírar, og einnig að slá úr blokkinni þegar upp er híft; hásetar standa þessa vakt til skiptis. Hinir fóru ann- aðhvort fram í setustofu há seta eða aftur í borðsal þar til næst yrði híft upp, sem Þorvaldur Steinason Sennilega yrði um hálfníu leytið. Tóku þá sumir í spil, aðrir lásu eða hlustuðu .á útvarpið. í setustofu var þnöngt mjög, því nú síðasta kvöld ársins fóru fáir af þeim, sem áttu frí, í koju. Aftur var híft upp, kast- að. aðgerð á ný og snap. Klukkan tæplega ell- efu var síðasta hífing og siðastá kast ársins. Afli var enn frekar tregur og aðgerð var búin klukkan hálftólf og trollvakt sett. Eg átti þessa trollvakt um árafnót- in. Það var unaðslegt veður. Ekki bærðist hár á höfði, þurrviðri og þó mjög hlýtt. Sjór var ládauður. Hátalar- inn við hvalbakinn þrum- aði. Úr brúnni heyrðist óm- ur frá hátalara. Úr vélar- rúmi bárust þung slög gufu vélarinnar. Togbotn var góður þar sem við vorum, svo það var næðissamt hjá trollvaktarmanninium. Eg stóð við brúarhornið stjórnborðsmegin. Viihjálm ur Þ. var farinn að flytja annál ársins 1952. Eg hiust- aði, en gat ekki fest hugann við það sem hann sagði. Hugurinn fór að reika. Mér varð hugsað heim, heim til konunnar minnar og barn- anna. Þetta var annað gaml árskvöldið sem ég var fjar- verandi síðan ég stofnaði heimili. Hvemig skvldi þeim líða? Nú var hann ekki lifandi, hann frændi minn sem skemmti beim síðasta gamlárskvöld. Hug- urinn reikaði viðar. Eg minntist gamlárskvölda, þegar ég var barn og trúði því að huldufólk og álfar flyttu sig búferlum á gaml- árskvöld. Það ei'u hugljúf- ar minningar tengdar við gamlárskvöldin í foreldra- húsum meðan ég var barn. Og víðar flaug hugurinn. Gamlárskvöld austur í Hveragerði þegar ég var einn í herbergi mínu allt kvöldið. . Gamlárskvöldið í Reykjavík þegar ég fékk ekki mat í mátsöluhúsinu, sem ég borðaði af því ég gat ekki komið í matinn fyrir klukkan sex. Gaml- árskvöldið síðasta hér um borð, þá nýkominn á skipið. Og hugurinn reikaði víðar. En nú hljómaði frá há- talaranum sálmurinn ,Nú árið er liðið“. Og nú byrja kirkjuklukkurnar að hringja inn nýja árið. — Hvellt flautuhljóð heyrist aftan úr stjórnborðsgangi. Þar er Alli næturkokkur að tilkynna „ræs“. Árið er liðið, ár stórra tíðinda. Ár gleði og sorga. Nýtt ár er runnið. Hvað flytur það okkur? Flytur það með sér gæfu og frið? Flytur þetta nýbyrjaða ár frið yfir heiminn eða hitn- ar hið kalda strið svo upp úr sjóði? Færir þetta ný- byrjaða ár okkur sjómönn- unum afla og fé? Færir bað okkur hagsæld og ham- ingjiu? Þeim, spurningum reyndi ég ekki að svara. Og enn flugu spurningar um huga mér. „Gleðilegt nýtt ár og pökk fyrir það gamla,“ er sagt hressilega við hlið mér. — Ávarpinu fylgir útrétt hönd eins af eldri mönnum báts- mannsvaktarinnar, við tók- umst í hendur og ég svar- aði með sömu orðum. — Gamli sjómaðurinn vinnu- lúni heldur áfram aftur í borðsal í miðnæturkaffið og svo til vinnu á dekki á nýársnótt 1953. Nú koma þeir hver af öðrum félag- arnir af bátsmannsvakt- inni. Við óskum hverjir öðr um góðs árs og þökkum Framhald á 11. síðu Verið á verði Dcsgsbrúnarmenn I hvert sinn sem kosin er stjórn í Verkamannafél. Dagsbrún setur auðvaldið á svið átafcanlegan leik, og leikararnir í aðalhlutverk- unum eru alltaf verkamenn sem eru á hverjum tíma oft nýkomnir í félagið, eða menn sem aldrei hafa tekið minnsta þátt í félagsstarfi áður, jafnvel hafa varla komið á fundi þess fyrr en þeir fá svo mikinn brenn- andi áhuga á félagsmálum Dagsibrúnar, að ef þeir eru ekki kosnir í stjórn félags- ins, 'þá muni það líða undir lok og verkalýður Rvíkur, sem Dagsbrún skipar ætti sér ekkert félagslegt athvarf að þeirra dómi. Það bregzt ekkí að menn þessir eru flugumenn í verkalýðs- hreyfingunni, þeir eru keyptir til iþessara verka af þríflokkum auðvaldsins. af því að þeir eru fáfróðir um eðli og hlutverk verkalýðs- hreyfingarinnar. Sjálfsmat þeirra er rangt, og sjálfs- elska er þeirra leiðarl jós.. Þeir búast við því að ef þeimi tækist að færa auð- valdsflokkunum höfuðvígi verkalýðsins, Dagsbrun, þetta vígi sem hefur verið varið svo vel og drengilega síðasta áratuginn af samein- ingarmönnum, þá muni þeir fá ríflega dýrtíðarupp- bót á hina þrjátíu silfur- peninga. Þessir leiktrúðar þríflokk- anna hafa flestir skilað hlut verki sínu svo illa, að þeir hafa fæstir unnið það traust húsbænda sinna, að þeim væri trúað fyrir hlutverk- inu oftar en einu sinni. — Skömmin hefur verið þeirra fylgikona hvert árið eftir annað, og eftirtekjan jafn- an verið fyrirlitning þeirra sem sendu þá, ekki síður en hjá þéim verkalýð sem þeir áttu að svíkja. Á hverjum vetri þegar fer að líða að kosningum í Dagsbrún, fer öll auðvalds- fylkingin á hreyfingu til að útsjá nýja menn í hlutvenk- in, ef þeir skyldu duga bet- ur en þeir í fyrra eða árin þar áður. Búa til nýjar lvga sögur um þá menn sem skipað hasfa stjórn Dags£ brúnar, menn sem njóta trausts alls þorra Dagsbrún- armanna, af öllum flokkum, enda hafa þeir aldrei brugð- izt því trausti, en auðvalds- flokkarnir hafa aldrei átt neitt í þeim og munu aldréi fá þá keypta. Þessa menn geta auðvalds- flokkarnir aldrei orðið á- nægðir með, því meðan þeirra nýtur við 1 stjórn Framhald á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.