Þjóðviljinn - 21.03.1953, Side 1
Laugardagur 21. marz 1953 — 18. árgangur — 67. tölublað
FoEseti Tékkóslóvakíu
kosinn í dag
Tilkynnt vár í Praha í gær
að þing Tékkóslóvakíu muni í
dag koma saman til ,að kjósa
landinu nýjan forseta í stað
Klement Gottwalds, sem jarð-
aður var í fyrradag. .
Aldrei verður fallið frá
kröfunni til handritanna
Fjölmennur fundur Stúdentafélags Reykjavíkur sam-
þykkti í gær einróma eftirfarandi tillögu:
„Almennur fundur í Stúdentá
félagi Reykjavíkur haldinn í
í Tjarnarbíó föstudaginn 20.
marz 1953, skorar á ríkisstjórn
ina að beita sér af alefli fyrir
þ\i að Danir skili sem allra
fyrst íslenzkum handritum og
skjölum, sem geymd eru í Dan-
mörku og leita hinna heppileg-
ustu ráða til þess að tryggja
þessa lausn málsins. Enn-
fremur skorar fundurinn á alja
þá aðila, sem til þess hafa að-
stöðu að beita sér fyrir því að
þess'u fáist framgengt.
Jafnframt því að fundurinn
áréttar fyrri kröfur íslenzkra
stúdenta og íslenzku þjóðarinn-
ar í heild til allra íslenzkra
handrita og skjala í Danmörku,
lýsir hann yfir þ\í að íslenzkir
stúdentar munu aldrei falla frá
kröfu sinni til þeirra og er þess
fullviss, að þjóðin öll sé sam-
mála um það.“
Fundur stúdentanna var fjöl-
mennur. Gísli Sveinsson, fyrrv.
sendiherra, var frummælandi og
hélt fram lagalegum rétti ís-
lendinga til handritanna og
rakti gang baráttunnar fyrir
endurheimt þeirra. Alexander
Jóhannesson háskólarektor kvað
framkomu Dana í handritamál
inu vera einn þáttinn í þeirri
lítilsvirðingu, sem þeir. ævinlega
Kærðir fyrir
verkfall
Norsk yfirvöld hafa höfðað
mál gegn 95 langferðabílstjór-
um í Stafangri. Er þeim gefið
að sök að hafa gert ólöglegt
verkfall. Verkfall langleiðabíl-
stjóra er víða algert..
hefðu sýnt íslendingum. Einar
Ól. Sveinsson prófessor ræddi
afstöðu Kaupmannahafnarhá-
skóla, sem var á móti afhendingu
handritanna — með litlum at-
kvæðamun þó. Sagði próf. Einar
að baráttan fyrir endurheimt
handritanna myndi e. t. v. taka
áratugi, en frá henni yrði aldrei
hvikað fyrr en fuliur sigur væri
unninn.
¥fír 1000 férusft í
jarískjálfta
Tjón af Völdum jarð-
skjálftanna í Tyrldandi á
miðvikudaginn hefur reynzt
Iangtum meira en ætlað var
í fyrstu. Fundizt hafa þeg-
ar 280 lík og búizt er við
að tala þeirra, sem biðu
bana undir húsarústum fari
yfir 1000 þegar öll kurl
koma til grafar. Hvert ein-
asta hús hefur hrunið í sum
um bæjum á austurströnd
Hellusunds og Marmarahafs.
V
urma
Bandaríkjamenn hafa æft og vopnaS her Sjang Kai-
séks, sem nú herjar í Burma nálægt landmærum Kína.
Ba Sve, landvamaráðherra
Burma, hefur skýrt frá því að
stjórn hans hafi „óhrekjandi
sannanir" fyrir því að Banda
ríkjamenn hafi tekið virkan þátt
í að þjálfa og þirgja að vopn-
um þann 12.000 manna her, sem
nú hefst við í landamærahéruð-
•um Burma og Kína. Liðið flúði
inn í Burma fyrir þrem árum
undan kínverska alþýðuhernum.
Upp á síðkastið hefur þessi
liðsafli gerzt ærið umsvifamikill,
herjað ium æ stærri svæði og
gert Burmabúum þungar búsifj-
ar. Er talið að herinn hafi feng-
ið fyrirmæli um það frá Sjang
Kaisék að vera viðbúinn að
reyna að ráðast inn í Júnnan,
suðvesturhérað Kína. Vopn hafa
sveitunum borizt með flugvélum
beint frá Taivan og landveg yf-
ir Tailand.
Ekki vildi Ba Sve fullyrða að
Giæsileg frammistaða íslenzku sfúd-
eutanna í Briisse!
íslenzku stúdentarnir 4 sem keppa á alþjóðlegu skákmóti stúd-
enta í Brússel þessa dagana hafa staðið sig glæsilega í þrem
fyrstu umferðun'um: unnið Frakka og Finna og gert jafn-
tefli við Svía.
f fyrstu umferðinni (gegn
Svíum) vann Guðmundur Pálma
son Ljungkvist, Þórir Ólafsson
vann Gumelius, en Alenius vann
Jón Einarsson og Staff vann
Guðjón Sigurkarlsson. f annarri
umferð tefldu íslendingarnir við
Frakka og unnu á öllum borð-
•um. f þriðju umferð tefldu þeir
við Finna og unnu með tveimur
og hálfum gegn einum og hálf-
um. Þórir og Jóri unnu and-
stæðinga sína og Guðmundur
gerði jafntefli.
Framleiðsluaukxiing-
in jskvggileg' í Sovét
segir Ismay lávarður, framkvæmda"
stjóri Atlanzhafsbandalagsins ,
Ismay lávarður, hinn brezki framkvæmdastjóri A-
bandalagsins, hefur komizt svo að orði að aukning fram-
leiðslugetu iðnaðar Sovétríkjanna sé „ískyggilegur“.
Ba Sve.
Bandaríkjamennirnir, sem þarna
væru að verki, störfuðu með vit-
und og vilja Bandaríkjastjórnar.
Burmastjórn leggúr allt kapp á
að halda sér utan við milliríkja-
deilur, en þó hefur U Nú for-
sætisráðherra boðað að atferli
hers Sjang Kaiséks verði kært
fyrir SÞ.
1 klúbb blaðamanna í Was-
hington sagði Ismay í ræðu, að
með sama áframhaldi og síð-
ustu ár myndi framleiðslugeta
iðnaðar
Sovétríkj-
anna verða
komin fram
úr fram-
leiðslugetu 7
helztu iðnað-
arlanda Vest
ur-Evrópu
samanlagðri
fyrir 1960.
Framleiðslu-
aukningin í Sovétríkjunum væri
stöðug og langtum örari en í
Vestur-Evrópu. Kvaðst Ismay
álíta það skyldu sína að vara
menn við að hverju stefndi og
benda þeim á, hver hætta hér
væri á ferðum.
Ismay svaraði spurningum
blaðamanna eftir að hann hafði
lokið ræðu sinni. Hann kvað
það „mjög æskilegt“ að skipað-
ur yrði einn yfirmaður yfir sál-
ISMAY
rænan hernað A-bandalagsríkj-
anna en kvaðst efast mjög um
að fáanlegt væri samkomulag
um slíkan áróðursstjóra og því
síður um áróðurinn sjálfan.
Ekki sagðist Ismay álíta að það
myndi verða A-bandalaginu
banabiti þótt fyrirætlunin um
stofnun Vestur-Evrópuhers
færi út um þúfur.
Osearverð-
laun veltt
Úthlutað hefur verið banda-
rísku Oscarverðlaununum fyrir
beztu kvikmyndaafrek á liðna
árinu. Gary Cooper var kjör-
inn bezti leiitarinn fyrir leik
sinn í High Noon, John Ford
bezti leikstjórinn fyrir sömu
mynd og brezka myndin The
Lavender Hill Mob fékk verð-
laun fyrir bezta kvikmynda-
handrit.
Guðjón.
Guðmundur.
Jón Ein.
Þórir.
Englendingar reyna að
steypa Mossadegh
Iransstjórn kreíst að Irakstjórn taki íyr-
ir slíkt atferli
Ríkisstjórn Iran segir að Bretar reki undiróður og
njómir gegn sér frá stöðvum í Irak.
Hussein Fatemi, utanríkisráð-
herra stjórnar Mossadegh í ír-
an, hefur skýrt frá því að stjórn
írak hafi verið send orðsending
og þess krafizt að tekið verði
fyrir njósnir og undirróður Breta
frá írak. Sagði Fatemi munn-
legar umkvartanir hafa reynzt
árangurslausar.
Fatemi sakaði Bretann R.
Jackson majór, annan ritara
sendiráðs Breta í írak, um að
hann stjórni njósnum og undir-
róðri í íran frá Bagdad. Hefði
hann samband við stöðvar á
landamærum ríkjanna og frá
þeim væri síðan undirróðurs-
mönnum og njósnurum stjórnað.
í útvarpsræðu í gær lýsti
Mossadegh forsætisráðherra yfir
að í.ransstjóm hafnaði mánaðar-
gömlum tillögum Breta um lausn
olíudeilunnar, sem bornar voru
fram fyrir milligöngu B.anda-
ríkjamanna.
uppseldur
Það gengur betur og betur
með Landnemann eftir breyt-
inguna sem gerð var á útkomu
hans. Kom þriðja tbl. hans út
í gær, og var blaðið uppselt
hjá forlaginu um fimmleytið.
Var þá enn ógengið frá blöð-
um til kaujpenda á Akureyri og
Siglufirði, og var því blaðið
aftur sett í pressuna í gær-
kvöldi. Er þetta raunar engin
furða, því undir ritstjórn Jón-
asar Árnasonar er Landneminn
langsnjallasta áeskulýðsblað er
nokkurn tíma hefur komið út
hér á landi, og kemur þar eng-
inn samanburður til greina. i
þessu tbl. var annars sagt frá
hernámsstöðinni í Keflavík
meðal annars, grein um kvik-
myndir, og ótal margt annað
sem æskufólk lætur sig varða.
ViMur lil að
varna árástrum
Sjúíkoff, hernámsstjóri Sov-
étríkjanna í Þýzkalandi, hefur
boðið Kirkpatric, hernáms-
stjóra Breta, að senda fulltrúa;
til viðræðna um ráðstafanir til
að hindra að atburðir eins og
viðureign sovétorustuflugvéla
og • brezkrar sprengjuflugvélar
á dögunum endurtaki sig. Einn-
ig lætur Sjúíkoff í Ijós hryggð
sína yfir dauða áhafnar brezku.
vélarinnar, sem skotin var nið-
ur.
Malenkoff lætur af
embætti aðalritara
Útvarpið í Moskva skýrði
f rá því í gær að Georgi Mal-
énkoff forsætisráðherra
hefði að eigin ósk verið
Iej’stur frá starfi aðalritara
miðstjórnar Kommúnista-
flokks Sovétríkjanna.