Þjóðviljinn - 21.03.1953, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 21.03.1953, Blaðsíða 12
í dag ltl. 2 fer fram í Vestmannaeyjum minningar- athöfn um sjómennina fimm, sem fórust með v.b. Guðrún 23. febr. sl. og jafnframt útför þeirra tveggja sem fundust, þeirra Guðna Itósmundssonar stýrimanns og Krlistins Aðalsteinssonar matsveins. Þeir sem fórust með vb. Guð- rúnu 23. febr. s. 1. voru: Óskar Eyjólfsson, skipstjóri, TJrðum, Vestmannaeyjum, 36 ára. Guðni Rósmundsson stýrimaA- ur, Vestmannaeyjum, 26 ára. Kristinn Aðalsteinsson, mat- sveinn, 23 ára, fluttur til Vest- mannaeyja frá Reykjavík. Elías Hinriksson háseti, 33 ára, Vestmannaeyjum. Sigþór Guðnason háseti, 27 ára, fluttur til Vestmannaeyja frá SiglUfirði. Allir voru sjómennirnir kvænt- ir og áttu 1 barn eða fleiri. V.b. Guðrún, við hafnarmynnið í Vestmannaeyjum. Báturinn var 49 smálestir, smiðaður 1943. Stöðugar ógœftir í Eyjum Vestmánnaeyjum. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Ekki hefur verið hægt að róa nema dag og dag síðan seint í Hvenær opnar Bæjarbókasafnið? Sigurður Guðgeirsson vakti máls á því á bæjarstjórnarfundi í fyrrad. að nær ár er liðið frá því Bæjarbókasafninu var lokað, bókunum pakkað niður í kassa til geymslu. Spurði hann borgar- stjóra hvenær mætti vænta Þess að bæjarbúar fengju aðgang að safninu aftur. Borgarstjóri svaraði því ,að þegar húsið í Þingholtsstrætinu var keypt fyrir bæjarbókasafnið hafi verið hafinn undirbúningur þess að koma þvi þar fyrir. Stæðu vonir til að hægt væri ,að flytja safnið í það með vor- inu. Ný bókabiið á Akureyri Akureyri. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Fréttamönnum var í gær boð- ið að skoða bókabúð er Prent- verk Odds Björnssonar opnar í dag í Hafnarstræti 100 þar sem áður var bókaverzlun Pálma heitins H. Jónssonar (Bókaverzl- un Akureyrar). Miklar breytingar hafa verið gerðar á húsnæðinu og mun verzlunin nú vera með glæsileg- ustu bókabúðum á iandinu. Inn- réttingu annaðist húsgagnavinnu stofan Valbjörg. Prentverk Odds Björnssonar er með þeim fáu fyrirtækjum sem hafa allt i senn: bókaprént- un, bókband, útgáfustarfsemi og bókasölu, og er ekki kunnugt um annað slíkt fyrirtæki utan Reykjavíkur. febrúar, því alltaf hefur verið stórsjór og stundum vitlaust veð- ur. Sjór er nú fullur af loðnu, og þeir sem beita loðnu, þá sjaldan að gefur, afla sæmilega, en ekk- ert veiðist í netin. Hér er því engin atvinna, en mikill fjöldi aðkomumanna, sem alls ekki hefur unnið fyrir fæð- inu, og liorfir til stórvandræða fyrir þetta fólk sérstaklega. Kvlkmyndir um uppeídi Barnaverndarfélag Reykja- víkur er nú um það bil að hefja nýstárlegt fræðslustarf um uppeldi, fyrir milligöagu menntamálaráðuneytisins hefur félagið fengið nokkrar fræðslu- tkvikmyndir frá Sameinuðu þjóðunum um uppeldi barna, einkum afbrigðilegra. Býst fé- lagið við að sýna myndir þess- ar á fundum sínum, fyrst á mánudaginn kemur og síðar á fleiri fundum. Nokkrir menn hafa þegar skoðað myndirnar og þykja þæi’ eftirtektarverðar og nýstárlegar, og sýning þeirra nýjung í uppeldismálum hér á landi. Myndirnar munu verða sýndar á vegum barna- verndarfélaga utan Reykjavík- ur eftir því sem við verður kom ið. Bjarni Ásgeirsson var íulltrúi íslands í Praha Sendiherra . íslands í Tékkó- slóvakíu, Bjarni Ásgeirsson, var viðstaddur fyrir íslands hönd út- för Klement Gottwald forseta, Utanríkisráðuneytið, Reykjavík 19. marz 1953. HJóÐviumN Laúgárdagur 21. marz 1953 — 18. árgangur — 67. tölublað Áí@%gisvam&neínd kvQima: M á „tómstundakvöldiim kvenna" Aðalfundur í Áfengisvarnanefnd kvenna í Reykjavík og Hafn- arfirði, var haldinn 27. febrúar. Á árinu voru haldair 3 fulltrúa- fundir og 11 stjórnarfundir. Óskar Guðni Eyjólfsson. Rósmundsson. Kristinn Elías Aðalsteinsson. Hinriksson. Sigþór Guðnason. Of há staða fyrir houu! Á fundi Öryggisráðsins 1 fyrradag voru greidd atkvæði um frú Laksmi Pandit, fulltrúa Indlands, í stöðu aðalritara SÞ. Fékk hún tvö atkv. eitt var greitt á móti henni en átta skiluðu auðu. Ekki mun þetta litla fylgi stafa af pólitískum á. stæðum heldur er mikil and- staða gegn því að kona skipi svona mikla virðingarstöðu. Norskur styrkur til verkíræðináms Verkfræðiháskólinn í Niðar- ósi (Norges Tekniske Högskole, Trondheim) mun veita ísl- lenzkum stúdent skólavist á hausti komanda. Þeir, sem kynnu að vilja koma til greina sendi menntamálaráðuaeytinu umsókn um það fyrir 20. apríl n.k. og láti fylgja afrit af skírteini um stúdentspróf, með- mæli, ef til eru og upplýsingar um nám og störf að loknu stúd- entsprófi. Við stækkunina fæst rými fyrir 50 vistmenn til viðbótar og verður þá rúm fyrir sam- tals 350 vistmenn á elliheim- ilinu. Forstjóri elliheimilisins, Gísli Sigurbjömsson hefur fyrir nokkru sent bæjarstjóm áætlun . |Nefndin opnaði skiSifstofu í okí^beys sS,. I. á Njálsgötu 112, þar sem tekið hefur verið á móti fólki og veitt aðstoð og hjálp þeim, er til hennar hafa leitað. Sömuleiðis hefur nefndin nú, eins og undanfarið haft sam- starf með kvenfélögunum úti um land um áfengismál og hvatt konur til að vera á verði og fylgjast vel með gangi þeirra mála. Átta sérstakar áfengis- varnarnefndir kvenna eru starf- andi úti um land. Á vegum nefndarinnar ásamt Þingstúku Reykjavíkur hafa verið haldin „Tómstundakvöld kvenna“, sem byrjað var á í fyrra. Hafa þau verið mjpg vinsæl og vel sótt. Á Upplýsingamálaráðherrann í ríkisstjórn Naguibs í Egyptalandi skýrði frá því í fyrrad. að Jeffer son Caffrey, sendiherra Banda- ríkjanna í Kairó, hefði verið látinn vita að egypzka ríkisstjórn in kærði sig ekki um að hann tæki neinn þátt í samningunum við Breta, sem nú eru að hefj- I fölu grasi Ný Ijóðabók eítir Jón Jóhannesson Heimskringla hefur nýlega gef- ið út ljóðabókina í fölu grasi, eftir Jón Jóhannesson. Er hún röskar 100 blaðsíður á lengd, og inniheldur 53 kvæði. Jón Jóhannesson. mun fyrst hafa orðið kunnur sem skáld af kvæði sínu Stríðsgróði vor, er birtist í Helgafelli sáluga 1944 eða 1945. Síðan hefur hann birt mörg kvæði sín í blöðum og tímaritum, og er löngu kunnur sem einn af merkari ljóðhöfund- um okkar. Það var því mál til komið að gefið væri út eitthvað af ljóðum hans, og bera Heims- kringlu þakkir fyrir frumkvæði sitt. Væntanlega verður sagt nán ar frá bókinni hér í blaðinu inn- an skamms. um að byggja nýja álmu á ellheimilið og sé áætlaður kostn aður 2 millj. kr. Mæltist Gísli til að bærinn legði fram helm- ing upphæðarinnar. Bæjar- stjóm samþ. það í fyrradag og greiðist helmingur af framlagi bæjarins á árinu 1954 en hinn helmingurinn 1955. þessu ári hafa um 600 konur verið þar . gestir. Nefndin fagnar því, að hjálp- arstöð sú, er Reykjavíkurbær hefur sett á stofn, er tekin til starfa. Hefur það alltaf verið sérstakt áhugamál hennar frá byrjun, að slík stofnun væri til og mun nefndin hafa samslarf við hjálparstöðina. Stjórn félagsins skipa eftir- italdar konur: Formaður frú Viktoría Bjarnadóttir, varafor- maður frú Jóhanna Egilsdóttir, gjaldkeri frú Guðlaug Narfadótt- ir, ritari frú Sigríður Bjöms- dóttir, meðstjórnendur fríi Aðal- björg Sigurðardóttir og frú Þór- anna Símonardóttir. ast. Egypzka stjórnin gerir þá kröfu að setulið Breta verði flutt á brott af Súeseiði. Egypzk stjómarvöld segja að Bretar hafi stungið upp á því að bandaríski sendiherrann fylgdist með samningunum. Er álitið að utanríkisráðherrar Bandaríkj- anna og Bretlands hafi komið sér saman um þá tilhögun samn- inganna við Egypta þegar þeir ræddust við fyrir skömmu. Caffrey sendiherra lét í fyrrad. frá sér fara yfirlýsingu, þar sem hann fullvissar Egypta um það að hann ætli alls ekki að taka þátt í samningum þeirra við Breta nema hann verði beðinn um það. Búkarestmótið 162 }egar skráðir Fundur var haldinn í gær með þeim, sem ætla að sækja alþjóða æskulýðsmótið í Búkarest í sumar. Hafa nú alls 162 menh tilkynnt þátttöku og enn er vitað um marga, sem eiga eftir að skrá sig. Má búast við að fá verði sérstakt farþegaskip til að flytja hópinn. Mikill áhugi ríkti á fundinum og var ákveðin þátttaka í mörg- um dagskrárliðum á mótinu. — Kosin var 17 manna undirbún- ingsnefnd og auk þess 5 manna framkvæmdanefnd. Námaslys á Svalbarða Gassprenging varð í fyrradag í Kingsbay kolanámunni á Svalbarða og fórust 19 norskir námumenn. I sömu námu urðu. sprengingar 15 mönnum að bana í fyrra. Grund stæhhuð á næstu árum Bæjarstjórn samþ. í fyrradag að leggja fram 1 millj. kr. til stækkunar elliheimilisins Grundar, en við þá stækkun fæst nýtt rými fyrir 50 vistmenn. Egyptar hafna afskiptum USA af samningum um Súes Egypzka stjórnin vill ekkert hafa meö nein afskipti Bandaríkjamanna af samningum hennar við Breta. ■S

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.