Þjóðviljinn - 10.03.1953, Blaðsíða 1
Þriðjudagur
árgangur — 57. töiublað
Stefán Jóhann Stefánsson markar stefnuna á aðalfundi Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur:
Innlendan her og fjöl-
mennara erlent herlið
Byggnstu uiiiiioðsinenn Bandarikjanna eru
fyrstir vaftdir tift frainhoðs ftijá ilokknum
Á aðalfundi Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur í fyrradag var
stefna flokksins í sjálfstæðismálum enn einu sinni mörkuð af Stefáni
Jóhanni Stefánssyni, en hann er sem kunnugt er formaður þingflokks
Alþýðuflokksins, fulltrúi flokksins í utanríkismálanefnd og raun-
verulegur formaður flokksins. Flutti Stefán nær klukkutíma ræðu
um hernámið og stofnun innlends hers og var ræðu hans ákaft
fagnað á fundinum.
Stefán Jóhann lýsti
yfir því 1 ræðu sinni að
öll andstaða við hernám-
ið og afleiðingar þess
væri runnin undan rifj-
um kommúnista. Þing-
menn Alþýðuflokksins
hefðu allir sem einn
staðið að hernáminu
1951 og Alþýðuflokkn-
nm bæri að fylkja sér
um þá stefnu nú af enn
meira kappi en nokkru
sinni fyrr. Það væri
helzt við hernámið að
athuga að erlendi her-
inn væri of fámennur;
og væri knýjandi þörf
„af öryggisástæðum“ að
fjölgað yrði að mun í
honum. Einnig þyrfti að
styðja hernámsliðið til
þess að hefja sem fyrst
stórframkvæmdir þær
sem nú eru á döfinni.
Þá. vék Stefán að hug-
myndinni um stofnun
innlends hers. Sagðist
hann telja það alveg
sjálfsagða hugmynd að
íslendingar tækju þátt í
„vörnum landsins“ og
bæri Alþýðuflokknum
að beita sér fyrir því.
Allt þetta mál kryddaði
Stefán með harðvítugum
ummælum um komm-
únista og Rússa og sá þá
í hverju horni. Talaði
hann af miklum belg-
ingi, eins og sá sem
valdið hefur — enda hef-
ur hann nú þegar tryggt
sér öll völd í flokknum
þrátt fyrir hina grátbros-
legu atburði sem gerð-
ust ó flokksþinginu í
haust.
Nu á ekki að dyliast
Þessi fitefnuyfirlýsing Stefáns
Jóhanns Stefánssonar er iþeim
mun athyglisverðari sem Alþýðu-
flokkurinn og Alþýðublaðið hafa
undanfarið reynt að halda fram
andstöðu við stofnun innlends
hers. Var það ætlun Hanníbals
að taka upp sama leikinn og
fiokkurinn hefur leikið við tvenn-
ar undanfarnar kosningar. Fyrir
kosningamar 1946 var hengdur
borði utan á Alþýðuhúsið með
áletruninni: „Kjósið á móti afsali
íslenzkra landsréttinda' — xA“.
En eftir kosnin-garnar tók Al-
þýðuflokkurinn fyllsta þátt í af-
sali íslenzkra landsréttinda. Fvr-
ir kosningar 1949 sóru svo bæði
Gylfi og Hanníbal að aldrei
rnyndu þeir sætta sig við erlent
hemám, — bg samþykktu það
svo báðir vorið 1951. Nú átti að
reyna þetta einu sinni etin, en
Stefán Jóhann telur hagkvæm-
ara að ganga beint að hlutun-
um að þessu sinni; og hefur ef-
laust fengið um það fyrirmæli
frá erlendum yfirboðurum sin-
aim.
Bandaiísk framboð
Og auðvitað veit Stefán Jó-
hann hvað hann er að fara. Al-
þýðuflokkurinn hefur nú ákveð-
ið þrjú framboð. Benedikt Grön-
dal á að verða í kjöri í Borgar-
fjarðarsýslu, en hann er og hef-
ur ævinlega verið þægur um-
'boðsmaður bandarískrar ásælni
hér á landi, og er auk þess einn
af starfsmönnum og umboðs-
mönnum Vilhjálms Þórs. í
Hafnarfirði verður í kjöri Emil
Jónsson, en hann var einn af
þremenningunum sem flugu
vestur um haf 1949 til að Undir-
búa þátttöku fslands í Atianz-
hafsbandalaginu og hernám
landsins, og han í er einn af
þeim mönnum sem Bandaríkja-
metm treysta bezt hér á land. í
þriðja lagi hefur svo framboð
Guðmundar f. Guðmundssonar
verið ákveðið í Gúllbrkngu- og
Kjósarsýslu, en hann er einn af
meðlimum „varna: nálanefndar"
sem á að try.ggja sem bezt hags-
muni Bandaríkjanna við allar
framkvæmdir. Þetta erú þau
framboð sem enn hafa verið til-
kynnt hjá Alþýðuflokknum, og
þau sýna eins glöggt og kostur
er, hver er stefna flokksins og
hvernig hann ætlar sér að
vinna að kosningum loknum.
Ýmsir gerðu sér nokkrar von-
ir um breytingu til batnaðar á
Aiþýðuflokknum eftir atburðina
á flokksþinginu í haust. Allar
þær vonir hafa nú gersamlega
brugðizt. Flokkurinn heldur ríg-
fast við afturhaldsstefnu síi
Stefán Jólianu
og Bandaríkjadekur og Stefán
Jóhann ræður öllu sem hann
vill. Og Hanníbal Valdimarsson
stendur í sömu sporunum og
1951, þegar hann lét kalla sig
til Reykjavíkur á leynifundi til
að samþykkja það hernám sem
hann hafði heitstrengt að berj-
ast í móti.
500 áskrifendur —
500 hækkunargjöld
Eftir aö I*jóðviljimi stiekk-
aði er liann kominn mer
því marki að verða heimil-
isblað. Það er hægt að
fylffjast með því sem ger-
ist bmanlands og titaii
með því að lesa Þjóðvllj-
ann elnan. En það getur
enginn lylg/.t með því sem
gerlst, án þess að lesa Þjóð-
viljann — þótt menn lesi
heriiámsblöðin öll fá þeir
aðeins sania gutl í sama
nóa. Enda bætast nú við
áskrifendur á hverjum degi.
lausasalan eykst og fleiri
og fleiri greiða hækkunar-
gjöld.
En Þjóðviljinn getur ekki
stækkað til frambúðar án
þess að 500 nýir áskrifend-
ur bætist við og 500 grelði
hækkunargjöld. Þeim mörk-
um verður að ná sem allra
fyrst, og það er auðvelt að
ná þeim uú, ef nægUega
margir taka til starfa. Ger-
um þá sókn jafn glæsUega
og söfnunina í stækkunar-
sjóðinn.
Prokoféff
látinn
Á sunnudaginn lézt í Moskva
rússneska tónskáldið Sergei Pro-
koféff, 62 ára að aldri. Prokoféff
var talinn meðal mestu tónskálda
þessarar aldar. Hann samdi marg-
ar óperur og balletttónlist, fiinm
sinfóníur, þrjár kantötur og átta
konserta. Auk þess samdi hann
tónlist við margar kvikmyndir.
Verk hans voru ieikin um allan
heim og hann átti mikltim viu-
sældum að fagna, bæðl í heima-
landi sínu og á Vesturlönduni.
KINVERSKA stúlkan Li Meng,
sem dómstóll á Malakkaskaga
dæmdi til dauða, hefur verið náð-
uð og dómnum breytt í ævilangt
fangelsi.
Grafhýsi Leníns á Rauða torginu.
Stalín var lagður til hinztu
hvíldar við hlið Leníns í gær
nVertu sœll kennarí okkar og leiStogí,
kœri vinur og góSi félagi!"
Útför Jósefs Stalíns fór fram í gær í Moskvu með mikilli
viðhöfn og aö viöstöddum hundruðum þúsunda manna.
Kista hans var flutt úr húsi verkalýðsfélaganna, þar sem
hún hefur staöið undanfarna daga, í guafhýsi Leníns á
Rauöa torginu.
I gærmorgun snemma tóku
helztu leiðtogar Kommúnista-
flokks Sovétríkjanna og ráð-
herrar sér stöðn við líkbörur
Stalíns í húsi verkalýðsfélag-
anna og stóðu þar síðasta heið-
ursvörðinn.
Kl. 10 mínútur yfir 10 eftir
Moskvatíma lyftu nánustu
samstarfsmenn Stalíns kistu
hans af börunum og bábu
hana útá fallbyssuvagn. Þegar
kistu Stalins var IjJt af bör-
unum var skotið af fallbyss-
um í öllum borgiun Sovétríkj-
anna, skipslúðrar þeyttir og
blásið í verksmiðjuflautur. Öll
vinna stöðvaðist og tveggja
mínútna þögn ríkti um gervöll
Sovétríkin.
Hljómsveit lék sorgargöngu-
lag Chopins og líkfylgdin lagði
af stað áleiðis til grafhýsis
Leníns á rauða torginu. Mal-
énkoff, eftirmaður Stalíns sem
forsætisráðherra Sovétríkjanna.
gekk næstur líkvagninum, á
aðra hönd hans gekk Bería
varaforsætisráðherra og á hina
Framhald á 3. síðu.